Morgunblaðið - 15.08.1980, Side 25

Morgunblaðið - 15.08.1980, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1980 25 fclk í fréttum Pabba- stelpan / í Monakó + Stephanie prinsessa af Monakó er nú orðin fimm- tán ára gömul. Hún hefur ekki verið mikið í sviðs- ljósinu fram að þessu, það getur hún þakkað stóru systur sinni Caroline en öll athyglin hefur beinst að henni. Nú er Stephanie farin að vekja athygli og er hún farin að taka þátt í sam- kvæmislífinu af fullum krafti. Stephanie er yngsti meðlimur furstafjölskyld- unnar og hefur hún löng- um verið uppáhaldið hjá þeim. Sérstaklega á hún auðvelt með að vefja pabba sínum um fingur sér. + Stephanie er í miklu uppáhaldi hjá pabba sin- um, Ranier fursta. + Stephanie er mikið fyrir iþróttir eins og systkini hennar og er sundið i miklu uppáhaldi hjá henni. Marinó L. Stefánsson: Um skrift o g skriftarkennslu Skrift var ein af undirstöðu- námsgreinum barnaskólanna ásamt lestri og reikningi. Hún var iengi í hávegum höfð. „Að lesa og skrifa list er góð“, stendur þar. Nú er öldin önnur. Skrift er orðin hornreka, hún á ekki að standa á stundaskrá sem sérstök náms- grein, er mér tjáð. Hvers vegna ekki? Er kannski kennsla í skrift óþörf? Nei, mikil ósköp, en eitt- hvað varð að víkja fyrir greinum s.s. erlendum málum, sem nú átti að hefja kennslu í fyrr en áður, eðlisfræði o.fl. Það er vitanlega ágætt að kentia erlend mál, en fyrst eiga íslenzk börn að verða læs og skrifandi. Heyrt hef ég frá ágætum kennur- um, að allmargir nemendur í efri bekkjum grunnskólans séu í raun hvorki læsir né skrifandi. Ég hef rökstuddan grun um að skrift barna og unglinga hafi hrakað síðustu árin, þegar á heildina er litið, og muni að líkindum fara versnandi. Þegar yfirstjóm skólamála ákvað, að skrift skyldi ekki talin sérstök námsgrein heldur innifalin í móð- urmálinu, þ.e. á stundaskrá skal standa aðeins móðurmál, þá var skólastjórum og kennurum í sjálfsvald sett, hvort skrift væri kennd eða ekki, eða hve löngum tíma yrði varið til hennar. Vill þá víða fara svo, að naumur tími, sem ætlaður er móðurmálinu, fer að mestu eða öllu í málfræði, staf- setningu, ritgerðir o.fl. auk lestr- ar, en skriftin verður útundan. Kennari í einum skóia, sem hefur 6—12 ára börn, sagði: „Við leggj- um nú ekki mikla áherzlu á skrift.“ Ég hef um fjölda ára kennt skrift. Og þótt ég sé hættur kennslu í skóla, er ég stöðugt beðinn að laga hjá börnum, sem engum tökum ná í skóianum. Mér virðist bera mjög á kæruleysi bæði hjá börnum og fullorðnum um frágang á rituðu máli. . Nú mum verða sagt að ekki sé nauðsynlegt að kenna skrift, því að mest allt sé hvort sem er prentað eða vélritað. Satt er það, en er ekki viðkunnanlegra að geta a.m.k. skrifað nafnið sitt, svo hægt sé að vita hvað maðurinn heitir. Oft er krafizt eiginhandar undirskriftar, en nafnið er ólæsi- legt. Þá er því bjargað með því að vélrita það neðan við. Það virðist reyndar vera í tízku að skrifa nafn sitt ólæsilegt. (Að vísu margar góðar undantekningar.) Væri þá ekki bezt að velja sér bara eitt- hvert merki og auglýsa: Þetta merki þýðir nafnið mitt Jón Jónsson? Ég hef stundum fengið nótur eða reikninga yfir vörur þar sem bæði nafn vörunnar og af- greiðslumannsins var ólæsilegt. Margt slíkt iná benda á. Nei, handskrift er ekki úrelt ennþá. Ritvél er ekki alltaf við höndina. Prófúrlausnir þurfa að vera skil- merkilega skrifaðar. Og ef þú skrifar elskunni þinni, verður hún að geta lesið bréfið. Það á að vera metnaður hvers manns að geta skrifað sæmilega rithönd. Oft þarf að flýta sér við skriftir bæði í skóla og ýmsum störfum, en þrátt fyrir það á markmikið alltaf að vera læsileg skrift. Ekki er hægt að búast við fagurri skrift yfirleitt, en við eigum að krefjast skriftar, sem er auðvelt að lesa. Hvaða gagn er líka að ólæsilegu krassi? Ekki skiptir miklu hvaða tegund eða gerð skriftar er notuð, hvort það er hin gamla íslenzka stafagerð, sem mér líkar að vísu bezt, eða svokölluð formskrift, ellegar einhvers konar prentlet- ursgerð eða blokkskrift, aðeins að hún sé læsileg og helzt stílhrein. Sagt er að ekki þurfi að verja sérstökum tíma í beina skriftar- kennslu af því að börnin skrifi svo mikið í hinum ýmsu námsgrein- um, og kennari geti bara leiðbeint þeim um skriftina jafnframt öðru sem þau skrifa. En þessi röksemd stenzt nú ekki. Börn læra ekki skrift af því eínu að skrifa mikið, og kennari kemst ekki yfir það, þótt hann sé allur af viljá gerður að leiðbeina svo að gagni komi, enda upptekinn af öðru sem hann er að kenna. Aðeins örfáum nem- endum nægja slíkar ábendingar. En ef skrift hefur verið kennd áður svo að gagni hafi komið, getur kennari fremur notað slíkar ábendingar með árangri til við- halds þeirri skrift, sem áður var náð, og má þó hvergi slaka á. Marinó L. Stefánsson. Það er ekki auðvelt að kenna skrift svo að gagni verði, og sumir kennarar hliðra sér hjá því, gefast upp, kasta forskriftarbókum í börnin og segja þeim að skrifa, setjast svo í stólinn sinn og lesa sögu fyrir börnin. Þannig fær kennari e.t.v. kyrrð í bekknum, en slíkt er auðvitað engin kennsla. Forskriftarbækur eru ágæt hjálp- artæki, en þeim verða að fylgja útskýringar frá töflu eða/og til einstaklinga með því, að kennari gengur milli nemenda eða kallar þá til sin. Þegar ég var í barnaskóla í gamia daga sagði kennarinn okkur að skrifa í forskriftarbækurnar, sat síðan og las fyrir sjálfan sig allan tímann. Mér fór sáraiítið eða ekkert fram í skrift. En þegar ég kom í unglingaskóla, tók sá kenn- ari okkur eins og byrjendur í skrift, kenndi fyrst hvern staf og síðan orð og setningar, einnig hvað þarf til að fá samræmi í skriftina o.s.frv. Þá kom greinileg framför. En meðal annarra orða: Er kennaraefnum í Kennaraháskóla íslands kennd skrift og að kenna skrift? Gott væri að fá svör við því frá þeim sem vita. Nú er mikið talað um endur- menntun fullorðinna. Fullorðið fólk, 20—40 ára og jafnvel eldra, getur bætt skrift sína jafnvel af sjálfsdáðum en þó fremur ef það fær tilsögn. Ég læt hér fljóta með eitt dæmi. Fertugur maður, sem þurfti að handskrifa mikið, átti að hætta á skrifstofunni sökum þess að erfitt þótti að lesa skrift hans. Hann tók 15 kennslutíma í skrift, og þegar hann kom aftur á skrifstofuna hafði rithönd hans batnað svo mikið, að hann fékk að halda stöðu sinni. Ég endurtek það sem ég sagði fyrst: Skrift var og á að vera ein af þremur undirstöðunámsgreinum gunnskólans, en hún er og mun verða á undanhaldi, ef svo fer sem horfir. Ég álít að erlendu málin eigi að bíða, koma inn í grunnskól- ann síðar eins og var áður. Margir krakkar hafa hvort sem er ekki þroska til slíks náms á þeim aldri sem nú er byrjað. í staðinn væri hægt að kenna skrift a.m.k. upp í 10—11 ára, og það gæti bjargað miklu. Þetta er fyrst og fremst mál skólayfirvalda og Kennaraháskól- ans, en auk þess tekur það til kennaranna í hverjum skóla og þá auðvitað skólastjóranna. Trúlega eru þeir að ganga frá stundaskrám þessa dagana, og vænti ég þess, að þeir láti skrift- ina fá svo drjúgan tíma, sem þeim er unnt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.