Morgunblaðið - 11.01.1981, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1981
45
Vat
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Hvernig dettur
þeim það í hug?
Sveinn Bj. hringdi og sagði: —
Nú dettur ríkisstjórninni það í
hug sem ég hélt að gæti ekki gerst:
að launþegum, sem hafa orðið
vitni að því að ríkisstjórnin brýtur
nýgerða kjarasamninga sína og
ríkisstarfsmanna, og gerir aðra
kjarasamninga ógilda með einu
pennastriki, sé einhver huggun í
óljósum og loðnum fyrirheitum
sem þessi sama ríkisstjórn gefur.
Ég hef sjaldan kynnst annarri
eins hreysti. Ekki einu sinni við
pylsuvagninn.
Furðulegt að
ekkert skuli
vera gert
Þ.B. hringdi og sagðist vilja
taka undir kvörtun vegna þeirra
sem lékju sér beinlínis að því að
hindra umferð þegar ófærð væri
sem :nest á götum borgarinnar: —
Ég er á sama máli og sá sem
hrin:'di til þín í vikunni og lagði
til að ökumenn þessir yrðu sektað-
ir á staðnum og bílar þeirra teknir
úr umferð. Það er furðulegt að
ekkert skuli vera gert í máli
þeirra. Ég held jafnvel að ekki
væri ósanngjarnt gagnvart öku-
mönnum, sem jafnan gæta þess að
hafa bíla sína vel búna í erfiðri
færð að Bifreiðaeftirliti ríkisins
yrði falið að fylgja því eftir að
óþurftargemlingarnir létu sér
segjast og bættu úr búnaði bif-
reiða sinna.
nýting þess sé 20—30 prósent
lakari en þess bensíns sem við
höfum haft til skamms tíma — og
þó held ég að það sé ekki það
versta við þennan vökva. Þeir sem
ég hef nefnt þetta við hafa allir
orðið varir við einkennin, en sumir
ekki áttað sig á orsökunum. Ég
spyr því forráðamenn olíufélag-
anna: Hvað er hér á seyði?
Er vitlaus halli á
Stekkjarbakka?
Breiðholtsbúi hringdi og kvaðst
halda að hallinn á Stekkjarbakka
fyrir neðan Alaska væri vitlaus,
gatan væri rangt hönnuð þarna á
kafla: — Ég hef horft á það hvað
eftir annað núna í hálkutíðinni, að
bílar renna þar stjórnlaust yfir á
vestri akbrautina í veg fyrir um-
ferðina sem kemur á móti jafnvel
þótt ekið hafi verið með fullri gát.
Síðast í fyrradag horfði ég þarna á
árekstur tveggja bíla af fyrr-
greindum ástæðum, og ég hef
heyrt að fleiri slíkir hafi átt sér
stað á þessum sama kafla. Hvert
er álit gatnamálastjóra á þessu?
Telur gatnamálastjóri, að borgar-
yfirvöld beri ábyrgð gagnvart öku-
mönnum sem verða fyrir tjóni, ef í
ljós kæmi að gatan væri rangt
hönnuð þarna?
Vonartrygging
r& »*• »■» h ■'js s
„ f;aiiar um vomna, eins og
M *m forsetinn vitnað. tjl «
rtÍ8‘ ‘ ZT En V* eWk’i
ifn'höfundarins oR Þ«tti v«nt
„ tá vitneskju um það. ef
sérhana þegar ég var barn. Vlaan
ir gvona:
Hreln og
el verMr 141.
ly Kk«lta kMl*
vJlV!.?rr?íJSf3L
..WlTlli'*
Höfundur
vísunnar
Jón Erlingur Guðmundsson,
Elliheimilinu Grund, hringdi
vegna fyrirspurnar Þórunnar
Kristinsdóttur í dálkum Velvak-
anda um höfund vísu sem hún
lærði sem barn af móður sinni: —
Ég hef gert nokkuð af því að safna
vísum um ævina og á orðið
töluvert í fórum mínum. Þar á
meðal er vísan, sem Þórunn spyr
um, og fer rétt með. Höfundur
hennar er Steingrímur Thor-
steinsson.
r Arnald
| Ákveðið að taka allt að 10 milljarða
f gkr. úr gengishagnaðarsjóðum
Verðbólgar verður nœr 40 en 50% með þessum aðgerðum I
_ÉG LlT nu á •< IkUaOArn.n I SO% Of þvl þj-rfli rfti-«j*r»inM I ttnhverj. aflrn ,Þ*i *^ki hmm
kafl ákvrAU aé lara mt* méM 1 gnp. t.l nýrr. ráftrtaínna, þ*«»r rátt Ula hw. •»•*• ^ imywyti * »
mt* hi—i— kattf U nllt •* tla I llöur i irlft til •* né þ*i «0* R»«ii»r .Þmr 4lrwk»m«»r — | QérwéUrtdknTn. -
«< 100 wllljónlr --.. _ . ---s—i- I u— i- •**
k ér «>»»- |
Vísa vikunnar
Þótt hafni flestir forfeðrunum
fer að skiljast Darwin mér;
apinn skipti ostbitunum
eins og þessir gera hér.
S\GGA V/GGA É
Sinfóníuhljómsveit íslands
Tónleikar
í Héskólabíói fimmtudaginn 15. janúar 1981 kl.
20.30.
Efnisskré:
Páll P. Pálsson — Fléttuleikur (frumtlutningur).
Haydn — Trompetkonsert.
Schubert — Sinfónína nr. 6.
Stjórnandi: Páll P. Pálsson.
Einleikari: Lárus Sveinsson.
Aðgöngumiðar í bókaverzlunum Sigfúsar Ey-
mundssonar og Lárusar Blöndal og viö inngang-
inn.
Sintóníuhljómsveit Islands.
Skattaframtal 1981
Tek að mér að telja fram til skatts fyrir einstaklinga og
rekstraraðila.
Lögfræðiskrifstofa, Jón Þóroddsson hdl.,
Klapparstíg 26, III. hæð, Reykjavík.
Sími 11330.
SSS Tómstundavörur SSS
Qoir heimili og skcfla
NÁMSKEIÐ
Innritun stendur yfir
• TÁGAVINNA
Fulloröinnaflokkur
Unglingaflokkur
• RAMMAVEFNAÐUR
• RAMMAVEFNAÐUR
Barnaflokkur
• TAUÞRYKK
• LEIRVINNSLA
Kaldur leir
HANDÍD
Laugavegi 26 og Grettisgötu
sími 2 95 95
Er bensínið
líka glundur?
Stefán Björnsson, Keflavík
hringdi og bað um að fyrirspurn
yrði komið áleiðis til olíufélag-
anna: — Það er fleira glundur en
vatnsblandað vín. Ég held því t.d.
fram að bensínið sem olíufélögin
bjóða okkur upp á um þessar
mundir sé ekkert annað en glund-
ur og þykist hafa orðið þess var að