Morgunblaðið - 02.08.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.08.1980, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR 172. tbl. 67. árg. LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Billy Carter: að haf a fengið opinber skeyti Washington. 1. ágúst. AP. BILLY Carter, bróðir Bandaríkja- forseta, viðurkenndi í dag á fundi með fréttamðnnum, að „einhver“ i Ilvita húsinu hefði fengið honum skeyti frá sendiráði Bandarikjanna i Tripóli til utanrikisráðuneytisins varðandi ferð hans til Libýu árið 1978. En hann bætti þvi við, að skeyti þessi hafi einungis haft að geyma ómerkilegar upplýsingar sendiráðsstarfsmanna um ferð hans. Blaðafulitrúi Bandarikjafor- seta, Jody Powell, sagði einnig i dag, að engar viðkvæmar upplýs- ingar eða ieyndarmál hafi verið að finna i þessum skeytum. Billy Carter viðurkenndi einnig í dag að hafa hinn 31. desember sl. lagt 20 þúsund dollara á banka í heimaríki sínu, en þessa peninga fékk hann að láni hjá Líbýustjórn. Billy hafði harðneitað því í samtali við starfsmann dómsmálaráðuneyt- isins 16. janúar sl. að hafa tekið við peningum frá Líbýumönnum. Um- ræddur starfsmaður, Joel Lisker að nafni, sagði í viðtali fyrr í vikunni, að Billy hefði „logið" að sér um þetta atriði. Hann sagðist einnig hafa í fórum sínum bankakvittun, sem sýndi að þessir peningar hefðu verið lagðir í banka umræddan dag. Undirnefnd dómsmálanefndar öldungadeildarinnar, sem ætlar að rannsaka tengsl Billy Carters við Líbýumenn, kom saman til lokaðs fundar í dag til að reyna að ná samkomulagi um ráðningu lögfræð- ings til að annast rannsókn málsins. Ákveðið var að nefndin hefði opnar yfirheyrslur vegna málsins á mánu- dag. . .____ 10 farast í Dublin, 1. ágúst. AP. TÍU menn fórust og tugir slösuðust i járnbrautarslysi á Irlandi i dag. Slysið varð þegar hraðlest, sem í voru um 400 ferðalangar á leið í sumarfrí, fór út af sporinu skammt frá bænum Buttevant á Suður- írlandi. Lestin var á leið til Cork frá Dublin. Tuttugu og sex hinna slös- uðu eru taldir alvarlega slasaðir og sumir þeirra í lífshættu. Ekki er enn vitað, hvað slysinu olli. DC-8 f órst um við Mexikóborg. í þotunni voru fjórir farþegar auk þriggja manna áhafnar. Ekki er ljóst, hvað slysinu olli, en flugvélin hafði villzt af réttri leið og flaug á fjall skammt frá borginni. Mjög erfitt er að komast á slysstaðinn, en brakið úr vélinni liggur dreift um stórt svæði, að sögn þeirra, sem fyrstir komu á vettvang. í Mexíkó Mexikóborg, 1. ágÚHt. AP. DC-8 flutningaþota frá Perú fórst í dag i aðflugi að flugvellin- lestarslysi á írlandi Forseti íslands. Vigdís Finnbogadóttir, undirritar eiðstafinn við embættistökuna í gær, en hann hljóðar þannig: „Ég undirrituð, sem kosin er forseti íslands um kjörtímabil það, er hefst 1. ágúst 1980 og lýkur 31. júlí 1984, heiti því, að viðlögðum drengskap mínum og heiðri, að halda stjórnarskrá lýðveldisins Islands.“ Ljósm.: ói.k.m. Vigdís Finnbogadóttir tók við embœtti forseta í Vigdís Finnbogadóttir tók i gær við embætti forseta ísiands við athöfn, sem fram fór i Dómkirkj- unni og Alþingishúsinu að við- stöddum fjölda gesta og nokkur þúsund manns, sem fylgdust með athöfninni frá Austurvelli, en þar hafði veriö komið fyrir gjall- arhornum. Klukkan 15:30 gengu frá Alþingishúsinu til Dómkirkj- unnar Vigdís Finnbogadóttir, handhafar forsetavalds, dr. Gunnar Thoroddsen forsætisráð- herra, Björn Sveinbjörnsson for- seti Hæstaréttar og Jón Helgason forseti Sameinaðs Alþingis, einn- ig fráfarandi forseti, dr. Kristján Eldjárn og frú Haildóra Eldjárn. biskup íslands hr. Sigurbjörn Einarsson, Guðmundur Bene- diktsson ráðuneytisstjóri, Björn Helgason hæstaréttarritari, Frið- jón Sigurðsson skrifstofustjóri Alþingis og Birgir Mölier forsetaritari. í Dómkirkjunni voru fyrir ráð- herrar, forsetar Alþingis og vara- forsetar, hæstaréttardómarar, ráðuneytisstjórar, fulltrúar er- lendra ríkja og fulltrúar ýmissa landssamtaka og stéttarsam- banda. Dómkórinn söng undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar sem einnig lék orgelverk. Voru sungnir sálmarnir Kristur hinn sterki, Víst ertu Jesú kóngur klár og Gefðu að móðurmálið mitt við nýtt lag dr. Gunnars Thoroddsen. Biskup Islands flutti ræðu og lagði út af 8. versi í fjórða kafla Dómarabókar, „fara mun ég, ef þú fer með mér“. Lauk athöfninni með blessunarorðum biskups og bæn og að sungið var Island ögrum skorið. Að lokinni athöfninni í Dóm- kirkjunni, sem tók um það bil hálfa klukkustund gengu gestir til Alþingishússins og þegar þeir höfðu fengið sér sæti í sal fylgdu handhafar forsetavalds Vigdísi Finnbogadóttur til sætis. Við upp- haf athafnarinnar söng Sigríður Ella Magnúsdóttir Hlíðin mín fríða og síðan lýsti Björn Svein- gœr björnsson forseti Hæstaréttar for- setakjöri. Þá las hann einnig eiðstafinn, sem Vigdís Finnboga- dóttir undirritaði. Er hann í tveimur eintökum, sem varðveitt verða af Alþingi og þjóðskjala- safninu. Þá gekk forsetinn út á svalir þinghússins og fagnaði mannfjöldinn honum með lófataki og minntist fósturjarðarinnar með húrrahrópi. Forseti íslands, Vigdís Finn- bogadóttir, flutti síðan ræðu í Alþingishúsinu og að lokum söng Dómkórinn þjóðsönginn. í anddyri Alþingishússins tók forsetinn síð- an við árnaðaróskum og gestir þágu veitingar. Sjá nánar miðopnu. Sovétmenn óttast frekari uppreisn afganska hersins Nýju Delhl. 1. ágúst. AP. SOVÉZKAR hersveitir hafa umkringt nokkrar bækistöðvar afganska hersins, þar sem Sov- étmenn óttast frekari uppreisn- ir innan hersins, að því er fréttir frá Kabúl hermdu í dag. Hópur afganskra foringja var handtekinn i herstöðinni Pul-i- Charki skammt frá Kabúl ný- lega, eftir að upplýstist að þeir hefðu uppi áform um að gera uppreisn og beina vopnum sin- um gegn sovéska innrásarlið- inu og þeim hluta stjórnarhers- ins, sem enn er hollur Karmal forseta. Uppreisnir ýmissa hersveita afganska hersins og aukinn órói í ýmsum héruðum landsins hafa orðið þess valdandi, að sovéskir hermenn taka nú meiri beinan þátt í bardögum og hefur mann- fall í röðum þeirra aukizt að sama skapi. „Rússarnir eru ekki lengur að berjast við skæruliða, heldur við herinn," sagði vest- rænn stjórnarerindreki í Kabúl í dag. Sovéskir ráðgjafar í höfuð- borginni hafa einnig orðið fyrir árásum leyniskyttna undanfarið. Þannig var sovézkur ráðgjafi ríkisstjórnarinnar skotinn til bana á götu þar í vikunni og sömuleiðis rússneskur læknir, sem sagður var í þjónustu Sam- einuðu þjóðanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.