Morgunblaðið - 03.12.1980, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1980
Tómas Árnason bankamálaráðherra:
Lagasetning
kemur til greina
„ÞAÐ ER alveg auKljóst. að komi
til verkfalls hankastarfsmanna.
skapast ástand. sem ákaflejca
erfitt er að búa við, nema í mjög
stuttan tíma,“ sagði Tómas Árna-
son. bankamálaráðherra i sam-
tali við Morgunblaðið í gær. „Ég
tel, að það verði að hindra
hættulegar afleiðingar slíks
ástands og eitt af því, sem kemur
til greina i því sambandi, er
lagasetning.“ Morgunblaðið
spurði hankamáiaráðherra,
hvort og þá hvaða fleiri mögu-
leikar kæmu til greina, og hann
svaraði: „Ég skal ekki um það
segja.“
Morgunblaðið spurði banka-
málaráðherra, hvort einhverjir
sérfræðingar væru á hans vegum
við samningu frumvarps um bann
við verkfalli bankamanna með
gerðardómsákvæði. Hann svaraði:
„Það er ekki hægt að segja það.
Hins vegar hef ég auðvitað hug-
leitt það ástand, sem skapaðist, ef
til verkfallsins kæmi og ég held,
að vandræðin yrðu mjög víðtæk og
hættuleg mjög snemma."
„Ég tel ákaflega óheppilegt,"
sagði ráðherra, „þegar einstakir
hópar eins og t.d. bankastarfs-
menn reyna að brjóta sig út úr
þeim launamálafarvegi, sem
samningamálin eru í eftir samn-
ingana við BSRB og BHM.“ Morg-
unblaðið spurði Tómas, hvort ekki
væri rétt hjá bankastarfs-
mönnum, að þau 3%, sem þeir
færu nú fram á, væru gömul
umsamin grunnkaupshækkun
vegna lengra samningstímabils,
en þeir aldrei fengið greidda.
Tómas sagði: „Ég man nú ekki
nákvæmlega, hvernig þetta er
komið til. Það er nú svo í þessu
kapphlaupi við verðbólguna hér á
landi, að menn eru alltaf að reyna
að komast hjá því að dragast aftur
úr eða tryggja sér það að vera í
meginstraumnum. Það er mikill
ljóður að ekki skuli vera hægt að
ganga frá öllum kjarasamningum
á sama tíma.“
Ruddust berrassaðir
inn í farþegasalinn
TVEIR íslendingar sem hafa ver-
ið við nám í Kaupmannahöfn voru
meðal farþega í Flugleiðaþotu frá
Kaupmannahöfn til Keflavikur sl.
fimmtudagskvöld. menn á fer-
tugsaldri. Voru þeir háværir um
borð i flugvélinni á leiðinni. fóru i
holtaleik með bjórdósir og í lend-
ingu héldu þeir ræðu fyrir hönd
herstöðvaandstæðinga og fuku
þar lítt búin orð fyrir almanna-
færi. Bárust kvartanir til flug-
stoðvarinnar frá flugstjóranum
áður en lent var.
Tvímenningarnir fóru í tollskoð-
un eins og aðrir farþegar, en
einhverra hluta vegna þótti ástæða
til að kanna sérstaklega búnað
þeirra og í sérstökum klefa fóru
tollverðir fram á að þeir færu úr
jakka, skóm og sokkum.
Skipti þá engum togum að náms-
mennirnir berháttuðu sig í skyndi
og ruddust síðan inn í farþegasal-
inn veifandi græjum sínum út í
loftið um leið og þeir hrópuðu í
angist að svona færi íslenska
tollgæslan með þá. Sinntu þeir í
engu beiðni tollvarða um að leggja
niður laupana og varð hún að kalla
á lögreglu til að stöðva hlaup
þeirra á adamsklæðunum. Var
þeim síðan ekið í Grænás lögregl-
unnar þar sem þeim bauðst næt-
urgisting í hlýjum vistarverum.
Tvímenningarnir héldu til Kaup-
mannahöfnar á ný sl. mánudags-
kvöld og fóru þeir fullklæddir um
borð í flugvélina.
Verkfall mjólkur-
fræðinga á miðnætti
VERKFALL mjólkurfræðinga
skellur á á miðnætti næstkom-
andi. haíi samningar ekki tekizt
fyrir þann tíma. Verkfallinu var
frestað um þrjá sólahringa. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins mun ekki hafa verið séð fyrir
enda deilunnar í gærkveldi, en
ætlunin var að halda áfram fundi
eitthvað fram eftir. Mikið bar
enn í milli, en aðilar höfðu þó
mjakazt nær hvor öðrum.
Þá voru farmenn á fundi í
gærkveldi. í gærmorgun lagði
sáttanefnd fram innanhússtillögu
og fóru þá viðræður að ganga
betur en áður. I gærkveldi bar enn
talsvert í milli, en samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins var
unnið af fullum krafti og var
fullur vilji bgggja deiluaðila á að
freista þess að ljúka deilunni.
Ætlunin var að sáttafundur stæði
fram á nótt.
Svavar Gestsson um ASÍ-samningana:
Ein króna dönsk
fyrir kg af síld
— 15 tonn í gúanó
LOÐNUSKIP lönduðu síld í
Hirtshals í Danmörku í gær
ob fékkst lágt verð fyrir
sildina. Tæplega 15 tonn af
afla Helgu II fóru í bræðslu
og fékkst rétt rúmlega 1
króna dönsk fyrir hvert kíló
að meðaltali. Er þetta lang-
versta síldarsala, sem ís-
lenzkt skip hefur gert í Dan-
mörku í haust. Síðustu síld-
veiðiskipin. sem leyfi hafa til
siglinga á vertíðinni landa í
Danmörku í dag.
Jón Finnsson seldi 97,5 tonn
fyrir 28,5 milljónir króna,
meðalverð á kíló 292 krónur
eða 2,99 danskar. Helga II
seldi 115,9 tonn fyrir 11,6
milljónir króna, meðalverð á
kíló 100 krónúr íslenzkar eða
1,02 krónur danskar. Bannað
er að landa síld í bræðslu
hérlendis, en síldin, sem Helga
II landaði mun hafa verið
léleg. Fyrir beztu síldina eru
greiddar um 230 krónur hér á
landi.
Gerðir á grund-
velli Ólafslaga
Kaupmáttarskerðing launa á rætur í ákvæðum þeirra laga
SVAVAR Gestsson félagsmálaráðherra sagði í umræðu á Alþingi í
gær, að hann vildi „leggja rika áherzlu á að kjarasamningar hafi nú
verið gerðir, þar sem meðal annars er gert ráð fyrir þvi að
verðbótaákvæði ólafslaga séu i rauninni í gildi áfram.“
Þetta kom fram i svari ráðherra
við fyrirspurn frá Lárusi Jónssyni
um þróun kaupmáttar launa. í
svari sínu sagði ráðherra, að
„ástæður fyrir þeirri skerðingu
sem orðið hefði á kaupmætti
launa á undanförnum misserum,
væru fyrst og fremst fólgnar í
ákvæðum svonefndra ólafslaga".
Þar er um að ræða fernskonar
frádrátt við útreikning verðbóta-
vísitölu: frádrátt vegna hækkunar
olíustyrks, frádrátt vegna með-
ferðar áfengis og tóbaks, frádrátt
vegna launaliðar bóndans í bú-
vörugrundvelli og síðast en ekki
sízt frádrátt vegna verulegrar
viðskiptakjararýrnunar. Ráðherra
sagði, að miðað við kaupmátt 100
á þriðja ársfjórðungi 1977, hefði
kaupmáttur launa á fyrsta árs-
fjórðungi 1980 verið 94,9, á öðrum
ársfjórðungi 90,2 og á þriðja
ársfjórðungi 91,3. Kaupmáttur
ráðstöfunartekna hefði verið 123,8
árið 1978 (miðað við 100 1975) en
yrði 119,2 1980.
Geir Hallgrímsson sagði ráð-
herra hafa skrifað kjaraskerðingu
á reikning Ólafslaga. Hver ber
ábyrgð á Ólafslögum? spurði
hann. Stóð ekki ráðherra og flokk-
ur hans að samþykkt þeirra? í
þessum orðum ráðherrans er hann
að játa fyrir þingi og þjóð, að
Sigur yfir
V-Þjóðverjum
ÍSLENDINGAR eru næsta örugg-
ir með sigur yfir V-Þjóðverjum í
11. umferð Ólympiuskákmótsins
á Möltu, en umferðin var tefld í
gær. Helgi Ólafsson vann Pfleger
á fyrsta borði, Jón L. tapaði fyrir
Hecht, Margeir vann Borik, og
Jóhann er talinn eiga að minnsta
kosti víst jafntefli í skák sinni
við Lobron, núverandi Þýska-
landsmeistara.
flokkur hans hafi „ekki sett sól-
stöðusamninga í gildi", raunar
svikið öll kosningafyrirheitin sem
fram voru sett 1978. Lárus Jóns-
son sagði, að svar ráðherra væri
viðurkenning á kjaraskerðingu,
sem orðin væri, og Þjóðhagsstofn-
un spáði 5 til 6% viðbótarkjara-
skerðingu 1981, í kjölfar gerðra
kjarasamninga. Jafngott hefði
verið að eiga 28 aura í sólstöðu-
samningum og eina krónu nú.
Friðrik Sophusson sagði ummæli
ráðherra um samninga á grund-
velli Ólafslaga stangast á við
einróma samþykkt ASI-þings
(áskorun til Alþingis).
Fulltrúaráð sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík:
Guðmundur H.
Garðarsson
gef ur kost á sér
til formennsku
*
Skýrsla OECD um efnahagsmál á Islandi:
„Ljóst ad hálfkák
dugar ekki lengur“
ParÍH, 2. desember. AP.
„VERÐBÓLGA á íslandi, sem
er sú næstmesta á Vesturlönd-
um á eftir Tyrklandi, hefur
aukist stöðugt siðustu 18 mán-
uði og er óliklegt að á þvi verði
nokkur breyting nema breytt
verði um efnahagsstefnu.“ segir
i nýútkominni, árlegri skýrslu
OECD, Efnahags- og framfara-
stofnunar Evrópu, um þróun
efnahagsmála á lslandi.
I skýrslunni segir, að ef gert sé
ráð fyrir óbreyttri stefnu í
efnahagsmálum muni áfram
síga á ógæfuhliðina í málefnum
þjóðarinnar. Gera megi ráð
fyrir, að þjóðarframleiðsla auk-
ist aðeins um 1% á næsta ári
eins og á því yfirstandandi, en
hins vegar megi búast við dálítið
minni halla á vöruskiptajöfnuð-
inum, eða um 2,25% af þjóðar-
framleiðslu miðað við 3,5% á
þessu ári.
íslensk stjórnvöld spá því,
segir í skýrslu OECD, að verð-
bólgan á árinu 1981 verði um
42%, miðað við 58% á þessu ári,
en þó að íslendingar hafi staðið
betur af sér síðari olíuverðhækk-
unina en þá fyrri, 1973—1974,
þegar tekið sé tillit til greiðslu-
jafnaðar, þá sé „hin mikla og
vaxandi verðbólga ákaflega al-
varlegt mál fyrir þjóðina".
í skýrslu OECD er varað
alvarlega við því, að vegna stöð-
ugrar 50% verðbólgu og vegna
verðhækkanaskrúfunnar, sem
hlýst af órjúfandi tengslum
kaupgjalds og verðlags, „muni
verða stöðugt erfiðara að ná
tökum á efnahagsástandinu".
„Þegar verðbólguvöxturinn er
hafður í huga, er alveg ljóst, að
hálfkák dugar ekki. Ef grípa á til
alvarlegra efnahagsaðgerða til
að draga úr verðbólgu, verður að
stemma stigu við hvorutveggja,
launahækkunum og verðlags-
hækkunum," segir í skýrslu
OECD, Efnahags- og framfara-
stofnunar Evrópu.
MORGUNBLAÐIÐ innti Ellert B.
Schram formann Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna eftir því í gær
hvort vitað væri um ákveðið fram-
boð í formannsemba'ttið en Ellert
hyggst ekki gefa kost á sér.
Sagði Ellert stjórn fulltrúaráðsins
kunnugt um að Guðmundur H.
Garðarsson gæfi kost á sér og kvaðst
Ellert ekki vita annað en að sam-
komulag gæti orðið um. framboð
Guðmundar.
Listmunauppboð
Klausturhóla
SJÖTUGASTA og fimmta listmuna-
uppboð Guðmundar Axelssonar i
Klausturhólum verður haldið á
morgun að Hótel Sögu klukkan
20.30.
Á uppboðinu verða seld mörg
þekkt verk, málverk, styttur. og
veggskildir. Alls eru 85 verk á
söluskrá, unnin úr olíu, vatnslitum,
tússi og rauðkrít, pastellitum, rost-
ungstönn og kopar. Verkin eru til
sýnis í Kláusturhólum í dag milli 9
og 18 og á Sögu á morgun milli 10 og
17.