Morgunblaðið - 27.06.1980, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 27.06.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ1980 39 Íslandsglíman á íþróttapall- inum. Jón Þorsteinsson íþróttakenn- ari var einn þeirra manna er komu við sögu íþrótta- og leik- fimisýninga á Alþingishátíð- inni. Stjórnaði hann úrvals- flokki iþróttamanna úr Ár- manni er valinn var til að sýna. sá um íslandsglimuna og æfði hóp fyrir leikfimisýningu. —Þetta voru svo miklir íþróttamenn, sem stóðu að skipulagningu hátíðahaldanna og miklir ungmennafélagsmenn að þeir vildu endilega hafa sem mest af íþróttum á hátíðinni, lagt stund á leikfimikennslu í ein 8 ár: —Auðvitað var þetta frum- raun á vissan hátt, því þetta var meiri sýning en við höfðum áður tekið þátt í. Á þessum árum æfði ég annars mest glímumenn fyrir utan venjulega leikfimi, en frjálsar íþróttir lítið. Jón sagði það hafa verið sér mikið gleðiefni þegar ákveðið var að velja flokk Ármanns, sem hann þá þjálfaði, til að láta sýna á Þingvöllum: — Félögin æfðu mikið um Jón Þorsteinsson íþrótta- kennari. Miklir íþróttamenn sem skipulögðu hátíðina sagði Jón Þorsteinsson er blaða- maður ræddi stuttlega við hann þar sem hann var við störf í íþróttahúsinu við Lindargötuna í Reykjavík er ber nafn hans. — Þegar hin ýmsu atriði íþrótt- anna höfðu verið ákveðin og skipulögð komu þeir stundum á æfingar til að sjá hvernig gengi, en það var metnaður allra, bæði í nefndinni og okkar sem þjálf- uðum piltana, að undirbúa allt sem best og enginn vildi láta sinn hlut eftir liggja. Þetta var spennandi hátíð hjá fólki, hér var eitthvað stórkostlegt á ferð- inni, sem enginn hafði áður tekið þátt í og gaman var að vinna að. Sýningarnar á Þingvöllum voru ekki algjörlega frumraun Jóns, því hann hafði farið utan með hópa til að sýna m.a. á Norðurlöndunum, en hann hafði veturinn og undir vor fór fram keppni þar sem ákveða skyldi hvert þeirra yrði fyrir valinu og leikar fóru þannig að Ármann varð hlutskarpastur. Við höfðum fastan æfingartíma þrisvar í viku og oftast var ekki hægt að byrja fyrr en kl. 10 á kvöldin, því það höfðu allir svo mikið að gera. Mikið var um vinnu þetta vor, m.a. vegna undirbúnings við Alþingishátíðina, svo það var ekki fyrr en eftir langan vinnu- dag að menn hófu íþrótta- æfingarnar. Æfingar fóru aðal- lega fram í Miðbæjarbarnaskól- anum og sal Menntaskólans. Þá minntist Jón á aðra fram- ámenn íþróttamála á þessum tíma og sagði þeirra hlut ekki hafa verið minni, þeirra Bene- dikts Waage og Björns Jakobs- sonar og frá Akureyri kom með flokk stúlkna sem sýndi á hátíð- inni Hermann Stefánsson. Jón Þorsteinsson stjórnaði íslands- glímunni og hafði hluti hennar farið fram í Reykjavík, en loka- áfanginn á Þingvöllum og bar þar sigur úr býtum Sigurður Thorarensen. —Gleði hjá fólkinu var mikil yfir hátíðinni og mikill áhugi fyrir henni. Við vorum búnir að æfa fyrir austan áður en hún hófst og héldu menn nokkuð hópinn, þó svo að flestir hafi búið með fjölskyldum sínum ef ég man rétt. Og það sem mér er einna minnisstæðast í sambandi við allt þetta starf var hversu hjálpsamir allir voru, það var svo auðvelt að leita eftir ýmiss konar aðstoð og hjálp fólks, allir vildu allt fyrir Alþingishátíðina gera, sagði Jón að lokum. Flokkur iþróttamanna sýnir. GUDLAUGS ÞORVALDSSONAR Kosningaskrifstofur um allt land í Reykjavík Aöalskrifstofan Brautarholti 2, símar 91-39830, 39831, 22900, 29963, 29964. Skrifstofan í vesturbæ Sörlaskjóli 3, s. 25635. Skrifstofan í Breiöholti Gerðubergi 3—5 s. 77240. Utan Reykjavíkur Mosfellssv. Vezlunarmiöstööinni s. 66099. Akranes Skólabraut 21, s. 93-1915. Bolungavík Verkalýöshúsinu, s. 94-7425. Borgarnes Skúlagata 14, s. 93-7610. Patreksfjörður Aöalstræti 2, s. 94-1470. ísafjöröur Hafnarstræti 2, s. 94-4103. Skágaströnd Borgarbraut 11, s. 95-4626. Sauöárkrókur Aöalgata 2, s. 95-5701. Siglufjöröur Grundargata 5, s. 96-71250. Ólafsfjöröur Kirkjuvegur 1, s. 96-62373. Dalvík Jónsínubúö s. 96-61477. Akureyri Strandgata 7, s. 96-25599. Húsavík Garðarsbraut 62, s. 96-41879. Seyðisfjöröur Austurvegi 11, s. 97-2167. Peskaupsstaöur Strandgata 1, s. 97-7339 og 7439. Eskifjöröur Strandgötu 64, s. 97-6125. Reyöarfjöröur Söluskáli Aöalsteins Eiríkssonar, s. 97-4199. Fáskrúðsfjöröur Hamarsgötu 3, s. 97-5117. Höfn, Hornafiröi Höföavegi 8, s. 97-8650. Vestmannaeyjar Skólavegi 13, s. 98-2341. Hella Verkalýöshúsiö s. 99-5028. Selfoss Austurvegi 38, s. 99-2166. Grindavík Víkurbraut 19, s. 92-8577. Garöur Garðbraut 83, s. 92-7082. Keflavík og Njarðvík Hringbraut 106, s. 92-1212. Hafnarfjöröur Reykjavíkurvegi 66, s. 91-53852. Garöabær Skátaheimiliö Hraunhólum 12, s. 91-54255. Kópavogur Skemmuvegur 36, s. 91-77600 og 77700. Sjálfboðaliðar látið skrá ykkur. Gerið skil í happdrættinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.