Morgunblaðið - 02.08.1980, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1980
37
• Hárin risu
á pabba
Steíánsdætur skrifa:
„Kæri Velvakandi. Það er
orðið nokkuð langt síðan við
höfum skrifað þér, en eftir að hafa
lesið greinina um „eggjakorn og
rækjutæjur" sáum við að tími var
til kominn.
Enginn á okkar. heimili þolir
fúsk, enda var það einstaklega
fjölskrúðugur orðaflaumur frá
pabba (við gátum ekki betur séð
en hárin væru þegar farin að rísa
á höfði hans, það gerist alltaf í
slíkum tilfellum), sem vakti at-
hygli okkar á viðkomandi grein.
Það skal tekið fram að þegar fúsk
ber á góma þá er það yfirleitt ekki
prenthæft sem pabbi segir fyrstu
vikurnar á eftir, svo að við höldum
að best sé að sleppa öllum athuga-
semdum frá honum í þessu bréfi.
Við sjáum hins vegar í anda
viðkomandi okrara reyna að fá
pabba til þess að greiða 10.550
krónur (við erum sjö) fyrir svikna
okurvöru, sem er 3—4 munnbitar
af formbrauði með mæjónes-
klessu, skreyttri eggjakornum og
rækjutægjum.
• Hvaða sjúkdómur
er þetta?
Við skiljum ekki hvaða sjúk-
dómur það er sem fær fólk til þess
að leggjast svona lágt með slíku
okri og fúski, og það fólk sem
sættir sig við slíka meðferð. Er
fólki virkilega sama þótt það sé
haft að fíflum og okrarar hlæi að
því? Vafalaust hefur okur ávallt
verið til. En er þetta dæmi
kennslustund sem kennir okkur að
taka okur og svindl sem sjálfsagð-
an hlut? Er ekki svolítið hæðið
fyrir foreldra að reyna að kenna
börnum sínum heiðarleika og
muninn á réttu og röngu þegar
þeir sjálfir bókstaflega virðast
„rækta" okur og svindl í þjóðfélag-
inu eins og dæmin sýna.
Bestu kveðjur."
Þessir hringdu . . .
• Ónæði hjá
öldruðum
Stef. Jóh., Norðurbrún 1,
hringdi og kvartaði undan ónæði
vegna háreysti og boltaleikja
barna fyrir utan elliheimitið. — í
• Reykingabann
á ökumenn
E.S. hringdi og vildi koma
þeirri hugmynd á framfæri að
leitt yrði í lög að ökumönnum yrði
bannað að reykja undir stýri. —
Það hafa hlotist alvarleg slys af
völdum reykinga ökumanna, svo
að mér finnst engin goðgá að
lögleiða slíkt bann.
• Blekkjandi
upplýsingar
Jóhann Jakobsson hringdi og
sagði að sér hefði brugðið í brún
er hann las í Mbl. greinargerð frá
fjármálaráðuneyti um dagpeninga
ráðherra á ferðalögum erlendis.
Þar kom fram að ráðherrar fengju
20% hærri dagpeningagreiðslur
en aðrir embættismenn — en að
vísu fengju þeir að auki greiddan
allan hótelkostnað. Hvaða til-
gangi þjónar svona málflutning-
ur? Hann á augsýnilega að
blekkja almenning. í dagpen-
ingagreiðslum embættismanna er
innifalinn hótelkostnaður, þ.e.a.s.
þeir verða að greiða allan kostnað
af dagpeningum sínum, þ.m.t.
hótelkostnað, sem er verulegur
hluti ferðakostnaðar. Það liggur
því í augum uppi að dagpen-
ingagreiðslur til ráðherra eru því
miklu meiri en 20% hærri en til
annarra embættismanna vegna
ferðalaga erlendis. Mér finnst
ósæmilegt að vera með svona
blekkingar.
Æskan, aflahæsti humarbáturinn. Ljósmynd Mbl. Einar.
Humarvcrtíð lokið á Ilöfn:
Æskan aflahæst
eins og endranær
Höfn, 31. jiilf.
OUMARVERTÍÐINNI lauk í
gær, 30. júlí, hér á Höfn. Alls
bárust á land rúmlega 194 tonn
af slitnum humri. og er þetta ein
betri vertiðin frá upphafi ef ekki
sú bezta, ef miðað er við vertið-
artimann, en þessari vertið lauk
óvenjulega snemma.
Humarvertíðin í ár hófst 27.
maí sl. og stóð þar til í gær, eins
og áður sagði. Framan af vertíð
var humarinn frekar smár, en fór
siðan stækkandi þegar leið á
vertíðina og hefur humarinn verið
þokkalega vænn til loka vertíðar.
Stærsti löndunardagurinn var 6.
júní sl., en þá báruzt á land
rúmlega 12,5 tonn. Veðráttan á
vertíðinni var mjög góð, nema
hvað veður hamlaði nokkuð veið-
um í upphafi vertíðar í örfáa daga,
og má segja ða humarsjómenn séu
vel búnir að vinna fyrir hlut
sínum, eins og endra nær og sem
næst sleitulaust hefur verið róið.
Aflahæsti báturinn á þessari
vertíð er Æskan SF 140, en þetta
er í fjórða sinn í röð, sem hún er
aflahæsti báturinn á humarvertíð.
Afli Æskunnar á þessari vertíð
var 21.689 kíló og að sögn skip-
verja mun aflaverðmæti vera um
70 milljónir króna og hásetahlut-
urinn um 4—4,5 milljónir króna
fyrir úthaldið. Þó þetta virðist
mikil upphæð liggur óvenjulega
mikil vinna þar að baki. Þá má
geta þess að Æskan er einnig
aflahæsti báturinn á landinu.
Skipstjóri er Björn L. Jónsson.
Annar hæsti humarbáturinn er
Hvanney SF 51 með 16.407 kíló og
þriðji í röðinni er Steinunn SF 10
með 16.377 kíló og munar því
aðeins um 30 kílóum á öðrum og
þriðja bát. Aðrir bátar hér á Höfn
eru með 9—15 þús. tonn að
meðaltali. Að lokum má geta þess
að flestir bátanna fara að gera
klárt fyrir síldveiðarnar, sem
hefjast 20. ágúst og að sögn eins
skipstjórans hér á Höfn er ekki
ólíklegt að síldin verði stærri í
upphafi síldarvertíðar en oft áður.
Hann færði þau rök fyrir þessu, að
óvenjulega mikil hlýindi í sjónum
að undaförnu gætu haft þetta í för
með sér. Fjórir bátar héðan munu
fara á fiskitroll fram að síldar-
veiðum.
— Einar.
allt sumar höfum við vaknað upp
við ólætin í börnunum á kvöldin,
og þá er það svo með okkur gamla
fólkið að við verðum andvaka
jafnvel fram eftir nóttum. Á
miðvikudagskvöldið komu hingað
stálpaðir unglingar og ólmuðust
með bolta á húsinu svo ekki fékkst
stundlegur friður. Er ekki hægt að
gera eitthvað til að við gamla
fólkið hérna í Norðurbrún fáum
notið friðar þegar degi hallar.
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
Á Úkraínska meistaramótinu í
ár kom þessi staða upp í skák
þeirra Chervonov, sem hafði hvítt
og átti leik, og Dumansky
17. He8+! - Kxe8, 18. De3+ -
kf8, 19. Dxh6+ — I)xh6, 20.
Bxh6+ - Ke8, (Eða 20. ... Kg8,
21. Hel) 21. Hel+ - Be7, 22.
Hxe7+ — Kd8,23. Bxf7 og svartur
gafst upp því að eftir 23.... d6 24.
Bg7 fær hann ekki einu sinni peð
fyrir hrókinn.
HÖGNI HREKKVÍSI
SIGC-A V/öGA * \íLVZ9AU
Frá lögreglunni: •
Vitni vantar
að ákeyrslum
Slysarannsóknadeild lögreglunn-
ar í Reykjavik hefur beðið Morg-
unhlaðið að auglýsa eftir vitnum
að eftirtöldum ákeyrslum i borg-
inni. Þeir, sem geta orðið lögregl-
unni að liði við að upplýsa þessi
mál svo að eigendur ökutækjanna
fái tjón sitt bætt, eru beðnir að
hafa samband við lögregluna i
sima 10200.
Föstudaginn 11. júlí var til-
kynnt að ekið hefði verið á bifr.
R-1764, sem er Daihatsu, rauð að
lit, á móts við Pennann á Lauga-
vegi. Átti sér stað þann 8. júlí frá
kl. 22,00 til 00,30. Skemmd er á
hægra afturaurbretti.
Fimmtudaginn 17. júlí var til-
kynnt að ekið hefði verið á bifreið-
ina R-62955, sem er Austin Mini,
rauð að lit, fyrir framan Laugar-
nesveg 37. Átti sér stað frá kl.
23,00 þann 16. júlí og fram til kl.
08,00 þann 17. júlí. Vinstri hurð er
skemmd á bifr.
Sunnudaginn 13. júlí s.l. var
ekið á bifreiðina G-11433, sem er
Mazda fólksbifreið, silfurgrá að lit
á bifr.stæði við Regnbogann á
Hverfisgötu. Vinstri hurð er
skemmd á bifreiðinni. Átti sér
stað frá kl. 15,00 til 17,00. í
skemmdinni er gulur litur og væri
hugsanlegt að tjónvaldur væri
Citroen G.S.
Fimmtudaginn 17. júlí var til-
kynnt að ekið hefði verið á bifr.
R-7915, sem er Chevrolet Nova gul
að lit, á bifr.stæði við Miklubraut
50 Rvík. Skemmd er á hægri fram-
og afturhurð. Hefur átt sér stað
frá því á miðvikudagskvöld og
fram á fimmtudagsmorgun þann
17. júlí.
Laugardaginn 19. júlí var ekið á
bifreiðina R-1879 sem er Sunbeam
fólksbifr. en bifreiðin var gegnt
Hörðalandi 20 Rvík. Skemmd er á
hægra framaurbretti og er blár
litur í skemmdinni.