Morgunblaðið - 07.08.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1980
31
• Guðmundur markvörður Breiðabliks átti góðan leik í gærkYöldi. Hér hirðir hann boltann af Albert
Guðmundssyni Val á síðustu stundu. Gunnlaugur Helgason UBK er við öllu búinn. Ljósm. Kristján Kinarsson.
Markaliðin skoruðu ekki
Lið Vals og UBK gerðu markalaust jafntefli á Kópavogsvelli í
gærkvöidi. Bæði þessi lið hafa skorað mikið í leikjum sinum í mótinu
til þessa en ekki tókst leikmönnum liðanna að koma boltanum í netið
að þessu sinni. Valsmenn hafa skorað 28 mörk i deildinni en
Breiðabliksmenn 19.
Veðurguðirnir áttu sinn stóra þátt i þvi að illa gekk að koma
boltanum i netið. Völlurinn var mjög þungur eftir mikla rigningu
fyrr um daginn og ekki bætti úr skák að úrhelli var á meðan á
leiknum stóð. Var mesta furða hversu vel leikmönnum beggja liða
tókst að fóta sig á glerhálum vellinum og sýna góða knattspyrnu.
Lið Vals sótti meira í leiknum og átti mun hættulegri marktækifæri.
Þeir léku greinilega upp á sigur og ekkert annað. Lið UBK fór
varlega í sakirnar og lagði greiniiega áherslu á vörnina. Engu að
síður áttu framlinumenn liðsins góða spretti, en voru ekki nægilega
vel studdir af miðjuleikmönnunum.
Valsmenn áttu tvö umtalsverð
marktækifæri í fyrri hálfleiknum.
Á 14. mínútu átti Albert Guð-
mundsson fasta sendingu inn í
vítateig og þar náði Matthías til
boltans og skaut en Guðmundur
markvörður UBK náði til boltans
á síðasta augnabliki. Þarna voru
Valsmenn nálægt því að skora.
Síðara tækifæri Vals var á 40.
mínútu, þá átti Matthías skot af
löngu færi en það var varið. Eina
tækifæri UBK var er Vignir átti
þrumuskot af um 25 metra færi.
Sigurður var hins vegar vel á verði
og sló boltann yfir þverslána í
horn.
Valsmenn byrjuðu síðari hálf-
leikinn af miklum krafti og á 51.
mínútu voru þeir mjög nálægt því
að skora mark eftir mikla pressu á
mark UBK. Jón Einarsson braust
upp kantinn og komst inn í
vítateig, skaut þar föstu skoti á
markið og Guðmundi markverði
UBK rétt tókst að slá boltann sem
hrökk í stöngina og út til Matthí-
asar, sem skaut í fang Guðmund-
ar. Þaðan hrökk boltinn út og
Sævar Jónsson átti lokaorðið, en
hann skallaði í bláhornið, en
Guðmundur var vel á verði og
varði. Þarna áttu Valsmenn sín
bestu marktækifæri í leiknum.
Lið Vals sótti nú stíft en vörn
Blikanna gaf ekkert eftir og Guð-
mundur var öruggur í markinu. Er
líða tók á síðari hálfleikinn jafn-
aðist leikurinn nokkuð en Vals-
menn voru þó ákveðnari aðilinn í
leiknum en tókst ekki að skora.
Lið Vals lék vel miðað við þær
slæmu aðstæður sem leikið var
við. Því hefur oft verið haldið
fram að Valsmenn léku ekki góða
knattspyrnu nema í sól og sumar-
yl, en þeir sýndu í gærkvöldi að
það er ekki rétt. Hvað eftir annað
sýndi liðið góðan samleik, og náði
hættulegum sóknarlotum. Matthí-
as Hallgrímsson var besti maður
liðsins og gerði mikinn usla í vörn
UBK. Þá átti vörn Vals og miðju-
leikmenn góðan leik. Sigurður
Haraldsson í markinu var öruggur
og greip vel inn í leikinn þegar
þess var þörf.
Lið UBK barðist vel í leiknum.
Vörnin var betri hluti liðsins.
Einna helst var miðjan ekki nægi-
lega sterk, og fylgdi framlínu-.
mönnunum ekki nægilega vel eftir
í sóknarlotunum.
í stuttu máli: íslandsmótið 1.
deild UBK—Valur 0—0.
Gult spjald: Magnús Bergs og
Magni Pétursson Val.
Áhorfendur 1052.
Dómari var Rafn Hjaltalín og
dæmdi hann leikinn mjög vel.
ÞR.
Pétur afgreiddi Þróttara
FRAM SIGRAÐI Þrótt örugglega 3 — 1 í fyrstu deild íslandsmótsins í
knattspyrnu ú Laugardalsvellinum í gærkvöldi í annars fremur
slökum leik, enda aðstæður ekki upp á það allra bezta. hellirigning og
biautur völlur. Það var Pétur Ormslcv, bezti maður Fram, sem sá um
að afgreiða Þróttarana, en hann skoraði öll mörk leiksins. Mark
Þróttar skoraði Ólafur Magnússon.
í fyrri hálfleik var nokkurt
jafnræði með liðunum, þau skipt-
ust á um að sækja, en án mikillar
uppskeru. Á 10. mínútu brýzt
Guðmundur Torfason laglega upp
að endamörkum eftir langt út-
spark nafna síns í Frammarkinu
og sendir boltann fyrir markið,
þar sem Pétur Ormslev var fyrir
og afgreiddi hann boltann snyrti-
lega í netið framhjá Jóni Þor-
björnssyni markverði Þróttar. Á
15. mínútu fær Sigurkarl Aðal-
steinsson sendingu inn fyrir
Framvörnina en skýtur naumlega
framhjá. Á 23. mínútu eru þeir
Guðmundur og Pétur enn á ferð-
inni, Guðmundur vinnur boltann
og sendir á Pétur, sem lék á einn
Þróttara og skoraði af öryggi af
vítateigslínu. Síðan var fátt um
fína drætti, fyrr en Þrótturum
tókst að minnka muninn á 32.
mínútu. Jóhann Hreiðarsson sendi
þá langa sendingu yfir í vítateigs-
hornið fjær þar sem Harry Hill
var staddur og skallaði inn á
markteiginn, þar kom Ólafur
Magnússon aðvífandi og var ekk-
ert að tvínóna við hlutina heldur
tók boltann viðstöðulaust og
þrumaði honum í netið. Það sem
eftir lifði fyrri hálfleiks var svo
tíðindalítið, en á 44. mínútu skaut
Jóhann Hreiðarsson naumlega
framhjá Fram markinu af stuttu
færi.
Seinni hálfleikur var ákaflega
tiðindalítill og slakur, einkum af
hálfu Þróttara, sem virtust alger-
lega heillum horfnir. Það eina,
sem gladdi augað, var mark Pét-
urs Ormslevs á 70. mínútu, er
hann fékk laglega stungu frá
Gústaf Björnssyni og skoraði af
öryggi, eins og honum er einum
lagið.
Eins og áður sagði var leikurinn
fremur slakur einkum af Þróttar
hálfu og ef þeir fara ekki að gera
betur geta þeir fljótlega bókað
fa.ll. Allir leikmenn Þróttar áttu
fremur slakan dag og varla hægt
að segja að nokkur þeirra hafi
staðið upp úr meðalmennskunni,
þó voru þeir skástir Jóhann Hreið-
arsson og Jón Þorbjörnsson, sem
varla verður sakaður um mörkin.
Fram-liðið hefur oft leikið betur,
en er þrátt fyrir það aftur á
toppnum ásamt Val og enn á fullri
ferð í baráttunni um íslandsbikar-
inn. Þeirra beztu menn voru Pétur
Ormslev og Marteinn Geirsson.
í stuttu máli: íslandsmótið 1.
deild. Laugardalsvöllur.
Fram — Þróttur 3—1 (2—1).
Mörk Fram: Pétur Ormslev á 10.,
23. og 70. mínútu.
Mark Þróttar: Ólafur Magnússon
á 32. mínútu.
Gult spjald: Harry Hill, Þrótti.
Áhorfendur: 460.
Dómari: Ingi Jónsson, sem dæmdi
Valur og Víkingur
taka ekki þátt
ÍSLANDSMÓTIÐ í útihand
knattleik hefst við Austurbæjar-
skólann í kvöld kl. 18.00. Það er
Þróttur sem sér um mótið að
þessu sinni. Það vekur nokkra
athygli að lið Vals og Víkings
taka ekki þátt í útimótinu að
þessu sinni. Þrír leikir fara fram
í kvöld. Kl. 18.00 leika KR og
Breiðablik í Mfl. kvenna og kl.
19.00 leika FH og Fylkir í Mfl.
karla, strax að þeim leik loknum
leika Fram og Haukar í Mfl.
karla. — þr.
Danir í
9. sæti
HÉR Á eftir má sjá úrslit í
handknattleikskeppni 01-
leikanna er löndin léku um
endanlega röð sína. Danir
höfnuðu í 9. sæti. Pólverjar í
7. Og athyglisvert er að lið
Spánar hafnar í 5. sæti.
sigrar lið Júgóslóvakíu með
einu marki eftir framlengd-
an leik.
I- 2: A-Þýzkaland - Sovétríkin 23:22
3-4: Rúmenía - Ungverjaland 20:18
5-6: Spánn - Júgóslavía 24:23
(e. framl.)
7-8: Pólland — Sviss 23:22
9-10: Danmörk - Alsír 28:20
II- 12: Kúba - Kuwait 32:24
Gústaf í
Stjörnuna
Handknattleiksmaðurinn
kunni Gústaf Björnsson úr
Fram. hefur nú skipt um
félag og gengið yfir í Stjörn-
una. Gústaf mun þjálfa 2. og
3. flokk féiagsins jafnframt
því sem hann mun þjálfa og
leika með Mfl. karla. — þr.
Handboltaskóli
Stjörnunnar
DAGANA 11.-22. ágúst
mun handknattleiksdeild
Stjörnunnar starfrækja
handboltaskóla fyrir börn
fædd árin 1967-72. Öll
starfsemi skólans fer fram
við Flataskóla, i iþróttahús-
inu og i Garðaskóla. Leið-
beinendur verða fjórir, auk
unglinga úr Stjörnunni.
Farið verður í gegnum öll
helstu grundvallaratriði
handknattleiksiþróttarinn-
ar. Einnig verða kvikmynda-
sýningar. Skráning fer fram
við anddyri Garðaskóla i
dag og á morgun milli kl.
13.00-14.00.
íslandsmót í
handknattleik
ÍSLANDSMÓT í handknatt-
leik utanhúss i 2. flokki
kvenna verður haldið á Seyð-
isfirði dagana 9. og 10.
ágúst.
Þátttökutilkynningar
ásamt þátttökugjaidi kr.
20.000 berist Pétri Böðvars-
syni, Firði 7, Seyðisfirði,
fyrir miðvikudag 6. ágúst.
Enn vantar
þátttöku-
tilkynningar
KÖRFUKNATTLEIKSSAM-
BANDIÐ vill minna aðiid-
arfélög á, að frestur til að
sklla þátttökutilkynningum
í næsta íslandsmót rann út
1. ágúst.
Enn vantar þátttökutil-
kynningar frá ýmsum félög-
um, sem sæti eiga í Úrvals-
deild og 1. deild.
Á síðasta Körfuknatt-
leiksþingi var samþykkt, að
bæta við keppni í tveimur
aldursflokkum, 3. flokki
kvenna 12—14 ára og 5.
fiokki karla 12 og 13 ára.
Því má búast við auknum
fjölda þátttakenda í yngri
flokkum og samkvæmt
reynslu fyrri ára verður
ekki auðvelt að skipuleggja
keppnina í ár en fyrstu drög
að mótaskrá eiga að iiggja
fyrir 20. ágúst nk.