Morgunblaðið - 24.08.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.08.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1980 15 eldflaugum í samræmi við ákvörð un ráðherra Atlantshafsbandal- agsins og jafnframt stefnir breska stjórnin að þvi að taka í notkun nýja tegund kjarnorkukafbáta svo- nefnda Trident-kafbáta. Umræðurnar um það, hvort kjarnorkuvopn séu á Islandi eru af allt öðrum toga. Engin herfræðileg rök mæla með því, að nauðsynlegt sé að koma slíkum vopnum fyrir í landinu. Kafbátaleitarvélarnar á vellinum gætu grandað kafbátum væri þess krafist af þeim, með venjulegum vopnum. Orrustuvél- arnar, sem á flugvellinum eru, hafa það hlutverk að bægja óþekktum flugvélum úr lofthelgi landsins, til þess þarf ekki kjarn- orkuvopn. Hér eru engar lang- drægar eldflaugar og ekki þörf fyrir þær, sem skammdrægari eru, til varnar landinu. Þá er hér ekki að finna kjarnorkuvopn til nota í návígi gegn skriðdrekaárás eins og er að finna í Vestur-Þýskalandi. Deilurnar hér á landi má einvörð- ungu rekja til þess, að af pólitísk- um ástæðum telur Alþýðubanda- lagið það henta sér að ala á grunsemdum um tilvist kjarnorku- vopna í landinu og er það í raun leikur að eldi, því að slikar grun- semdir gætu leitt til þess, að hugsanlegur árásaraðili teldi það réttlætanlegt að varpa kjarnorku- sprengju á landið. ★ Um leið og rætt er um kjarn- orkuvopnavígbúnaðinn er nauð- synlegt að minnast á viðleitni manna til afvopnunar og vígbún- aðareftirlits. Of barnalegt er að ímynda sér, að með einhliða yfir- lýsingum verði ákveðið að þurrka öll kjarnorkuvopn af yfirborði jarðar. Eina vonin er sú úr því sem komið er, að jafnvægið raskist ekki svo mjög, að Sovétstjórnin telji sig hafa í fullu tré við Vesturlönd og neiti þess vegna að ræða afvopnun og vígbúnaðareftirlit. SALT samn- ingaviðræðurnar komu ekki til sögunnar, fyrr en báðir aðilar voru sannfærðir um, að þeir gætu samið af styrkleika. Athyglisvert er, að Sovétmenn féllu frá skilyrðum sínum vegna viðræðna um tak- mörkun á kjarnorkuvopnabúnaði í Evrópu, þegar þeir höfðu sann- færst um það, að Atlantshafs- bandalagsríkin ætluðu að koma á fót gagneldflaugakerfi í Evrópu. En þessi árangur náðist á fundi þeirra Helmut Schmidts og Leonid Brezhnevs nú í sumar. Eftir þvi sem hernaðartæknin verður háþróaðri þeim mun erfið- ara verður að koma á raunhæfu vígbúnaðareftirliti og afvopnun. I umræðum um afvopnunarmál verða menn að hafa hinar pólitisku forsendur í huga. Það er óneitan- lega mikill aðstöðumunur að þurfa að ræða um alla þætti varna sinna fyrir opnum tjöldum og ieggja það undir dóm skattgreiðenda í kosn- ingum, hvort varnir skuli efldar, eða vera með allt í felum og ákveða herútgjöld með einu pennastriki. I fyrri flokknum eru lýðræðisríkin í vestri en hinum síðari komm- únistaríkin í austri. I tilefni af því að Jimmy Carter gaf út „forsetafyrirmæli 59“ birtist eftirfarandi í sovéska blaðinu ís- vestía 19. ágúst: „Það ætti að vera hverjum ábyrgum stjórnmála- manni ijóst, að tilraunir til að ná hernaðaryfirburðum yfir Sovét- ríkjunum eru jafnvel óraunhæfari en nokkru sinni fyrr. Sovétríkin eru megnug að svara hverri hólm- gönguáskorun sem að þeim er beint, að bregðast við hverri ógnun og vernda bandamenn sína fyrir hernaðarsamsæri og yfirgangi." Með hinar pólitísku forsendur í huga og bilið milli lýðræðisríkj- anna og einræðisríkja kommún- ísmans þarf enginn að vera í neinum vafa um, hvaðan einlæg- ustu óskirnar um samdrátt her- afla, vígbúnaðareftirlit og afvopn- un koma. Ofbeldishneigð Sovét- manna í Afganistan og annars staðar sýnir mönnum, að þeir hika ekki við að beita afli sinu og fara sínu fram í því efni hömlulaust. Enginn frjálshuga maður getur efast um nauðsyn varðstöðunnar gegn þeim. Björn Bjarnason ÞU AUGLYSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐENU Hellesens rafhlöður lifa lengur... Hellesens l. S ! í Alpa básnum í Laugardalshöll, hangir uppi stafli af Alpa smjörlíki. Sýningargestir geta reiknaö út hve mörg stykki og hve mörg kíló af Alpa eru í honum. Svörum er síöan skilaö á staönum. Aö lokinni sýningu veröur dregiö úr réttum lausnum og þrenn aöalverö- laun veitt auk 10 aukaverölauna. Alpa — ómissandi á brauöiö, í baksturinn, á pönnuna. smjörlíki hf. TAKIÐ Heimilið /o¥:T.) r 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.