Morgunblaðið - 21.01.1981, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 21.01.1981, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1981 19 Frá bUasýningu Bilaborgar um helgina. Fremst á myndinni er hinn nýi Mazda 323, sem kynntur var sl. haust. Liðlega 50 Mazdabílar voru pantaðir um helgina BÍLABORG kynnti 1981 ár- gerðirnar af Mazda á bílasýn- inKU i húsnæði fyrirtækisins um helgina og að söKn Þóris Jensen, framkvæmdastjóra komu milli 3 og 4 þúsund gestir að skoða sýninguna. „Við erum mjög ánægðir með útkomuna. en við fengum liðlega 50 pant- anir á syningunni. Sýndar voru allar þrjár gerð- irnar af Mazda, Mazda 323, sem er nýr af nálinni, Mazda 626 og Mazda 929, í ýmsum útfærslum. Þórir sagði, að bílarnir kostuðu í dag á bilinu 68 þúsund til 112 þúsund nýkrónur eftir því hvernig þeir væru útbúnir, en hægt er að fá þá í mjög mörgum mismunandi útfærslum. Þórir sagði aðspurður, að allar gerðirnar hefðu verið pantaðar á sýningunni, en þó hefði nýi Mazda 323 skarað nokkuð fram úr. Þá sagði Þórir ennfremur að- spurður, að reynzla þeirra Bíla- borgarmanna væri mjög góð af svona sýningum. Mikill fjöldi fólks kæmi á hverja sýningu og þeir fengju alltaf þó nokkrar pantanir. „Það má kannski segja að þetta sé ennfremur ágætis upplyfting fyrir fólk í skamm- deginu," sagði Þórir Jensen. A síðasta ári seldi Bílaborg 1298 Mazdabíla og 42 Hino- vörubíla, sem settir eru saman á verkstæði fyrirtækisins. Frá því í lok ársins 1977 hefur Bílaborg sett saman liðlega 100 Hino- vörubíla, sem seldir hafa verið víðs vegar um landið. Húsavik: Versta veður sem gert hefur á vetrinum Húsnvtk. 19. jan. MESTA stórhríð og fannkoma vetrarins hefur verið i dag hér á Húsavik og i nágrannasveitum. Stöðug fannkoma hefur verið siðasta sólarhring og þegar liða fór á síðustu nótt hvessti á norðvestan svo að i verstu vind- kviðunum sást varla milli húsa og var af þeim sökum allt skóla- hald barnaskólans fellt niður i dag. Illfært er um bæinn vegna þess að víða hefur dregið í skafla og segja má að aðeins aðalgöt- unni sé unnt að halda opinni, aðrar götur eru ófærar. Mjólkursamlagið sótti þó mjólk, komst á flesta bæi í Aðaldal og Reykjadal, en sá mjólkurflutning- ur var harðsóttur sérstaklega vegna snjóa á heimreiðum bæj- anna. Ekki var reynt að fara í Mývatnssveit og mjólk hefur ekki verið sótt í Kelduhverfi í vikutíma vegna þess að vegurinn fyrir Tjörnes er alveg ófær. Hann átti að hreinsa í dag, en var ekki reynt vegna veðurs. Tjörnesingar segja að þetta sé versta veður sem gert hefur á vetrinum. Fréttaritari Fréttabréf frá Breiðavíkurhreppi: Af veðri og búpeningi í Breiðavíkurhreppi Breidavikurhreppi i januar. TÍÐARFAR hefur verið mjög slæmt síðan í byrjun desember en þó verst síðan á jólum. Aðfaranótt 27. desember hvessti hér af suðri með rigningu. en siðari hluta nætur gekk hann í suðvestur og var hér suðvestan rok með slydduéljum og mikið var um þrumur og eldingar. Veður fór kólnandi þegar á daginn leið. Þetta stórviðri hélst þar til aðfaranótt 30. desember, en þá fór að lægja, frost var þá orðið 5 stig. Ekki man ég eftir að komið hafi hér áður svo langvarandi sterk- viðri af suðvestri. Raflínur og spænnistöðvar biluðu hér í veðr- inu. Þann 27. fór rafmagn af öðru hvoru en snemma dags 28. fór rafmagn alveg af og kom ekki aftur fyrr en um kl. 10 þann 29. Viðgerðarmenn komu þann 28. til að reyna að gera við línuna en urðu frá að hverfa vegna veður- ofsa, en þeim tókst að gera við morguninn eftir, þrátt fyrir vonskuveður og mjög erfiðar að- stæður. Sjóselta hafði farið í spennistöðvarnar og urðu viðgerð- armenn að hreinsa þær allar. Ekki urðu neinar meiriháttar skemmd- ir í þessu veðri hér í sveit. Járnplötur fuku af tveimur verk- færahúsum, þá varð messufall í Hellnakirkju um hátíðirnar vegna ótíðar og ófærðar. Vegurinn frá Hellisvöllum til Hellissands hefur alltaf verið fær öllum bílum en aftur hefur verið talsverður snjór á köflum á vegin- um frá Hellisvöllum austur sveit- ina og nærliggjandi sveitir og hefur tvisvar verið mokað af veginum. Nú er komin mjög mikil hláka á vegum víða og einnig eru komin svellalög á tún og skapar það hættu á kali, sérstaklega ef illa vorar. Félagsstörí. Kvenfélagið hafði jólatrésskemmtun fyrir börn 3. janúar i félagsheimilinu á Arn- arstapa og var hún vel sótt. Aðrar samkomur hafa ekki verið hér það sem af er vetri. Landbúnaður. Heilsufar búfjár hefur verið gott hér það sem af er vetri. Sauðfé hefur verið á inni- stöðugjöf síðan það kom í hús. Nokkrir bændur böðuðu féð fyrir jól, en margir eiga eftir að baða og nú bíða bændur eftir því að hláni í veðri, sérstaklega þeir sem ekki hafa nógu hlý hús. Margir bændur létu ær til sæðingar snemma í desember, en árangur af því var slæmur það sem ég hef frétt. Framleiðsluráð landbúnaðarins hefur verið að senda bændum fóðurbætiskvóta fyrir áramót, sem þeir svo fram- vísa til seljenda fóðurvörunnar. Nú er daginn tekið að lengja og öll bíðum við vonglöð eftir sumri pg sól. Megi Guð gefa öllum Islendingum til sjávar og sveita blessunarríkt nýbyrjað ár. Finnbogi G. Lárusson fréttaritari. Lóndrangar á Snæfellsnesi. rslið ódýrt S pöntunarlistinn frá Bretlandi, er verslun samankomin I einni b i þú, fjölskylda þín og kunningjar eruó viðskiptavinirnir, allt snýst um. og sumarlistinn 1981 er kominn. KAYS PÖNTUNARLISTINN Ég óska eftir aö fá sendan Kays pöntunarlista I póstkröfu á kr. 49.— Nafn...................................... Heimilisfang.............................. Staður............................. Póstnr. SÆVANQ11» - SlMI 52866 - P.H. 410 - HAFNARI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.