Morgunblaðið - 21.01.1981, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.01.1981, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1981 23 Minning: Steingrímur Guðmunds- son prentsmiðjustjórí Fæddur 21. mai 1891. Dáinn 14. janúar 1981. Höfðingi íslenskrar prentlistar á 20. öld er látinn. Steingrímur Guðmundsson fyrrum prent- smiðjustjóri í Ríkisprentsmiðj- unni Gutenberg andaðist að morgni hins 14. janúar í Borgar- spítalanum í Reykjavík. Hann fæddist að prestssetrinu Gufudal í Gufudalssveit í Barða- strandarsýslu hinn 21. maí 1891. Foreldrar hans voru þjóðkunn, sr. Guðmundur í Gufudal, Guð- mundsson á Stóru-Giljá í Húna- vatnssýslu Eiríkssonar, Jónsson- ar. Sr. Guðmundur fæddist 6 vikum eftir lát föður síns og ólst upp í skjóli móður sinnar, Krist- jönu Jónsdóttur frá Meðalheimum í Asum, við fátæktarbasl og erfið- leika, sem mótuðu lífsviðhorf hans og afkomenda hans um baráttu fyrir jafnrétti og bræðralagi, sem hljómaði um byggðir Vestfjarða og Islands allt borið fram af skarpgáfuðum ræðu- og ritsnill- ingum Gufudalsmanna, en sr. Guðmundur var talinn einn af ritfærustu blaðamönnum sinnar tíðar, er hann ritaði í blað sitt Skutul á ísafirði. Hann var einnig áhrifaríkur ræðumaður, svo og synir hans. Móðir Steingríms var Rebekka Jónsdóttir frá Gautlöndum, Sig- urðssonar af hinni kunnu Gaut- landaætt. Faðir hennar, bóndinn og alþingismaðurinn á Gautlönd- um, er talinn fyrsti bóndinn á íslandi sem hélt til jafns við ísl. embættismannavaldið á 19. öld og eftir að íslendingar fengu stjórn- arskrána 1874, enda í forsvari þjóðarinnar á þjóðhátíðinni 1874. Hann var einnig stofnandi og fyrsti formaður Kaupfélags Þing- eyinga og því einn af frumkvöðl- um samvinnuhreyfingarinnar á Islandi. Þrír af bræðrum Rebekku áttu sæti á alþingi, 2 af þeim urðu ráðherrar og einn varð fyrsti formaður Sambands ísl. sam- vinnufélaga. Við þær aðstæður, að stjórnun og framfarir ísl. þjóðfé- lags, fél?;,-slega og stjórnmálalega, væru nokkurskonar ættar- og fjöl- skyldumál, ólst Steingrímur upp til þroska og fullorðinsára í stór- um systkinahópi. Alls urðu þau 10 systkinin frá Gufudal og var Steingrímur næst- elstur þeirra. Hann mun snemma hafa haft áhuga fyrir því og verið hans lífshugsjón að gerast bóndi, en það átti ekki eftir að verða hlutskipti hans í lífinu. Stóri barnahópurinn í Gufudal þurfti mikils með en þröngt í búi hjá prestshjónunum. Ekki mun það hafa farið framhjá neinum sem kynntist heimilinu, að börnin væru óvenjulega skýr og vel gefin og hópurinn vakið athygli er hann kom til ísafjarðar, en þangað fluttu foreldrarnir 1905, er sr. Guðmundur sagði brauði sínu lausu. Til að létta undir við menntun barnanna munu bræður Rebekku hafa gert boð systur sinni og mági, að þeir vildu styðja einhvern af sonum þeirra til langskólanáms. Það boð er sagt að eigi hafi verið þegið, því svo miklir jafnaðarmenn voru foreldrarnir að þau treystu sér ekki til að gera upp á milli hinna gáfuðu sona sinna og leituðu þeir sér því brautargengis á hinum ýmsu svið- um þjóðlífsins án langrar skóla- göngu, og gegndu allir miklum ábyrgðar- og forystustörfum á fullorðinsaldri. Steingrímur hóf prentnám í prentsmiðjunni Vestra á ísafirði árið 1905 og lauk þar námi. Síðar vann hann um skeið í prentsmiðju Odds Björnssonar á Akureyri og Gutenberg í Reykjavík. í ársbyrj- un 1914 sigldi hann svo til Kaup- mannahafnar og dvaldi þar við prentiðn í 4 ár, kom þá heim, en hélt utan á ný árið 1919 og starfaði við prentsmiðju Gylden- dals-bókaverslunar um 10 ára skeið. Hinn 1. jan. 1930 var hann svo ráðinn forstjóri Ríkisprent- smiðjunnar Gutenberg og gegndi því starfi til sjötugsaldurs árið 1961. Jafnframt var hann fram- kvæmdastjóri Ríkisútgáfu náms- bóka 1937—1956 og bókaútgáfu menningarsjóðs 1940—1946. Þegar Steingrímur tók við for- stjórastöðu í Gutenberg hafði ísl. ríkið nýlega fest kaup á prent- smiðjunni og hafði tryggt sér starfskrafta hans áður en frá kaupum var gengið. í Gutenberg varð starfstími Steingríms lengstur eða nær 32 ár, og er hann kom þar til starfa mun hann hafa verið einhver lærðasti allra íslenskra prentara um öll vinnubrögð og tilhögun í prent- verki. Þar komu brátt í ljós og fengu að njóta sín sterkustu eðl- iskostir hans, skarpar gáfur, víð- tækt sjálfsnám, sterkur vilji og skyldurækni svo að af bar. Hann var því gæddur flestum þeim kostum, sem maður þarfnast til að stýra þjóðnýtu fyrirtæki. Prentsmiðjan hafði í upphafi verið keypt að mestu fyrir lánsfé, en svo segja kunnugir að eftir þriggja ára starfstíma hafi skuld- ir að mestu verið greiddar, og eftir það hafi prentsmiðjan greitt tekjuafgang til ríkissjóðs flest árin meðan hún starfaði undir stjórn Steingríms Guðmundsson- ar. Jafnframt var lögð stund á það að gera prentsmiðjuna sem starf- hæfasta hvað snerti húsakost, vélar og áhöld og tryggja atvinnu prentaranna spm þar störfuðu, og efla lífeyrissjóð þeirra. Með tím- anum varð Gutenberg eitt af fullkomnustu prentverkum á landinu án þess að stofnað væri til lántöku. Jafnframt innri breytingum í prentsmiðjunni beitti Steingrímur sér fyrir umbrotsbreytingum á ríkisskjölum, minnkaði stílstærð- ina á Alþingistíðindum og marg- háttuðum skjölum stjórnarráðsins og var ríkisstjórn og forsetum Alþingis til ráðuneytis um öll prentmál með sinni hagsýni og hollráðum, enda gátu allir treyst því að hann ráðlegði þeim það eitt er hann taldi sannast og réttast. Einn af ráðherrum sem samstarf átti við Steingrím hafði þau orð, að hæfileikar Steingríms til að stýra slíku fyrirtæki til gagns fyrir alþjóð hefðu verið frábærir og sjaldan hefði verið um að ræða á Islandi farsælli framkvæmd þjóðnýtingar á vandasömu verk- efni. Eftir langt og farsælt starf í Gutenberg, var Steingrímur við góða heilsu. Svo atvikaðist árið 1962, að til starfa hjá Innkaupa- stofnun ríkisins vantaði mann með sérþekkingu á gæðum prent- pappírs. Hér var um hlutastarf að ræða, og var Steingrímur Guð- mundsson ráðinn til þessa ráð- gjafastarfs, enda manna fróðastur um pappírsgerðir. Starfaði hann að þessum málum svo og endur- skoðunarstörfum hjá Innkaupa- stofnuninni um 18 ára skeið eða til 89 ára aldurs, er hann hætti endanlega störfum á sl. sumri, vegna líkamlegrar heilsubilunar. En skýrleiki í hugsun var slíkur, að ekki var vitað til þess, að honum hefði nokkru sinni orðið á reikningsskekkja við endurskoðun þessi 18 ár, og ef mismunur kom fram, var hægt að ganga út frá því af fullkomnu öryggi, að rétta talan væri hjá Steingrími, svo frábær var vandvirkni hans og skarpskyggni þrátt fyrir hinn háa aldur. Slíkir hæfileikar svo gam- als manns munu vera fátíðir. Öll störf hans hjá Innkaupastofnun- inni voru því leyst af hendi af sömu nákvæmni og ábyrgðartil- finningu og hans fyrri störf, og samvinnuþýðari og alúðlegri sam- starfsmann var ekki hægt að fá en þennan fyrrum stjórnsama og ákveðna yfirboðara úr prentiðnað- inum. Undrritaður átti því láni að fagna að starfa með Steingrími síðustu 18 æviár hans og eiga hann að ráðgjafa. Fyrir alla þá samvinnu og viðræður eru nú fluttar alúðarþakkir að leiðarlok- um. Hann var ekki aðeins skarp- greindur, heldur djúpvitur, víðles- inn og fróður um innlend sem erlend málefni því hann keypti til síðustu stundar erlend tímarit á Minning: Fæddur 24. júní 1895. Dáinn 6. janúar 1981. Að Kotum í Önundarfirði leit hann fyrst dagsins ljós. En þar bjuggu foreldrar hans, hjónin Jó- hanna Eiríksdóttir og Sumarliði Jónsson. Börn þeirra urðu 5 og var Salomon næst yngstur. Eftir lifir yngsta systirin Sigríður og dvelur nú í hárri elli á vistheimilinu Grund í Reykjavík. Salomon vandist ungur við sjálfsbjargarviðleitni, vinnu erfið- ismannsins til sjós og lands. Unglingur lifði hann skútuöldina og var þar góður liðsmaður um árabil. Eftir að mótorbátarnir komu til sögunnar, þá var hann sjómaður á mótorbátum. Skipin lítil og vanbúin tækjum. Hart var sótt og skarðaði oft mjög í sjó- mannastétt Vestfirðinga á þeim árum. Salomon var meðal þeirra er ávallt gátu siglt í höfn, þó svo útlit og möguleikar væru ekki alltaf hagstæðir. Eftir að Salomon fór frá þeim harða skóla, sem sjómennskan á ensku um alþjóðamál. Oft áttum við samræður um þjóðfélagsmál og ráðstafanir hinna ýmsu ríkis- stjórna sem setið hafa. Þá var gaman og fróðlegt að hlusta á Steingrím. Hann var jafnaðar- maður af hugsjón og uppeldi og ákveðinn stuðningsmaður .Alþýðu- flokksins, en útlistanir hans á hagfræði og stjórnsýslu hér á landi sem erlendis voru upplifun, einföld framsetning hans og frum- legar skýringar vorufrábærar. Þar var jafnræði á með þjóðhagsstjór- anum bróðursyni hans og hinum gráhærða öldungi. Á síðasta áratug vann Stein- grímur að útgáfu ævisögu afa síns, Jóns á Gautlöndum. Hann hafði á afmælis- og fjölskylduhá- tíð norður á Gautlöndum varpað fram þeirri hugmynd, að Gaut- landaættin sameinaðist um að láta skrá ævisögu forföður síns og ættartölu. Varð það til þess að Steingrími var falin forsjá þess verks og réð hann kunnáttumenn til ritstarfanna, en jafnframt var hafin fjársöfnun undir forustu Steingríms, Þórleifar Norland og Jóns Gauta Péturssonar. Ævisag- an kom svo út fyrir fáum árum og Vestfjörðum bauð upp á, þá stund- aði hann störf erfiðismannsins um langan vinnudag og lagði ekki árar í bát fyrr en hann stóð á áttræðu. Störf hans voru unnin í kyrrþey, ef trúmennsku og mikilli skyldurækni. Hann hafði góða heilsu og hlífði líkama sínum aldrei. Stæltur, seigur og sterkur. Lundin létt og bjartsýni hugans ber nafnið „Frelsisbarátta Suður- Þingeyinga og Jón á Gautlöndum". Var það Steingrími gleðiefni að aldrei stóð á fjármunum til greiðslu af kostnaði þess verks, enda mun hann þar hafa lagt fram drjúgan hlut sjálfur. En hann hafði einnig bundist Gufudals- sveit órofa böndum og þangað leitaði hugurinn oft alla tíð. Steingrímur Guðmundsson sinnti félagsstörfum innan prentiðnaðarins og á vegum Al- þýðuflokksins, átti sæti á framboðslista til borgarstjórnar Reykjavíkur og sat í skólanefnd Miðbæjar- og Melaskólans, auk margra annarra trúnaðarstarfa. Hann kvæntist Eggrúnu Arn- órsdóttur, prests í Hvammi, Árna- sonar árið 1919. Eggrún andaðist fyrir fáum árum. Þau eignuöust tvær dætur, Margréti, félagsráð- gjafa og Kristjönu, kennara, sem báðar eru búsettar í Reykjavík. Við fráfall okkar góða vinar send- um við samstarfsmenn hans í Innkaupastofnun ríkisins dætrun- um báðum svo og barnabörnum hans og öðru venslafólki innileg- ustu samúðarkveðjur. Ásgeir Jóhannesson sköpuðu þá heiðríkju, að björtu hliðarnar komu ávallt fram og voru ríkjandi. Skuggarnir komu og fóru, en Salomon hélt sér við birtuna og ljósið. Því var hann framúrskarandi félagi og hændust ungir til félags við hann. Hann var skjól þeirra og skjöldur og studdi alltaf lítilmagnann. Það var lífslán Salomons er hann giftist Ingibjörgu Jörunds- dóttur ættaðri frá Álfadal á Ingj- aldssandi. Það var 24. október 1924.1 meira en 56 ár fengu þau að vera saman í farsælu hjónabandi, gagnkvæms trausts og vináttu, er var fölskvalaus allt til hinstu stundar. Slíkt lán er ekki allra. Þeim fæddust 5 börn, af þeim dóu 2 synir í fæðingu. Þau er upp komust voru Lilja, búsett í Kali- forníu og á 2 börn, Gyða er haldið hefir hús með foreldrum sínum alla tíð og Jóhann Mosdal, vél- stjóri, búsettur vestanhafs og á hann 2 börn. Auk þess ólu þau upp Jóhönnu Sumarliðadóttur, bróður- dóttur Salomons, frá frumbernsku til fullorðinsára og er hún búandi hér í Reykjavík og á 3 dætur. Valborg Guðmundsdóttir Bol- ungavík dvaldist á heimili Salo- mons og Ingibjargar um árabil. Heimili þeirra stóð fyrst í Mos- dal, Önundarfirði, síðan um 15 ára skeið á ísafirði og frá árinu 1945 hér í Reykjavík. Hér byggðu þau einbýlishús við Skipasund 61 og stóð heimili þeirra þar alla tíð. Ingibjörg bjó manni sínum ákaflega fagurt og vistlegt heimili. Það einkenndist af bindindissemi, kærleika og ein- lægri trú. Slík heimili eru horn- steinar samfélagsins. Enda kunni Salomon að meta það og virða. Heimilið var honum helgidómur. hvíldarstaður og athvarf er þau hjónin byggðu sameiginlega upp og mótuðu. Öll börnin fengu gott veganesti og mótaði það líf þeirra, enda öll gegnir borgarar og nýtir. Ekki fór hjá því, að sjá hvar var leyndardómur hamingju heimil- islífs Sálomons og Ingibjargar. Var það hin hreina og barnslega trú þeirra á Drottinn, er mótaði líf þeirra háttu og breytni. Það var þessi blessaða barnatrú á Drott- inn Jesúm Krist, er var veganesti þeirra frá kristnum foreldrum. Stuttu eftir komu þeirra hingað til Reykjavíkur gengu þau bæði í Fíladelfíusöfnuðinn og skipuðu sæti sitt þar með heiðri og sóma. Þar voru þau bæði burðarásar og fögnuðu yfir sigrum í starfi safn- aöarins. Manngæskufólk sem þau, fögnuðu yfir barnaheimilinu í Kornmúla, heimilinu í Hlaðgerð- arkoti, kristniboði meðal heiðinna þjóða og útbreiðslu fagnaðarer- indisins um okkar land. Nú við leiðarlok eru Salomon færðar þakkir fyrir samstöðu í trú, von og kærleika. Góður og gegn maður er genginn. Fögur minning hans lifir. Ekkju hans, börnum og öllu venslafólki og frændfólki eru sendar fyrirbænir og samúðarkveðjur. Einar J. Gíslason SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Presturinn okkar er vel menntaður maður. en söfnuðurinn er að mestu almúgafólk. Ræður hans virðast vera samdar fyrir þá fáu. sem standa jafnfætis honum að menntun. Er þetta rétt? Nei. Eg lít svo á, að prestur eigi að skipta við alla einstaklingana í söfnuði sínum. Við predikarar gerum oft þá skyssu að beina ræðum okkar að útvöldum hópi manna í stað fjöldans. Það liðu mörg ár, áður en eg gerði mér ljóst, að andleg geta almúgamannsins er álíka mikil og hjá tíu ára barni. Því er það, að flestir, sem hafa verið á yngri árum í sunnudagaskóla, dragast aftur úr í andlegum efnum, þegar þeir eldast. Þeir hætta að læra um Guð, um Biblíuna, og um hjálpræðið. Þegar eg er á krossferðum mínum, reyni eg aldrei að sýna prestum hvað eg sé góður predikari. Eg reyni að tala beint og einfalt til áheyrenda og útskýra greinilea veg hjálpræðisins. Fólk hlustar, ekki vegna þess að prestarnir okkar trúi ekki eins og eg, heldur vegna þess að fagnaðarerindið er svo oft boðað á flóknu máli. Jesús tók öllum öðrum predikurum fram. Bibían segir: „Hinn mikli mannfjöldi hlýddi fúslega á hann“ (Mark. 12,37). Kristindómurinn er „fagnaðarerindi", og þegar það er kunngjört á skiljanlegu máli, flytur það fögnuð og vekur endurhljóm. Salomon Mosdal Sumarliðason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.