Morgunblaðið - 02.08.1980, Qupperneq 40
Síminn
á afgreiðslunni er
83033
B)er0unbl«tittk
lÁ£ff/ Síminn á afgreiðslunm er
83033
|M«r0tmbInbie
LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1980
Unnið að björgunar- og slökkvistörfum að Langholtsvegi 77 í
gær.
Lézt í eldsvoða
ELDRI kona lét lifið þegar
eldur kom upp i húsinu Lang-
holtsvegur 77 í Rcykjavik i
gærdag. Konan var 62ja ára
gömul. Ekki er hægt að birta
nafn hennar að svo stöddu.
Eiginmaður konunnar var einn-
ig i húsinu þegar eldurinn kom
upp. Hann brenndist og liggur
nú á Landspitalanum.
Tilkynning um eldinn barst
klukkan 17,30. Húsið Langholts-
vegur 77 er forskallað timburhús.
hæð og ris. Mikill eldur logaði í
risinu þegar lögregla og slökkvi-
lið komu á staðinn, en konan
dvaldi í risinu. Maðurinn var
hins vegar á neðri hæðinni.
Þegar konan náðist út úr húsinu
var hún látin.
Samkvæmt upplýsingum
Rannsóknarlögreglu ríkisins er
óvíst um eldsupptök. Efri hæð
hússins er stórskemmd og miklar
skemmdir urðu einnig á neðri
hæðinni af vatni og reyk.
Ljóem. Mbl. RAX.
Varúðar er þörf við
Krossá og Hvanná
FÆRÐ ER nú ekki sem best yfir
árnar i Þórsmörk, Krossá og
Hvanná, að þvi er lögreglan á
Hvolsvelli tjáði blaðamanni
Morgunblaðsins i gærkvöldi.
Hitabylgjan undanfarna daga
hefur aukið verulega vatnsmagnið
í ánum, og þær hafa breytt sér
nokkuð. Þó mun færðin vera að
batna aftur, og ætti öllum tveggja
drifa bílum að vera óhætt að
leggja í árnar ef fyllstu varúðar er
gætt, að sögn lögreglunnar.
Lögreglumenn frá Hvolsvelli
munu verða í Þórsmörk um helg-
ina, til eftirlits og aðstoðar ef með
þarf.
Útlit fyrir hagstæð-
ast veður á Vestfjörð-
um og Norðurlandi
VEÐUR verður að öllum líkind-
um bærilegt viðast hvar um
landið um versiunarmannaheig-
ina, að þvi er Hafliði Jónsson,
veðurfræðingur, hjá Veðurstofu
tslands sagði i samtaii við
blaðamann Morgunbiaðsins i
gærkvöidi. Best verður veðrið að
öllum likindum á Vestfjörðum og
á Norðurlandi, en lakast á Aust-
urlandi.
A landsvæðinu frá Vík í Mýrdal
og vestur um til Faxaflóa er gert
ráð fyrir skúraveðri og skýjuðu
veðri, en þurru inn á milli. A
Vesturlandi er búist við skúraleið-
ingum einnig, en þó taldi Hafliði
að veður myndi þar fara batnandi
eftir því sem liði á helgina og gæti
jafnvel orðið ágætt veður í helg-
arlokin. Á Vestfjörðum er búist
við blíðskaparveðri, heiðríkju og
hægviðri, svipað veður verður trú-
lega á Norðurlandi vestra, en þó ef
til vill meira skýjafar. Á Norður-
landi eystra er einnig búist við
blíðskaparveðri, skýjað með köfl-
um en sólskin inn á milli. Aust-
firðirnir verða aftur á móti að
öllum líkindum þungbúnir, ein-
hver rigning og hugsanlega súld á
nóttunni.
Hlýindi verða mest í sólskininu
á Norðurlandi og á Vestfjörðum,
en hvergi mjög kalt. Líklegt hita-
stig er 10 til 15 stig sunnanlands
og upp í 20 á Norðurlandi og á
Vestfjörðum.
Ríkisstjórnin segir þvert nei
við 60 ára eftirlaunaaldri
Gæzluvarð-
hald „sölu-
mannanna"
framlengt
SAKADÓMUR Reykjavikur
framlengdi i gær gæzluvarð-
hald „sölumannanna" svo-
nefndu um 15 daga eða til 15.
ágúst.
Báðir hafa setið inni í nokkr-
ar vikur. Þórir Oddsson vara-
rannsóknarlögreglustjóri tjáði
Morgunblaðinu í gær að ran-
nsókn þessa máls væri mjög
umfangsmikil og hefði þótt
nauðsynlegt í þágu rannsókn-
arinnar að krefjast framleng-
ingar á gæzluvarðhaldi beggja
mannanna.
KJARAMÁLIN voru til umræðu á
fundi ríkisstjórnarinnar f gær-
morgun. Þar var einkum verið að
ræða stöðuna i samningum við
BSRB. Aigjör andstaða mun hafa
verið gegn þeirri kröfu BSRB
manna að eftirlaunaaldur verði
lækkaður niður i 60 ár, en liklegt
er að samþykktur verði réttur til
að semja um samningstima. Full-
trúar BSRB ræddu við fjármála-
ráðherra að loknum fundi ríkis-
stjórnarinnar. Og vænta þeir þess,
að samninganefnd ríkisins muni
koma með gott veganesti til samn-
ingafundar á þriðjudaginn og lin-
ur fari að skýrast eftir það.
Samningafundur var haldinn i
gærmorgun á milli ASÍ og VMS.
Litið þokaðist í áttina á þeim fundi
og virðist einhver afturkippur kom-
inn í viðræðurnar. ASÍ menn leggja
mikla áherzlu á, að leiðrétt verði
það ósamræmi, sem er á milli launa
fyrir sömu störf. Til dæmis munu
lagermenn og bílstjórar m.a. hjá
Olíufélaginu tilheyra þremur félög-
um, þ.e. Iðju, Dagsbrún og Verzlun-
armannafélaginu. Félagar í VR
munu hafa 10—15% hærra kaup en
hinir fá fyrir sömu störf. Fulltrúar
VMS vilja ekki samþykkja þessa
leiðréttingu, nema að mjög litlu
leyti, og ríkir mikil ólga meðal ASÍ
manna út af þessu atriði. Ennfrem-
ur eru sjónarmiðin gjörsamlega
andstæð í vísitölumálinu og hvor-
ugur aðilinn vill gefa sig. Fulltrúar
VMS munu óttast mjög alla sam-
ninga sem hafa í för með sér
einhverjar kostnaðarhækkanir.
Staða Vinnumálsambandsins í
þessum viðræðum virðist hafa
þrengst mjög. Þeir horfast nú í
augu við að vera að semja við
stóran hóp launþega, sem þeir hafa
alls ekki í vinnu og þar af Ieiðandi
þekkja lítið til og hafa takmarkaðar
upplýsingar að styðjast við. Þetta
veldur erfiðleikum í að meta rétt
meðaltal þegar verið er að fjalla um
áhrif prósentuhækkana mismun-
andi hópa og verða VMS fulltrúarn-
ir því í raun að leggja matið í
hendur hins samningsaðilans þ.e.
ASÍ. Næsti samningafundur ASI og
VMS verður haldinn í dag kl. 10.
Járniðnaðarmenn hafa nú tekið
upp viðræður við Samband málm-
og skipasmiðja. Á fundi þeirra í dag
var rætt um möguleika á beinum
samningum. Niðurstaða fékkst ekki
og hefur annar fundur verið ákveð-
inn á morgun.
20% hækkun
á svartolíu
SVARTOLÍA hækkar nú um 20%
samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar-
innar á fundi hennar f gærmorgun.
Hækkunarbeiðni þessi er til komin
vegna hækkana erlendis frá, en eins
og sagt hefur verið í fréttum, var
siðasti svartolíufarmur dýrari en
verið hefur, en hann kom frá Bret-
landi.
Álagning gjalda í Reykjavík:
VEGNA sumarleyfa kemur
Lesbók Morgunblaðsins ekki út
um þessa helgi.
Eignaskattur hækkar um
93%, tekjuskattur um 70%
í G/ER birti Skattstjórinn i
Reykjavík helstu aiðurstöður að-
alálagningar gjaldárið 1980 á þá
einstaklinga, sem eru skattskyld-
ir í Reykjavik, þó ekki barna sem
skattlögð eru.
í yfirlitinu kemur fram að
tekjuskatt greiða 32.399 aðilar að
upphæð kr. 25.635.237.794 og
nemur hækkunin tæpum 70% á
milli áranna 1979 og 1980. Eign-
arskattur er greiddur af 14.363
aðilum að upphan) kr.
2.177.065.015 og nemur hækkunin
á milli ára um 93%.
Kirkjugjald hækkar um 56,33%,
kirkjugarðsgjald hækkar um
67,64%, sjúkratryggingargjald
hækkar um 54,05%, útsvar hækkar
um 63,26% og skattur af skrif-
stofu- og verslunarhúsnæði hækk-
ar um 53,35%. Samtals álögð gjöld
eru kr. 55.949.615.214 og fjöldi á
skrá er 62.036. Samtals hækka
álögð gjöld því um 67,0%.
Persónuafsláttar til greiðslu út-
svars njóta 16.356, persónuafslátt-
ar til greiðslu sjúkratryggingar-
gjalds njóta 17.061 og barnabóta
njóta 21.960.
Þegar tekið hefur verið tillit til
þessara frádráttarliða verður
hækkun á nettó álagningu 63,85%
á milli ára.