Morgunblaðið - 24.08.1980, Qupperneq 32
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JW«rBunblabií>
trgutn$MaMI>
jrf Síminn á afgreiðslunni er
83033
|H*r0unl>Uit>i>>
SUNNUDAGUR 24. ÁGÍjST 1980
Flugleiðir:
„Mun svakalegra
en við óttuðumst44
— rætt við formenn flugfreyja og flugmanna um væntanlegar uppsagnir
Banaslys á
Hvalfjarð-
arströnd
BANASLYS varð í fyrrakvöld, er
tvær bifreiðar rákust á skammt
frá bænum Ferstiklu á Hvalfjarð-
arströnd. Bifreiðarnar voru
fólksbill af Akranesi, og stór
jeppabifreið með G-númeri. Talið
er að ökumaður fólksbilsins, sem
var einn i bilnum, hafi látist
samstundis.
í jeppabifreiðinni voru þrír far-
þegar, og sluppu þeir lítt eða ekki
meiddir, en ökumaðurinn slasaðist
nokkuð, nefbrotnaði meðal annars
og skarst í andliti.
Lögreglunni á Akranesi var
tilkynnt um slysið um klukkan
23.15 á föstudagskvöld, og var
ökumaður fólksbifreiðarinnar lát-
inn er að var komið. Hann var frá
Akranesi, en ekki er unnt að
greina frá nafni hans fyrr en
síðar.
329 hvalir
hafa veiðzt
HVALSKIP voru í gær á leið
til lands með 7 hvali; 6 búr-
hvali og 1 sandreyði, og hafa
þá veiðst 329 hvalir á vertíð-
inni.
Aflinn á vertiðinni skiptist
þannig; 225 langreyðar, 79
búrhvalir og 25 sandreyðar. A
hvalvertíðinni i fyrra höfðu
veiðzt 357 hvalir um þetta
leyti.
Skutu æð-
arkollur
TVEIR piltar úr Reykjavík urðu
uppvísir að því í fyrrakvöld að
skjóta æðarkollur í Straumsvík.
Lögreglunni var gert viðvart.
Stöðvaði hún piltana, er þeir voru
að fara brott á bíl. Leit var gerð í
bílnum en þar fannst ekkert. Síðar
fundust byssur piltanna og ein
dauð æðarkolla í eyðibýli þarna
skammt frá.
„ÞAÐ er óhugnanlegt að sjá hvern-
ig komið er, en við vonum i lengstu
lög að unnt verði að finna atvinnu
fyrir sem flesta flugmenn og sinna
almennu leiguflugi og öðru sliku
sem félagið hefur sinnt,“ sagði
Kristján Egilsson formaður Félags
islenzkra atvinnuflugmanna i sam-
bandi við væntanlegar uppsagnir
Flugleiða á næstunni, en ráðgert
mun að segja upp a.m.k. 30 flug
mönnum.
Aðspurður um það hvað starfsald-
urslistamál hefði að segja í sam-
bandi við uppsagnir svaraði Krist-
ján: „Flugmannafélögin eru með sitt
hvorn starfsaldurslista og það hefur
verið sagt upp þar sem samdráttur-
inn á sér stað og aðra leið sjáum við
ekki færa þar sem samkomulag
hefur ekki náðst þrátt fyrir marga
fundi. Þetta ætti því að hafa lítil
áhrif á okkar félaga, enda höfum við
einskis notið af þessu Ameríkuflugi
og viljum ógjarnan taka erfiðleikana
á okkur nú.“
„En skiptir ekki máli í því efni
hvaða flugvélategundir verða notað-
ar?“
„Það má vera að flugvélategund-
irnar hafi áhrif, en undarlegt þykir
mér ef það á að nota áttur á þessum
leiðum eins og þær eru óhagkvæmar
í rekstri.
Þessi staða er hroðaleg útkoma
fyrir okkur og aðra og við bíðum
spenntir eftir því að sjá hvert
umfang þessara uppsagna verður."
„Þó við höfum búizt við uppsögn-
um þá er þetta mun meira og
svakalegra en við óttuðumst ef tölur
úr fjölmiðlum eru réttar," sagði
Jófríður Björnsdóttir formaður
Flugfreyjufélagsins í samtali við
Mbl. um væntanlegar uppsagnir
Flugleiða". Ef um 80 flugfreyjum
verður sagt upp verður félagið að-
eins brot af því sem það var og þetta
kemur öllum við, því vinnumarkað-
urinn hlýtur að vera fullmettaður
fyrir."
Aðspurð um starfsaldurslista
svaraði Jófríður: „Það er Ijóst að það
hlýtur að verða sagt upp eftir
starfsaldurslista okkar, það er það
eina sem er hægt, nóg er nú samt.
Það er komin full hefð á þau
vinnubrögð sem eru þau einu sem
fólk getur sætt sig við í slíkum
erfiðleikum. Flugfreyjur hafa sam-
eiginlegan starfsaldurslista sem hef-
ur verið farið eftir á eðlilegan hátt i
uppsögnum og samkvæmt starfsald-
urslista var einnig farið í þessum
efnum áður en félögin voru samein-
uð enda hefur þessi hefð gilt í nær
áratug"
„Ég tel að stjórnvöld hér þurfi að
stuðla að því að ekki verði farið svo
neðarlega í þessu rekstri eins og
horfur eru á, þvi ég tel það algjört
skilyrði að ekki sé farið niður fyrir
það lágmark sem bíður upp á
möguleika til þess að byggja þetta
starf upp aftur þegar fargjaldastríð-
inu linnir og öldur lægir á þessari
leið. Slíka skynsamlega ákvörðun
hafa stjórnvöld í hendi sér,“ sagði
Baldur Oddsson formaður Loftleiða-
flugmanna í samtali við Mbl. í gær.
Aðspurður sagði Baldur að í starfs-
aldursmálum varðandi uppsagnir
flugmanna Flugleiða væri ágrein-
ingur milli flugmanna og þeir gætu
ekki leist það mál sjálfir, til þyrftu
að koma aðrir aðilar eins og t.d.
Flugleiðir.
Kýrin gekk lambinu í móðurstað
Á BÆNUM Huppuhlið í Mið-
firði bar það til tiðinda i sumar
að ær drapst frá lambi. Það
þykja þó ekki óvenjuleg tiðindi
til sveita og kunn eru dæmin
um heimalningana. Allt benti
um tíma til þess að þetta
móðurlausa lamb yrði sem ann-
ar heimalningur, sem þyrfti að
gefa mjólk úr pela.
En kálfur hafði einnig verið
tekinn undan henni Bröndu.
Fólk á bænum veitti því allt í
einu eftirtekt að lambið var
farið að fylgja kúnum og gekk
jafnan við hlið Bröndu. Kom
lambið ekki heim að bænum
nema þegar kýrnar voru reknar
heim vegna mjalta. í ljós kom að
Branda hafði gengið lambinu í
móðurstað og sýgur það tvo
spena hennar.
Hefur þessi félagsskapur vak-
ið athygli en það mun heldur
fátítt að lömb gangi undir kúm.
En lögmál náttúrunnar láta ekki
að sér hæða og það er eftirtekt-
arvert að lambið sýgur aðeins
tvo spena á Bröndu, en ær eru
aðeins með tvo spena. Myndirn-
ar sem hér fylgja tók Inga
Harðardóttir.
Lambið fylgir jafnan kúnum og hér gengur það við hlið Bröndu á
leið heim i fjós.
Það fer greinilega vel á með Bröndu og lambinu.