Morgunblaðið - 21.01.1981, Síða 32

Morgunblaðið - 21.01.1981, Síða 32
Lækkar hitakostnaöinn JtaguuliIaMfr Síminn á afgreióslunni er 83033 JKtreimblntiiti MIÐVIKUDAGUR 21. JANUAR 1981 Mun betra útlit með sölu á loðnuhrogn- um en 1980 ÚTLIT er fyrir. að í vikunni verði undirritaður í Japan samningur um sölu á 1.000—1.200 tonnum af frystum loðnuhrognum héð- an. Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, hefur undanfarið verið í Japan og mun nokkur verðhækkun hafa náðst í viðræðunum frá því sem var í fyrra. Árið 1979 seldi SH 3300 tonn af loðnuhrognum til Japan, en aðeins 450 tonn í fyrra. SH er langstærsti útflytjandi þessara afurða héðan. Sölumiðstöðin mun eiga kost á samningi um sölu á frystri loðnu á sömu kjörum og Norðmenn hafa samið um. Japanirnir gera hins vegar kröfu um mjög stóra loðnu í þeim samningi og þar sem íslenzka loðnan er smá er ekki útlit fyrir að samn- ingar verði gerðir um frysta loðnu að sinni, en þau mál nánar rædd síðar. Eigi að síður er útlit fyrir að á þessari vertíð verði bæði fryst loðna og loðnuhrogn að einhverju marki. Þessa mynd tók Jóhann D. Jónsson á Egilsstöðum þegar napur vetrarvindurinn þaut um holt og hæóir. enda skutu hrossin í höm eins og sjá má. Stjórn Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins: Rætt um lántöku freð- fiskdeildarinnar í dag Höfum jafnvel fjarlægst fiskverðsákvörðun, segir Ingólfur Ingólfsson FUNDUR var haldinn í Yfir- nefnd Verðlagsráðs sjávarút- vegsins i iíar. en lítið hefur miðað i átt til ákvörðunar nýs Svalbarðseyri: 300 tonn af frönsk- um kartöflum á ári KAUPFÉLAG Svalbarðsstrand- ar mun i næsta mánuði hefja rekstur verksmiðju sem á að framleiða eitt tonn af frönskum kartöflum á dan úr nurðlenskum kartöflum ok er ráðKert að fram- leióslan verði um 300 tonn á ári fyrir innanlandsmarkað. Þetta er fyrsta verksmiðja sinnar tegundar á landinu og í samtali við Sævar Hallgrímsson kjötiðnaðarmann sem veitir hinni nýju kartöfludeild forstöðu ásamt kjötdeild og eldhúsi kom fram að verksmiðjan er hönnuð í samráði við danska verksmiðju, Sanalcol, sem framleiðir bæði franskar og soðnar kartöflur. Nýjar vélasam- stæður eru á leiðinni til landsins og verða þær settar upp af dönskum sérfræðingum sem munu aðstoða við upphaf fram- leiðslunnar. Sævar sagði að 4—5 manns myndu vinna við þessa grein og verður framleiðslan boð- in í 800 gramma pakkningum og 2 kg, djúpfryst og háifsteikt. Aðspurður sagði Sævar að verksmiðjan yrði samkeppnisfær við þá innfluttu framleiðslu sem boðið er upp á af þessari tegund matvæla, en þar er kg af frönsk- um kartöflum á 'kr. 12. fi.skverðs sem gilda á frá ára- mótum. Á morgun verður hald- inn fundur í yfirnefndinni, en í dag verður væntanlega fundur i stjórn Verðjöfnunarsjóðs fisk- iðnaðarins þar sem fjallað verð- ur um fjáröflunarleiðir til að tryggja rekstrargrupdvöll fisk- vinnslunnar. Hugmyndir stjórnvalda munu vera þær, að þær deildir sjóðsins, sem verst eru staddar og þá einkum freðfiskdeildin, taki lán til að tryggja rekstur fiskvinnsl- unnar eftir að fiskverð verður ákveðið og til að hægt verði að halda genginu stöðugu. Fulltrúar vinnslu og veiða eiga fjóra full- trúa í sjóðsstjórninni og hafa þeir lýst andstöðu við þá hug- mynd að Verðjöfnunarsjóður taki lán. I stjórn sjóðsins eiga einnig sæti þrír fulltrúar stjórnvalda. Ingólfur Ingólfsson, fulltrúi sjómanna í Yfirnefnd Verðlags- ráðs, sagði í gær að hann teldi fráleitt að slík lántaka yrði sam- þykkt í sjóðsstjórninni. „Eftir öllum sólarmerkjum að dæma gerist ekkert varðandi fiskverðs- ákvörðun fyrr en eftir helgi og ég tel að ákvörðunin geti jafnvel dregist meir. Staðan er mjög óljós og ég tel, að við höfum jafnvel fjarlægst lausn frá því sem var um áramótin," sagði Ingólfur. Hann var þá spurður hvernig hann rökstyddi þá skoðun sína: „Varðandi fjárhagsstuðninginn eins og það er nú orðað hjá þeim tel ég að um sé að ræða meira en áherzlumun hjá ríkisstjórninni. Ef það á að vera í formi lántöku hagsmunaaðilans þá er það eng- inn stuðningur. Menn geta farið í einhverja peningastofnun án þess að ríkissjóður sé á bak við það. Ef það á að fjármagna afleiðingar kjarasamninga með lántökum í sjávarútvegi og fiskvinnslu þá er það dáiítið merkileg pólitík," sagði Ingólfur Ingólfsson. Þá ræddi Morgunblaðið einnig við Hjalta Einarsson, fram- kvæmdarstjóra Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna i gær. Hann sagðist enga trú hafa á að fiskverð kæmi fyrr en samningar milli útvegsmanna og sjómanna væru komnir lengra. Þá sagði hann, að fulltrúar fiskvinnslunn- ar vildu fá að vita hvort rekstur fiskvinnslunnar yrði tryggður með láni eða framlagi. „Menn eru ekki spenntir fyrir því ef tryggja á rekstur fyrirtækjanna með lántökum, sem síðar á að greiða með verðhækkunum erlendis, sem ekki eru fyrirsjáanlegar," sagði Hjalti Einarsson. Nýr fundur í Yfirnefnd Verð- Iagsráðs sjávarútvegsins verður haldinn á morgun og á honum verða lagðar fram tölur um afkomu fiskvinnslunnar byggðar á reikningum frá 1979, en fram- reiknaðar til byrjunar þessa árs. Fulltrúar BNOC væntanlegir til samninga: Búist við hækkun á gasolíuverði f BYRJUN febrúar eru væntan legir til landsins fulltrúar hrezka ríkisolíufyrirtækisins BNOC til \iðræðna um verð á Kasoliu. sem fslrndinKar kaupa af fyrirtækinu á þessu ári. Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytis- stjári í viðskiptaráðuneytinu tjáði MM að í júlí í fyrra hefði verið saniið um kaup á 100 þúsund tonnum af Kasolíu frá BNOC. Áttu fjórir farmar, alls 80 þúsund tonn, að afhendast á seinni hluta ársins 1980 og einn farmur í byrjun árs 1981. Hins vegar varð gasolíunotk- un í fyrra minni en áætlað hafði verið og komu því aöeins þrír farmar eða 60 þúsund tonn í fyrra en tveir farmar koma fyrri hluta þessa árs eða 40 þúsund tonn. Búið var að semja um kaup á allt að 100 þúsund tonnum af gasolíu á þessu ári en Þórhallur sagði að það væri nokkuð ljóst að sú tala yrði lægri. Olíukaupin frá BNOC eru miðuð við svokallað mainstream-verð og er jafnaðarverð um 330 dollarar hvert tonn á þeim 100 þúsund tonnum, sem þegar hefur verið samið um. Er það nokkru hærri upphæð en skráð gasolíuverð á Rotterdammarkaðnum á síðustu mánuðum. Þórhallur Ásgeirsson sagði aðspurður að ekkert benti til lækkandi mainstream-verðs á gas- olíu, þvert á móti mætti búast við hækkandi verði, m.a. vegna hækk- unar á hráolíuverði. Gervasoni fær dval- arleyfi í Danmörku SAMKVÆMT upplýsingum sem Morgunhlaðið aflaði sér í Dan- mörku í gærkvöldi hefur verið ákveðið að Frakkinn Patrick Gervasoni fái dvalarleyfi í Dan- mörku og er áætlað að tilkynnt verði um það í Danmörku i dag, en dönsk stjórnvöld tóku þessa ákvörðun á pólitískum grund- velli, m.a. vegna þrýstings frá fslenzkum stjórnvöldum. Miðað er við að Gervasoni verði veitt 6 mánaða dvalarleyfi til bráðabirgða og síðan fram- lengist það samkvæmt lögum Efnahagsbandalagsins um 5 ár ef maðurinn hefur fengið vinnu eða leitað eftir henni á 6 mánaða tímabili, og ef hann leitar eftir vinnu án þess að það gangi fær hann atvinnuleysisbætur og rétt eins og vinnandi maður. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins ætlar danski dómsmálaráðherrann að beita sér fyrir því að Gervasoni fái vegabréf sem gildi innan Efna- hagsbandalagsins og Ebbe Holm, hinn danski lögmaður Frakkans, lét svo ummælt í gærkvöldi aðspurður að hann teldi að þetta danska vegabréf veitti Gervasoni leyfi til þess að ferðast til íslands sem ferða- maður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.