Morgunblaðið - 02.08.1980, Síða 17

Morgunblaðið - 02.08.1980, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1980 17 um þá í okkar viöjar. Sú kynslóö, sem er aö kveðja, á tilkall til aö vita, aö viö höfum veitt athygli stórbrotnu framlagi hennar til aukinna lífsgæöa í haröbýlu landi. En erfiöleikarnir eru til aö takast á viö þá af hugprýði, raunsæi og sigurvissu. HefÖu fyrri tíma menn ekki staðið af sér erfiöleika líöandi stundar, stæöum viö ekki hér i dag, frjáls til orös og æöis. Frelsinu fylgir, aö hver og einn veröur að lifa viö sannleik sinnar samtiöar og taka afstööu til hans hverju sinni. í margbrotnu mann- lifi, þar sem engar tvær manneskj- ur eru eins, er sannleikur þjóölifs- ins síbreytilegur, því enginn hefur höndlaö allan sannleika mannlegr- ar hugsunar. ViÖ framgöngum i trú og skoöun, og á þeim vegi er dýpsta gryfjan sú vanahugsun, sem tekur gagnrýnislaust viötekn- um hugsunarhætti. Listir og vís- indi hafa aldrei unaö viöteknum hugmyndum, heldur leitaö þrot- laust aö nýjum leiöum. Hvoru tveggja eigum viö aö þakka lát- lausa endumýjun og ótalin skref fram á viö. ViÖ íslendingar erum fámenn þjóö, og oröiö flýgur hratt frá manni til manns. Því er okkur leikur einn að vekja hvert annaö til gagnrýnnar umhugsunar um vandamál líöandi stundar. Þaö er ekki ráöamanna einna aö leysa þau, heldur okkar sjálfra, hvers og eins. En allt frelsi, jafnt frelsi þjóöa sem einstaklinga, krefst aga. Agi hvers einstaklings, i hugsun og háttemi, getur aldrei leitt til annars enfarsældar allrar þjóöar- innar. Viö megum aldrei ganga svo lengi á sjóöi, hvorki andlega né veraldlega, aö ekkert sé lengur eftir til að gefa. Viö höfum þegiö góöar gjafir, frá fyrri kynslóöum og öörum þjóöum. Mesta gæfa okkar væri sú aö gefa ekki minna. ViÖ göngum nú, íslendingar, í Forseti íslands Vigdís Finnbof'ndóttir flytur rædu sína í Alþingishúsinu í ffær. LjÓNm. ÓI.K.M. fjóröa sinn í sögu lýöveldisins, til samstarfs viö nýjan forseta ís- lands. Forsetar okkar hafa til þessa dags veriö farsælir í sam- skiptum sínum viö þjóöina. ViÖ geymum í minni viturleg orö þeirra, sem oft hafa oröiö fleyg, og þökkum þeim fyrir aö hafa rutt ungu lýöveldi brautina meö mann- kostum sínum og viömóti. ViÖ minnumst meö þakklæti herra Sveins Björnssonar og konu hans, frú Georgíu Bjömsson og herra Ásgeirs Ásgeirssonar og konu hans, frú Dóru Þórhallsdóttur. Fráfarandi forseta íslands, dr. Kristjáni Eldjám og frú Halldóm Ingóífsdóttur, vil ég fyrir hönd íslendinga þakka fyrir aö hafa áfram gert garöinn kunnan og virtan, sem fyrirrennarar þeirra, og fyrir þaÖ vinarþel sem ætíö hefur af þeim stafað hvar sem þau hafa fariö. Þaö er gott aö vita af þeim meöal okkar meö svo sóma- ríkan feril sem raun ber vitni. Þeim munu ávallt fylgja óskir um heillaríka daga. Að lokum vildi ég minnast þess manns, sem allir íslendingar muna og þekkja eins og náinn ættmann og fyrstur naut þess heiöurs aö vera nefndur forseti af þjóö sinni, Jóns SiyurÖssonar. í byrjun þessa ágústmánaöar, í ein- hverri mestu veðursæld sem kom iö hefur yfir ísland, minnumst viö aö Hrafnseyri viö Arnarfjörö hundr- aö ára ártíöar hans. Líf hans og starf fyrir land og þjóö verða okkur alla daga hugstæö fyrir þann skerf sem hann lagöi til sjálfstæöis okkar og frelsis. Þó er ennþá betra til þess aö vita, aö Jón SigurÖsson var góöur íslendingur af því að hann var mikill maöur. Grafskrift hans vildi ég, aö allir íslendingar geröu aö einkunnar- orðum sínum, hvar sem þeir eru staddir: aö vera ávallt sómi ís- lands, sverð þess og skjöldur. Forseta er falið að styrkja sjálfsvirðingu þjóðarinnar og tæplega grimmari en vorir. Þjóðin varð að gangast undir harða kosti til þess að bjarga lífi sínu undan kúgun, frá tortímingu. Þeirri baráttu, sem íslenska þjóðin hefur orðið að heyja og mun þurfa að heyja, er á annan veg háttað. Henni mun vart hætta búin af óvinum utan landamæra, ef hún kann að vera vinur sjálfrar sín í raun. Ef hún kann rétt að meta og rækja kosti sína en varast ókosti. Ef hún kann að þakka gæfu sína í hollri auðmýkt fyrir þeim Guði, sem gaf henni einstætt land með dýrt „hlutverk í höndunum fáu“. Þar þarf valdar hendur, valda menn í hverju rúmi, og einkum að sjálfsögðu við stýrið, í lyftingu sjálfri. „Fara mun ég, ef þú fer með mér“. Svo var sagt við Debóru. Islenska þjóðin hefur kjörið sér forseta. Áfangi í sögu lands- ins er framundan. Og með niður- stöðu þeirrar kosningar, sem afstaðin er, hefur þjóðin sagt við þá konu, sem tekur við forsetaembætti í dag: Fara vil ég með þér. Þann veg, sem nú er framundan næst, vil ég fara með þig í forsæti. En ekki er það síður forset- inn nýi, sem svo hugsar og mælir til þjóðar sinnar. Hún þarf þess að óska og mun þess biðja, að hún megi vita og finna, að þjóðin er að baki henni einhuga. Þess þarfnast hver forseti Islands. Þess þarfnast vort land. Það skilja flestir, að þjóðarvitund hefur styrk af því, að landsmenn líti samhuga upp til forseta síns. Þjóðleg samkennd á þar eina af stoðum sínum. Forsetastaðan er æðsta ytra tákn og áminning þess, að vér eigum eitt land allir, land, sem er og á að verða frjálst. Og forseta er falið það stóra hlutskipti að styrkja með persónu sinni heilbrigða sjálfsvit- und og sjálfsvirðingu þjóðarinn- ar. Honum er ætlað að styðja rökin fyrir þvi með sjálfum oss og í augum annarra, að vér, fáir og smáir, höfum til þess burði og þroska, rísum undir því með fullri sæmd, að vera fullveðja þjóð. Það eru jafnan tímamót, þegar nýr forseti lýðveldisins tekur við embætti. Vér hugsum með virðingu og heilli þökk til fráfarandi forseta, og þeirra annarra, sem hafa skipað þessa stöðu í landi hér hingað til. Vér biðjum Guð og treystum Guði til þess að sama gipta fylgi for- setadómi á íslandi áfram alla stund. Til þess vilja allir lands- menn leggja sitt fram, sína hollustu og skilning, sitt hlýja þel og fyrirbæn. Forsetaskiptin eru að því leyti sérleg tímamót að þessu sinni, að það er kona, sem við tekur. Þess skal hún hvorki njóta né gjalda. Hún er maður. Sjálf hefur Vigdís Finnbogadóttir réttilega minnt á það, að ís- lenska orðið maður tekur til beggja kynja jafnt. Mennsk vera er hvorki starfskraftur né önnur ónefna eða ónáttúra, heldur blátt áfram maður. Sú mann- eskja, sem Guð skapaði í sinni mynd, er karl og kona. Vilji Guðs og tilgangur hans hefur hjúpast á margan veg í meðförum syndugra manna og mun svo verða meðan heimur stendur, þar til hið fullkomna kemur og það líður undir lok, sem er í molum og brestum lýtt og lamað. En það skal ekki dylja þann sannleik, að skaparinn hefur markað grunn og stefnu mannlegs lífs og að þá horfir vel, þegar eitthvað miðar í átt við það, sem hann vill. Og eitt af því, sem ótvírætt stefnir rétt, er það, þegar aðstæður, hverjar sem eru, fá ekki að hindra neinn í því að njóta sín og koma sér við í lífinu, þegar hvorki stétt eða kynferði né efnahagur stendur í vegi fyrir því, að menn geti neytt hæfileika sinna og beitt sér í lífinu á þann veg sem hneigð og hæfni vísar til. Jesús Kristur hefur látið eftir fyrirmynd og sagt til vegar í hverju mikilvægu efni. Þess má minnast, að meðal lærisveina hans voru margar konur. Það er svo áberandi, að í því meðal annars verður engum trúarhöf- undi til hans jafnað. Nokkrar þær, sem hann hafði í námi hjá sér á jarðlífsdögum, fengu það hlutverk í kirkju hans hinni eistu, sem engum öðrum var trúað fyrir. Hann sagði: „Hver sem gjörir vilja föður míns á himnum, hann er bróðir minn og systir og rnóðir". Og postuli hans, Páll, skrifar: „Hér er ekki gyðingur né grísk- ur, hér er ekki þræll né frjáls maður, hér er ekki karl né kona, því að þér eruð allir einn maður í samfélaginu við Krist' Jesú“. Það var líka kona, sem varð fyrstur lærisveinn Jesú í Evrópu og vakti með Páli til lífs og stýrði til þroska fyrsta söfnuði kristinna manna í álfunni. „Fara mun ég, ef þú fer með mér“. Framundan er samfylgd þjóðar og forseta, hafin í gagn- kvæmu trausti. Verði hún báð- um gæfa. Förin er hafin í kirkju. í því er játning fólgin. Hér er það Jesús Kristur og hans heilagi Guð og faðir, sem vér leitum og lútum og biðjum að vera með í för. Þess biður þjóðin með for- seta sínum, að Kristur hinn sterki, kóngur allra lýða, leiði oss brautina fram, stýri hugsun, viti og vilja, verndi, helgi og blessi hvert spor á vegi íslenskrar þjóðar um aldur. Fyrsti og eini ríkisstjóri ís- lands, sá er og varð fyrsti forsetinn, tók svo við starfi, að hann bað Guð að gefa sér kærleika og auðmýkt, svo að þjónusta hans mætti verða ís- landi og íslensku þjóðinni til góðs. Vaki sú bæn með hverjum þeim, sem íslandi ann. Gæti hver sín og Guð vor allra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.