Tíminn - 07.07.1965, Síða 1
HANDBÓK
VERZLUNARMANNA
ÁSKRIFTARSÍMI
16688 1668B 16688
HANDBÖK
VERZLUNARMANNA
ÁSKRIFTARSÍMI
16688 16688 16688
YFIRLEITT LELEG SPRETTA VEGNA LANGVARANDI ÞLIRRKA OG KULDA I
Heyskapur er víðast hvar
seinna á ferð en í fyrra
BÞG—Reykjavík, þriðjudag.
Tíminn gerði í dag könnun
á því, hvað heyskap liði í
sveitum landsins. Af viðtöl-
um við menn úr öllum lands
fjórðungum, virðist mega
draga þá ályktun, að hey-
skapur sé víðast hvar hafinn
og gangi allsæmilega sunn-1
an lands og norðan, en rétt'
byrjaður og heldur lítill á
Suðvesturlandi, og á Aust-
fjörðum er ekki að tala um
neinn heyskap, svo miklar
eru kalskemmdirnar, eins
og kunnugt er af fyrri frétt-
um. Hér fara á eftir umsagn-
ir þeirra manna, sem framan-
greind niðurst. er dregin af.
Einar Þorsteinsson 1 Sólheima-
hjáleigu sagði, að heyskapur
væri sem óðast að hefjast í V-
SkaftaMlssýslu. AS því ar
sprettu varðaði, virtist skipta
nokkuð um við Mýrdalssand, aust
an megin væri spretta slæm og
virtist ísveðráttunnar að austan
hafa gætt þangað. Vestan megin
væri hins vegar spretta nokkuð
góð og í Mýrdal og Eyjafjöllum
mjög sæmileg.
E.t.v. mætti segja, að i heild
væri sprettan lélegri en i fyrra,
en þó væri mikill munur á veðr-
áttu. í fyrra hefði verið vætusam
ara.
Síðan á föstudag hefur verið
þurrkur, en þoka á nóttu.
Þar austurfrá er nú rúningur
i fullum gangi
Þá sagði Einar, að nokkuð væri
um kal í Skaftártungu.
Stefán Jasonarson i Vorsabæ
sagðist nú rétt vera að komast
inn í búskapinn eftir viku frá-
hvarf við undirbúning og stjórn
á hinni miklu íþróttahátíð að
Laugarvatni. Sagði hann, að ó-
hætt væri að segja, að þar aust-
anfjalls væru allir farnir að slá.
þó misjafnlega mikið.
Ágæt heyskapartíð hefði verið
undanfarið. og spretta dágóð.
Rignt hefði nokkuð a miðviku-
dag, og hefði verið mikil hjálp
f þeirri vætu. Sagðist hann sjá
greinilega mun á sprettu þann
vikutima. sem hann var í burtu
Á þeim túnum. sem ekki hefðu
Framhaiö a 14 siðu
Bláu englarnir komu til Is-
lands í dag. Þeir sýna listflug
yfir Skerjafirði í kvöld kl. 8.30
Hér er um að ræða stórkost-
legustu flugsýningu, sem sýnd
hefur verið hér á landi. af
einní frægustu listflugsveit
heimsins. Sjá grein og myndir
á bls. 4.
12. LANDSMÓTIÐ
HÁSKÚLI í
FÆREYJUM
NÚ I HAUST
Aðils—Khöfn, þriðjudag.
Færeyingar hafa nú fengið
sinn eigin háskóla, að því er
segir í fréttum í Berlinske
Aftenavís, og hefur fyrsti
prófessorinn þegar verið ráð-
inn. Fjármagn til uppbygging
ar háskólans er komið frá einka
aðilum, og ákveðið er, að
kennsla hefjist í skólanum 1.
september í haust, en hann
verður staðscttur í Þórshöfn.
Til að byrja með verður að-
eins kennsla í færeyskum bók
menntum, en í framtíðinni er
ráðgert að bæta fleiri greinum
við, en fyrst um sinn verður
lögð megináherzla á rannsóknir
og það sem þeím við kemur
á þessum sviðum.
Dr. phil. Chr. Matras próf-
essor í færeysku við Kaup-
mannahafnarháskóla hefur
verið útnefndur sem fyrsti
prófessorinn við þennan nýja
háskóla. Mun hann leggja af
stað til Færeyja á morgun til
þess að athuga allar aðstæður.
— Rétt er það, sagði prófessor
Matras í viðtali víð Berlinske
Aftenavis í dag, að ég hef ver
ið skipaður prófessor við
„Frodskarasetur Föroya“ frá 1.
september að telja. Formlega
hef ég fengið eins árs orlof
frá Kaupmannahafnarháskóla,
en í rauninni hef ég tekið víð
embættinu, og ég reikna ekki
með að koma hingað aftur.
Á bls. 7, 8, 9 og 12 í blað
inu í dag er birt yfirlit yfir
árangur og úrslit á lands-
mótinu á Laugarvatni,
ásamt ýmsum myndum, bæði
frá íþróttakeppni og öðr-
um dagskrárliðum. Þá er
og sérstaklega vikið að hin
um glæsilegu íþróttamann
virkjum, sem þar voru reist :
fyrir landsmótið.
Verzlun lokaö
með lögreglu
l valdi í gær!
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
s f kvöld rétt fyrir klukkan átta
var verzluninni Örnólfi á homi
Snorrabrautar og Njálsgötu lok-
að samkvæmt úrskurði lögreglu
stjórans í Reykjavík.
BSvo sem margoft hefur verið
sagt frá í fréttum, þá hefur
nokkur styr staðið um lokunar-
tíma sölubúða, og var endirinn
sá, að tuttugu matvöruverzlan-
ir eru opnar í Reykjavík til
klukkan níu á hverju kvöldi og
skiptast verzlanir á um þessa
þjónustu. Ekki voru þó allir
kaupmenn sem sættu sig við
Iþetta og voru það þeir, sem
höfðu nú um nokkurt skeið
alltaf haft opið til klukkan 10
á kvöldin. Atti samkomulagið
um lokunartímann að taka gildi
1. júlí s. 1., en þá voru tveir
kaupmenn í Reykjavík, sem
ekki lokuðu á tilsettum tíma, en
FYamhald a bls 14
Varðstjórinn Páll Elrjksson t. v.
og Óskar Óiason ganga út úr
verzl. Örnólfi eftlr að hafa tjáð
kaupmanni úrskurð lögreglu-
stjóra um lokun verzlunarinar.
(Tímamynd K. J.)
MIKIL LÆKKUNÁ
SUSKINNA VERÐI
FB-Reykjavík, þriðjudag.
Verð á selskinnum er mun lak-
ara á heimsmarkaðinum nú en í
fyrra, samkvæmt upplýsingum,
sem blaðið aflaði sér hjá Þóroddi
E. Jónssyni skinnakaupmanni í
dag. Sagði Þóroddur, að þetta staf-
aði af því, að mikið framboð hefði
veri'C á skinnum, og þau væru
hætt að seljast upp á milli skinna-
uppboðanna. Selveiði er nú víðast
lokið hér á landi, og er hún yfir-
leitt heldur meiri en í fyrra.
Á síðasta ári var verð á fyrsta
flokks selskinni frá 1500 til 1600
krónur, en enn sem komið er hef-
ur ekki verið greitt fram yfir 1250
krónur á skinn, en þess ber þó að
geta, að þetta er ekki endanlegt
verð, heldur bráðabirgðaverð, sem
kann að hækka, þegar endanlega
hefur verið gengið frá sölu á
skinnunum erlendis.
Mjög mikið hefur borizt af sel-
skinnum frá Kanada og Alaska að
undanförnu og bættar samgöngur
við Alaska hafa orðið til þess, að
þaðan kemur nú mun meira magn
og á skemmri tíma en áður var.
Eru selskinnin nú hætt að seljast
upp á heimsmarkaðinum á milli
,,vertíða“ og hefur það orðið til
þess að verð fer lækkandi. Kaup-
menn í London sögðu í fyrra, að
verðið væri þá komið á toppinn,
og færi nú að lækka, og hefur það
reynzt svo, að sögn Þórodds E.
Jónssonar.
Blaðið hafði í dag samband við
nokkra menn, og spurði um sel-
veiði þessa sumars. Pétur bóndi
í Ófeigsfirði sagði, að þeir þar
fyrir norðan væru hættir. Veiði
hefði verið sæmileg, aðeins meiri
nú en í fyrra og hefðu þeir fengið
150 seli. Annars hafði erfið tíð
hamlað selveiðinni til að byrja
Framhald a l4 síðu.