Tíminn - 07.07.1965, Qupperneq 13
UÐVZKUDAGUR 7. júli 1965
TÍMIWN
'§
•íp
¥
TILKYNNING
frá Síldarverksmiðjnm ríkisins
Bræðslusíld sú, sem Síldarverksmiðjum ríkistns hefir bor-
tzt á þessari sfldarvertíð til ot) með 9. iúní, verður greidd
föstu verði, krónum 190,00 málið, 150 lítrar. — Greiddar
verða krónur 235,00 málið, 150 lítra, fyrir þá bræðslusíld,
sem móttekin er frá og með 10. júní til 30. september 1965,
að frádregnum krónum 3,00 á mál, sem leggjast í flutninga-
sjóð síldveiðiskipa, sem starfar eftir sömu reglum og síðast-
iiðið ár, að öðru leyti en því að, greiðslur úr sjóðnum, þegar
ákveðlð hefir verið af nefnd þeirri, sem umsjón hefir með
honum, að greiðsiur úr honum skuli fara fram, nema nú
kr. 15,00 á mál í stað kr. 10,00 í fyrra og greiðslur frá
Síldarverksmlðjum ríkisins, á þeirri sfld, sem styrkur er
veittur á úr sjóðnum, nema nú kr. .10,00 á mál, en námu í
fyrra kr. 6,00 málið. Eftirstöðvum sjóðsins, ef einhveriar
verða, verður skipt niður á síldveiðiskipin í réttu hlutfalli
við greiðslur hvers skips í sjóðinn.
Verðið er miðað við, að síldin sé komin \ löndunartæki
verksmiðjanna eða umhleðslutæki sérstakra sfldarflutninga-
skipa, á höfnum inni, á vegum S. R.
Jafnframt hefir stjórn Síldarverksmiðja ríkisins ákveðið,
samkvæmt heimild sjávarútvegsmálaráðherra, að taka við
bræðslusíld til vinnslu af útgerðarmönnum eða útgerðar-
félögum, sem þess óska að því tilskyldu, að aðalskrifstofu
Síldarverksmiðja ríkisins Slglufirði hafi borizt tilkynning
um það eigi síðar en 15. júlí næstkomandi, að þeim degi
meðtöldum.
Fá þeir, sem leggja sfldina inn til vinnslu, greitt óaftur-
kræft krónur 161,50 á hvert mál við afhendtngu, af þeirri
síld, sem landað var fram til 9. júní s. I., að þeim degi með-
töldum, og krónur 197,20 á hvert mál, síldar sem landað er
á tímabilinu frá 10. júní tll og með 30. september næstkom-
andi. Endanlegt verð verður greitt síðar, ef um viðbót verð-
ur að ræða, þegar reikningar Síldarverksmiðja ríkisins fyrir
árið 1965 hafa verið gerðir upp.
Þeim, sem leggja síidina inn til vinnslu, skal greitt sölu-
verð afurða þeirrar bræðslusjldar, sem tekin er af þeim til
vinnslu, að frádregnum venjulegum rekstrarkostnaði, þar
á meðal vöxtum af stofnkostnaði og ennfremur að frádregn
um fyrntngum, sem verða reiknaðar krónur 30.200.000.00
vegna ársins 1965.
Þau skip, sem samið hafa um að leggja síldina inn til
vinnslu, eru skyld að landa öllum bræðslusjldarafla sínum
hjá Síldarverksmiðjum ríkisins. Þó sé þeim heimiit að leggja
sfldina upp annarsstaðar í einstök skipti. ef löndunarbið
hjá þeirri síldarverksmiðju S. R., sem næst er veiðisvæði
því, sem skipið er statt á, er meiri en 12 klukkustundir.
Þessi undantekning gíldir ekki, ef síldveiðiskipið siglir með
afla sinn fram hjá stað, sem Síldarverksmiðjur ríkisins eiga
síldarversmiðju á, þar sem slík löndunarbið er ekki fyrir
hendi eða Sfldarverksmiðjur rjkisins geta veitt síldinni mót-
töku á stað, sem er álíka nálægt eða nær veiðisvæðinu og
verksmiðja sú í eigu annarra, sem skipið kynni að óska
löndunar hjá.
Um þau skip, sem eru í föstum viðskiptum við Síldar-
verksmiðjur ríkisins gilda eftirfarandi reglur varðandl lönd-
un í flutningaskip á vegum annarra síldarverksmiðja:
Séu þessi síldveiðiskip stödd meira en 70 sjómílur frá
landi þar sem verið er að umskipa sfld úr veiðiskipum í
flutningaskip, þá er þeim heimilt, þrátt fyrir skuldbindingar
sínar við S. R. að landa \ flutningaskipið, en séu þau stödd
nær landi en 70 sjómílur, gilda sömu reglur um löndun í
flutningaskip eins og um löndun samningsbundlnna skípa
til verksmiðja í eigu annara.
Bræðslusíld, sem þegar hefir verið landað hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins af skipum þeirra útgerðarmanna eða út-
gerðarfélaga, sem kunna að óska að leggja síldina inn til
vinnslu í sumar, verður talin vinnslusíld, svo framarlega
að tilkynnt sé innan hins ttltekna tíma, að vinnslu sé óskað
hjá Sfldarverksmiðjum ríkisins í sumar.
Engin síldveiðiskip hafa forgangslöndun hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins.
Reykjavík 6. júli 1965,
Stjórn Síldarverksmiðja ríkisins
Tapazt hefur hestur
Tapazt hefur frá Neðra-Apavatni, Grímsnesi, rauð-
ur hestur, með örlitla stjörnu, stór, vakur, afrak-
aður markaður og gamaljárnaður, ættaður úr
Borgarfirði.
Þeir. sem kynnu að verða hestsins varir, vinsam-
lega látið vita að Neðra-Apavatm, sími um Minni-
Borg.
BARNASTÍGVÉL
'
/fft
SbckIqvvi otn sfltt
MALLDÓR
FERÐAMENN
Séuð þér á hraðri ferð á Akureyri, fáið
þér mikinn og góðan mat á stuttum tíma
hjá okkur.
CAFETERIA
AKUREYRI.
íðliiH
fTOPStJÍS V7o4 1*vV‘3.rt I t