Morgunblaðið - 21.01.1981, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1981 13
Steingrimur Hermannsson form. Framsóknarflokksins:
„Tek ekki undir þessar tölur“
„ÉG VIL á engan hátt taka
undir þessar tölur,“ sagði
Steingrimur Hermannsson,
sjávarútvegsráðherra og for-
maður Framsóknarflokksins í
samtali við Morgunblaðið i
fyrradag, er hann var spurður,
hvort tölur þær, sem Þorsteinn
Pálsson skýrði blaðinu frá á
laugardag, vœru eitthvað i lík-
ingu við það, sem framsóknar-
menn hefðu hugsað sér. Þar
iýsti Þorsteinn þvi, að til þess að
ná verðbólgumarkmiðum rikis-
stjórnarinnar, 40%, yrði að
skerða kaup 1. júni um 5% og 1.
september um 4%.
„Ég vil vekja athygli á því,“
sagði Steingrímur, „að Vinnu-
veitendasambandið mat verð-
bólguna á næsta ári 85% eftir
grunnkaupshækkun kjarasamn-
inganna, en Þjóðhagsstofnun
hefur ekki viljað meta hana svo
hátt, hefur talað um 70%. Því
kann eitthvað að bera í miili í
þessum siðari áfanga þeirra
líka
„í öðru lagi,“ sagði formaður
Framsóknarflokksins, „er mjög
erfitt að spá um þessa hluti nú,
því að þróun mála fer mikið eftir
fiskverðsákvörðun og hver verði
hækkun á afurðum okkar erlend-
is. Þetta ræður mjög miklu. í
þriðja lagi er einnig gert ráð
fyrir því, að ríkissjóður ryðji
brautina eftir því sem fært er og
dragi jafnvel úr framkvæmdum.
Það er að vísu ákaflega erfitt, en
verði of mikil þensla, kann að
þurfa að gera það og sömuleiðis,
ef frekari niðurtalningarskref
verða tekin — og ég tel það þurfi
að gera — sem nái bæði til launa,
búvöru og fiskverðs, þá legg ég
áherzlu á að áfram verði til þessi
kaupmáttarstefna, sem ég vil
kalla svo, og ákveðin er. Þá er
einnig óvissa um vaxtamálin,
óvíst, hvort grundvöllur verður
til lækkunr vaxta 1. marz, eins og
stefnt er að. Allt þetta gerir
dæmið ekki auðreiknað á þessari
stundu."
Seldi í Hull
ÁRSÆLL Sigurðsson HF seldi 120
tonn i Hull á mánudag fyrir 993
þúsund krónur, meðalverð á kíló
8,27 krónur. Á fimmtudag landar
Jón Þórðarson BA ytra.
spörum
RAFORKU
Lestunar- áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands á
næstunni sem hér segir:
ANTWERPEN
Arnarfell 28/1
Arnarfell 12/2
Arnarfell 26/2
Arnarfell 12/3
ROTTERDAM
Arnarfell 27/1
Arnarfell 11/2
Arnarfell 25/2
Arnarfell 11/3
GOOLE
Helgafell 19/1
Arnarfell . 9/2
Arnarfell 23/2
Arnarfell . 9/3
LARVÍK
Hvassafell 26/1
Hvassafell . 9/2
Hvassafell 23/2
Hvassafell . 9/3
GAUTABORG
Hvassafell 27/1
Hvassafell 10/2
Hvassafell 24/2
Hvassafell 10/3
KAUPMANNAHÖFN
Hvassafell 28/1
Hvassafell 11/2
Hvassafell 25/2
Hvassafell 11/3
SVENDBORG
Hvassafell 29/1
Dísarfell . 2/2
Hvassafell 12/2
„Skip" 25/2
Hvassafell 26/2
Dísarfell . 6/3
Hvassafell 12/3
HELSINKI
Dísarfell 30/1
Dísarfell . 2/3
GLOUCESTER, MASS.
Skaftafell 24/1
Skaftafell 26/2
HALIFAX, KANADA
Skaftafell 28/1
Skaftafell 28/2
HARBOUR GRACE,
NÝFUNDNALAND:
Skaftafell 1*5^ 30/1
C SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
TRUÐUNU,
EFÞUGETUR:
llvfcr. 58.713,
Samkvæmt samkomulagi sem viö
höfum náð viö framleiðendur
Polonez getum við boðiö nokkra
bíla af 1980 árgerðinni á þessu
ótrúlega verði:
Nýkr. 58.713.- (Gkr. 5.871.300).
polonez er STÓR 5 manna bíll,
m.a. notaður í leiguakstur,
enda fremur sparneytinn.
POLONEZ
og tvöfalt hemlakerfi með
sjálfvirkum hemlunarjafnara.
Halogen þokuljós eru bæöi framan
og aftan á bílnum. Stálgrind er
um farþegarýmið og margs konar
öryggisbúnaður annar.
Og í verði þessa stóra og
sterkbyggða bíls er einnig innifalinn
margs konar frábær sérbúnaður.
polonez er hár, (19 sm undir lægsta punkt) og búinn
öflugri vél (83 hö. SAE) og því forkur
duglegur í snjó og á vondum vegum.
pouonez er efnismikill og sterkbyggður (vegur
1050 kg.). Það er ekki einungis
endingaratriði, heldur einnig
öryggisatriði, beri eitthvað útaf
í umferðinni eða á vegum úti.
polonez er öruggur bíll. Diskahemlar
eru á bæði fram- og afturhjólum
Hann er 5 dyra, sætin fallega bólstruð meö taui
og gólf allt teppalagt. Rafknúin rúðuþurrka
og sprauta er á afturrúðu og innbyggð lestrarljós
á þili við aftursætin. í mælaborði má nefna
snúningshraðamæli, olíuþrýstings-
og vatnshitamæli og klukku, auk
aðvörunarljósa fyrir hendhemil og
innsog.
Hvort sem þú trúir því eöa ekki:
Þennan bíl getur þú fengið fyrir
Nýkr, 58.713.-
FIAT ÞJÓNUSTA. SEX SÉRHÆFD VERKSTÆÐI
EGILL VILHJÁLMSSON HF
UMBCÐIÐ
F I A T
Smiðjuvegi 4-Sími77200