Morgunblaðið - 21.01.1981, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1981
25
fclk í
fréttum
Árekstur í lofti
+ Þessari mynd var smellt af sekúndu-
broti eftir að Rodney Fakatov reif
fallhlíf Dan Vaughn og féll í gegnum
hana. Þetta stórfurðulega slys átti sér
stað á æfingu hjá bandarískum fall-
hlífahermönnum í Utah-fylki í Banda-
ríkjunum. Mennirnir tveir stukku út úr
flugvél í um 400 metra hæð en flæktust
saman á leiðinni niður. Þeir komu því
báðir niður saman með eina svo til
opna fallhlíf og meiddust er þeir komu
niður og voru hermennirnir fluttir á
hersjúkrahús í Salt Lake City.
Hjólhýsið í hassi
+ Bandaríkjamaðurinn Robert Banta lá í rúm-
inu, í hjólhýsinu sínu, þegar eitthvað lenti ofan á
þakinu með gífurlegum látum. Þegar Banta fór
að rannsaka fann hann afganginn af 30 kílóa
marijuana„köggli“ og gat eftir hann í loftinu.
Yfirvöld segja að „grasinu" hafi verð hent út úr
flugvél, sem var að reyna að sleppa yfir suður
Florida frá amerískum tollyfirvöldum. Lögregl-
unni tókst að hafa hendur í hári flugmannsins.
Engan skaðaði vð þessa óvæntu „árás“, en fleiri
„kögglum" var varpað úr flugvélinni og einn
þeirra stórskemmdi mannlausan bíl. Allt þetta
hefur valdið herra Banta mikilli mæðu. Hann var
t.d. önnum kafinn við að reka burt fólk, sem kom
í þeim tilgangi að ná sér í marijuana sem
dreifðist út yfir alla lóðina hans. Tjónið á
hjólhýsinu er talið nema 600 dollurum og það var
ótryggt. Myndin er af Robert Banta. Ef hún
prentast vel má sjá gatið eftir „grasköggulinn"
yfir höfði hans.
I \
Hnefarn-
ir hvíldir
+ Hún ætti að vera tiltölulega örugg um sjálfa sig hún Farah litla
Fawcett meðal þessara tveggja vörpulegu manna. Til vinstri er
enginn annar en sjálfur Mohammad Ali fyrrum heimsmeistari i
hnefaleikum og hinn maðurinn er kvikmyndaleikarinn Ryan
O’Neal. Ein af hans eftirlætisiðjum ku vera sú að berja
ijósmyndara. Myndin var tekin i samkvæmi sem Hnefaleikaráðið
hélt i Los Angeies fyrir skömmu og voru þau þrjú gestir ráðsins.
Eldavél, bökunarofn,
vifta og
uppþvottavél
I v__„
uppþvottavél Ráð til
orkusparnaðar
frá Orkusparnaðarnefnd iðnaðarráðu
neytisins og Sambandi ísl. rafveitna
1. Notum þrepastilli og hitastilli rétt.
2. Notum rétta potta og pönnur.
3. Sjóðum í litlu vatni.
4. Þíðum matvælin fyrir matreiðslu.
5. Fyllum ofninn.
6. Notum steikhitamæla.
7. Notum viftuna rétt og ekki að
óþörfu.
8. Uppþvottavélin.
1. Þrepastilli á eldavélarhellu skal
stilla á hæsta straum þar til
suða kemur upp, eftir það nægir
lægsti straumur. Hitastilli skal
stilla strax á það hitastig sem
óskað er eftir.
2. Pottar og pönnur eiga að vera
með sléttum og þykkum botni.
Pottar með kúptum botni þurfa
allt að helmingi meiri orku.
Pottar og pönnur eiga að þekja
alla plötuna. Fjórðungur
orkunnar fer til spillis ef pottur
sem er 16 sentimetrar í þvermál
er látinn á 18 sentimetra plötu.
Lokið á pottinum þarf að vera
hæfilega þétt. Til að viðhalda
suðu þarf þrisvar til fjórum
sinnum meiri orku ef lokið er
ekki á.
6. Ef vafi leikur á steikingartíma
þá er gott að nota steikhita-
mæli. Allar steikur og ofnrétti
má setja í kaldan ofn. Steik-
ingartíminn lengist um 5—10
mínútur en orkan nýtist betur.
7. Auk orkunotkunar viftunnar
eykur hún loftskiptin í íbúðinni,
þannig að kostnaður við hitun
vex. I stað loftsins sem viftan
blæs út þarf ferskt loft. Þegar
viftan er í gangi fæst rétt
loftræsting ef eldhúsglugginn er
lokaður, en þess í stað haft opið
inn í annað herbergi hússins,
þar sem gluggi er opinn. Nauð-
synlegt er að hreinsa síuna í
viftunni reglulega, t.d. mánað-
arlega. í flestum viftum er
spjald sem opnast þegar viftan
er í gangi, ef spjaldið opnast
ekki þá er viftan óstarfhæf, og
ef spjaldið lokast ekki myndast
dragsúgur og upphitunarkostn-
aður eykst.
3. Nóg er að nota 1—3 desilítra af
vatni við suðu á kartöflum og
öðru grænmeti.
4. Best er að þíða frosinn mat í
ísskápnum. Það þarf meiri orku
og tekur allt að þriðjungi lengri
tíma ð matreiða frosin matvæli.
Athugið að frosið grænmeti er
best að matreiða beint.
5. Reynum að nýta ofninn vel, t.d.
með því að baka og steikja
samtímis rétti sem þurfa sama
hitastig. Hitinn kemur í veg
fyrir að réttirnir fái bragð hver
af öðrum. Orkan nýtist einnig
betur ef steikt er og bakað hvað
á eftir öðru. Grillun á mat
(glóðarsteiking) er orkufrek.
T.d. þarf tvisvar til þrisvar
sinnum meiri orku við að grilla
kjúkling en að steikja hann í
potti.
8. Uppþvottavél er meðal orku-
frekustu heimilistækjanna. Það
sparar orku að setja hana ekki í
gang fyrr en hún hefur verið
fyllt alveg. Hagkvæmt getur
verið að handþvo potta og aðra
stóra hluti sem taka mikið pláss
í vélinni. í einn uppþvott á vél
með 60°C heitu vatni fara um
2,5kWh af rafmagni. Á hita-
veitusvæðum er sjálfsagt að
athuga hvort tengja má upp-
þvottavélina við heita vatnið,
við það sparast rafmagn sem
annars færi í að hita vatnið.
ícTfe