Morgunblaðið - 11.01.1981, Side 1
8. tbl. 69. árg.
SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Átökin harðna
í E1 Salvador
San Salvador. 10. janúar. — AP.
UM 100 vinstrisinnaðir skærulið-
ar reyndu að leggja undir sig
fátækt hérað í norðvesturhluta
E1 Salvador í gær. 26 féllu í
átökum við hermenn.
Þetta voru mestu átökin í land-
inu síðan hópar herskárra vinstri-
sinna 1ýstu því yfir, að ný sókn
væri hafin. Flestir landsmenn
höfðu yfirlýsinguna að engu,
verzlanir voru opnar eins og
venjulega og verkamenn mættu til
vinnu sinnar.
Jafnframt féll einn hermaður og
annar særðist í skotbardaga í
hverfinu Mejicanos í San Salva-
dor. Alls biðu 36 bana í skotbar-
dögum víðs vegar í höfuðborginni
og nágrenni hennar og um 60
vinstrisinnar voru handteknir
fyrir að dreifa flugmiðum með
áskorunum um allsherjarverkfall.
Herflokkur réðst á felustað
skæruliða í San Salvador og hand-
tók einn mann og lagði hald á 16
riffla, ótiltekinn fjölda eldflauga
og skotfæri.
Skæruliðar gerðu samtímis árás
á lögreglustöð í Ciudad Victoria,
smábæ í norðvesturhluta landsins,
og drápu tvo hermenn og 16
skæruliðar biðu bana í snörpum
bardögum í Armenia skammt þar
frá.
Lík 12 ungra manna fundust
umhverfis höfuðborgina, þar á
meðal sex á knattspyrnuvelli í
norðurúthverfi borgarinnar. Líkin
virtust vera af verkamönnum og
námsmönnum.
Samtök vinstrisinna hafaJjoðað
algera sókn til að kollvarpa ríkis-
stjórninni áður en Ronald Reagan
tekur við embætti forseta í Banda-
ríkjunum 20. janúar.
Mugabe víkur
Tekere úr stjórn
— lækkar Nkomo í tign
Salishury. 10. jan. — AP.
FORSÆTISRÁÐHERRA Zimbabwe. Itobert Mugabe. vék
Edgar Tekere. sem nýlega var sýknaður aí ákæru um morð. úr
stjórn sinni í dag og fékk andstæðingi sínum. Joshua Nkomo,
valdaminna embætti í stjórninni. l>etta er fyrsta breytingin á
stjórn landsins síðan það fékk sjálfstæði.
Endur kúra undir skammdegissólinni. i.jósm.: ði. K.M.
Laugardagsverkfallið
í Póllandi er víðtækt
Vegna formsatriðis var Tekere
sýknaður af ákæru um morð á
hvítum bónda. Mugabe sagði að
Tekere hefði verið leystur frá
störfum, þar sem hann þyrfti að
hvíla sig og „ná sér eftir álag og
þrýsting", sem hann hefði orðið að
þola.
Nkomo hefur gegnt starfi inn-
anríkisráðherra, en eftir breyting-
una fer hann með málefni stjórn-
sýslu í ríkisstjórninni. Nkomo hef-
ur sagt að hann muni hafa samráð
við samstarfsmenn sína í fiokknum
SANU áður en hann gefi svar við
því hvort hann samþykki ákvörð-
unina.
„Ef hann hafnar henni er úti um
samsteypustjórnina og það gæti
haft erfiðleika í för með sér,“ sagði
vestrænn stjórnarerindreki og
benti á nýleg átök skæruliða
Nkomo og Mugabe.
Flokki Nkomo stendur til boða
fimmta ráðherraembættið í stjórn-
inni. Mugabe kvaðst hafa boðið
Nkomo nýtt embætti vegna þeirrar
gagnrýni, að of litlar breytingar
hefðu verið gerðar á lögreglunni,
þótt hann teldi þá gagnrýni órétt-
mæta og Nkomo hefði gert það sem
í hans valdi stæði.
Tvö ný ráðherraembætti hafa
verið stofnuð: embætti iðnaðar- og
orkumálaráðherra og embætti
kvennamálaráðherra. Simon Muz-
enda varaforsætisráðherra var
leystur frá störfum til að gera
honum kleift að aðstoða Mugabe í
starfi. Emmerson Munangagwa
ráðherra var veitt aukið vald til að
stjórna sameiginlegri herstjórn
skæruliða og hersins og stuðla að
sameiningu herjanna.
Varsjá, 10. janúar. — AP.
PÓLSKIR verkamenn komu ekki
til vinnu í dag og lögðu með því
áherzlu á kröfu sína um fimm
daga 40 stunda vinnuviku. þrátt
fyrir yfirlýsingar stjórnarinnar í
landinu um að Pólverjar hafi
ekki efni á slíku hóglífi. bá hafa
þær fregnir borizt frá Nowy
Sacz, sem er í Suður-Póllandi. að
46 Samstöðu-menn hafi náð
stjórnarsetri horgarinnar á sitt
vald og neiti að hafa sig á brott
nema yfirvöld verði við kröfum
þeirra. en ekki liggur fyrir hverj-
ar þessar kröfur eru.
Svo virðist sem flestir vinnu-
staðir í kringum Gdynia og
Gdansk séu lokaðir í dag, og í
Varsjá liggur vinna niðri í þeim
stórfyrirtækjum sem vitað er um.
I framhaldi af aðvörun til
pólskra „gagn by 11 i ngarsi n n a“ í
Izvestiu í gær héldu sovézkir
fjölmiðlar áfram harðorðum yfir-
lýsingum sínum vegna laugar-
dagsverkfallsins, og hafði Pravda
SVO virðist sem Menachem Beg-
in hafi mistekizt að binda endi á
stjórnarkreppuna i ísrael og
eftir málgagni pólska kommún-
istaflokksins að í Póllandi væru
enn að verki öfl sem ynnu mark-
visst að því að raska þeirri ró sem
útlit hefði verið fyrir að væri að
komast á í Póllandi.
samkvæmt fregnum ísraelska út-
varpsins er hann í þann veginn
að biðjast lausnar fyrir rikis-
stjórn sína og hoða til nýrra
kosninga. lltlit er fyrir að kosn-
ingarnar verði haldnar í júní.
fimm mánuðum fyrr en a'tlað
var.
Verkamannaflokkurinn, sem er
helzti stjórnarandstöðuflokkurinn
í landinu, hefur mikla.möguleika á
að sigra í kosningunum, ef marka
má síðustu skoðanakannanir, en
samkvæmt þeim hafa þó óvenju-
margir kjósendur enn ekki gert
upp hug sinn. Það eru launakröfur
kennara, sem eru helzta misklíð-
arefni stjórnarinnar, og hefur
fjármálaráðherrann, Yigael Hurv-
its, hótað að segja af sér, ef
stjórnin ákveði á fundi sínum á
morgun að verða við þeim. At-
kvæði hans ræður úrslitum á þingi
en ekki er búizt við því að Begin
tilkynni um þingrof og nýjar
kosningar fyrr en á þriðjudag.
KGB tekur síðasta baráttumann
gegn misbeitingu geðlækninga
MonIívu, 10. janúar. — AI*.
SJÖ KGB-menn ruddust inn i
ibúð Felix Serebrov. fimmtugs
landfræðings. sl. fimmtudags-
kvöld og tóku hann höndum
eftir að húsleit hafði farið fram.
Er talið að með þessari ráðstöf-
un hafi sovézk yfirvöld svipt
frelsi síðasta liðsmann hinna
óopinberu samtaka gegn „kerf-
isbundinni misbeitingu geð-
lækninga í pólitiskum til-
gangi“. eins og alþjóðasamtök
geðla kna hafa nefnt þessa teg-
und pólitískra ofsókna í Sovét-
ríkjunum.
Handtökur félaga í hópnum
hófust fyrir alvöru í septem-
bermánuði, en síðan hafa þrír
þeirra komið fyrir rétt og verið
sekir fundnir um „and-sovézkan
áróður" og í kjölfarið hlotið
þyngstu fangelsisdóma sem sov-
ézk lög mæla fyrir um vegna
slíkra „glæpa".
Serebrov hefur áður verið
fangelsaður fyrir þátttöku sína í
hópnum, en eiginkona hans
kveður engar ákærur felast í
þeim skjölum, sem KGB skildi
eftir á heimilinu er þeir fluttu
mann hennar á brott í fyrra-
kvöld.
Sovétstjórnin hefur jafnan
harðneitað ásökunum um, að í
landinu sé geðlækningum mis-
beitt til að hafa hemil á and-
stæðingum hennar, en samtökin,
sem Serebrov var í, hafa hvað
eftir annað krafizt þess að sleppt
verði úr geðveikrahælum
nafngreindum einstaklingum
sem hafa verið lokaðir inni í
slíkum stofnunum skoðana sinna
vegna.
Uppgjöf Begins
á næsta leiti
Jorúsalem. 10. janúar. — AP.