Morgunblaðið - 07.08.1980, Side 16

Morgunblaðið - 07.08.1980, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1980 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 5.000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasöiu 250 kr. eintakiö. Aftur alvara í kjaramálin SSviptingarnar í kjaramálum eru með þeim hætti, að þeir, sem utan standa, hljóta oft að velta því fyrir sér, hvort viðræðuaðilarnir hafi gleymt því, að þeir eru ekki að ræða einkamál sín heldur tekjur þorra þjóðarinnar. Eins og Morgunblaðið hefur margsinnis bent á og Geir Hallgríms- son, formaður Sjálfstæðisflokksins, undirstrikaði í viðtali við blaðið á sunnudaginn, stóð ríkisstjórnin á bak við sérviðræður Vinnumálasambands samvinnufélaganna og Alþýðusambands Islands og lagði beinlínis á ráðin um að til þeirra var gengiö. Flokkspólitískir furstar þessara almanna- samtaka ætluðu að beita þeim í kjaramálunum til að treysta eigin stöðu. Eftir að þessar viðræður höfðu staðið í nokkra daga voru í Þjóðviljanum gefnar hástemmdar yfirlýsingar um skjótan framgang í kjaradeilu ríkisvaldsins við BSRB, sem er aðeins rúmlega ársgömul. Um miðja síðustu viku, nánar tiltekið miðvikudaginn 30. júlí birti Þjóðviljinn viðtöl við ýmsa aðila að kjaradeilu BSRB. Þá sagði Þröstur Ólafsson, aðstoðar- maður fjármálaráðherra, sem skipaður hafði verið sérstakur umboðsmaður ríkisstjórnarinnar til að fylgjast með viðræð- um SÍS og ASÍ: „Það ætti að liggja fyrir innan viku hvort samningar nást eða ekki.“ Og Guðmundur Árnason varafor- maður Kennarasambands Islands, sem situr í samning- anefnd BSRB, sagði í sama Þjóðviljablaði, að það mundi „væntanlega skýrast í lok vikunnar hvort samningar nást“. Báðar þær dagsetningar, sem þessir menn nefndu eru liðnar, án þess að nokkuð hafi gerst og Vinnumálasambandið hætti um helgina sérviðræðum við Alþýðusambandið. Flokkspólitískur leikur furstanna í ríkisstjórninni reyndist þannig ekki annað en enn ein blaðran, sem þeir senda á loft og springur við minnsta þrýsting. SÍS-valdið ákvað að draga sig í hlé og notaði sem ástæðu, að Málm- og skipasmiðasam- bandið klauf sig út úr viðræðunefnd Alþýðusambandsins. Þessi forsenda SIS er haldlítil, þegar haft er í huga, að í raun var Alþýðusambandið aðein.1 að semja fyrir 20% félags- manna sinna eða þar um bil í viðræðum sínum við SÍS. Það er fagnaðarefni, að flokkspólitísku tökin á samvinnu- hreyfingunni og verkalýðshreyfingunni eru ekkl algjör. Enn ráða fagleg sjónarmið nokkru. Samningaviðræður um kaup og kjör án aðildar Vinnuveitendasambands Islands voru auðvitað skrípaleikur. Höfuðaðilar almenna vinnumarkaðar- ins eru þó aftur sestir til viðræðna. Engu skal spáð um árangurinn. Ríkisstjórnin gæti til dæmis enn og aftur gripið til aðgerða, sem spilla efni kjaraviðræðnanna og tefja eðlilega framvindu þeirra. Þetta hefur hún margsinnis gert bæði með aðgerðarleysi og íhlutun. Skattaálögur voru hækkaðar á landsmenn síðastliðið vor þvert ofan í tillögur vinnuveitenda og launþega, svo að aðeins eitt axarskaft ríkisstjórnarinnar sé rifjað upp fyrir utan baktjaldamakkið um ofangreindar sérviðræður. Stefna Vinnuveitendasambandsins í þessum langvinnu kjaraviðræðum hefur verið skýr og ótvíræð. Af henni hefur það þegar leitt, að menn tala nú um grunnkaupshækkanir af mun meiri hógværð en oft áður. Prósentutölur, sem nefndar eru, ná varla einum tug en hafa yfirleitt skipt tugum undanfarin ár. Að þessu sinni verða ekki raktar ástæðurnar fyrir því, að meiri skynsemi virðist nú ráða en áður. Nóg er að nefna eina: Við öllum blasir, að úrræðaleysi ríkisstjórnar- innar og þrengri staða á fiskmörkuðum, sem ekki á síst rætur að rekja til mikillar aflaaukningar, eru að leiða til stöðvunar frystihúsanna, en þau eru burðarás atvinnustarf- seminnar um landið allt. Þegar við blasir minnkandi atvinna gera menn sér grein fyrir því, að miklar launahækkanir yrðu ekki til að bæta ástandið. Og þegar þannig er komið eru atvinnufyrirtækin alls ekki aflögufær. Reynslan sýnir, að þegar lyktir kjaraviðræðna nálgast, fer gjarnan allt úr böndunum. Hækkanir verða meiri en að var stefnt og vandanum er velt inn í hringiðu verðbólgunnar. Þessari hættu hefur ekki verið bægt frá. Hún gæti haft í för með sér geigvænlegar afleiðingar við núverandi aðstæður. Nauðsynlegt er að minna á hana um leið og því er fagnað, að þráðurinn skuli hafa verið tekinn upp að nýju milli Vinnuveitendasambandsins og Alþýðusambandsins. Ræða dr. Gunnars Thoroddsens, forsætisráðherra, á Hrafnseyrarhátíð: Annar læknaði mein manna — hinn bætti mein þjóðarinnar FORSETI íslands, Vigdís Finnbogadóttir! Biskup íslands! Hrafnseyrarnefnd! Vestfirðingar! og aðrir samkomugestir! Gleðilega hátíð. Á fyrsta þingi Jóns Sigurðs- sonar, árið 1845, var hann framsögumaður um frjálsa verslun. Hann hélt fast fram rétti landsmanna og vitnaði til þess, er Hinrik Bjelke höfuðs- maður tók eiða af mönnum áður fyrr en þá hafi hann lofað því hátíðlega af hendi kon- ungs, að Islendingar skyldu halda fornum réttindum sín- um. Konungsfulltrúi á Alþingi kvað þetta loforð enga þýðingu hafa nú, þar eð verslunarrétt- indi Islands væru stórum rýmri en þau voru, þá er Bjelke var á dögum. Jón svaraði að bragði, að það muni hverjum ljóst, hvort landsmenn muni hafa talið einokun verslunarinnar meðal fornra réttinda. Rökfimin og snerpan leyndu sér ekki þegar á þessu fyrsta þingi. Hér mælti hann líka fram með máli, sem stóð hjarta hans nær, því að — svo tilfærð séu orð Jóns — „versl- un er undirrót til velmegunar lands og lýðs, þegar hún er frjáls". Stórir sigrar hafa síðan unnist í verslunarsögu lands- ins. í anda Jóns og fyrir boðskap hans og baráttu losn- aði um viðjar og verslunin færðist á íslenskar hendur. Á þeirri helgi, sem helguð er verslunarmönnum, minnumst við brautryðjandastarfs Jóns Sigurðssonar fyrir verslunar- frelsi. En hitt má ekki gleym- ast, að enn skortir á, að verslun landsmanna búi við það frjálsræði, sem þjóðinni allri væri hollast. Enn þarf að því að stefna, að leysa hömlur af hólmi. Tveir eru þeir menn, tengdir Hrafnseyri, sem nafnkunnast- ir hafa orðið með þjóðinni. Annar var Hrafn Sveinbjarn- arson, göfugmenni og mestur læknir á Norðurlöndum á þeirri tíð. „Við mörgum mönnum vanheilum og félaus- um tók hann og hafði með sér á sínum kostnaði, þangað til er þeir voru heilir". Hinn var Jón Sigurðsson, hinn vitri og sterki leiðtogi. Vitsmunir hans voru djúpir, skapsmunir ríkir og heitir. Auk annarra mannkosta hafði hann það fram yfir marga aðra menn að aldrei lét hann skapsmuni sína bera vitsmuni ofurliði. Til þess þarf oft að taka á. Sjálfur sagði Jón eitt sinn: „Það er mannraun að tala svo milt, þegar sýður niðri í manni". Annar þessara öndveg- ismanna læknaði mein manna. Hinn bætti mein þjóðarinn- ar. Til minningar um Hrafn Sveinbjarnarson og Jón Sig- urðsson hefur mikið starf ver- ið hér af hendi leyst. Hrafns- eyrarnefnd og þeim sem með henni og fyrir hana hafa starfað, færi ég þakkir frá ríkisstjórn íslands. Loðnuveiðar hefjast 5. september: „Þolanlegt44 útlit fyrir sölur á loðnumjöli og lýsi „ÞAÐ má segja að útlitið varðandi sölu á loðnumjöli og lýsi sé þolanlegt, hvað verð snertir, en það er mjög tak- markað magn, sem hefur verið selt fyrirfram,“ sagði Jón Reynir Magnússon, fram- kvæmdastjóri Síldarverk- smiðja ríkisins, er Mbl. spurð- ist fyrir um markaðshorfurn- ar, en Steingrímur Hermanns- son sjávarútvegsráðherra sagði í samtali við Mbl. í gær, að loðnuveiðarnar myndu að öllum líkindum hefjast 5. sept- ember. Jón Reynir sagði S.R. hafa selt fyrirfram um 2000 tonn af Ioðnumjöli og væri síðasta verð 7,75 dollarar fyrir próteineiningu í tonni, sem mætti telja mjög sæmilegt verð, en hæst varð það á síðustu vertíð 8,25 dollarar. S.R. hefur ekkert lýsi selt fyrirfram ennþá. Gunnar Pet- ersen hjá Bernharð Petersen sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær, að í þeim fyrir- framsölum, sem gerðar hefðu verið á mjöli hefði verðið verið á bilinu 7,50—7,75 dollarar próteineiningin og eitthvað af lýsi hefði verið selt á 470—80 dollara tonnið, en verðið hefði undanfarin ár legið á bilinu 4—500 dollarar. Þetta verð væri miðað við afskipanir í október nóvember, en hins veg- ar væru Japanir nú að selja lýsi á 435—440 dollara tonnið. „Loðnumenn hafa sjálfir tek- ið að sér að skipuleggja loðnu- veiðarnar. Þeir gerðu sínar til- lögur og ég féllst á þær,“ sagði Steingrímur Hermannsson. „53 bátar munu stunda veiðarnar og skipting aflans verður þann- ig, að helmingi hans er skipt jafnt niður á alla og hinum helmingnum svo jafnað niður eftir stærð bátanna. Þetta á að tryggja að veiðarnar verði ekki kostnaðarsamt kapphlaup. Segja má þó, að á þessu sé sá galli, að verksmiðjur sunnan- og suðvestanlands séu ekki full- tryggðar, en margar þeirra eiga sjálfar báta og er því í lófa lagið að geyma sinn kvóta, þar til þeim hentar, því hann hleypur ekkert frá þeim. Þá fá menn einnig smásíld- arkvóta til viðbótar, sem á að gera það að verkum, að eitthvað af loðnu geymist til hrognatöku og frystingar, en um útlit og horfur á þeim mörkuðum höf- um við enn engar upplýsingar fengið frá sölusamtökunum. Samkvæmt niðurstöðum ís- lenzk-norsku fiskveiðinefndar- innar mega loðnuveiðarnar í haust og vetur nema allt að 775.000 tonnum og mega Norð- menn veiða 15% þar af, en 658.750 tonn koma í hlut íslend- inga. Steingrímur Hermanns- son sagði, að þessar tölur yrðu endurskoðaðar, væntanlega um áramótin, þegar fiskifræðingar hefðu gert sínar athuganir síðar á árinu. Viðræðum um stofnun nýs flugfélags haldið áfram MORGUNBLAÐIÐ hafði sam- að annast flugið yfir Norður- band við forstjóra Luxair í Atlantshafið. Hann vildi ekki Luxemborg og innti hann eftir tjá sig um málið, að öðru leyti skoðun hans á stofnun nýs en því, að viðræður væru vel á sameiginlegs flugfélags, Is- veg komnar og yrði haldið lendinga og Luxemborgar, til áfram.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.