Morgunblaðið - 02.08.1980, Side 10

Morgunblaðið - 02.08.1980, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1980 Rœtt við Jón Gíslason á Hofi áttrœðan Jón Gíslason, bóndi á Hofi í Svarfað- ardal um fjögurra áratuga skeið, á áttræðisafmæli í dag. Hann var merkisbóndi, tók mikinn þátt í félags- lífi og gegndi mörgum trúnaðarstörfum í sveit og héraði um árabil. Hann dvelur nú á heimili Gísla sonar síns, menntaskólakennara á Akureyri. — Mbl. ræddi við hann stundarkorn í tilefni afmælisins, og fer viðtalið hér á eftir. hrepp, eftir að Dalvík gerðist sérstakt sveitarfélag. Gunnlaug- ur bróðir minn var oddviti, og við unnum þar saman eins og í mörgum öðrum félögum. Svo var ég vitanlega í Búnaðarfélaginu, Nautgriparæktarfélaginu o.fl. o.fl. Forðagæslumaður var ég í tugi ára og í nýbýlanefnd Eyja- fjarðarsýslu með þeim blessuðu vinum mínum Katli Guðjónssyni á Finnastöðum og Einari Sig- fússyni í Staðartungu. Það vill oft verða svo, að öll hugsanleg félagsmálastörf lenda mikið á sömu mönnunum. — Er gott að búa í Svarfaðar- dal? — Þar búnast mönnum yfir- leitt vel, en þeir verða líka að nenna að vinna. Sveitin er sumarfögur og grösug og um margt gjöful og góð undir bú. Þar er enginn vandi að láta sér líða vel. Nóg er af berjalandinu, og þó nokkur silungsveiði í ánni, sem er yfirleitt spök og bakka- fögur, en getur orðið fljót að vaxa og gerst algerlega ófær á skammri stundu. Það hefur allt- af verið mikill samgangur milli bæjanna báðum megin hennar. Snemma var smíðuð göngubrú yfir hana, og fyrrum var ferja gegnt Hofi. Stundum óð maður yfir ána, en það var nú slark- samt stundum. — Eru ekki mikil snjóþyngsli á veturna? — Jú, snjóþyngsli eru oft til Ég hef alltaf verið bjartsýnismaður" — Hvar komstu í heiminn, Jón, og hvar varstu bernskuár- in? — Ég fæddist á Syðra-Hvarfi í Skíðadal 2. ágúst aldamótaárið. Faðir minn var Gísli Jónsson frá Syðra-Hvarfi og móðir mín Ingi- björg Þórðardóttir frá Hnjúki. Við vorum sex systkinin, og ég var sá fjórði í aldursröðinni. Elsta systir okkar dó kornung og önnur síðar af barnsförum. Enn lifum við fjögur, Gunnlaugur bóndi á Sökku, Soffía, sem býr hér á Akureyri, og Dagbjört, gift Áskatli Sigurjónssyni bónda á Laugafelli í Reykjadal. — 1904 fluttust foreldrar mínir að Hofi. — Manstu eftir þér á Syðra- Hvarfi? — Ég man einstaka atvik, en mjög stopult. Ég man til að mynda þegar ég datt í bæjarlæk- inn, sem er nokkuð mikill, og var að skríða upp úr honum, þegar komið var að hjálpa mér. Én ég var á fjórða árinu, þegar við fórum að Hofi, og þar hef ég átt heima síðan, þar til nú fyrir þremur árum. Ég hef aldrei farið neitt nema í búnaðarskolann á Hólum. Þar vorum við samtímis, bærðurnir, veturinn 1920—1921. Ég hafði mjög gott af þeirri skólavist og hefði ekki viljað vera án hennar. Ég sé það alltaf betur og betur. — Þú hefur átt glaða og góða bernsku og æsku. — Já, það er mér óhætt að segja. Það var haldinn skóli heima á Hofi, og börn af næstu bæjum gengu þangað. Svo var fastur skóli á Grund, og þangað fór ég, þegar ég var á tólfta árinu. Þá var farið gangandi í skólann á morgnana og gengið heim á kvöldin, engin heimavist. Þangað sóttu börn af allstóru svæði. Ólafur nokkur Jónsson kenndi heima á Hofi, en Tryggvi Kristinsson, bróðir sr. Stefáns á Völlum, í Grundarþinghúsinu. Þar voru 20 til 30 börn og öll í einni deild. Eftir að barnaskóla- námi lauk, tokum við okkur saman eitthvað fimm unglingar og gengum yfir að Tjörn til Þórarins Eldjárns, sem þá var barnakennari, og hann tók okkur í kennslutima, eftir að kennslu hans í barnaskólanum var lokið á kvöldin. Við Þórarinn vorum síðan miklir vinir og félagar alla tíð og kvæntumst systrum, enda var alltaf mikill samgangur og vinskapur milli heimilanna á Hofi og Tjörn. — Hverjir voru helstu leik- bræður þínir? — Það voru synir sr. Stefáns, Pétur, Kristinn og Sæmundur. Þeir voru miklir félagar okkar Gunnlaugs, einnig þeir Þorleifur á Hofsá og Oddur á Hánefs- stöðum, sem síðar var skósmiður hér á Akureyri. Við þessir strák- ar komum oft saman á Hofi eða Völlum og lékum okkur saman á- skíðum og skautum. Stundum börðumst við með trésverðum og æfðum bogfimi. — Hvernig var félagslífið í sveitinni? — Það var gott, eftir því sem þá gerðist. Tryggvi Kristinsson stofnaði söngflokk, sem kom víða fram og mikið orð fór af. Ég var ekki í honum sjáifur, en þær voru þar systur minar. Svo var náttúrlega stofnað ungmennafé- lag, sem hafði aðsetur á Dalvik. í því starfaði ég í mörg ár, og þar var mjög fjölmennt. Einkum voru haldnir þar málfundir, en nokkuð fengist við fótbolta. Að- allega spiluðum við innbyrðis, en þó kom fyrir, að við kepptum við aðra, til dæmis við fótboltafélag- ið Þór á Akureyri. Svo voru haldnar skemmtanir á veturna, en ekki oft. Kannski voru þær því fjörugri sem þær voru færri. Við piltarnir smíðuðum líka ýmsa hluti og stelpurnar saum- uðu, og svo voru þeir seldir á basar til að hafa svolitlar tekjur. Það var mjög létt yfir þessu öllu saman. Ungmennafélagið skipt- ist síðar í Ungmennafélag Svarf- dæla á Dalvík og Ungmennafé- lagið Þorstein svörfuð frammi í sveitinni. — Hvað þótti þér skemmti- legast að fást við? — Ég var alveg brjálaður í fótbolta. Mér þótti engin skemmtun komast í hálfkvisti við hann, — ekki einu sinni dans. Ég hafði reyndar aldrei gaman af að dansa. Konan mín var mikil dansmær og reyndi allt hvað hún gat til þess að fá mig með á danssamkomur. Það gekk fyrst framan af, en fljótlega fór að draga mjög af mér við dansmenntina. — Konan þín, segirðu. Hvenær genguð þið í hjónaband? — Við Arnfríður giftum okkur 18. nóvember 1924. Hún var Sigurhjartardóttir frá Urðum. Við hófum búskap á Hofi 1925, á hálfri jörðinni á móti föður mínum, en 1927 tók ég við henni allri. Þarna bjuggum við, þangað til Arnfríður dó 1952. Eftir það bjó ég mörg ár með Soffíu systur minni sem ráðskonu, eða til 1964. Þá hætti ég búskap og leigði fóstursyni mínum, Agnari Þorsteinssyni, jörðina og var í heimili hjá þeim hjónum, honum og Láru Stefánsdóttur frá Mið- bæ. Agnar hafði komið til okkar 9 mánaða gamall frá Siglufirði og ólst upp hjá okkur eftir það. Árið 1970 seldi ég honum jörðina og áhöfnina, en hans naut þó ekki lengi við, þvi að hann drukknaði í Svarfaðardalsá 1975. Ekkjan hélt þó áfram búskap á Hofi og býr þar enn. — Við Arnfríður eignuðumst sjálf tvo drengi. Annar var lamaður frá fæðingu og dó 4 ára gamall, en hinn er Gísli, menntaskólakenn- ari hér á Alcureyri. Ég hef átt heima hjá honum síðan 1977. Mér hefur liðið vel hjá þeim Gísla og Bryndísi. Hún vill allt fyrir mig gera, blessunin. — Ég vænti þú hafir unnið allmörg félags- og trúnaðarstörf um dagana, Jón? — Ég held, að mér sé óhætt að segja, að ég hafi unnið í flestum félögum og nefndum, sem til voru í hreppnum. Ég var í hreppsnefnd hvað eftir annað, fyrst fyrir óskiptan hrepp og svo síðar aftur fyrir Svarfaðardals- baga. Eftir að mjólkurbú var stofnað á Akureyri og farið að senda þangað mjólk utan að, var oft erfitt að koma henni. Menn stóðu oft í mokstri með skóflu heilu sólarhringana. Það var oft erfitt, en undravert, hvað þetta tókst. Eftir að ýtur og heflar komu, er þetta allt annað. — Én beitin? — Hún er yfirleitt ekki mikil á veturna, en talið var sjálfsagt hér áður að láta féð út og beita því, meðan nokkur snöp voru. Menn reyndu að standa yfir því og halda því til haga, en nú er þessu alveg hætt. — Og heyskapurinn? — Reynt var að heyja á engjum, eins og hægt var. Oft var meiri útheyskapur en töðu- fengur. Nú má heita, að allur engjaheyskapur sé úr sögunni og allt hey sé tekið á ræktuðu landi. Það er þá frekast á Tjörn, að engjar eru slegnar, þar sem kýrgæft hey fæst, en það er að hverfa líka. — Hvað viltu segja í örstuttu máli um fortíð og framtíð? — Mér hefur alltaf samið vel við nágranna mína og sveitunga, og þeir eru allir vinir mínir. Ég held mér sé óhætt að segja það. — Ég hef alltaf verið bjartsýnis- maður og litið björtum augum til framtíðarinnar, og svo er enn. Gunnlaugur bróðir sagði ein- hvern tíma, að ég væri „spáglað- ur maður“, og ég held, að hann hafi farið nærri sannleikanum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.