Morgunblaðið - 07.08.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 07.08.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1980 15 Deilt um húsakaup Karls Bretaprins London fi. áKÚst. AP. KARL Bretaprins, 31 árs gamall erfingi bresku krúnunnar. hefur fest kaup á nýju heimili, 18. aldar óðali í hjarta enskrar sveitasælu. að því er haft var eftir fasteignasölunum í dag. Óðalið, sem heitir Highgrove og er í Gloucester- skíri, kaupir hertogadæmið Cornwall, sem er helsta tekjulind prinsins og er kaupverðið sagt vera ein milljón punda eða 1,1 milljarður ísl. króna. Þegar sagt var frá því í bresku blöðunum, að þessi kaup væru fyrirhuguð, urðu margir til að mótmæla þeim og skoski þingmaðurinn Willie Hamilton, sem er fremstur í flokki þeirra sem berjast gegn bresku * krúnunni, sagði, að skammarlegt væri að verja heilli milljón punda til að koma þaki yfir höfuðið á Karli prins á sama tíma og þjóðin ætti í miklum efnahagsörðugleikum. 1 < - < W ' « ' ' Húsið hans Karls Bretaprins: Fjögur anddyri, níu svefnherbergi, barnaherberKÍ... Vitnaleiðslur um Billygate Washington, 6. ágúst. AP. DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ fór fram á það i dag við þin«ið. að það fengi aukin völd til að framfylgja þeim lögum sem Billy Carter sniðgekk um 18 mánaða skeið áður en hann lét skrá sig sem umboðsmann líbýsku stjórn- arinnar. Robert L. Keuch, varadóms- málaráðherra, bar í dag vitni fyrir sérstakri undirnefnd öldunga- deildarinnar, sem hefur tekið til við vitnaleiðslur um málefni Billy Carters, bróður Jimmy Carters Bandaríkj aforseta. Dómsmálaráðherrann, Benja- min Civiletti, viðurkenndi í dag, að hann hefði fengið í hendurnar leyniþjónustuskýrslur þar sem fram kasmi, að Billy Carter hefði fengið fé frá Líbýumönnum. Hann viðurkenndi einnig að hann hefði ekki afhent rannsóknarmönnum dómsmálaráðuneytisins skýrsl- urnar fyrr en þeir hefðu komist að efni þeirra á annan hátt. Oánægja með hljómburðinn, þrátt fyrir fúllkomin tæ/d? ADC TONJAFNARINN erráðvió þw. Kýpur: Friðarviðræður hefjast að nýju Nicosiu, Kýpur 6. ágúst AP TILKYNNT var í Nicosíu í dag, að Kýpurviðræðurnar hæfust að nýju á laugardag eftir 13 mánaða hié. Friðarviðræðurn- ar hafa legið niðri vegna þess, að deiluaðilar hafa ekki getað sæst á það hvaða mál skuli fjallað um. Talsmaður Sameinuðu þjóðanna á Kýpur sagði, að viðræðurnar hæfust á laugardaginn með ávarpi Kurt Waldheims aðalritara SÞ og að 15. september nk. kæmu síðan fulltrúar Grikkja og Tyrkja sam- an til að ræða Kýpurvandamálið frá öllum hliðum. Meginviðfangs- efni friðarviðræðnanna verður að ákveða stjórnarskrárlega stöðu Kýpur en með innrás Tyrkja árið 1974 var eyjunni í raun skipt í tvennt. Veður víða um heim Akureyri 18 skýjaó Amsterdam 20 skýjaö Aþena 37 heiöskírt Berlín 22 skýjaó BrUssel 19 skýjaö Chicago 30 skýjaó Feneyjar 31 heiðskírt Frankfurt 25 skýjað Faareyjar 10 skýjaó Genf 30 heióskírt Helsinki 22 heiðskírt Jerúsalem 32 lóttskýjaö Jóhannesarborg 17 skýjaö Kaupmannahöfn 21 skýjaö Las Palmas 32 heiðskírt Lissabon 31 heiöskirt London 20 skýjaö Los Angeles 29 skýjaö Madrld 35 heiöskírt Malaga 27 hólfskýjaó Mallorca 30 heiðskírt Miami 30 skýjaó Moskva 23 skýjaó New York 34 rigning Osló 20 heiðskírt París 25 skýjaö Reykjavík 12 rigning Rio de Janeiro 31 skýjaö Rómaborg 36 heiðskirt Stokkhólmur 20 skýjað Tel Aviv 30 lóttskýjaö Tókýó 25 heióskirt Vancouver 20 skýjað Vínarborg 29 skýjaö Slæmur hljómburður er ekki óvana- legur, enda löng leið frá hljómlistar- mönnunum til eyrna þinna. Leiðin liggur um hljóðnema, upp- tökutæki, pressun hljómplötunnar, tónhöfuðið og plötuspilarann þinn, magnarann og hátalarana. Þessi tæki hafa öll verið próuð og endur- bætt í áratugi og eru nú yfirleitt há- þróuð völundarsmíð. En endastöð leiðarinnar er enn ónefnd. Þó er hún einna mikilvæg- ust. Það er húsnæðið, sem þú notar til flutningsins og aðstæður þar. Húsakynni þín eru ekki hönnuð sem upptöku- eða hljómleikasalur. Hlut- föll lengdar, breiddar og hæðar, húsgögn og hurðir, klæðningar, teppi, gluggatjöld og rúður geta spillt hljómburðinum, ýkt eða kæft ein- staka tóna á ákveðnum tíðnisviðum og bjagað þar með heildina. ADC TÓNJAFNARI Ráð gegn þessu er ADC tónjafnari (Frequency-equalizer), sem þú tengir magnara þínum. Bygging ADC tónjafnarans grund- vallast á þeirri staðreynd, að mis- munandi tónar hafa mismunandi tíðni. Hver tónn á plötunni þinni ligg- ur að öllum líkindum einhvers staðar á tíðnisviðinu 60—16000 rið. Á ADC tónjafnaranum hefur þú fjölmargar stillingar til að auka eða draga úr styrk tóna með mismunandi hárri tíðni, t.d. tóna, sem liggja nálægt 60 riðum, s.s. dýpri tóna píanós, eða 1000 riðum, s.s. hærri flaututóna. Á þennan hátt getur þú leiðrétt þá þjögun, sem verður, og fengið hljómburó, sem nálgast þann, sem var í upptökusalnum. AÐRIR KOSTIR ADC TÓNJAFNARANS 1. Hann eykur hljómstyrk magnar- ans. 2. Hann stórbætir gæðin á þínum eigin upptökum. 3. Hann eyðir aukahljóðum, sem liggja á hárri tíðni (suð) eða lágri (drunur), án þess að hafa umtals- verð áhrif á tóngæðin. TÓNJAFNARI 1 Fimm tíðnistillingar 60—10000 rið Tvöfalt kerfi (hægri og vinstri) Bjögun: 0.02% TÓNJAFNARI 2 Tólf tíðnistillingar 30—16000 rið Hægra og vinstra kerfi aðskilið Bjögun: 0.02% Leiðandi fyrirtæki á sviöi sjónvarps útvarps og hljómtækja VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10.SÍMI: 27788 (4 LÍNUR).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.