Morgunblaðið - 24.08.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.08.1980, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1980 ÍSLENDINGUR komst á síöur heimsblaöanna nú í sumar — óvart. í júlí- hefti tímaritsins Stern birtist mynd af vörpu- legum manni í bjarg- belti, nýsloppnum úr sjávarháska. — Svei mér, ef þetta er ekki Vilhjálmur Ólafsson, sagöi viö mig maöur. Nú spyr ég þig fyrst Vil- hjálmur, hvaö ert þú aö gera á síöum heims- blaöanna? — Ja, þaö veit ég ekki, anzaöi Vil- hjálmur. En ég get sagt þér hvaö ég var aö gera þegar myndin var tekin. Áöur skulum viö kynna manninn. — Ég er Seltirningur, fæddur 1930, sonur hjónanna Ólafs Jónssonar, gjaldkera hjá Kveld- úlfi, og Ingibjargar Eiríksdóttur. Sextán ára fór ég fyrst til sjós, á síld fyrir norðan á báti frá Vestmannaeyjum, Reynir hét sá bátur. Árið eftir fékk ég pláss á einum Kveldúlfstogaranum, það var 1947. Þetta var Þórólfur og Hallgrímur Guðmundsson var með hann, ágætur maður. Hann tók við Úranusi skömmu síðar og ég fylgdi honum. Síðan var ég á togurum og bátum og síðast á Ögra. Við Brynjólfur vorum gamlir skipsfélagar af Marzin- um. Seinustu árin hef ég verið á fragtskipum hérlendum, þar til fyrir einu ári eða svo, að ég réði mig hjá Nordö-fyrirtækinu í Malmö. Reyndar er saga i kring- um það. — Já, það var það. Þannig var það, að skömmu eftir að ég réðst til þessa sænska félags, fékk það þrjú ný skip, systurskip, 11000 tonn hvert þeirra; flutningaferj- ur, og ég varð háseti á Zenobíu, vörubílaferju sem var á rútunni Koper, Júgóslavíu, Tartas, Sýr- landi. Við vorum 153 um borð að meðtöldum vörubílstjórunum. Allir gengu þessir flutningar eðlilega fyrir sig, a.m.k. meðan ég var um borð. Þar til nótt eina í júní. Dagurinn hafði liðið eins og venjulega, ég kominn í koju, eftir vinnu, og sofnaður. Vissi ég ekki af mér fyrr en ég vaknaði standandi í kojunni — þetta var þverkoja. Það tók mig tímann að átta mig, að skipið var komið á I hliðina. Ég heyrði hróp og köll frammi á göngum og þegar ég fann hallan aukast áfram, leizt mér ekki á blikuna og dreif mig upp á dekk með allt mitt hafur- task. Þar voru menn á harða- hlaupum, margir á nærklæðun- um einum saman, hrópandi og æpandi. Bílstjórarnir voru óvan- ir sjónum og hræddust hann. Hallinn á skipinu var nú orðinn sem svaraði 45 gráðum, og skipstjórinn skipaði öllum í bátana. Vegna hallans var að- eins hægt að koma út tveimur bátum á bakborðshliðinni. Þang- að þustu 150 manns og reyndi hver sem hann gat, að troða sér í þessa tvo báta. Brllt komst samt á skikkanleg ró. Flestum varð ljóst, að 11000 tonna skip sykki ekki í einu vetfangi. Tvö skip voru komin okkur til hjálpar, annað rússneskt, hitt þýzkt. Áfallalaust komumst við útí þessi skip, nema skipstjórinn. Hann einn varð eftir. Það var mikill ágætismaður, mér þótti leiðinlegt að þeta skyldi henda hann. Áhöfn og bílstjórar voru fluttir til Limmasol á Kýpur. En Zenobía sökk ekki þarna. Það tókst að rétta hana við og draga til ytri hafnarinnar í Lanarca. Þar voru mættir menn frá útgerðinni, tryggingarfélög- um, björgunaraðilum, ennfrem- ur rannsóknarmenn frá sænska sjóferðaeftirlitinu. Fyrir augun- um á öllum þessum mönnum, gerði Zenóbía það sem enginn hafði búizt við af Zenóbíu. Hún lét sig hafa það að sökkva fyrir framan nefið á þessum merkis- mönnum. Við höfðum farið nokkrir um borð, að vinna; ég þann sjötta júní til að hreinsa i vélarrúminu. Klukkan ellefu þetta kvöld hætti ég vinnu og fór í koju. Ég var rétt í svefnrofun- um þegar ég fann að skipið var farið að síga. Við forðuðum okkur í land, þessir fimmtán sem voru um borð, og úr landi fylgdumst við með þessu stóra skipi síga í hafið. Það var fullhlaðið, 130—140 flutningabíl- ar, allir saman hlaðnir; ég gæti Ein Ijósmynda Vilhjálms, og sýnir Zenobíu i 45 gráðu halla Zenobía sökk Nei, ég hygg ekki á flutning heim. Kjörin úti eru það góð, einungis sex vikna vinna og síðan sex vikna frí. Ég er ennþá hjá sama félagi, já, fór á annað systurskip Zenóbíu, Scandinavia heitir það, og uni mér vel. trúað að þarna hafi sokkið á einu bretti kannski 4—5 hundruð sænskar milljónir — milli 48.000 og 60.000 milljónir íslenzkar. Orsakirnar eru ókunnar ennþá, rannsókn stendur enn. En stýri- maðurinn hélt því fram í blaðagrein að útgerðin hefði svikið þá um kjölfestu. Hvað um það. Þetta vakti athygli úti, greint var frá þessu ítarlega í sjónvarpi, o.s.frv. Og þá kem ég að mér og heimsblöð- unum. Þegar við fórum í bátana og björguðumst í þýzka og rúss- neska skipið, þá hafði ég með mér myndavélina 'óg tók 31 mynd af atburðinum. Ég bað líka einn félaga minn að mynda mig og skipið, sem við héldum sökkvandi í baksýn. í Limmason lét ég framkalla þessa filmu og þá voru allir stígvélafullir að eignast þessar myndir, svo við létum kóperera fleiri en hundrað eintök af sumum. Án þess, að ég hefði um það nokkra hugmynd tóku þessar myndir að birtast í ólíklegustu blöðum víðs vegar um heim, og meðal annars í Stern. Þetta eru mínar myndir, ég á ennþá filmuna og nú vil ég að þessi stórblöð greiði mér fyrir myndbirtingarnar og hef leitað eftir lögfræðiaðstoð. — En eins og þú sagðir, það var semsé alveg óvart, að íslendingur komst í þetta sinnn í heimsblöð- in. Og fyrst við erum hættir að spjalla, þá gætum við haft að lokaorðum nokkuð sem ég sagði í öðru blaði: — Ætli maður hreiðri ekki um sig í björgunar- bátunum framvegis. - J.F.A. Þessa mynd tók Vilhjálmur I Tarfous á Sýrlandi. Skipið sem þarna heitir Susan er gamia Helgafellið. Merki Sambandsins er enn á strompinum. Skipið er skráð i Libanon. Þetta er Islendingurinn sem komst i heimsbiöðin. Vilhjálmur ólafsson sýnir þarna hver skil timaritið Stern gerði þessu máli... -en ekki ég íslendingur á síóum heimsblaóanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.