Morgunblaðið - 07.08.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1980
5
Blikur á lofti í
atyinnumálum
á ísafirði
^ísafiröi 6. áKÚst 1980.
ÝMSAR blikur eru nú á lofti í atvinnumálum hér
vestra. Mestu veldur þar erfið rekstrarstaða fisk-
vinnslufyrirtækja vegna birgðasöfnunar pg óhagstæðs
gengis. Fréttaritari Morgunblaðsins á ísafirði hafði
samband við nokkra aðila til að kanna ástandið hér
nánar.
Niður í Sundahöfn voru Helgi
Geirmundsson útgerðarmaður og
Guðmundur Sigurðsson skipstjóri
að bíða eftir ís fyrir bátinn. Þeir
létu illa yfir ástandinu, sögðu að
vont hefði verið að losna við
aflann fyrir þorskveiðibann, og nú
væru horfurnar miklu verri. „Þótt
vælið í frystihúsunum sé nú
venjulega bara helvítis píp,“ sagði
Guðmundur, „er ábyggilegt að
útlitið er nú mjög svart." Frysti-
geymslurnar halda nú ekki lengur
frosti á því mikla magni sem
troðið er í þær, að þær afskipanir
sem nú fara fram eru rétt nægi-
legaar til að koma jafnvægi á í
geymslunum. „Ég hef heyrt,“
sagði Helgi, „að frystihúsin ætli
ekki að hefja móttöku þann 18.
eins og gert var ráð fyrir. Við
fáum upplögn hjá Rækjuverk-
smiðjunni í Hnífsdal, með því
fororði að við veiðum ekki að
austanverðu."
Finnbogi Jónasson útgerðar-
maður og kona hans Elísabet
Guðlaugsdóttir voru á fullri ferð
um bryggjuna. Þau sögðu þó
fréttamanni á hlaupunum, að
þeim hefði ofboðið aumingjaskap-
urinn. Því hefðu þau tekið sig til
og tekið fisk af fimm bátum um
verslunarmannahelgina og unnið í
salt og skreið. Þau fengu inni í
rækjuverksmiðju O.N. Olsen, og
svo mikið gekk á sagði frúin, að
ekki fengust flökunarhnífar „og
hefur mest verið notast við eld-
húshnífinn minn!“ Aðspurður
sagði Finnbogi, að hann vissi
raunar enn ekkert um útkomuna,
hann hefði enn ekki haft tíma til
að spyrjast fyrir um útflutnings-
verðið. „En það er alveg saman,“
sagði Elísabet, „við skömmuðumst
okkar fyrir að borga 100 krónur
fyrir kílóið eins og frystihúsin
buðu, en borguðum í staðinn 200.“
Guðmundur Marselliusson hjá
F. Bernharðsson h.f. sagði að nóg
verkefni væru hjá stöðinni, og
frekar vantaði mannskap. Þeir eru
nú með í smíðum 150 lesta togskip,
og á hafnarbakkanum bíður
skrokkur stórrar seglskútu sem
þeir ætla að innrétta í vetur. Þeir
höfðu hugsað sér að þekja hálfgert
horn við stöðina, til að koma
skútunni undir þak, en þá kom í
ljós að borga varð 30 milljónir
króna í nýbyggingargjald til ríkis-
ins, auk ótalinna milljóna í gatna-
gerðargjald til bæjarins.
Sigurður Helgason stöðvarstjóri
Vörubílastöðvarinnar sagði að
mun lakara ástand væri hjá vöru-
bifreiðastjórum en í fyrra. Munar
þar mestu um minni vegagerð.
Sem komið er hefur sáralítil vinna
verið fyrir vörubíla hjá Vegagerð
ríkisins. Taldi hann uppá að horf-
urnar væru ekki góðar.
Gestur Halldórsson fram-
kvæmdastjóri hjá Vélsmiðjunni
Þór sagði, að mikil vinna væri hjá
fyrirtækinu, og yfirdrifið nóg að
gera í öllum deildum þess. Helstu
viðskiptavinir eru skuttogararnir
og fiskiðjuverin. Viðskiptin við
þessa aðila hafa gengið mjög vel,
en ef breyting yrði þar á mætti
búast við mjög skjótum breyting-
um til hins verra. Um 30 manns
Seltirningar greiða
10.5% í útsvar
SELTIRNINGAR greiða nú
10,5% útsvar. samkvæmt álagn-
ingu gjalda fyrir árið 1979.
Hefur Seltjarnarnesskaupstaður
því hækkað útsvarsálagningu um
0,5% frá því í fyrra, en er samt
sem áður með lægsta útsvarshlut-
fall sveitarfélaga á landinu.
Magnús Erlendsson forseti bæj-
arstjórnar Seltjarnarnesskaup-
staðar sagði í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins í gær, að
samþykkt um fyrrgreinda hækkun
hefði verið gerð samhljóða í bæj-
arstjórn í fyrra mánuði. Ástæð-
una fyrir hækkuninni sagði Magn-
ús vera þá, að með 10% útsvari
hefðu ekki fengist nema 680 millj-
ónir króna, en fjárhagsáætlunin
var miðuð við að 750 milljónir
króna kæmu inn í útsvarsgreiðsl-
um, svo 70 milljónir króna bar á
milli.
Þegar upplýsingar bárust um
það frá Þjóðhagsstofnun, að tekj-
ur sveitarfélagsins yrðu aðeins um
680 milljónir króna, hefði verið
tekin ákvörðun um hækkun, sagði
Magnús. Nú er áætlað að tekjur
Seltjarnarnesskaupstaðar af út-
svörum verði um 728 milljónir
króna. Til þess að þurfi ekki að
grípa til frekari skattheimtu,
sagði Magnús að mismuninum
milli þessara 728 milljóna og
þeirra 750 sem fjárhagsáætlunin
gerði ráð fyrir, yrði náð með
niðurskurði á framkvæmdum.
Sem fyrr segir er Seltjarnar-
nesskaupstaður enn með lægstu
útsvarsálagningu á landinu, en á
síðasta þingi var samþykkt að
veita sveitarfélögum heimild til
allt að 12,1% útsvarsálagningar.
Einn sótti um Hof,
enginn um Asa
UMSÓKNARFRESTUR um tvö
prestaköll. Hof í Vopnafirði og Ása
i Skaftártungum, rann út fyrir
helgi.
Samkvæmt upplýsingum er Morg-
unblaðið fékk í gær hjá skrifstofu
biskups, sótti einn um Hofspresta-
kall, en enginn um Ása. Umsækjandi
um Hof er Sigfús J. Árnason,
prestur á Sauðárkróki.
Tvö skip
seldu ytra
TVÖ íslenzk fiskiskip seldu afla
sinn ytra í gærdag. Það voru Már.
sem seldi um 159.9 tonn i Cuxhaven
og fékk fyrir það 69.5 milljónir
króna, eða um 435 krónur að
meðaltali fyrir hvert kíló.
Þá seldi Klakkur um 120 tonn i
Fleetwood og fékk fyrir það 56.Ö
milljónir króna, eða um 467 krónur
að meðaltaii fyrir hvert kíió.
„Gera bæinn fínan — leggja gangstéttir og svoleiðis,“ svöruðu þcssir hressu ísfirðingar, er þeir voru
spurðir að þvi hvað þeir væru að gera. Ljósm. Mbl. F.P.
vinna hjá fyrirtækinu.
Magnús Sigurðsson hjá Rækju-
vinnslunni hf. í Hnífsdal sagði að
allt væri þar í fullum gangi. Þeir
væru með rækjuvinnslu og salt-
fiskverkun. Tveir bátar eru nú á
rækju, og sá þriðju, Helga II er
nýhætt. Þeir taka fisk af níu
færabátum, og hafa ekkert stopp-
að nema í þorskveiðibanni báta-
flotans. Hann sagði að markaður
væri ekki of stöðugur, en þokka-
legt verð fengist fyrir framleiðsl-
una.
Ekki tókst að ná sambandi við
forráðamenn frystihúsanna á
staðnum, en Kristján Jóhannsson
viðskiptafræðingur hjá Ishúsfé-
lagi Isfirðinga, sagðist ekki hafa
heyrt annað en byrjað yrði að
vinna hjá þeim þann 18. ágúst eins
og um var talað. Hann sagði að
þeir hefðu nokkuð breiða vinnslu-
línu, vinna auk frystingar bæði
flattan og flakaðan fisk í salt, auk
skreiðarvinnslu.
Það er greinilegur órói í
mönnum hér vestra, vegna hins
ótrygga ástands, en ennþá óttast
menn ekki alvarlegt kreppu-
ástand, nema þá helst sjómenn
minnstu fiskibátanna, en þeim
finnst mörgum að reynt sé að
koma útgerð þeirra fyrir kattar-
nef.
- Úlfar.
LPTOFRA-
DISKURINN
Ryksugan sem svífur
HOOVER Töfradiskurinn S 3005 er ryksuga sem vekur
undrun. vegna þess hve fullkomlega einföld hun er.
Sogstyrkurinn er ósvikinn frá 800 W mótor, og rykpokinn
rúmar 12 lítra, já 12 lítra af ryki. HOOVER S 3005 er
ennfremur léttasta ryksuga sem völ er á, hún liöur um
gólfið á loftpúöa alveg fyrirhafnarlaust
fyrir þig. svo létt er hún.
Verö kr.
115.300.-
mm
ip
! .
> V:"
I "'i..
Eg er léttust...
búin 800Wmótor
og 12 lítra rykpoka
(Made inUSA)
, HOOVER er heimilishjálp