Morgunblaðið - 21.01.1981, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1981
29
Kisur geta
nefnilega
líka unnið
afrek
Dýravinur skrifar:
„Hún Trýna er komin heim.
Trýna var í vor ung læða. Hún fór
um helgi austur í sumarbústað á
Þingvöllum með fjölskyldunni
sem á hana. Þar undi hún glöð og
ánægð. En á sunnudagskvöldið
þegar átti að fara heim, var leitað
og kallað og hún var alveg horfin.
Fólkið hennar hélt heim í Kópa-
vog. Hvað eftir annað var farið
austur að gá að kisu, en hún var
alveg týnd.
Guðað á glugga
Systkinin litlu sem áttu Trýnu
voru ósköp hrygg. En viti menn,
þegar örstutt var til jóla var
guðað á glugga í Stórahjalla.
Kisurödd heyrðist úti fyrir. Þegar
að var gáð var þar komin Trýna
litla, eftir u.þ.b. 6 mánaða flæking
og útivist. Henni var vel fagnað
eins og nærri má geta, og hún fékk
góða aðhlynningu, enda ekki van-
þörf á. Hún var sárlasin af
næringarskorti eftir allan flæk-
inginn, en nú var hún komin heim.
Enginn þekkir hennar ferðasögu,
hún er þó áreiðanlega bæði ótrú-
leg og óvenjuleg.
Kisur geta nefnilega líka unnið
afrek.“
Þessir hringdu . . .
Von er blóm
Sigurður frá Ilaukagili hringdi
og kvaðst vilja bæta einni „von-
arvísu" í safnið: — Vísan er eftir
Guðmund Björnsson sem var
sýslumaður í Borgarnesi og birtist
í ljóðasafni hans:
Von er blóm á veikum meið,
varða i sandflæminu,
grasblettur á grýttri leið,
geisli i náttmyrkrinu.
Grátið
á frönsku
Jakob Jónasson hringdi og
kvað eftirfarandi vísu hafa orðið
til hjá sér nýlega:
Guðrún missti gervison,
grét af list á frönsku.
Uns Gunnar henni gerði von,
gaf á púra-dönsku.
Megum við
fá meira?
Hundar
kettir og
mannfólkið
Gestur skrifar:
„Á hverjum degi gefur að líta
auglýsingar í blöðunum, sérstak-
lega síðdegisblöðunum, um að
hvolpar eða kettlingar fáist gefins
á hinum og þessum staðnum.
TilfinninRascmin ber
almenna skynsemi ofurliði
Þetta er gott fólk og með
hjartað á réttum stað, sem þessar
auglýsingar setur í blöðin, en um
það má segja að skammt dugi, þar
eð tilfinningasemin ber almenna
skynsemi ofurliði. Til hughreyst-
ingar hinum sömu er ekki una
þessum dómi má geta þess að
hálfu verri eru þó þeir sem í krafti
óhóflegrar eigingirni og sjálfs-
elsku hafa knúið í gegn að lög um
bann við hundahaldi i þéttbýli eru
ekki virt. Hafa þeir með því brotið
allar brýr að baki sér er þeir tóku
til við að brjóta lög um dýravernd
í leiðinni, auk þess að hundsa
varnaðarorð yfirdýralæknis við
hundaæði, sem landlægt er í
Evrópu og einungis tímaspursmál
hvenær hingað kemur.
Það siðasta sem þeir
gerðu að gefa þá
Þetta er hópurinn sem lítur svo
á, að dýrin sjálf hafi engan rétt.
Þau eru hikstalaust tekin úr sínu
eðlilega umhverfi, svipt öllu frelsi,
og á endanum eðli og eigindum.
Þetta eru augljósari staðreyndir
en svo að færa þurfi rök að þeim
frekar. En hvað er til úrbóta? Ef
þeir dýravinir sem gefa vilja
hvolpa eða kettlinga sæju þá
meðferð sem þeir oftast verða
fyrir yrði það áreiðanlega það
síðasta sem þeir gerðu að gefa þá.
Það er engin lausn að varpa
ábyrgðinni yfir á aðra og þykjast
með því gefa líf sem þó er lifandi
dautt. Hreinlegast og ábyrgðar-
fyllst er að aflífa þessi kvikindi,
sem engan samastað eiga í veröld-
inni.
Öll leyfi verði
afturkölluð
Hvað hundahald snertir þá mun
það sýna sig fyrr en seinna, að af
öllu vitlausu hefur það vitlausast
verið þegar hundahald var leyft og
þeir misvitrir er að þvi stóðu. Það
ríður því á því að öll leyfi verði
afturkölluð áður en hundahalds-
menn hafa kallað yfir okkur og
kvikindi sín ógæfu sem enginn sér
fyrir endann á.“
Ást er tölv'umj
irifar:
olvakandi.
i rripartur kom upp i j
af lesondum þínum sem L
nn oröinn fullkomlega^
nýyröi, beygist eins og l
þegar hann horföi á,
þátt um tölvur:
r tölvum eins og grín.
in bölvað fleipur.
biö ég þig Velvakandil
I leita ásjár hagyrðingal
senda þinna og skora á þá I
inn í þessa hugsun."
Ást er tölvum
F.Þ. skrifar:
„Velvakandi góður.
S.O.S. lýsti eftir vísubotni við
þrælerfiðan fyrripart. Mín tillaga,
sem er víst nokkuð seint á ferð, er
svona:
Fyrri partur:
Ást er tölvum eins og grín,
andinn bölvað fleipur.
Botn:
Vont að fölvuð sálar sýn
svona möivuð vitjar þín.“
Góður afli togara og
blótið mikla undir-
búið á Eskif irði
Esklfirdi, 19. Janúar.
MJÖG góður afli er nú hjá
togurunum héðan frá Eskifirði.
Hóimanesið kom inn i morgun
með 180 tonn af góðum fiski. í
gær kom Jón Kjartansson með
700 tonn af ioðnu og Pétur
Jónsson RE kom i dag með 600
tonn og Sigurfari AK með 500
tonn. Loðna færist nú austar og
nær landinu að sögn sjómanna.
Talsvert snjóaði hér um helgina
í logni og féll um 10—15 sm af
snjó.
Um næstu helgi halda Eskifirð-
ingar sitt árlega þorrablót og
verður það vafalaust fjölsótt eins
og venjulega. Skemmtun sem þessi
krefst mikils undirbúnings og
segja má að öll þessi vika og
margir undanfarnir dagar fari í
það hjá Þorrablótsnefndinni að
undirbúa blótið mikla. Mikið er
lagt á sig til að sem beZt megi
takast til, en að þessu sinni er
Hafsteinn Guðvarðarson blótgoði.
— Ævar
Frá lögreglunni:
Yitni vantar
að ákeyrslum
Slysarannsóknadeild lögregl-
unnar i Reykjavik hefur beðið
Morgunblaðið að auglýsa eftir
vitnum að eftirtöldum ákeyrslum
í borginni að undanförnu. Þeir,
sem telja sig geta veitt upplýs-
ingar um þessar ákeyrslur eru
vinsamlegast beðnir að hafa sam-
band við lögregluna sem allra
fyrst:
Sunnudaginn 4.1. sl. var til-
kynnt að ekið hefði verið á bifr.
R-64477 sem er Lada gulur að lit.
Átti sér stað frá 1. jan. til 4. jan. á
bak við Stjörnubíó. Hægra fram-
aurbretti er skemmt.
Fimmtudaginn 8. jan. var til-
kynnt að ekið hefði verið á bifr.
R-69342 sem er Daihatsu blá að lit
á bifr.stæði að norðan verðu við
Smyrilshóla. Hægra framhorn er
skemmt. Átti sér stað frá 26. des.
og fram til 8. jan.
Föstudaginn 9. jan. var ekið á
bifr. R-21550 sem er Mitsubishi,
gulur að lit á bifr.stæði framan
við Tollstöðina. Átti sér stað frá
kl. 10.30 til 11.00. Vinstra aftur-
horn er skemmt.
Laugardaginn 10.1. sl. var til-
kynnt að ekið hefði verið á bifr.
Ö-2332 sem er Skoda fólksbifr. gul
að lit við hús nr. 13 við Álfheima.
Vinstri hurðir og aurbretti að
framan skemmt. Átti sér stað frá
5.1. til 10.1. sl.
Sunnudaginn 11.1. sl. var til-
kynnt að ekið hefði verið á bifr.
G-4558 sem er Mazda 616 blár að
lit á Grettisgötu við hús nr. 67.
Hægri afturhurð er skemmd. Átti
sér stað frá kl. 15.30 til 18.15.
Sunnudaginn 11.1. sl. var ekið á
bifr. R-12153 sem er Jeepster, blár
að lit á bifr.stæði austan við
Háskólabíó. Átti sér stað frá kl.
21.00 til 23.30. Vinstra afturhorn
er skemmt.
Mánudaginn 12.1. sl. var til-
kynnt að ekið hefði verið á bifr.
R-4904 sem er Cortina fólksbifr.
græn að lit á bifr.stæði við
Rofabæ 7 líklega laugardaginn
10.1. sl. Vinstra afturhorn er
skemmt.
Mánudaginn 12.1. sl. var ekið á
bifr. G-12442 sem er Cortina græn
að lit. Varð við Lágmúla 9 frá kl.
12.10 til 12.17 eða Ármúla 21 frá
kl. 09.00 til 12.00. Hægra framaur-
bretti og stefnuljósker skemmt.
Mánudaginn 12.1. sl. var ekið á
bifr. R-3625 sem er Subaru, rauður
að lit á Grettisgötu við hús. nr. 44.
Átti sér stað frá kl. 19.00 til 19.30.
Vinstra framaurbretti er skemmt.
Sunnudaginn 11.1. sl. var til-
kynnt að ekið hefði verið á bifr.
Y-6155 sem er Trabant fólksbifr.
grá að lit við hús nr. 33 við
Laugateig. Átti sér stað frá kl.
15.30 til 21.00. Vinstri hurð er
brotin á bifr.
Þriðjudaginn 6.1. sl. var til-
kynnt að ekið hefði verið á bifr.
X-4685 sem er af teg. Fiat. Bifr.
hafði staðið á fyrrgreindum stað
frá því fyrir sl. áramót. Vinstra
framaurbretti og framhurð
skemmt. Bifr. var við Skipasund 7
Rvík.
Þriðjudaginn 13.1. sl. var til-
kynnt að ekið hefði verið á bifr.
R-42606 sem er Escort fólksbifr.
græn að lit. Vinstri hurð er
skemmd á bifr. Átti sér stað
annaðhvort við Hraunbæ 98 eða
Efstahjalla 5 Kópav. frá því á
föstudag þann 9.1. og fram til 12.
jan.
Þriðjudaginn 13.1. sl. var ekið á
bifr. X-4124 sem er Subaru fólks-
bifr. gul aö lit á bifr.stæði austan
við Háskólabíó. Átti sér stað frá
kl. 11.00 til 16.00. Framhöggvari
og svunta skemmd.
Fimmtudaginn 15.1. sl. var ekið
á bifr. X-4255 sem er Datsun
fólksbifr. græn að lit. Átti sér stað
við Naustin, þennan dag frá kl.
14.30 til 15.00. Skemmd er á
vinstra afturaurbretti og er blár
litur í skemmdinni.
Guðni Þorgeirsson hringdi og
kvaðst vilja koma á framfæri
þakklæti sínu til sjónvarpsins
fyrir þáttinn um Hellisheiðina á
sunnudaginn: — Mér fannst Jón I.
Bjarnason skemmtilegur og fróð-
ur ferðafélagi þarna. Mig langar
að skora á sjónvarpið að gera
meira af svona þáttum og dettur
mér til dæmis í hug Reykjanesið
og ferðaleiðir þar um fyrr á tíð.
Sömuleiðis gamlar ferðaleiðir úr
Skaftafellssýslum, þar sem flétta
mætti inn í ferðasöguna gömlum
munnmælum og öðrum fróðleik
um liðna tíð. Af nógu er að taka á
þessu sviði. Þökk fyrir stórgóða
byrjun.
53? $\G£A V/öGA fi AlLVtfttU
Y vmmjKtm wsí/w sýoan óvM alýwu)
WK 4U Y/4VA ‘ÖVOrtA YtlKlL VJ/TKKAY
‘öVk£LL\ AY 65KAÍT ÖVO Yll\<l9 A
tfd W 'cAK/ mi A'ÝlllL\ ÝlfoA & ylAtfOÝSÉ
£H,6im vmuLuzcjr uorqönií
/. /V
ALLM yjp