Morgunblaðið - 30.01.1981, Page 5
I
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981
5
Veitingahúsið Amarhvoll í smíðum
VEITINGAHÚSIÐ Arnarhvoll er
nafnið á nýjum veitingastað. sem
nú er verið að innrétta i húsnæði
Aiþýðuhúskjaliarans. en eigendur
hafa tekið húsnæðið á ieigu og
hyggjast reka þar vandaðan veit-
ingastað. Eigendur eru Skúli Han-
sen yfirmatreiðslumaður á Hótel
Holti og Guðbjörn Karl óiafsson.
framreiðslumaður á Holti.
Á fyrstu hæð, gengið inn frá
Ingólfsstræti, verður vínstúka, en
matsalur í kjailaranum og setustofa
fyrir gesti. Þeir félagar kváðust ætla
að hafa innréttingar stílhreinar og
einfaldar, en reiknað er með að það
taki tvo mánuði að gera breytingar á
húsnæði. Húsnæðið rúmar um 70
manns í matsal, en eigendurnir
kváðust gera ráð fyrir allt að 50
manns og með því móti sögðu þeir að
mjög rúmgott yrði í matsalnum.
Kváðust þeir ætla að leggja áherslu
á veitingastað eins og best þekkist á
Islandi.
Síðustu sýningar
á Blindisleik
NÚ UM helgina verða siðustu
forvöð að sjá sýningu Þjóðleikhúss-
ins á Blindisleik eftir Jón Ásgeirs-
son og Jochen Uirich, en þetta
leikhúsverk var jólaverkefni Þjóð-
leikhússins að þessu sinni.
Sýningar hafa verið vel sóttar en
geta ekki orðið fleiri þar eð gestirnir
tveir, Michael Molnar og Conrad
Bukes sem fara með aðalhlutverkin,
verða að hverfa af landi brott vegna
verkefna sem bíða þeirra. íslenzk
dansmær, Ingibjörg Pálsdóttir hefur
þótt standa sig með prýði í aðalkven-
hlutverkinu, Freyju, sem hún tók við
af Sveinbjörgu Alexanders, sem
dansaði fyrstu sýningarnar.
Komið hafði til tals að taka þessa
sýningu upp fyrir sjónvarp en nú
hefur sjónvarpið fallið frá þeim
áformum af tæknilegum ástæðum.
Sýningarnar á laugardag og sunnu-
dag verða þannig síðasta tækifærið
til að sjá þetta leikhúsverk.
Pétur Björnsson:
Sannleikurinn hræðir
„vini“ fólksins númer eitt
Upplýsingarnar, sem komnar
eru til almennings um orsakirn-
ar fyrir uppsögnunum og at-
vinnuleysinu hjá gosdrykkjar-
iðnaðinum eru farnar að fara
illilega í taugarnar á Þjóðviljan-
um og þeim flokksmönnum, sem
stóðu að gosskattinum alræmda.
Þær eru farnar að fara í taug-
arnar á þeim sömu mönnum,
sem hundsuðu og hæddust að
bænalistum verkafólksins sem
kom til Alþingis til þess að
mótmæla frumvarpi þeirra.
Þessir „Vinir" Fólksins Númer
Eitt grípa heldur langsótt hálm-
strá sér til varnar og til þess að
ýta burtu sannleikanum, þegar
þeir beita gosdrykkjaverksmiðj-
unni Sanitas fyrir vagninn og
telja sig geta sýnt að Coca Cola
sé að leika sér með öryggi og
velferð verkafólksins í pólitísk-
um tilgangi.
Þeir sem fóstra svo viður-
styggilegar og lágkúrulegar
hugsanir í huga sér, ættu að
snúa hug sínum innávið með
sápu og bursta.
Traðkað á verkafólkinu
Það er hvergi hægt að finna
rök né ástæðu fyrir þeim hags-
munum sem Coca Cola gæti haft
af slíkum uppsögnum.
Pétur Hjornsson
Slík óþverrapólitík gæti að-
eins orðið fyrirtækinu til taps og
niðurlægingar. Við skilum því
þessum ógeðfellda þankagangi
aftur til föðurhúsanna.
Þjóðviljinn gerir sér augsjáan-
lega ekki grein fyrir því, hvað
það þýðir að missa atvinnuna.
Helgar atvinnuleysið meðalið, ef
það er í pólitískum tilgangi?
Við viljum taka það fram, að
það er okkur sérstaklega sárt, að
vera neyddir til þessara upp-
sagna vegna mistaka ráðherra
Alþýðubandalagsins. Þetta er í
fyrsta skipti í sögu f.vrirtækis-
ins, sem slík fyrirvaralaus at-
laga er gerð.
Broslegt fálm
Það er broslegt hvernig Þjóð-
viljinn reynir að sýna fram á að
uppsagnirnar hjá Vífilfelli séu
vegna þess að Sanitas hafi tekið -
alla gosdrykkjasöluna af fyrir-
tækinu (Vífilfelli) á síðastliðnu
ári. Nota þeir til þess grein, sem
Sanitas lét Frjálsri verslun í té,
sem er full af sjálfshóli og
óskhyggju, en styðst ekki við
tölur né staðreyndir.
Tölurnar einar sýna stöðuna á
markaðnum, en ímyndun breytir
þar engu um. Það er erfitt að sjá
hvar Sanitas hefur getað tekið
sína „stórauknu" sölu. Sérstök
nefnd ríkisstjórnarinnar hefur
nú þegar hinar réttu tölur.
Coca Cola er ennþá, sem áður,
vinsælasti drykkurinn á mark-
aðnum, það hafa neytendur
sjálfir ákveðið. Enginn sam-
dráttur hefur átt sér stað 1980,
eins og Þjóðviljinn getur um og
verður því að slá því föstu aftur,
að „Vinir“ Fólksins Númer Eitt
séu ennþá sökudólgarnir að at-
vinnuleysinu.
29. janúar 1981.
Pétur Björnsson.
1. Þú getur fengið glæsileg 100%
flannelullarföt meö vesti og satín-
fóöruöum buxum á aöeins kr. 1.232.-
2. „Dúnwatt“ kápur á kr. 679.-
3. Urban gallabuxur úr 14 OZ amerísku
denim á aöeins kr. 204.-
og margt margt fleira.
Til dæmis: