Morgunblaðið - 30.01.1981, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981
3
Hvítá við Iðu. Séð til norðurs yfir Laujíaráshverfið bústaðir lækna og dýralæknis fremst. Áin er isi
lögð. Ljósm. Rax.
Bæir einangruðust
vegna vatnagangs
HVÍTÁ og Ölfusá hafa flætt yfir bakka sína og
valdið nokkrum truflunum á vegasambandi á
ýmsum bæjum í Árnessýslu. Hafa nokkrir bæir
verið einangraðir vegna vatnagangs, en í gær
var hægt að aka nokkuð um á klakanum. Var
frostið komið nálægt 10 stigum þegar mest var,
en í gærkvöldi fór mjög hlýnandi á ný og var
jafnvel búizt við erfiðleikum á ný af þeim
sökum. Myndirnar tók ljósmyndari Mbl. Ragnar
Axelsson úr lofti í gærdag.
Nokkrir bæir einangruðust í vatnavöxtunum og voru umflotnir vatni.
Ástandið skánaði nokkuð í gær þegar gerði frost, en á ný var búist við erfiðleikum þegar fór að hlýna
með kvöldinu.
Biskup um bókasafnið í Skálholti:
Safnið vel geymt
en fé vantar til
að reisa bókhlöðu
- BÓKASAFNIÐ í Skálholts-
kirkju er nú ágætlega geymt og
vel um það búið i eldtraustu
herbergi og tryggum skápum.
Þetta bókasafn var í einkaeigu og
fleiri einkabókasöfn hafa verið til
og veit ég ekki til að alþingismenn
hafi áður borið þungar áhyggjur
þótt slik söfn væru ekki aðgengi-
leg almenningi. en þetta safn var
á sínum tíma keypt til þess að það
færi ekki á víð og dreif. sagði
biskup íslands Sigurbjörn Ein-
arsson í samtali við Mbl. Ilér er
um að ræða bókasafn Þorsteins
heitins Þorsteinssonar. en Guðrún
Ilelgadóttir alþingismaður vakti
máls á því á Alþingi á þriðjudag.
að safnið lægi undir skemmdum.
— Það er ekki við umráðamenn
Skálholts að sakast þótt fé hafi
ekki fengizt til að reisa bókhlöðu í
Skálholti, en alltaf hefur það staðið
til og hefur orðið bið á að safnið
kæmist þannig í notkun, sagði
biskup ennfremur. — Að svo vöxnu
máli er heldur enginn sá staður þar
sem safnið væri betur komið, en
það fer eftir því hvenær fjárveiting
til Skálholts kemst í eðlilegt horf
hvenær hægt verður að reisa hús-
næði.
Sú milljón gamalla króna, sem
Skálholti var með lögum árið 1963
skömmtuð, stóð lengi í stað og
hefur á engan hátt hækkað til
nokkurs samræmis við verðbólgu.
Hefur hið opinbera meðlag þannig
nánast orðið að engu á þessum
árum. Ef fjárveitingavald hefði
staðið við framlög sín tel ég að
húsakostur væri mjög svo lengra
kominn en nú er og viðhald allt
með eðlilegum hætti, en því er ekki
til að dreifa, sagði biskup að lokam.
Nýr sendiherra
Bretlands á ís-
landi í marz
NÝR sendiherra Bretlands á ís-
landi hefur verið skipaður. Ileitir
hann W.R. McQuillan og tekur
við af K.A. East, sem hættir
störfum í utanríkisþjónustunni.
East mun hætta störfum i
Reykjavík um miðjan marz og
hinn nýi sendiherra taka við
síðar i mánuðinum.
McQuillan var yfirmaður upp-
lýsingadeildar utanríkis- og sam-
veldisráðuneytisins í London.
Hann hefur áður verið í Lusaka,
Santiago og Guatemala. Hann
stundaði nám í háskólum í Eng-
landi og Bandaríkjunum og var í
brezka flughernum á árunum 1953
til 1957. W.R. McQuillan er fimm-
tugur, kvæntur og á son og tvær
dætur.
Teljurum í Kópa-
vogi vel tekið
MANNTALSSTJÓRINN t Kópa-
vogi, Karl Kristjánsson sagði í
samtali við Mbl. í gær, að starfs-
mönnum manntalsins þar í ha‘
hefði verið vel tekið á miðviku-
dagskvöldið þegar gengið var
fyrir hvers manns dyr með spurn-
ingarlista. Um 170 manns vinna
við manntalið, 140 grunnskóla-
kennarar og um 30 menntaskóla-
og tækniskólanemcndur.
— Við héldum námskeið á mið-
vikudagskvöldið og síðan fóru
menn út með listana, en bænum er
skipt í 6 hverfi eftir skólahverfun-
um líkt og gert er annars staðar í
þéttbýli, sagði Karl Kristjánsson.
— Viðtökur fólks voru almennt
mjög góðar og létu starfsmenn vel
af viðtökunum með fáum undan-
tekningum. Starfsmönnunum var
víða boðið í kaffi, sem þeir sögðust
ætla að eiga til góða til sunnudags-
ins og við teljum áhyggjur margra
vegna hugsanlegra slæmra við-
bragða fólks eigi ekki við rök að
styðjast.
Fjársöfnun vegna
tjónsins á Lundi
Búnaðarfélag Lundarreykjadals-
hrepps hefur ákveðið að gangast
fyrir fjársöfnun til handa Þorbirni
Gíslasyni bónda á Lundi i Lundar-
reykjadal vegna þeirra húsifja.
sem hann varð fyrir 26. janúar sl.
nr skriða féll á útihús og olli miklu
“ '. _ ~ « svo í frétt frá
tjoni. Segir
félaginu um söfnunina:
Enda þótt tryggingar bæti tjón á
húsum, heyi og gripum taka þær
engan þátt í kostnaði við björgunar-
aðgerðir né bæta tekjumissi eða
annan skaða, sem af þessu hlýst. Því
hefur Búnaðarfélag Lundarreykja-
dalshrepps ákveðið að leita eftir
fjárhagslegum stuðningi hjá fólki,
sem kynni að vilja hlaupa undir
bagga. í því skyni hefur félagið
opnað reikning við Sparisjóð Mýrar-
sýslu, sparisjóðsbók nr. 13101, eig-
andi Búnaðarfélag Lundarreykja-
dalshrepps. Leggja má inn á reikn-
~ : ollum sparisjóðum svo og
mginn . „ -'•> ,ofnunar_
með giroseðh. Þá veru. _
listar látnir ganga í næstu sveitir og
Guðmundur Þorsteinsson á Skálpa-
stöðum tekur einnig við framlögum
fyrir hönd Búnaðarfélagsins.
Gat ekki selt all-
an aflann
FYLKIR NK seldi 51.5 tonn af
ísuðum fiski i Grimsby i gær og
fengust aðeins 309 þúsund krónur
fyrir aflann eða 6 krónur fyrir kiló
að meðaltali. Er þctta mjög lélegt
verð fyrir góðan fisk. en hann var
metinn i 1. og 2. flokk. Af aflanum.
sem Fylkir sigldi með seldust 15
tonn ekki og var sá fiskur settur í
salt.
Gífurlegt framboð hefur verið á
fiski frá meginlandi Evrópu í þess-
ari viku og hafa margir útgerðar-
í Grimsby
menn hætt við að láta skip sín sigla
frá Islandi til Bretlands vegna
þessa. Togarinn Ýmir landar þar
reyndar í dag, en síðan eru ekki
önnur skip bókuð í Bretlandi næstu
vikur.
I fyrradag seldi Gissur hvíti 57,1
tonn í Grimsby fyrir 367,5 þúsund
krónur, meðalverð á kíló 6,43 krón-
ur, aflinn fór í 2. flokk. Þá seldi Már
SH 123,8 tonn í Cuxhaven í fyrradag
fyrir 715,7 þúsund, meðalverð á kíló
5,77 krónur.