Morgunblaðið - 11.01.1981, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1981
35
Við ölum hvert barnið aí öðru svo að II
níðlatir bændur okkar hafi einhverja 77
til þess að vinna verkin fyrir sig (Sjá: Afrikusióðir)
Birtir yfir
blindralandi
Til skamms tima lá við landauðn
viða við ána Volta i Vestur-Afríku
vegna svonefndrar árblindu, en það
er sjúkdómur. sem snikjudýr valda
ok getur orsakað blindu. eins og
nafnið bendir til. Alþjóðleg barátta
til þess að binda endi á þennan
ófognuð hefur borið þann árangur,
að nú þyrpist fólk til sveita og bæja,
sem það hafði áður flúið af þessum
völdum.
Rúmlega ein milljón manna í sjö
löndum á þessu svæði hefur sýkzt af
umræddri veiki. Er þar m.a. um að
ræða nokkur af fátækustu ríkjum
heims.
Alþjóðabankinn og mörg einstök
ríki hafa veitt fé til langtíma áætlun-
ar um að útrýma sjúkdómnum á
svæði þessu. Rúmlega 70.000 manns í
Benín, Ghana, Fílabeinsströndinni,
Malí, Níger, Togo og Efri Volta hafa
misst sjónina gersamlega af völdum
þessa sjúkdóms. Hann er kallaður
árblinda, vegna þess að svarta flug-
an, sem ber hann á milli, verpir
eggjum sínum í straumhörðu vatni.
Flugan lifir á mannsblóði. Þegar hún
bítur menn, kemur hún fyrir lirfu
undir hörundi þeirra og eru þær eins
og þráður í laginu. Sé maður bitinn
oft, dreifast lirfurnar um líkamann
og þegar þær nálgast augum valda
þær skemmdum, sem venjulega
orsaka blindu, sé ekkert að gert.
Fyrstu merki um árangur aðgerða
gegn vágesti þessum fara fram úr
björtustu vonum þeirra, er skipu-
lögðu þær.
í fyrstu voru það þau 7 ríki í
Vestur-Afríku, er orðið höfðu fyrir
sjúkdómnum, er samþykktu skipulag
varnaraðgerðanna árið 1973 og ári
síðar var hafizt handa um víðtæka
úðun á svæðinu. Nokkur hundruð
manna hafa síðan haldið starfinu
áfram undir leiðsögn vísindamanna,
og árangurinn hefur verið það góður,
að þau fjögur ríki, sem liggja að
Senegalánni, hafa óskað eftir sams
konar áætlun, en þau hafa einnig
orðið fyrir barðinu á hinum háska-
lega sjúkdómi.
Á stærstum hluta svæðisins við
ána Volta hefur tekizt að hefta
útbreiðslu sjúkdómsins. Ekki hefur
orðið vart við smit í börnum undir 5
ára aldri.
- THOMAS LAND
ENDURMiNNINGAR
Þegar stóra
bróður var
sparkað frá
Albaníu
Albanirnir mönnuAu byss-
urnar í strandvirkjunum og
gerðu sig líklega til aö skjóta
rússnesku kafbátana í kaf þeg-
ar sovéski aðmirállinn sá sitt
óvænna og sigldi á brott. Fjór-
ir kafhátanna urðu þó eftir.
Þessi atburður, sem gerðist
árið 1960, var nokkurs konar
forleikur að vináttuslitunum,
sem urðu á milli Albana og
Rússa ári síðar, en frá honum
segir Enver Hoxha, þjóðarleið-
togi Albana, í síðasta bindi
endurminninga sinna.
Hoxha segir, að Rússar hafi
lofað að gefa Albönum 12 kaf-
báta og hjálparskip að auki
fyrir að fá að reisa flotastöð í
Vlora á strönd Adríahafs gegnt
Ítalíu. Skyndilega kröfðust
Rússar þess, að þeir fengju full
yfirráð yfir flotastöðinni sem
rússneskt land væri og þegar
Albanir neituðu því alfarið
KRÚSJEFF „fífl og illmenni"
sagðist Krúsjeff ekki mundu
afhenda bátana átta, en Albanir
höfðu þegar tekið við fjórum.
I endurminningum sínum
segir Hoxha, að hann hafi sagt
Rússunum, að hann myndi
aldrei láta flotastöðina af hendi
og hann setti þeim sína eigin
úrslitakosti: annaðhvort fengi
hann kafbátana átta eða Rúss-
arnir skyldu hypja sig.
Með þessi svör hélt rússneski
aðmírállinn til flotastöðvarinn-
ar, þar sem hann skipaði
mönnum sínum að fara strax
um borð í bátana og vera
viðbúnir átökum. Albanir svör-
uðu þá með því að loka Suzan-
sundi og beina byssum strand-
virkjanna að kafbátunum.
„Hann var eins og mús í gildru
og ef hann hefði byrjað að
skjóta, hefðum við sent hann
niður á hafsbotn," segir Hoxha
sigri hrósandi í minningabók-
inni sinni.
Með endurminningum sínum,
sem hafa verið þýddar og dreift
meðal erlendra fréttamanna,
vill Hoxha minna Vesturlanda-
búa á, hve lega þessa litla lands,
Albaníu, er hernaðarlega mik-
ilvæg. Hann segir frá heimsókn
Krjúsjeffs og hve æstur hann
varð við tilhugsunina eina um
flotastöð við Miðjarðarhaf.
„Þaðan getum við ráðist á allt
og alla,“ hefur Hoxha eftir
honum.
Hoxha lýsir Krúsjeff sem
háværum rusta, fífli, skrumara,
fjárkúgara og illmenni. Hoxha
varð fyrir miklu áfalli þegar
Krúsjeff steypti goðsögninni
um Stalín af stóli á 20. flokks-
þinginu í Moskvu 1956 enda var
Stalín í augum þess fyrrnefnda
maður af hjarta lítillátur, dýr-
legur og ógleymanlegur leiðtogi.
- PETER RISTIC
Þurfa líka að sjá um bjórinn i
bóndann.
hitt konu, sem lýst hefur yfir því,
að hún vilji ekki láta greiða lóbólu
fyrir sig.
Um svipað leyti birtist í tíma-
ritinu Mahogany bréf frá annarri
konu — Tendai Hongwe frá bæn-
um Mtoko. Fór hún þar hörðum
orðum um þá takmarkalausu kúg-
un, sem konur í Zimbabwe væru
beittar.
í bréfinu sagði m.a.: Ég er afrísk
kona og ég hef of lengi verið látin
lúta þeirri venju, að við séum
aðeins útungunarvélar. Við ölum
hvert barnið á fætur öðru, svo að
níðlatir bændur okkar hafi ein-
hverja til þess að vinna verkin
fyrir sig.
Sú skoðun hefur nýlega komið
fram í dagblöðum í Zimbabwe og
Kenya, að flestir karlmenn í
Afríku tengja á engan hátt saman
sjálfstæði ríkjanna gagnvart ný-
lenduþjóðunum og frelsun kvenna
heima fyrir.
Simon Mutanda, sem er starfs-
maður við póstþjónustuna í Zim-
babwe, segir eftirfarandi: — Það
er ekki hægt að tala af viti við
konu, sem er letibikkja og nöld-
urskjóða. Maður verður hreinlega
að hýða hana.
Kanyingi Mchira í Kenya segir:
Það er gamall siður í Afríku að
berja eiginkonur og flestir karl-
menn eru sammála um að geti
kona ekki þolað að hún sé barin
endrum og eins, sé hún ekki góð
eiginkona.
Margir þeldökkir karlmenn,
sem eru aldir upp í þeirri trú að
þeir eigi að vera herrar yfir
eiginkonum sínum eru mjög ugg-
andi um, að hugsjónir kvenfrelsis-
hreyfinganna muni skjóta rótum i
Zimbabwe. Samkvæmt afrískum
erfðavenjum er verksvið kvenna
mjög afmarkað. Þær eiga að ala
börn, elda, hreinsa moldarkofana,
hugsa um eldhúsverk, geitur og
kindur, rækta grænmeti og
brugga bjór fyrir bændur sína.
- BRUCEJONES
ENSKAN
Kennsla í hinum vinsælu enskunámskeiöum
fyrir fulloröna hefst fimmtudaginn 15. janúar og
stendur yfir til páska. Afbragðs kennarar.
Síödegistímar — kvöldtímar.
Mlmir,
sími 10004 og 11109 (kl. 2—7 e.h.)
.. ' ......... ———
Orðsending til íbúa
á starfssvæði væntanlegrar
heilsugæzlustöðvar í
Borgarspítala
Athygli er vakin á því, aö þeir íbúar á starfssvæöi
heilsugæzlustöövar í Borgarspítala, sem ný er
opnuð, sem halda vilja sínum heimilislækni áfram
en fá ekki þá þjónustu sem heilsugæzlustööin
veitir, verða aö tilkynna þaö á skrifstofu Sjúkra-
samlags Reykjavíkur, Tryggvagötu 28 í síðasta lagi
fyrir 15. janúar nk. Slíka tilkynningu má gefa
skriflega eöa símleiðis í síma 18440. Nánari
upplýsingar hafa verið gefnar meö bréfi borgar-
læknis dags. 17.12. sl.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
Qompton Porkinson
D160M to D200L
Frames
D80 to D132M
Frames
D71 Frames
RAFMÓT0RAR
Eigum ávallt fyrirliggjandi 1400—2800 sn/mín.
rafmótora.
1ns fasa 'A—4 hö
3ja fasa V2—25 hö
Útvegum allar fáanlegar geröir og stæröir.