Morgunblaðið - 27.06.1980, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ1980
41
Danska
fánann
vantaði
Fulltrúar erlendra ríkja fluttu
kveðjur heimalanda sinna kl. 15
fyrsta hátíðardaginn. í hvert sinn
er maður kom í ræðustól var fáni
þjóðar hans dreginn að húni.
Þegar kom að danska fulltrúan-
um, Hanson forseta þjóðþingsins
vildi svo illa til að enginn fáni var
dreginn að húni. Árni Óla lýsir
atburðinum svo í einni bóka sinna:
„Eitthvert fát kemur á umsjón-
armenn fánanna, þeir stinga sam-
an nefjum og eru vandræðalegir.
Manngrúinn starir á þá í ofvæni,
en þeir gera sig ekki líklega til
þess að draga fánann að húni ...
Seinna vitnaðist hvernig á þessu
stóð. í fánaherberginu í Valhöll
hafði fáni Austurríkis legið meðal
annarra fána, vegna þess að fram
á síðustu stund var þess vænst að
Austurríki sendi hingað fulltrúa.
En það varð ekki og gleymdist að
taka fánann úr herberginu. Nú er
fáni Austurríkis rauður og hvítur
eins og danski fáninn og má vart
sjá mun þeirra þegar þeir eru
saman brotnir."
En atburður þessi var afsakaður
og litlu síðar fannst danski fáninn
og var þá fulltrúi dana leiddur að
ræðupalli og þingheimur beðinn
að hrópa ferfalt húrra fyrir
danska fánanum.
Flibbar,
tvinni og
kölnarvatn
Haraldarbúð auglýsir í Mbl.
miðvikudag 25. júní að hun verði á
Þingvöllum milli bankans og
símastöðvarinnar og að þar verði
selt ýmislegt, sem búast megi við
að fólk gleymi að taka með sér og
telur upp m.a.:
Sokkar og sokkabönd, flibbar og
hnappar, ermabönd, vasaklútar,
tvinni og saumnálar, tannkrem og
tannburstar, rakvjelar, blöð og
sápur, handsápur, púður, ilmvötn,
Kölnarvatn, hálsbindi, slaufur,
ljósar skyrtur með kraga fyrir
börn og fullorðna, þunn nærföt (í
hitanum), greiður Brilliantine,
slæmri, skátahnífar, vasaklútar.
„Þjer skuluð
ekíd líða
neinn skort...“
Til þess að fólki mætti líða sem
best á Þingvöllum hátíðardagana
var reynt að sjá til þess að ekki
þyrfti neinn að líða skort hvorki
hvað varðaði fæði né klæði. í
Morgunblaðinu nokkrum dögum
fyrir hátíðina greina Silli og Valdi
frá í auglýsingu að þeir hyggist
setja upp 4 versianir meðan á
hátiðinni stendur og segja m.a.:
„Fjórar verslanir á Þingvöllum
sem verða opnar meðan á hátíða-
höldunum stendur og þar skal nú
ekki verða dregið af að þóknast
okkar mörgu viðskiptavium, nýjum
og gömlum, þjer getið vel komið
allslausir, þjer skuluð ekki líða
neinn skort fyrir það, því nægilegt
verður af alskonar matvælum hjá
okkur, ávöxtum, sælgæti og tóbaki."
Nóg hey í
koddaverin
Leiðbeiningar til héraðsnefnda
fyrir alþingishátíðina birtust í
Mbl. þriðjudaginn 17. júní. Einn
liður þeirra hljóðaði þannig:
Koddaver væri gott að hafa með
sjer, því töluvert hey er á staðn-
um.
Myndir sem Haraldur Matthíasson tók á alþingishátíöinni.
Á myndinni lengst til vinstri er Benedikt Sveinsson forseti neðri deildar Alþingis í ræðustóli, í miðið kveður Jón
Lárusson rímur og lengst til hægri má sjá hvar Færeyingur nokkur gengur framhjá tjaldi Morgunblaðsins, en þar
höfðu blaðamenn, sem skrifuðu fréttir af Alþingishátiðínni, aðstöðu.
Við kjósum forseta
við kjósum Guðlaug!
Ásgeir Bjarnason,
form. Búnaðarfélags ísl.
Gunnar Guðbjartsson,
form Stéttarsamb. bænda.
Sigfinnur Karlsson,
form Alþýðusamb. Austurlands.
Sævar Bjarnason,
form. Verkalýðsfél. Skagastr.
Þórir Daníelsson, fr.kv.stj.
Verkamann-asamb. ísl.
Þórunn Valdimarsdóttir,
form. Verkakvennafél. Framsókn
Jón Helgason, form.
Verkalýðsfél. Einingar.
Guðríður Elíasdóttir, form.
Verkakvennafél. Framtíðar, Hf.
Hallgrímur Pétursson, form.
Verkamannafél. Hlífar
Gylfi Kristinsson,
form Æskulýðssamb. ísl.