Morgunblaðið - 11.01.1981, Side 37

Morgunblaðið - 11.01.1981, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1981 37 Ólöf Þórðardóttir frá Ríp - Minning Fædd 8. janúar 1963. Dáin 14. desember 1980. Nú árið er liðið i aldanna skaut og aldrei það kemur til baka. nú Kenicin er sérhver þess Kleði og þraut. það gjðrvallt er runnið á eiltfðar braut. en minning þess víst skal þó vaka. Oft hefur það komið fyrir á árinu 1980, sem nú er nýgengið, að maður hefur spurt sjálfan sig að því í einlægni, til hvers við séum eiginlega að fæðast í þennan heim, heim sem stundum er svo fullur af fjandskap, grimmd og sársauka. Svarið hef ég ekki en einhver hlýtur tilgangurinn að vera, því við skiljum ekki og viljum e.t.v. ekki skilja hann. Vel má það vera að best fari á því að vita sem minnst og hugsa sem minnst um það. Og enn einu sinni brýst þessi spurning fram á varirnar þegar hún, Ólöf Þórðardóttir, er skyndi- lega hrifin burt úr þessum heimi, svo ung og lífsglöð, þegar leiðir lágu til allra átta og hún átti allt lífið framundan — að því er manni virtist. Það fer þá ekki hjá því að maður standi eftir ráðþrota og djúpt særður og reyni að leita svara við ofangreindri spurningu. fátt verður um svör og hinn títtnefndi tilgangur virðist ekki vera neinn. Það var eins og að slökkva á ljósi, svo snöggt og óvænt kom þetta reiðarslag. Hverjum hefði dottið í hug að morgunn sunnu- dagsins 14. desember væri siðasti morgunninn á stuttri en bjartri lífsleið hennar. Hverjum hefði dottið það í hug þegar verið var að borða hádegismatinn, án efa undir fjörugum umræðum um hrossin sem átti að fara að sækja, að hún sem var svo hress og kát myndi verða örend áður en sól hnigi til viðar það dimma vetrarkvöld. Enginn, og síst af öllu hún sjálf, myndi hafa látið sér detta svo fáránleg vitleysa í hug. En svo sem margsannað er ráðum við ósköp, ósköp litlu um gang lífsins og bilið milli lífs og dauða er örmjótt. Kannski er allt okkar líf fyrirfram ákveðið, líkt og í púsluspili, og þegar síðasti bút- urinn er kominn á sinn stað er spilið búið. Það spil sem hefur verið ætlað Ólöfu hefur haft yfir svo alltof, alltof fáum bútum að ráða og nú er hún farin frá okkur og síðasti búturinn í spilinu kom- inn á sinn stað. Eftir sitjum við hin og viljum ekki trúa því sem við vitum að er svo óumdeilanlega satt. Ég rifja upp í huganum minn- ingar frá sjö sl. sumrum og nú síðast einnig frá jólum og páskum: upprekstrarferðir á vorin, hey- vinna á sumrin, smalamennska á haustin og svo ótalmargt fleira. Þó alltaf verði gaman að koma heim í Ríp verður það þó aldrei eins og áður þar sem nú vantar Ollu. Ólöf fæddist 8. janúar 1963 og ólst upp á heimili sínu, Rípi Hegranesi, Skagafirði. Hún var næstyngst af 8 börnum hjónanna Sólveigar Júlíusdóttur og Þórðar Þórarinssonar. Ólöf var í alla staði vel af Guði gerð, bæði myndarleg og vel gefin. Ekki var hún gefin fyrir langar skólagöng- ur en vildi heldur njóta æskunnar meðan hún varaði. Gáskinn var ríkur í Ollu og meðal félaga var hún hrókur alls fagnaðar. Fjölskyldu sinni allri var Ólöf mikils virði og veit ég að miklar vonir voru við hana bundnar og hennar sárt saknað af öllum heima á Ríp. Ólöf var mikið gefin fyrir skepnur og þó við værum á margan hátt ólíkar, þá höfðum við báðar mjög gaman af hestum og hestamennsku. Oft vorum við bún- ar að ræða um það okkar á milli, að „það yrði nú ekki hægt að tala um gæðinga í Skagafirðinum fyrr en búið væri að temja hryssurnar okkar og við færum að ríða út á þeim saman". Ekki átti það samt fyrir Ollu að liggja að taka Blesu til kostanna, en vonandi eru þeir þarna hjá henni gömlu klárarnir sem við Dagrún Halldórs- dóttir - Minning Fædd 15. júlí 1905. Dáin 31. desember 1980. Mánudaginn, næstkomandi, verður gerð útför mágkonu minn- ar Dagrúnar, er kvaddi þennan heim um leið og gamla árið. Mig langar að minnast hennar örfáum orðum, fátæklegum að vísu. Fundum okkar bar fyrst saman fyrir um fjörutíu árum, ég þá nýkvæntur systur hennar. Hún hafði raunar rúman áratug um- fram mig, en þá hafði kynslóðabil- ið s.k. ekki enn verið uppgötvað, og því ekkert til fyrirstöðu eðlilegum samskiptum fólks. Kynni okkar í öndverðu voru ekki náin, enda vík milli vina. Hún búsett norður á Sauðárkróki, en ég vestur við Djúp. Síðar lágu leiðir okkar beggja til höfuðborgarinnar, sem í þá daga var sá segull, er dró að sér mannlíf hvaðanæva af landinu. Þá kynntist ég Dagrúnu betur, og með árunum lærðist mér æ betur og betur, hvílík mannkostakona hún var. Dagrún var frumburður for- eldra sinna, hjónanna Guðrúnar Jósefsdóttur Kristjánssonar og Halldórs Þorgrímssonar Bjarna- sonar, en þau hjón voru bæði Þingeyingar í ættir fram. Fædd var Dagrún á Húsavík, og einsog fyrr segir upp úr aldamót- um. ðldin var þá önnur, eins og sagt er, og lítill tími til dag- drauma. Glíman við brauðið sat í fyrirrúmi, og reyndist mörgum erfið, ekki hvað síst efnalitlum, barnmörgum heimilum. Sjó- mennskan varð lífsstarf Halldórs föður hennar. í upphafi sjósókn á litium farkostum, en síðar far- mennska á ýmsum skipum Eim- skipafélags Islands. Líkt og önnur börn á þessum tímum, vandist hún snemma að taka til hendi og létta róður foreldranna í lífsbaráttunni. Eftir að þau hjón fluttust búferlum til Akureyrar, fór Dagrún að stunda verslunarstörf, störf sem hún tók upp að nýju, þegar hægjast fór um hjá húsmóðurinni, og stundaði alla tíð síðan fram á síðustu ár. Ung að árum komst Dagrún í kynni við Thaliu, leiklistargyðj- una, sem heillaði hana æ síðan. í nokkur ár fór hún með hlutverk hjá Leikfélagi Akureyrar, og það hefi ég fyrir satt, að þeim hlut- verkum hafi verið vel skilað til áhorfenda. Óljósan grun hefi ég og um það, að fleiri listgreinar hafi átt hug hennar. Á ég þar við þá list að binda hugsanir sínar lög- málum ríms og stuðla, en lítt mun því hafa verið flíkað. Upp úr 1930 kynntist hún ungum skagfirskum „sjarmör", og þá um leið voru örlög hennar ráðin. Þessi örlaga- valdur var Svavar sonur hjónanna Salóme Pálmadóttur og Þorvalds Guðmundssonar hreppsstjóra á Sauðárkróki. Svavar var mesta ljúfmenni og hrókur alls fagnaðar, og ekki spillti það, gæddur slíkri söngrödd og „musikkvalitet", að talað var um það í Skagafirði á þeim árum, að tveir ungir menn þar í sveitum ættu að fara út í lönd til að læra söng, og leggja síðan heiminn að fótum sér. Ann- ar þeirra varð prinsinn í ævintýr- inu, maður sem við öll erum stolt af og þekkjum undir nafninu Islandi. Þeim hjónum Dagrúnu og Svav- ari varð einnar dóttur auðið, Kolbrúnar, sem gift er Hjalta Jósefssyni húsasmið, og eiga þau þrjú börn og nokkur barnabörn. Allmörg undanfarin ár gekk Svavar ekki heill til skógar, og þótt húsmóðirin væri á stundum kannski síst betur á sig komin, stundaði hún bónda sinn af slíkri elsku og alúð, að aðdáunarvert er. Svavar lést á sl. ár, og varð því skammt milli þeirra hjóna. Nú þegar leiðir skilja, kemur mér í hug ferð, sem við hjónin fórum undir haustið með Dagrúnu aust- ur fyrir fjall, til Hveragerðis og Selfoss. Ferðin var farin því Dag- rúnu var ofarlega í huga að heilsa upp á sjúka systur sína í Hvera- gerði. Að afloknu rabbi, kveður Dagrún systur sína með bros á vör, segjandi eitthvað á þessa leið: „Jæja systir góð, ég á ekki von á því að við sjáumst aftur." Mig setti hljóðan og reyndi klaufskur að slá á léttari strengi. En slíkt var þrek og æðruleysi Dagrúnar, sem vissi hvað morgundagurinn bar í skauti. Ég vil að lokum, fyrir hönd okkar hjóna, votta öllum ástvinum Dagrúnar dýpstu sam- úð, og henni óskum við góðrar ferðar. H.H. Okkur vantar duglegt blaðburðar- fólk AUSTURBÆR Laufásvegur 2—57, Leifsgata Laugavegur 1—33. VESTURBÆR Melhagi. Hringið í síma 35408 áttum svo mikinn vinskap við; Kolur, Mósi, Vindur, Blesi og fleiri. Þann 26. nóvember eignaðist Olla stóra og myndarlega dóttur. Strax í sumar ákvað hún að ef barnið yrði stúlka skyldi hún heita Sólveig í höfuðið á Sólveigu móður sinni. Ekki hafði það nú verið inni í áætluninni að eignast barn, en allan meðgöngutímann var Olla svo glæsileg og bar sig svo vel, að aðdáunarvert var með því að fylgjast. Einhverntíma áður en hún varð ófrísk vorum við að ræða málin svona eins og gengur og gerist. Talið beindist eitthvað inn á hálar brautir fóstureyðinganna. Þá verður Ollu að orði: „Aldrei myndi ég láta eyða fóstri ef ég yrði ófrísk — því það er maður eins og ég!“ Orðum þessum gleymi ég ekki og finnst að margir mættu taka þau sér til fyrirmyndar. Við þessa fullyrðingu stóð hún svo sannar- lega sjálf og færði með því ómælda hamingju inn á heimili foreldra sinna og systkina auk þess sem hún skildi eftir yndis- legan minnisvarða um sjálfa sig og stutta dvöl sína í þessum heimi. Á jóladag var svo dóttirin skírð og henni gefið nafnið Ólöf Sólveig. í dag, þann 8. janúar 1981, hefði Olla orðið 18 ára. En það var komið að leiðarlokum. Við sem sjáum á bak henni yfir móðuna miklu trúum því að hún hafi verið kölluð til æðri starfa í heimi sem við ekki þekkjum en fáum þó öll að kynnast. Ég þakka Ollu fyrir stutta og ánægjulega samfylgd og tel mig hafa verið heppna að fá að kynn- ast henni. Þetta sama liggur fyrir okkur öllum hinum og hver veit nema hún taki á móti okkur á hvítum gæðingi þegar við komum yfir. Elsku Doddi, Sólveig, Ólöf Sól- veig, afi, amma og systkini, heima á Ríp. Megi Guð senda ykkur þann frið er megnar að græða sárin og gefa ykkur styrk sem mest misst- uð. Ó. grf þú 088, Drottinn. enn Klrðilfftt ár ok Kúúar ok biessaAar tiAir. Kff himneska dOKK KfKnum harmanna tár, Kfí himneskan friA fyrir lausnarans sár ok eilifan unaA um síAir. 8. janúar, 1981, Sigríður Ævarsdóttir. Nýtt — Nýtt frá ítalíu skinnhúfur, skinntreflar. Glugginn, Laugavegi 49 MYNDUSTA- OG HAND/ÐASKÓL/ ÍSLANDS____________________ Ný námskeió hefjast fimmtudaginn 22. janúar og standa til 30. apríl 1981. 1. Teiknun og málun fyrir börn og unglinga. 2. Teiknun og málun fyrir fullorðna. 3. Bókband 4. Almennur vefnaður. Innritun fer fram daglega kl. 10—12 og 14—17 á skrifstofu skólans að Skipholti 1. Námskeiðsgjöld greiðist viö innritun, áður en kennsla hefst. Skólastjóri Reykjavík, Skipholt 1, Sími 19821 Gerð ársreikninga Stjórnunarfélag íslands efnir til nám- skeiðs um gerð ársreikninga í fyrir- lestrarsal félagsins að Síðumúla 23. Námskeiðið verður haldið dagana 19.—22. janúar kl. 14—18. Fjallað verður um gerð ársreikninga með sérstöku tilliti til ákvæða hluta- félaga- og skattalaga. Námskeiðið er einkum ætlað aðal- bókurum fyrirtækja, en á einnig erindi til fjármálastjóra, starfsmanna hagdeilda og annarra sem vinna við uppsetningu eða mat á ársreikning- um. Þátttaka tilkynnist til Stjórnunar- félags íslands, síma 82930. Leiðbeinandi: Stefán Svavarsson dósent og löggiltur endurskoðandi A STJÓRNUNARFÉLAG * SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK ISLANDS SÍMI 82930

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.