Morgunblaðið - 24.08.1980, Page 28

Morgunblaðið - 24.08.1980, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1980 Umsjón Ásdís Rafnar Eru stelpurnar stopp? Fyrir íimm árum voru hvatn- ingarorðin „áfram stelpur“ og með andann á flugi héidum við að árangur af kvennaári yrði mikill. — þær svartsýnni von- uðu að hann a.m.k. yrði ein- hver. En hver er staðan nú i baráttunni fyrir jafnrétti kynj- anna? Með tilkomu laga um jafnrétti þetta árið 1976 var stefnumiði kvenréttindakvenna kannski náð, — en er fram- kvæmdin sú að jafnrétti riki með kynjunum á öilum sviðum þjóðlifsins? Tökum dæmið um fjölda kvenna á Alþingi, setu þeirra i ríkisstjórn (?), setu þeirra í stjórnum félaga stjórn- málaflokkanna. sveitastjórn- um, verkalýðsfélögum, félögum bænda og öðrum félögum, stjórnum rikisstofnana, einka- fyrirtækja, starfsmannafélög- um á vinnustöðum eða hags- munasamtökum öðrum? Það er enginn að tala um að i slikum í heiðri. Kynið úrskurðar ekki um hæfni einstaklinganna. Jafnréttisráðstefnur I miðjum ágústmánuði setti ég fram þá hugmynd hér í Mbl. að jafnréttisráð stæði fyrir ráð- stefnu um stöðu kvenna hér á landi, hvort jafnrétti ríkti hér í framkvæmd á öllum sviðum þjóðfélgsins. Og viti menn, engar undirtektir hafa orðið við þeirri hugmynd nema af hálfu rit- stjóra Mbl. sem tóku hugmynd- ina upp í Reykjavíkurbréfi. Nú eru fimm ár i haust frá kvenna- frídegi 1975, — er ekki ástæða til þess að kanna stöðuna í dag? Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík stóð fyrir ráðstefnu fyrir tveimur árum um „fjöl- skylduna og vinnumarkaðinn", Kvenréttindafélag íslands hélt ráðstefnu sl. vor um jafna for- eldraábyrgð og rauðsokkur m.a. hafa haldið ráðstefnu um jafn- Enn um ráðstefnu um jafn- réttismál konur og vinnumarkaðurinn, — af þeim viðtölum er ekki hægt að draga þá ályktun að jafnrétti sé í raun á þeim vettvangi. Það þyrfti að taka á því málefni líka á opinberri ráðstefnu. Þar er af fjölbreytilegu efni að taka. Áður hefur verið minnst á jafna foreldraábyrgð, — hún þarf að vera jöfn í reynd barn- anna vegna og foreldranna. Það er samkomulagsatriði innan hvers heimilis hver sinnir hús- verkunum, sem hafa þann til- gang að skapa skilyrði fyrir eðlilegu mannlífi á heimilinu, — en ef konur eiga að hafa mögu- leika á að taka að sér m.a. ábyrgðarstöður, hvers eðlis sem þær eru, verður margfalt vinnu- álag ekki til þess að þær geti það. Hver er staða einstæðra foreldra í dag, — afskipti þess foreldris, sem ekki hefur forræði barnanna í sínum höndum eru í fáum tilvikum til fyrirmyndar. Þegar forseti íslands náði kjöri í sumar var mér oftar en einu sinni óskað til hamingju með það, — vegna þess að ég er kona og forsetinn er kona. Það er ólíklegt að körlum hefði á líkan hátt verið óskað til hamingju ef einhver karlframbjóðendanna hefði náð kjöri. Af hverju eru konur á þennan hátt settar undir einn hatt en ekki karlmenn? Ef kona stendur sig illa í starfi verða aðrar konur að gjalda þess. Konur fá ekki sömu stöð- una í bráð. Ef kona stendur sig vel í starfi eiga aðrar konur möguleika á að fá viðlíka stöðu hjá fyrirtækinu. Er þetta ekki undarlegt? Það er jú undir hverjum einstaklingi komið hvernig hann stendur sig í starfi. Kynið ræður ekki úrslit- um, — þess vegna fannst manni hjákátlegt þegar konur voru hvattar af konum til þess að kjósa konuna í forsetastól vegna störfum eigi konur að vera, vegna þess að þær eru konur, heldur að konur eigi að eiga sömu möguleika og karlmenn á þvi að gegna slikum hlutverk- um í þjóðfélaginu. Forsendan fyrir þvi að konur geti eins og karlmenn tekið að sér ábyrgð- arstöður eða t.d. starfað í áhugamannastarK stjórnmál- anna er sú að þær hafi tima til þess að sinna slikum störfum. Margfait vinnuálag. þ.e. ef þær eru útivinnandi og hafa auk þess fyrir heimili að sjá og uppeldi barna, gerir það að verkum að timi verður lítill aflögu til ýmissa áhugastarfa. Foreldraábyrgðin verður að vera jöfn, ábyrgðin á heimilis störfunum líka. Konur verða að öðlast sjálfstraust til þess að taka að sér ábyrgðarstöður t.d. á vinnustöðum og vinnuveitend- ur verða að hafa jafnréttislögin réttismál með sér. E.t.v. hafa fleiri aðilar tekið til höndum um þessi mál hver í sínu horni. Allir þessir aðilar ættu að geta haft samstarf um undirbúning opin- berrar ráðstefnu t.d. í haust um þessi mál og auðveldað fram- gang hennar að fenginni reynslu. Hvað ætti þar t.d. að ræða? Kvenréttindafélag íslands hefur ákveðið að halda ráðstefnu um þátttöku kvenna í sveitar- stjórnum 24. október í haust. Niðurstöður þeirrar ráðstefnu kæmu að gagni í umræðum þeirrar ráðstefnu, sem hér er verið að leggja til að verði haldin. 19. júní, ársrit Kvenrétt- indafélags íslands var í vor tileinkað efninu konur í stjórn- málum með viðtölum m.a. við konur sem starfað hafa á þeim vettvangi. Allar voru þær sam- mála um að vegna kyns síns hefðu þær frekar átt erfitt uppdráttar á þessu sviði þjóð- lífsins, en hitt að það hafi verið þeim til framdráttar. Sjálfstæð- isflokkurinn hefur helst átt kon- ur í fremstu röð (Auður Auðuns m.a. ráðherra um tíma og borg- arstjóri í Reykjavík). Hvað varð- ar aðra flokka má nefna að Guðrún Hallgrímsdóttir (alb). var ærleg á svipinn í sjónvarp- inu sl. haust þegar hún sagði að konur ættu sízt auðvelt upp- dráttar innan síns flokks, Fram- sóknarflokkurinn getur ekki státað af konum í sinni fremstu röð. Einhvern tímann verða kosningar aftur til Alþingis og sveitarstjórna, — er ekki tíma- bært að ræða stöðu kvenna í stjórnmálastarfi á opinberum vettvangi? 19. júní tók einnig á efninu Það er í raun undantekning að t.d. feður óskilgetinna barna eða skilgetinna sem ekki hafa for- ræði þeirra í höndum leggi annað eða meira af mörkum en meðalmeðlagsgreiðslur Trygg- ingastofnunar ríkisins. Hver er réttur barnanna í þessum tilvik- um, — eiga þau ekki heimtingu á samskiptum við feður sína. Það þarf jú tvo til að geta einstakling í heiminn. Ætti ekki ábyrgðin líka að vera jöfn eftir að sá einstaklingur er í heiminn bor- in? Frumvarp til barnalaga hef- ur legið í 4 ár fyrir Alþingi og enn ekki hlotið afgreiðslu. Fæð- ingarorlof, — reglur þar um skipta foreldra máli. Mæðralaun (feðralaun) þjóna þau einhverj- um tilgangi í þeirri mynd sem þau eru í dag? Allt eru þetta punktar og fleiri má telja til, sem rík þörf er á að ræða á opinberum vettvangi. þess að þær og hún voru konur. Vonandi hafa þó flestir þeir sem veittu Vigdísi Finnbogadóttur atkvæði sitt í kosningunum gert það vegna persónu hennar en ekki kyns, — rétt eins og hún bað kjósendur um að gera í sínum framboðsræðum. Þessa kynhyggju má líka ræða. Hér er þessari hugmynd um opinbera ráðstefnu um jafnrétt- ismál aftur komið á framfæri í þeirri von að undirtektir verði meiri við henni. Þjóðviljinn, blaðið sem auglýsir sig sem blað jafnréttis á Islandi (m.a. í 19. júní) ætti að sýna lit og taka upp þráðinn og ljá þessu máli lið sitt og fyrirgefur það að hafa ekki átt frumkvæðið. „Vinstri" og „hægri" ættu jú að geta unnið að því markmiði í sameiningu að jafnrétti verði í raun á öllum sviðum þjóðlífsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.