Morgunblaðið - 11.01.1981, Side 2

Morgunblaðið - 11.01.1981, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JANUAR 1981 Tómas Árnason: Stjórnin segir af sér ef Alþingi fell- ir bráðabirgðalögin „AFSTAÐA Guðrúnar Helgadótt- ur, þessi Gervasoni-uppákoma, hefur sett sitt mark á umræðuna um bráðabirgðalögin. Ef svo reynist, að Alþingi felli lögin, þá segir ríkisstjórnin efalaust af sér og ég tel, að hún muni að sjálfsögðu gera það, ef hún kem- ur máíinu ekki í gegnum Al- þingi,“ sagði Tómas Árnason, viðskiptaráðherra. á almennum stjórnmálafundi Félags ungra framsóknarmanna á fimmtu- dagskvöldið. Báðir þjón- arnir lausir Á FÖSTUDAG var sleppt úr gæzluvarðhaidi öðrum þjóninum af tveimur á Hótel Esju, sem kærðir voru fyrir fjárdrátt og vatnsblöndun vins. Þessi þjónn hefur algerlega neitað sakargiftum en félagi hans, sem sleppt var úr gæzluvarðhaldi tveimur dögum áður, viðurkenndi hins vegar að vera við málið riðinn. Rannsókninni verður haldið áfram. Tómas vitnaði til orða Alberts Guðmundssonar um það, að hann myndi ekki fella ríkisstjórnina, nema önnur væri í sjónmáli og sagði Tómas það „skynsamlega afstöðu". Hann sagði Albert hafa sagt, að Guðrún Helgadóttir væri veiki hlekkurinn í stjórnarsam- starfinu. Um það vildi hann engu spá. „En ég hefði haldið að hún hefði aðstöðu til að styðja þetta mál, hvað sem Gervasoni líður," sagði Tómas. „En hvað sem þess- um umræðum líður, þá er rétt áð hafa í huga, að ef Guðrún situr hjá, þá hefur stjórnin 20 atkvæði á móti 19 í neðri deild, ef Albert greiðir atkvæði á móti.“ Tómas sagði stjórnarandstöð- una hafa verið „frámunalega klaufaiega í sínum viðbrögðum" við bráðabirgðalögunum. Gagn- rýnin hefði beinzt að forminu en ekki efninu. „Og ég var dálítið hissa á rölti Geirs Hallgrímssonar og Kjartans Jóhannssonar til for- seta Islands. Það er ekki vafi á því, að rétt var staðið að útgáfu bráðabirgðalaganna." Sagði Tóm- as stjórnarandstöðuna þurfa að undirbúa vandlega afstöðu sína til bráðabirgðalaganna, þegar þau kæmu til kasta Alþingis. Forsætisráðherra trygg- ir að Gervasoni verði ekki sendur í fangelsi Glitský á loftl yfir Fijótsdalshéraði. Myndin er tekin í ljósaskiptun- um hinn 30. desember síðastliðinn. Víða er sú trú manna, að í kjölfar glitskýja komi óveður, hálfum sólarhring eftir að þau sjáist á lofti. Glitský yf ir Fljótsdalshéraði GLITSKÝ hafa að undanförnu sést á lofti yfir Vopnafirði, Rauf- arhöfn og Fljótsdalshéraði, og víðar á Norð-Austurlandi. Ský þessi, sem einnig eru nefnd perlu- ský eða perlumóðurský, eru frem- ur sjaldgæf, en eru þó kunn í Skandinaviu og Skotlandi. Að sögn Flosa Hrafns Sigurðs- sonar deildarstjóra á Veðurstof- unni, er ekki vitað nákvæmlega, hvernig þessi ský myndast, eða hver samsetning þeirra er. Helst sé þó talið að í þeim séu ísnálar eða ískristallar, og myndist hin sérkennilega birta er af þeim stafi þá er sólarljós brotnar í þeim. — Á Austurlandi hafa menn einnig bent Morgunblaðinu á, að stund- um virðist sem birtu af jöklum slái upp í skýin, og myndi glampa eða ljósbrot í perluskýjunum. Flosi Hrafn sagði skýin yfirleitt vera mjög hátt á lofti, eða í 21 til 30 kílómetra hæð. Þau væru yfir- leitt þar sem fjallabylgna gætti í lofti, er bæri þau svo hátt upp. Skýin kvað hann sjaldgæf, en þau væru þó kunn hérlendis sem er- lendis eins og áður gat. Á Veðurstofunni fékk blaða- maður Morgunblaðsins einnig þær upplýsingar, að sums staðar legði fólk trúnað á, að í kjölfar glitskýja kæmi óveður, þá venjulega hálfum sólarhring eftir að sæist til þeirra. Glitský geta verið mjög falleg og margbreytileg á litinn, ekki ósvip- uð regnboga, og styður það tilgát- ur um að ljósið sjáist er sólargeisl- ar brotna í ískristöllum hátt í lofti. Biðu nærri sjö tíma um borð í Flug- leiðaþotu UM ÞAð biL tíu tíma seinkun varð á einni þotu Flugleiða á leið hennar frá New York sl. miðvikudagskvöld. Þotan var í þann veginn að leggja upp frá Kennedy-flugvelli þegar skyndilega gerði mikla snjó- komu og varð vélin að bíða unz taeki fengust til að hrein- sa snjó af vélinni. Farþegar voru komnir um borð í þotuna og hafði hún þegar haldið frá flugstöðvar- byggingunni og beið flugtaks. Skall þá skyndilega á mikil snjókoma og náði bylurinn yfir mikinn hluta austur- strandar Bandaríkjanna og lokaðist Kennedy-flugvöllur um tíma. Um 5 þumlunga þykkur jafnfallinn snjór féll á skömmum tíma og þykir það mikið á þessum slóðum að sögn Sveins Sæmundssonar blaðafulltrúa Flugleiða og olli snjókoman mikilli ringulreið og töfum á flugvellinum. Tæki til að hreinsa snjó og afís- ingartæki biluðu, vélar stöðv- uðust af þeim sökum, nánast þar sem þær voru staddar á því augnabliki og farþegar urðu því að bíða langtímum saman í vélunum. Farþegar Flugleiða máttu bíða í vélinni í nokkra tíma, þar sem hún komst ekki að nýju upp að flugstöðvarbyggingunni. Sem fyrr segir hlauzt af þessu nærri 10 tíma töf, en hún olli þó ekki frekari vandkvæðum í millilandafluginu. Forsætisráðherra. Gunnar Thoroddsen, átti í fyrrakvöld fund á heimili sínu með Guð- rúnu Helgadóttur alþing- ismanni vegna Gervasoni- málsins, en fundinn var einn- ig viðstaddur Jón Ormur Hall- dórsson aðstoðarmaður ráð- herra. Niðurstaða fundarins var sú að forsætisráðherra tryggir, að Patrick Gervasoni verði ekki sendur í fangelsi í Frakklandi. — Forsætisráðherra kvaðst á fundinum sjálfur ábyrgjast að Gervasoni yrði ekki sendur í fangelsi í Frakklandi og á þeim orðum grundvallast stuðningur Alþýðubandalagsins alls við ríkisstjórnina, sagði Guðrún Helgadóttir í samtali við Mbl. og kvaðst hún treysta fullkom- lega orðum forsætisráðherra. Morgunblaðið spurði Gunnar Thoroddsen með hvaða hætti hann hygðist tryggja þessa lausn Gervasonis, en hann kvaðst ekki vilja ræða það á þessu stigi málsins. Aðgerðirnar skapa svigrúm til myndunar nýrrar stjórnar „ÞAÐ eina jákvæða við þetta er það, að nú skapast svigrúm til að mynda nýja stjórn. Það er augljóst að þið ráðið ekkert við Alþýðu- bandalagið. Þeir eru byrjaðir að senda ykkur tóninn,“ sagði Sveinn V. Jónsson á almennum stjórn- málafundi Félags ungra framsókn- armanna á fimmtudagskvöldið. Onæði fréttamanna ein helsta ástæðan — segir Guðmundur Sigurjónsson um uppgjöf Hiibners „ÞAÐ voru ýmsar ástæður fyrir þessari ákvörðun Húbners en þyngst vóg sífellt ónæði fréttamanna. Það voru á annað hundrað hiaðamenn hérna og aldrei neinn friður, það var ekki einu sinni hægt að borða morgunverð í friði. Húbner fann sig ekki við þessar aðstæð- ur, sagðist enga ánægju hafa af þvi að tefla og ákvað að hætta,“ sagði Guðmundur Sigurjónsson aðstoðarmaður Húbners, er Mbl. ræddi við hann í Merano á Ítalíu i gær. „Húbner tók þessa ákvörðun á fimmtudaginn og tilkynnti okkur hana samdægurs, einnig Korchnoi og dómara mótsins. Dómarinn tók þá ákvörðun að fresta biðskákunum, sem tefla átti þennan dag í trausti þess að HUbner breytti ákvörðnn !--"i , En hann var óhagganlegur Guðmundur Sigurjónsson það var svo tilkynnt opinberlega á föstudag að HUbner hefði gefið einvígið. Þetta kom flatt upp á menn, ekki síst mótshaldarana, sem bjuggust auðvitað við lengra einvígi. Aðstæður hér hafa verið mjög góðar, þær beztu sem ég hef kynnst á nokkru skákmóti og því ekki hægt að kvarta yfir neinu í þeim efnum." Guðmundur sagði að HUbner hefði ekki fundið sig þegar leið á einvígið og afleikurinn í 7. skák- inni, þegar HUbner lék af sér hrók í betri stöðu hefði haft mjög slæm sálræn áhrif á hann. „Þetta var svo hrikalegur afleik- ur að einn slíkur gæti hæglega eyðilagt heilt einvígi fyrir mönnum," sagði Guðmundur. Guðmundur kemur heim í riæstu viku eftir stutta dvöl á Ítalíu, hann hélt utan 2. janúar. þar sem Tómas Árnason, viðskipta- ráðherra, og Guðmundur G. Þórar- insson, alþingismaður, höfðu fram- sögu um það, hvort frekari efna- hagsaðgerða sé þörf. L'eó E. Löwe sagði þá breytingu nú orðna, að kenningin um nauðsyn þess að hafa Alþýðubandalagið með í ríkis- stjórn vegna reynslunnar frá 1978 væri úr gildi faílin. „Alþýðubanda- lagið er búið að missa óttatökin,“ sagði hann. Sveinn V. Jónsson gagnrýndi harðlega efnahagsáætlun ríkis- stjórnarinnar. „Af hverju ætlið þið nú að skekkja gengið?" spurði hann m.a. „Hefði ekki verið betra að fella gengið meira og losna við milli- færsluna?" Þá sagði Sveinn efna- hagsáætlunina bera lítinn keim af því stefnumáli Framsóknarflokks- ins að auka framleiðsluna í landinu. Viturlegra hefði verið að setja fjármagn til dæmis í það, að ýmsar rannsóknir á möguleikum í efnaiðn- aði yrðu nýttar til framkvæmda, þannig að aukin atvinnuuppbygging skilaði einhverju í þjóðarbúið. „Rölt stjórnarandstöðunnar," sem Tómas hefði talað um „væri bara sama ládeyðan og hja ykkur. Enginn ykkar þorir nokkurn skapaðan hlut,“ sagði Sveinn og spurði hvar væru breytingarnar, sem ættu að lækka innflutningskostnaðinn, og samdrátturinn í ríkisrekstrinum. Tómas sagði það rétt hjá Sveini, að framsóknarmenn yrðu að varast það að láta alþýðubandalagsmenn „draga sig á asnaeyrunum í efna- hagsmálum". „Þess vegna leggjum við svo mikla áherzlu á, að þessar aðgerðir 1. marz séu bara fyrsta skrefið," sagði Tómas. Guðmundur G. Þórarinsson sagði valið hafa staðið milli þess „að sprengja ríkis- stjórnina eða ná fram þessum áf- angasigri og berjast áfrarn". Báðir lögðu áherzlu á, að ef stjórnin spryngi nú myndi það þýða stjórn- leysistíma og á meðan æddi verð- bólgan upp úr öllu valdi. Sérkjarasamningum milli borgar og viðsemjenda lokið SAMNINGAR hafa tekist milli Rcykjavíkurborgar og viðsemj- enda borgarinnar um sérkjör starfsmanna. Síðasti samninga- fundur hófst um miðjan dag á fimmtudag og lauk kl. 12.30 í gærdag. í sérkjarasamningum er fyrst og fremst fjallað um niðurröðun í launaflokka, persónuröðun og ýmis sérákvæði. Sérkjarasamningar Reykjavík- urborgar tóku mikið mið af samn- ingum ríkisins, en mun fleiri laun- aflokkshækkanir áttu sér stað í samningum borgarinnar, skv. upp- lýsingum Birgis ísl. Gunnarssonar, borgarfulltrúa. Reiknað er með að launaflokkshækkanir í borgar- samningunum hafi verið um 510 launaflokkar í heild, sem dreifast á ýmsa hópa. Stærstu hóparnir sem fengu hækkun voru fóstrur og skrifstofufolk, en einnig fengu nokkrir hópar hækkun sem leiddi af samningum ríkisins, t.d. sjúkra- liðar. Talið er að serkjarasamningar ríkisins hafi leitt um 200 launa- flokkshækkanir af sér, en borgar- starfsmenn náðu um 510 launa- flokkshækkunum, eins og áður sagöi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.