Morgunblaðið - 15.08.1980, Síða 22

Morgunblaðið - 15.08.1980, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1980 Sigríöur Friðriks- dóttir - Minning Fædd 10. október 1912 Dáin 6. áKÚst 1980 Mig langar með örfáum orðum að minnast vinkonu minnar Sig- ríðar Friðriksdóttur sem lést að morgni 6. þ.m. Um ættir og uppruna hennar er mér ekki kunnugt enda skiptir það ekki máli í þessu sambandi, þetta + Faðir minn, ÞORSTEINN ÁSGEIRSSON, Hátúni 10a, andaöist 13. þ.m. í Borgarspítalanum. Guörún Nanna Þorsteinsdóttir. Systir okkar. + ÁSTRÍÐUR JAKOBSDÓTTIR Skaftahlíð 4, R., er látin. Ðálför hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Jón S.Jakobsson Jóhann Jakobsson Björn Jakobsson. Eiginmaöur minn, faöir okkar og afi SIGMUNDUR K. GUÐMUNDSSON garóyrkjumaöur, Heiómörk 58, Hverageröi er lést 10. ágúst veröur jarösunginn frá Hverageröiskirkju laugardaginn 16. ágúst kl. 14.00. Kristín Jónsdóttir Guöfinna Sigmundsdóttir, Árni Guömundsson, Karlinna Sigmundsdóttir, Magnús Gíslason, Ingibjörg Sigmundsdóttir, Hreinn Kristófersson, og barnabórn. + Ötför GUDBJARGAR EINARSDÓTTUR, Hrafnistu, Hafnarfiröi fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi í dag föstudag 15. ágúst kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Fríkirkjuna í Hafnarfiröi eöa líknarstofnanir. Helgi Þórarinsson, Erla Guömundsdóttir, Stefán V. Þorsteinsson, Helga Bjarnadóttir, Hjalti Jóhannsson. + Maöurinn minn, faöir, tengdafaöir og afi okkar ÞORLEIFUR ÞOROARSON Laugarásvegi 29 veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni, mánudaginn 18. ágúst kl. 3. Blóm vinsamlegast afþökkuö, en bent er a líknarstofnanir í minningu hans. Kristjana Kristjánsdóttir, örn Þorleifsson, Elsa Árnadóttir, Rosemarie Þorleifadóttir, Sigfús Guömundsson Einar Kristján Þorleifsson, María Þorleifsdóttir, Björg Þorleifsdóttir, Olga Bergljót Þorleifsdóttir, og barnabörn. - + Þökkum innilega auösýnda samúö við andlát og útför fööur okkar, afa og langafa GÍSLA SIGURDSSONAR Óöinsgötu 16 Fyrir mína hönd og annarra aöstandenda Einar K. Gislason. + HJartans þakkir færum viö ölium sem sýndu okkur hjálpsemi, velvild og samúö við andlát og jaröarför eiginkonu, móöur, tengdamóöur, ömmu og langömmu, ÞORBJARGAR BALDVINSDÓTTUR Helguhvammi. Guö blessi ykkur öll. Jóhannes Guömundsson, Helga Magnúsdóttir, Guömundur Jóhannesson, Guörún Bjarnadóttir, Valdimar Jóhannesson, Auöur Hauksdóttir, Eggert Jóhannesson, Ólafur Þórhallsson, Halldóra Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. eiga aðeins að vera nokkur minn- ingabrot frá kynnum okkar. Við hittumst fyrst er ég hóf störf í íþróttahúsi Kennaraháskólans haustið 1977, þar starfaði hún við ræstingar af alkunnri alúð og vandvirkni. Var leitun að betri starfsmanni en henni. Strax í upphafi tókust góð kynni sem urðu að einlægri vináttu milli okkar, öll hennar framganga lýsti festu og ákveðni en um leið mannlegri hlýju og umhyggju, minnist ég allra bitanna og sop- anna frá þessari yndislegu konu. Hinar mörgu stundir sem við áttum saman bæði á heimili þeirra hjóna Stefáns Ágústs Kristjánssonar og Sigríðar verða mér minningar sem ég þakka af alhug. Að lokum beini ég minni kveðju til aidraðs eiginmanns hennar, sem hefur ?vo mikið misst og sér nú á bak annari eiginkonu sinni. Megi algóður guð gefa honum styrk að bera þessa þungu byrði. Eins sendi ég innilegar samúðar kveðjur Annelu og Friðrik og öðrum ástvinum. Að leiðarlokum þakka ég guði fyrir að hafa kynnst Sigríði Frið- riksdóttur og eignast vináttu hennar. Drottinn blessi Sigríði og varðveiti. Hafi hún þökk fyrir allt. Haraldur Þór. Sá atburður hefir nú gerzt og er okkur að höndum borinn er við höfðum sízt óskað, en lengst vonað að mætti sem fjarstur vera, andlát frú Sigríðar Friðriksdóttur hús- freyju frá Akureyri, eiginkonu Stefáns Ágústs Kristjánssonar forstjóra og skálds, til heimilis að Bólstaðarhlíð 54, R. Fregnin um andlátið kom á óvart, föstudaginn 1. ág. sl. urðum við samferða í verzlunina Herjólf, og var frú Sigríður að ráðgera ferð norður á fornar slóðir um miðjan mánuð- inn, með eiginmanninum og njóta um leið samvista við ástkæran, hjartfólginn dótturson sinn Ólaf lækni Magnússon og fjölskyldu hans, en Ólafur gegnir nú um stundarsakir læknisstörfum á Dalvík. „Hugur minn er alltaf fyrir norðan" sagði frú Sigríður. Vitandi þó, að von barðist mót vissu, að hún fengi að dvelja lengur meðal okkar, eftir mjög alvarlegt áfall síðdegis þriðjudag- inn 5. ágúst. Við máttum ekki missa hana, hug hennar og stað- festu, sjón hennar og skilning, djörfung hennar og sérstakt drenglyndi, ást hennar og fast- heldni við allt er gat orðið öðrum til vaxtar og gæfu. Háttsemi frú Sigríðar og fram- koma var ávallt einarðleg og skörugleg, hér bar heimili þeirra hjóna og heimilishættir þar ljós- astan og fallegasta vitnisburðinn. Frú Sigriður sameinaði á svo margan hátt kosti og atgjörfi hefðarkonu, viðmótið jafnan vin- gjarnlegt, samúðarfullt. Skörungskapur hennar, glað- værð, bjartsýni, frjálslyndi og víðsýni vakti athygli hvarvetna, hjálpfýsi hennar og drenglyndi og hvatning sem aldrei brást þeim yngri til manndóms og framfara. Umhyggja frú Sigríðar fyrir ástvinum sinum lýkur ekki í dauðanum, hefst á æðra stig, dauðinn víkkar og stækkar starfssvið hennar, gerir hana færa um og veitir henni kost á, að vera í samvinnu við æðra mannfélag. Við getum haft stöðugt sam- band við framliðna, miklu víðtæk- ara ef við gæfum okkur meiri tíma, ró og næði, það stendur ekki á vinunum fyrir handan, því loftið úti og inni hér á íslandi, er þrungið ether-bylgjum, er gerir sambandið við annan heim, mögu- legt hvenær sem er og hvar sem er, ef við viljum sjálf. Skilyrðin eru bezt á morgnana og á kvöldin fyrir sambandinu við Paradísar- sviðið. Frú Sigríður hafði bjarg- fasta skoðun á að líf að loknu þessu væri raunveruieiki, nú hefur hún sannreynt það. Guð algóður, vörður og verndari fylgi þér Sigríður. Dýpstu samúðarkveðjur til Stefáns Ágústs, barna hans, Ann- ellu og Friðriks, tengdabarna og niðja. Helgi Vigfússon. Sigríður Friðriksdóttir var fædd á Kambhóli í Arnarnes- hreppi við Eyjafjörð 10. febrúar 1912. Hún andaðist á Landa- kotsspitala 6. þessa mánaðar, eftir að hafa veikzt skyndilega á heim- ili sínu daginn áður. Útför hennar verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag. Foreldrar Sigríðar voru hjónin Anna Guðmundsdóttir og Friðrik Daníel Guðmundsson bóndi á Arnarnesi, Kambhóli og víðar við Eyjafjörð. Þau flutttist til Akur- eyrar árið 1925, en það sama ár andaðist Friðrik fyrir aldur fram. Atli Þór Helga son — Kveðja Fæddur 19. janúar 1950. Dáinn 7. ágúst 1980. „DauAinn er bekur. en lifið er strá. Nkjálfandi starir þaA atraumfalHA á. Hálfhnett og hálffengiA hluatar þaA tll, dynur undir bakkanum draumfafeurt spil. VariA ykkur hlómstrá á bakkanum fóat. bráAum snýst sá lækur I fossandi róst." (DaviA Stef.) Badmintonfélag Akraness er ekki aldið að árum, aðeins þriggja ára, en þar hafa margir fundið góðan vettvang frístunda, og þar hafa mörg vináttubönd verið knýtt á undanförnum árum. Átli Helgason hefur verið þar mikil driffjöður og hjálparhelia. Ekki sóttist hann eftir stórum sigrum, heldur fyrst og fremst að hreyfa sig og hjálpa þeim yngri til að kynnast þessari ágætu íþrótt. Alltaf var hann hress og kátur, og lyfti undir aðra með leikgleði sinni. Hann hafði gaman af að taka myndir og á Badmintonfélag- ið honum þar mikið að þakka. Hann var fulltrúi þess í stjórn Í.A. og gjaldkeri þess síðastliðin tvö ár. Badmintonfélag Akraness á nú á bak að sjá góðum leiðtoga og drífandi starfsmanni. Það er erfitt að hugsa sér, að honum skuli nú svipt burt á miðjum starfsdegi frá konu og þrem ungum börnum. En höfuðskepnurnar láta ekki að sér hæða. „DauAinn er hafsjór, en holdiA er strá. en sálin er sundlétt og sókkva ei má." Við badmintonfélagar á Akra- nesi stöndum hnípnir á bakkanum og horfum niður í hylinn. Við kveðjum góðan félaga hinstu kveðju og biðjum honum blessun- ar á nýjum völlum annars lífs. Við vottum eiginkonu hans Sigríði Ólafsdóttur og börnum þeirra þremur okkar dýpstu samúð. Þá vottum við einnig samúð okkar foreldrum hans, systkinum og öðrum ættingjum. Guð blessi minningu hans. Badmintonfélagar * Akranesi. Þau Anna og Friðrik eignuðust sex börn. Dóttur misstu þau unga, og þrír synir þeirra, Andrés, Guðmundur og Jónas, létust á bezta aldri, en fjórði sonurinn, Pálmi, andaðist árið 1970. Sigríð- ur var yngst barna þeirra Önnu og Friðriks. Ráðvendni og góðvilji einkenndu þau hjón, og komu þessir eðliskostir fram í börnum þeirra. Anna, sem andaðist árið 1956, vissi ekkert dýrmætara í þessu lífi en að gera öðrum gott og rétta hjálparhönd, enda mun hún mörgum minnisstæð sökum mannkosta og hjartahlýju. Mikið ástríki var með þeim mæðgum, önnu og Sigríði. Sigríður fluttist með foreldrum sínum til Akureyrar árið 1925. Árið 1930 gekk hún að eiga Stefán Ágúst Kristjánsson frá Glæsibæ, síðar sjúkrasamlagsstjóra á Akur- eyri. Börn þeirra eru Ánna Gabri- ella, gift undirrituðum, og Friðrik Daníel framkvæmdastjóri í Reykjavík, giftur Ólafíu Sveins- dóttur. Barnabörnin eru fjögur, og barnabarnabörn einnig fjögur. Er Stefán Ágúst lét af störfum sem sjúkrasamlagsstjóri á Akur- eyri, fluttust þau Sigríður til Reykjavíkur, og var heimili þeirra þá fyrst í Drápuhlíð 20, en nú síðustu þrjú árin í Bólstaðarhlíð 54. Auk starfs síns við sjúkrasam- lagið sinnti Stefán Ágúst mjög ýmsum félasmálum á Akureyri. Hann stóð framarlega í góðtempl- arareglunni, var forstjóri Borgar- bíós og síðar Hótel Varðborgar, sem rekin eru af IOGT, formaður Tónlistarfélags Akureyrar, og fleira mætti upp telja. Umsvif húsbóndans áttu sinn þátt í því, að jafnan var gest- kvæmt á heimili þeirra hjóna á Akureyri, fyrst í Oddeyrargötu 24, en síðar í Eiðsvallagötu 6. En þar kom ekki síður til, að Sigríður var einstaklega gestrisin. Hvergi undi hún sér betur en á heimili sínu, og þá ekki sízt, er góða gesti bar að garði. Ekki er það ofmælt, að Sigríður var mikil húsmóðir. Heimilisbragur allur bar henni fagurt vitni, snyrtimennskan og reglusemin svo að af bar, og viðurgerningur svo sem bezt má verða. Sigríður var fríð kona og fín- gerð í útliti og fasi. í engu mátti hún vamm sitt vita, fremur dul og vönd að vinum. Hún var mjög frændrækin, og í hópi fjölskyld- unnar og nánustu vina átti hún sínar beztu stundir. Þess utan gerði hún ekki miklar kröfur til lífsins. Heimilið og fjölskyldan var hennar heimur. Hún var ákaflega vinnusöm og unni sér helzt ekki hvíldar. Þær stundir, sem heimilið ekki krafðist, vann hún ýmis störf utan heimilis, meira af eljusemi en nauðsyn. Ekkert aumt mátti hún sjá, og gerði mörgum gott, án þess að hafa orð á. Þótt Sigríður yndi hag sínum vel hér í Reykjavík, leitaði hugur hennar oft norður. AUtaf saknaði hún yndislegu Akureyrar sinnar og góðra vina þar, á Dagverðar- eyri og víðar í Eyjafirði. Sem í öllu hennar lífi kom þar fram trygg- lyndi hennar. Sambúð þeirra Sigríðar og Stef- áns Ágústs var ástrík og fögur. Þótt hún tæki ekki beinan þátt í félagsstörfum hans, sökum hlé- drægni . 'nnar, þá var þáttur hennar í margslungnu lifsstarfi hans mikill. Hún var honum stoð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.