Morgunblaðið - 03.12.1980, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1980
21
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
þjónusta ,
Húsgagnaviðgeröir
Tek að mér alls konar vlögerölr
á húsgögnum, elnnlg lökkun og
pölerlngu. Hef elnnlg svefnbekkl
tll sölu. S. Gunnarsson, hús-
gagnasmlöur, síml 35614.
Veröbróf
Fyrirgreiösluskrlfstofan, Vestur-
i götu 17, sími 16223.
Ódýrar bækur
Útnesjamenn, Mari'na, Sval-
heimamenn og Ijóömœli systr-
anna. Fást á Hagamel 42, síml
15688.
□ HELGAFELL 59801237 — VI
IOOF 7 = 16212038% = FI.
IOOF 9 = 16212038% =FI.
IOOFS ='6211038', =
RMR-3-12-20-VS-FH-A-FR-EH
□ GLITNIR 59801237 Frl.
I.O.G.T.
Stúkan Einingin
Fundur í kvöld kl. 20.30.
Dagskrá í umsjá málefnanefnd-
ar. — Kaffi eflir fund.
ÆT.
Hörgshlíð 12
Samkoma í kvöld kl. 8.
Góðtemplarahúsið
Hafnarfirði
Félagsvistin í kvöld, miövikudag-
inn 3. des. Veriö öll velkomin.
Fjölmenniö.
Kristniboðssambandið
Samkoma veröur haldin í
Kristniboöshúsinu Betaníu.
Laufásvegi 13 í kvöld kl. 20.30.
Benedlkt Arnkelsson cand.
theol. talar. Fórnarsamkoma.
Allir eru velkomnir.
Fundur veróur í bræörafélagi
Laugarneskirkju mióvikudaginn
3. des. kl. 20.30. Séra Gísli
Brynjólfsson sækir okkur heim
og flytur minningar frá prests-
skapartíö sinni á Klaustri. Kaffi-
veitlngar. Allir karlmenn hjartan- -
lega velkomnir.
Stjórnln.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
óskast keypt
Jörð — Staðgreiðsla
Jörö sem þarf ekki að vera vel hýst óskast
keypt. Fjarlægð frá Reykjavík helst ekki meiri
en 100 km. Uppl. í síma 82275.
húsnæöi óskast
Verkstæðishúsnæði
Óskum eftir að taka á leigu verkstæöishús-
næði fyrir hópferðabíla.
Upplýsingar í síma 13491.
til Sölu
Iðnaðarhúsnæði
Húseignin Melabraut 19, Hafnarfirði er til
sölu. Húsið er 2 hæðir (2x540 fm) og auk
þess 540 fm steyptur grunnur. Lóð 3000 fm.
Húsið er til sýnis virka daga á vinnutíma.
Tilboðum þarf að skila eigi síöar en 12. des.
nk. í pósthólf 94, Hafnarfirði, merkt: „Mela-
braut 19 — ph. 94“.
XFélagssturf
Sjúlfstœðisflokksins
Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík
Jólafundur
fjölskyldunnar
Hvöt heldur jólafund sunnudaginn 7. desember nk. í Sjálfstæóishús-
inu Valhöll. Háaleltlsbraut 1, 1. hæö og hefst fundurinn kl. 15:00.
Dagakrá:
1. Setning
2. Hugvekja — séra Ólafur Skúlason.
3. Einsöngur — Unnur Jensdóttir viö undirleik Agnesar Löve.
4. Jólahappdrættl.
5. Veitingar.
6. Brúöulelkhús — Sigríöur Hannesdóttir og Helga Steffensen.
Kynnir veröur Geirlaug Þorvaldsdóttir. leikkona.
Undlrbúningsnefndin.
Sauðárkrókur —
bæjarmálaráð
Fundur veröur haldinn í bæjarmálaráöi Sjálfstæöisflokksins á
Sauöárkróki miövikudaginn 3. des. nk. kl. 20.30. í Sæborg.
Dagskrá.
1. Bæjarmálefni.
2. önnur mál.
Kaffiveitingar.
Allt stuöningsfólk Sjálfstæöisflokksins er velkomiö á fundinn.
St)6rnln.
Sjálfstæðisfélagið
Ingólfur Hveragerði
Aöalfundur félagsins veröur haldinn laugardaginn 6. des. nk. kl. 14 í
Hótel Hverageröl.
Fundarefni:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Ræöumaöur Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra.
3. önnur mál.
Stjórnin.
Njarðvíkingar
Aöaltundur félags ungra sjáltstasöismanna í
Njarövík. veröur haldinn fimmtudaginn 4.
desember kl. 20.30. í Sjálfstæöishúsinu.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Kynning á starfi ungra sjálfstasöismanna.
Jón Magnússon, formaöur SUS, Pétur
Rafnsson formaður Helmdallar.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Afmæliskveðja:
Sigríður Haraldsdótt-
ir i Brekku áttræð
í dag 3. desember er Sigríður
Haraldsdóttir áður húsfreyja í
Brekku, Firði, Seyðisfirði (eystri)
80 ára.
Sigríður Ragnhildur, en svo
heitir hún fullu nafni fæddist í
Brekku og í þessu litla, vinalega
húsi átti hún heima í rúm sextíu
ár.
Foreldrar hennar voru hjónin
Anna Ingimundardóttir og Har-
aldur Guðmundsson, vann hann
mikið að verkalýðsstörfum og var
þekktur einnig sem landpóstur
þar eystra.
Er Sigríður var um tvítugt
andaðist móðir hennar. Tók hún
þá við húsfreyjustörfum, og að-
stoðaði föður sinn og tvö systkin.
Fórst henni það vel úr hendi, kom
fljótt í ljós að austfirskur kven-
skörungur var á ferðinni.
1. maí árið 1926, giftist Sigríður
Stefáni Árnasyni Scheving ættuð-
um frá Hrærekslæk í Hróars-
tungu, miklum sómamanni. Þau
eignuðust 7 börn og eru 4 þeirra á
lífi. Þau eru: Halldóra, Árni, og
tvíburarnir Georg og Garðar. Allt
er þetta mannkostafólk, og mynd-
arhópur afkomenda.
Margan gestinn bar að garði hjá
fjölskyldunni í Brekku. í litlu
stofunni var alltaf nóg rými og eru
þeir orðnir margir, sem þegið hafa
veitingar og gistingu hjá þessum
heiðurshjónum.
Stefán átti við vanheilsu að
stríða í mörg ár, kom þá dugnaður
og atorka Sigríðar vel í ljós. Árið
1963 fluttu þau hjón suður til
Reykjavíkur, og andaðist Stefán á
Landspítalanum 1. nóv., sama ár.
Sigríður ber aldurinn vel, Guð
hefur gefið henni létta lund, en
hjá henni eins og mörgum, hafa
skipst á skin og skúrir í lífinu.
Hún segir skemmtilega frá, og
hreinlyndið í fyrirrúmi. Mjög ætt-
fróð er hún og þekkir flesta
ábúendur og byggð ból eystra.
Fyrir rúmum 20 árum, varð ég
tengdadóttir hennar og langar
mig að þakka henni allt sem hún
hefur verið mér.
Sjómannskonan þarf stundum á
aðstoð að halda og hefur Sigríður
alltaf verið boðin og búin að taka
við „vaktinni“, og börnin hlakkað
til að fá ömmu sína. Það er gaman
að heimsækja hana í litlu íbúðina
á Dalbraut 27, þar líður henni vel
enda félagslynd kona.
Þetta aldamótafólk má vera að
því að setjast niður og spjalla um
lífið og tilveruna. Guð gefi Sigríði
Haraldsdóttur fagurt ævikvöld.
Sigríður er að heiman í dag.
Anna Hannesd. Scheving.
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Þetta gerðist 3. desember
1800 — Orrustan við Hohen-
linden. Sigur Frakka á Aust-
urríkismönnum.
1808 — Uppgjöf Madrid fyrir
Frökkum.
1810 — Bretar taka Mauri-
tius af Frökkum.
1917 — Woodrow Wilson
Bandaríkjaforseti biður Þjóð-
þingið að segja Austurríkis-
mönnum stríð á hendur —
Orrustunni við Cambrai lýk-
ur.
1920 — Austurríki gengur í
Þjóðabandalagið.
1944 — Bandarískt herlið
sækir yfir Saar-fljótið.
1958 — Hollenzk fyrirtæki
þjóðnýtt í Indónesíu.
1961 — Bandarískur liðssafn-
aður við Berlínarmúrinn
vegna viðbúnaðar austan
meginn.
1962 — Tugir manna farast
úr eitrun í einhverri mestu
þoku Lundúna.
1967 — Fyrsta hjartaígræðsl-
an í Höfðaborg, Suður-Afríku.
1971 — Neyðarástandi lýst
yfir á Indlandi vegna loft-
árása Pakistana.
1972 — 155 farast með
spænskri þotu í flugtaki á
Kanaríeyjum.
1975 — Kommúnistar taka
völdin í Laos og 600 ára
konungdæmi líður undir lok.
1977 — Kunngert að 10.000 af
„bátafólkinu" fái hæli í Víet-
nam.
Afmæli — Ludvig Holberg,
danskur rithöfundur (1684—
1754) — Joseph Conrad,
pólskættaður rithöfundur
(1857-1924).
Andlát — 1894 Robert Louis
Stevenson, rithöfundur —
1919 Auguste Renoir, listmál-
ari.
Innlent — 1739 d. Steinn bp
Jónsson — 1745 d. Síra Eyj-
ólfur Jónsson lærði á Völlum
- 1840 d. Friðrik VI - 1857
Hvirfilvindur brýtur niður
bæjarhús í Kollsvík — 1944
Nordahl Grieg skotinn niður
yfir Berlín — 1963 d. ísak
Jónsson — 1973 Hafréttar-
ráðstefna SÞ sett í New York
— 1979 Kosningasigur Fram-
sóknarflokksins — 1979 d.
Jörundur Brynjólfsson.
Orð dagsins — Ljótasta l.vgin
er oft sögð með þögninni —
Robert Louis Stevenson,
skozkur rithöfundur (1850—
1894).