Morgunblaðið - 02.08.1980, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1980
i
39
• Coe HÍKraði Ovett i fyrsta sinn.
Wessig með heims-
met í hástökkinu
GERD Wessig frá Austur-Þýska-
landi setti í gær nýtt og glæsilegt
heimsmet i hástökki á Olympiu-
leikunum i Moskvu. Eftir geysi-
lega harða keppni, þar sem
Ólympiumetið féíl hvað eftir ann-
að, féllu keppinautarnir loks úr
og Wessig lyfti sér yfir 2,36
metra. Tveir félagar deildu með
sér heimsmetinu sem féli, þeir
Jacezc Wzola frá Póllandi og
Dietmar Mogenburg frá Vestur-
Þýskalandi. Var gamla metið
2,35 metrar.
Hver keppandinn féll úr af
öðrum allt þar til hæðin var
komin í 2,31. Gamla Ólympíumet-
ið var 2,30 metrar. Wessig, Wzola
og Austur-Þjóðverjinn Jorg Frei-
muth lyftu sér allir yfir 2,31 og
var gamla metið þar með þrífallið.
Wessig stökk síðan yfir 2,33
metra, en þá féllu Freimuth og
Wzola úr keppni. Wessig gerði
síðan tilraun við heimsmetið og
gekk dæmið upp, hann fór yfir
2,36 metra. Wzola hreppti silfur-
verðlaunin, þar sem hann felldi
ekki eins oft og Þjóðverjinn Jorg
Freimuth.
Cierpinski
vann mara-
þonið annað
árið í röð
WALDEMAR Cierpinski frá
Áustur-Þýskalandi sigraði i
maraþonhlaupinu á ólympiuieik-
unum i gær. Það gerði hann
einnig á siðustu Ólympiuleikum
og hafa aðeins tveir menn unnið
það afrek að vinna tvö skipti i
röð, Cierpinski nú, en áður hafði
Abebe Bikila frá Eþiópiu leikið
sama leikinn árin 1960 og 1964.
Sigurtími Cierpinski var
2:11:2,41 klst. Gerard Nijdoer frá
Hollandi varð annar á 2:11:20,0 og
Setymkhul Dzhumanazarov frá
Sovétríkjunum varð þriðji á
2:11:35,0 klukkustundum. Það varð
því þunnur þrettándi hjá Lasse
Viren sem ætlaði að vinna a.m.k.
tvenn gullverðlaun á þessum leik-
um. Hann sat eftir með sárt ennið
og engan pening. Hann getur þó
vel við unað þrátt fyrir allt, með
fjóra peninga frá tveimur síðustu
leikum.
Yifter (t.h.) krækti enn i guli.
— sigraði í hlaupinu — Ovett varð að láta
sér lynda þriðja sætið. Straub varð annar
SOVÉTMENN sigruðu í 4x400
metra boðhlaupi, bæði í karla- og
kvcnnaflokki. í karlaflokki var
tími sovésku sveitarinnar
3:01,1 mínútur. í öðru sæti varð
sveit Austur-Þjóðverja á 3:01,3
minútum og þriðja varð sveit
ítala á 3:04,3 minútum.
1 kvennaflokki var sigurtimi
Rússanna 3:20,2 minútur. Aust-
ur-Þjóðverjar voru hér einnig í
öðru sæti á 3:20,4 og Bretland
varð í þriðja sæti á 3:27,5 minút-
um.
SEBASTIAN Coe fékk uppreisn
æru, er hann sigraði í 1500 metra
hlaupinu á Olympiuleikunum i
Moskvu i gærdag. Grét kappinn
af gieði i lok hlaupsins, enda
hafði hann orðið fyrir miklum
vonbrigðum i 800 metra hlaup-
inu, en i þvi sigraði helsti keppi-
nautur hans Steve Ovett. Ovett
gerði ekki betur en að hafna i
þriðja sætinu að þessu sinni,
Austur-Þjóðverjinn Jurgen
Straub hafnaði mjög óvænt i öðru
sæti. Talið var öruggt að þeir Coe
og Ovett myndu taka bæði gullið
og silfrið. Timi Coe var 3:38,4
sem er um 6 sekúndum lakari
timi heldur en heimsmet hans og
Ovetts. Tími Austur-Þjóðverjans
Straub, var 3:38,8 og Ovett kom í
mark á 3:39,0 minútum.
Straub tók forystuna snemma í
hlaupinu og hafði hana lengst af.
Komu Coe og Ovett skammt á
hæla hans og aldrei Iangt undan.
Á síðustu beygjunni skaust Coe
fram úr Straub og Ovett reyndi að
fylgja eftir. Oft hefur verið talað
um að Coe skorti keppnisskap, en
að þessu sinni sýndi hann að það
er fjarstæða, hann hélt forystunni
til loka hlaupsins og Ovett komst
ekki einu sinni fram hjá Straub.
Þetta var í fyrsta skiptið sem þeir
Ovett og Coe keppa saman í 1500
metra hlaupi þótt ótrúlegt sé.
Aðeins tvisvar höfðu þeir att
kappi í 800 metra hlaupi áður en
til Moskvu kom, sem táningar í
smámóti í Skotlandi. Og þetta var
í fyrsta skiptið sem Coe tekst að
sigra Ovett. Var vel við hæfi að
þessir tveir risar millivegalengd-
anna deildu með sér gullverðlaun-
— Eþíópíubúinn smái sigraði í 5000 m.
EÞÍÓPlUBÚINN smávaxni, Mir-
uts Yifter, bætti öðrum gullverð-
launum i safnið, er hann sigraði í
5000 metra hlaupinu á ólympíu-
leikunum i Moskvu i gærdag.
Yifter hafði áður sigrað í 10.000
metra hlaupinu. Yifter var ör-
skammt á undan Tanzaniumann-
inum Suleiman Nyambui í mark-
ið. Háðu þeir mikla rimmu sem
lauk með sigri Yifter. Tími sigur-
vegarans var 13:21,0 mínútur, en
tími Tanzaniumannsins var
13:21,6 minútur. Finninn Kaario
Maaninka hreppti bronsverð-
launin, hann hljóp á 13:22,0
minútum.
Fjórði keppandinn mældist á
13:22,8 minútum. en það var
Eamon Coughland frá írlandi.
Fimmti var Markus Riffel frá
Sviss á 13:23,1 minútu og sjötti
varð Dietmar Millonig frá Aust-
urriki á 13:23,3 minútum.
Tvö ný
Rússagull
um, en áður hafði Ovett sigrað í
800 metra hlaupi eins og áður er
sagt.
Fjórði í 1500 metra hlaupinu
varð Andreas Busse frá Austur-
• Ovett varð óvænt í þriðja sæti.
Þýskalandi á 3:40,2, fimmti var
Vittorio Fontanella frá Ítalíu á
3:40,4. Þriðji Bretinn í lokakeppn-
inni var Stephen Cram, hann
endaði í 8. sæti á 3:42,0.
Yifter krækti
í annað gull
Coe var heldur betur
með á nótunum í 1500 m.