Morgunblaðið - 02.08.1980, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 02.08.1980, Qupperneq 38
38 * MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST1980 • Frá vinstri: Hannos Eyvindsson. Ragnar Ólafsson o« SÍRurður Pétursson. Allir oiga möxuleika á Islandsmoistaratitlinum. | mm : kk Stefnir í sannkallað hörkueinvígi í golfinu kylfingar eiga möguleika í • Töluverður mannfjöldi fylxdist moð xanxi mála i Grafarholti i Ra rdaR. Hér má sjá hluta þoirra. Ljiwm. Mhi.: KK Markalaust jafn- tefli á Eskifirði Mukhina lömuð ÞAÐ KOM fram í fréttum á sinum tíma. að sovéska fim- leikastjarnan. hin 20 ára Elene Mukhina, hofði slasast illa á æfinxu skömmu fyrir ólympiu- leikana. Var á sinum tima jafnvol talað um að hún hofði látist af meiðslum sínum. Sovét- menn báru allt slíkt tal snar- lega til baka. en ljóst var þó að Mukhina hafði slasast aivar- lega. Nú hefur það kvisast út. að stúlkan sé lömuð frá hálsi og niður úr. Hún var að fram- kvæma mikið heljarstökk á jafnvægisslá er slysið varð, hún missti jafnvægið og lenti á höfðinu... • * Enn gull í sarp Rússa SOVÉTMENN bættu enn einu guliinu i ört stækkandi verð- launasafn sitt á þossum ÓI- ympiuleikum, er sveit þeirra sigraði i 400 metra boðhlaupi karla. Pólverjar höfnuðu i öðru sæti og Frakkar nokkuð óvænt i þriðja sæti. Sigursveit Rússa skipuðu eftirtaldir hlaupagikk- ir: Valdimir Muravyov. Nikolai Sidorov, Aleksander Aksinin og Andrei Prokoyev. Tími sveitar- innar mældist 38,26 sekúndur, sem er nýtt Evrópumot. • * Stevenson stefnir í þriðja gulliö TEOFILO Stevenson, kúbanski hnefaleikakappinn kunni, tryggði sér sæti í undanúrslit- um i sínum þyngdarflukki, or hann afgreiddi pólskan keppi- naut i gær. Á morgun keppir Stevenson við Istvan Levai frá Ungverjalandi. Þetta eru þriðju Ólympiuleikarnir sem Steven- son tokur þátt i, á hinum tveim tók hann gullið. Nú stefnir allt i endurtekningu ... • % V.^ Þórður var ekki með í FRÁSÖGN Mbl. af 1. deildar leik ÍA og ÍBV í gær, var ein myndarlegasta villa sem fram hefur komið til þessa. Þar var fyrirliði Eyjamanna, Þórður Ilaligrimsson borinn þoim sök- um, að hafa bæði fengið gult spjald og skorað sjálfsmark i ieiknum, mark sem færði and- stæðingunum annað stigið. Var blm. sleginn algorri blindu, þetta var alls ekki Þórður. Þórður er að taka út leikbann um þessar mundir og það var Snorri Rútsson sem verður að taka á sig sjálfsmarkið og spjaldið. Er Þórður að sjálf- sögðu beðinn velvirðingar á mistökunum. AUSTRI og Þróttur skildu jafnir á Eskifjarðarvelli i fyrrakvöld. er liðin áttust við i 2. deild íslandsmótsins i knattspyrnu. Ekkert mark var skorað og voru úrslitin sanngjörn eftir gangi leiksins að dæma. Fer staða Austra ört versnandi og verður að fara að innbyrða nokkra sigra ef 3. deildin á ekki að verða hlutskipti liðsins á næsta keppn- istimabili. Þetta var nokkuð þokkalegur leikur, jafn og stundum nokkuð harður. Dauðafæri voru fá eða engin, þó þurfti markvörður Þróttar tvívegis að verja snagg- aralega. Austramenn voru ákveðnari framan af leiknum, en síðan jafnaðist orustan. í síðari hálfleik voru Austramenn síðan enn heldur sterkari þó ekki nægði það til sigurs. Njáll og Sigurberg- ur voru bestir hjá Þrótti og hjá Austra komust þeir Auðbjörn, Steinar og Hjálmar vel frá sínu. æö/gg ÞAÐ STEFNIR i hörkubaráttu á siðasta degi meistaramóts ts- lands i golfi. Eigi færri en fimm kylfingar i meistaraflokki eiga raunhæfan möguleika á að hremma titilinn. aðrir gætu mögulega komið til greina. Kylf- ingar i meistaraflokknum verða ræstir út frá hádegi i dag og er liklegt, að töluverður fjöldi fólks leggi leið sína í Grafarholtið til þess að fylgjast með spennandi keppni. Siðasti hópurinn byrjar klukkan 13.55. Ilannes Eyvinds- son náði besta árangrinum í gær, þriðja deginum, hann lék á 76 höggum. Björgvin Þorsteinsson er fast á hælum hans. hann lék á 74 höggum, þvi samanlagt 232 högg, en Hannes hefur leikið samanlagt á 230 hnggum. Og það er aðeins eitt stig í Sigurð Pétursson, sem lék í gær á 77 höggum. Ragnar Ólafsson, sem stóð sig svo vel í fyrradag, lék í gær á 81 höggi, samtals 235 höggum. Sveinn Sigurbergsson er í fimmta sætinu og á sannarlega möguleika með 236 högg. En röð tíu efstu í meistaraflokki er þessi: Högg Hannes Eyvindss. 230 Björgvin Þórsteinss. 232 Sigurður Péturss. 233 Ragnar Ólafsson 235 Sveinn Sigurbergss. 236 Geir Svansson 238 Þorbjörn Kjærbo 238 Óskar Sæmundsson 239 Stefán Unnarsson 240 Sigurður Hafsteinss. 243 Óttar Ingvarsson 243 Það rigndi nokkuð í Grafarholt- inu í gær og eykur það aðeins á spennuna í dag, þar sem verður mun meiri nákvæmnisvinna að leika vel. GR mun koma á fót talstöðvarneti um allan völl og töflum inni í skála. Verður þá hægt að fylgjast með gangi mála mfl. karla án þess að fara út fyrir dyr. Það eru nokkuð hreinni línur í meistaraflokki kvenna. Þar hefur Sólveig Þorsteinsdóttir góða for- ystu, Jakobína er önnur og nýjasta golfstjarnan, Steinunn Sæmunds- dóttir, er fjórða. Annars er röð tíu efstu sem hér segir: Högg Sólveig Þorsteinsd. 251 Jakobína Guðlaugsd. 258 Ásgerður Sverrisd. 261 Steinunn Sæmundsd. 263 Kristín Þorvaldsd. 268 Þórdís Geirsd. 272 Karólína Guðmundsd. 280 Ágústa Dúa Jónsd. 281 Guðfinna Sigurþórsd. 284 Katrín Frímannsd. 291 Jónina Pálsdóttir 291 í 1. flokki karla eru Kristinn Ólafsson og Hans Isebarn efstir og jafnir með 239 högg. í 3.-4. sæti eru Knútur Björnsson og Tryggvi Traustason með 249 högg hvor. Aðrir eru á lakara skori. Þá er lokið keppni í 1. flokki kvenna. Þar sigraði Guðrún Eiríksdóttir á 393 höggum. Elísabet Möller varð önnur á 405 og Lilja Óskarsdóttir varð þriðja á 411 höggum. Síðast er Mbl. frétti, stóð enn yfir keppni í öðrum og þriðja flokki karla. _____ — gg Ólympíumet í1500 m. TATYANNA Kazankina frá Sov- étrikjunum sigraði i 1500 metra hlaupi á Moskvuleikunum i gær. Setti hún i leiðinni nýtt ólympíu- met. Tími hennar var 3:59,6. Þá má geta þess, að Evelin Jahi frá Austur-Þýskalandi sigraði i sleggjukasti kvenna. Hún kastaði sleggjunni 69,96 metra, Ólympiu- met það.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.