Morgunblaðið - 30.01.1981, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981
„Kona64
Frumsýnd í Alþýðu-
leikhúsinu i kvöld
„ÞAÐ hefur verið ákaflega skemmtilegt að setja
þetta verk upp, og ólíkt öllu, sem ég hef gert fram að
þessu. Það sem mér finnst langskemmtilegast við
verkið er hvernig höfundurinn nálgast efnið, hann
gerir það án þess að segja að konur séu svo góðar og
fullkomnar, sagði Guðrún Asmundsdóttir leikstjóri
„Konu“ — sem hefur undirtitilinn „þrír einþáttung-
ar eftir Dario Fo og Fröncu Rame“ og Alþýðuleikhús-
ið frumsýnir 30. janúar í Hafnarbíói.
Blm. var á forsýningu ein-
þáttunganna, sem var raun-
ar kölluð æfing, en hópi
áhorfenda hafði verið gefinn
kostur á að vera viðstaddur
til þess m.a. að aðgæta
undirtektir og viðbrögð.
Fyrsti þátturinn heitir
„Fótaferð" og þar leikur Sól-
veig Hauksdóttir, sá næsti
er „Ein“ og fer Edda Hólm
með það hlutverk og síðasti
þátturinn er „Við höfum
allar sögu að segja“ og þar
leikur Guðrún Gísladóttir.
Enda komast allar konurnar
þrjár að því í lokin að titill
síðasta þáttarins er nokkuð
nærri lagi: konur hafa alltaf
sömu sögu að segja, sömu
reynslu, jákvæða sem nei-
kvæða. Eins og áður segir er
Guðrún Ásmundsdóttir leik-
stjóri, og Ivan Török gerir
leikmynd og búninga. Olga
Guðrún Árnadóttir, Ólafur
Haukur Símonarson og Lár-
us Ymir Oskarsson hafa séð
um þýðinguna, Gunnar
Reynir Sveinsson sér um
„áhrifahljóð" og David
Walters annast lýsingu.
Allmörg leikrit Dario Fos
hafa verið sýnd hérlejidis,
margir muna þegar „Þjófar,
lík og falar konur“ var sýnt í
Iðnó, hið fyrsta eftir hann
hér og allt ætlaði um koll að
keyra af fögnuði. Síðan hafa
fleiri komið á eftir. „Kona“
er viðleitni Dario Fos og
konu hans Fröncu til að búa
til kvennaleikhús. Upphaf-
lega skrifaði Dario Fo þætt-
ina fyrir konu sína og í
leikskrá segir að um leið og
þeir flytji boðskap hennar til
kvenna séu þeir uppreisn
hennar sem listakonu því að
hún hafi alltaf horfið í
skugga Dario Fos, þegar hún
lék við hlið hans. Hún mun
hafa nauðað í manni sínum
lengi að skrifa leikrit um
konur og stöðu þeirra. Og
„Kona“ er árangur samvinnu
þeirra og var frumsýnd í
Mílanó 1977 og hefur síðan
verið flutt vítt um lönd.
Leikrit Dario Fos eru
mörg í sýningu út um allt.
Og það er yfirlýst stefna
hans að leikhús eigi fyrst og
fremst að vera skemmtilegt.
Hann telur að það megi
eiginlega vera fáránlegt,
pólitískt — hvaðeina, en það
má aldrei vera leiðinlegt.
Hann gekk ungur í smiðju til
„Comedia Del-Arte“, og
trúðleikinn sem hefðum
samkvæmt hefur leyfi til að
hæða og spotta færir hann
til nútímahorfs eða textinn
þótt forn sé, skírskotar til
nútímans. Áhorfandinn á
sem sagt alltaf að þekkja
sjálfan sig í því sem sagt er
og sýnt.
BOT — VERKSMIÐJUÚTSALA — BÓT
Verksmiðjuútsalan
sem allir hafa beðið eftir
Mjög glæsi
legt úrval
af buxum
á alla fjöl-
skylduna
Glæsilegt úrval af
buxum á alla fjöl-
skylduna á verk-
smiðjuverði (og
minna).
Gott úrval af bútum.
Jakkar, peysur,
blússur, bolir og fleira
á ótrúlegu veröi.
Einstakt tækifæri að
verzla ódýrt fyrir
sumarið.
Opið í dag
frá kl.
9-7 e.h.
Opið á morgun
frákl. Fatagerðin BOT,
9 — 6 e.h. Skipholt 3, 2. hwð, sfmi 29620.
FATAGEROIN BÓT H.F.
1979 — Sex bandarískir diplómat-
ar flýja frá Íran með aðstoð
kanadískra sendiráðsmanna.
1974 — Farþegaþota frá Pan
American ferst á Samoaeyjum og
95 af 101 farast.
1971 — Samkomulag næst í fisk-
veiðideilu milli Ecuador og Banda-
ríkjanna.
1967 — Páll páfi veitir Podgorny
forseta Sovétríkjanna rúmlega
klukkustundar áheyrn.
1962 — Utanríkisráðherrar Amer-
íkuríkja útiloka Kúbu frá þátttðku
í málum Vesturheims.
1958 — Fyrsta bandaríska gervi-
hnettinum Explorcr I skotið upp.
1950 — Truman forseti Bandaríkj-
anna fyrirskipar smíði vetnis-
sprengju.
1948 — Mahatma Gandhi er ráð-
inn af dögum í Nýju Delhi.
1943 — Uppgjöf Þjóðverja við
Stalíngrad.
1933 — Adolf Hitler útnefndur
kanzlari Þýzkalands.
1928 — Trotsky vísað frá Sovét-
ríkjunum.
1891 — Borgarastríð í Chile.
1884 — Rússar taka Merv af
amírnum í Afganistan
1606 — Guy Fawkes tekinn af lífi
fyrir samsærí á Englandi.
1578 — Hollendingar bíða ósigur í
orrustunni um Gembloux.
Afmæli — Franktin D. Roosevelt,
fyrrum Bandarikjaforseti 1882—
1945 — Vanessa Redgrave, brezk
leikkona 1937.
Innlent — 1835 Fyrsti árgangur
Fjðlnis — 1897 Iðnó vígt — 1959
Lög um niðurfærslu útgefin —
1962 Þrír fórust í Látraröst — 1980
ölkaup Davíðs Sch. Thorsteinsson-
ar á Keflavíkurflugvelli í frekari
rannsókn.
Orð dagsins — Grunnhyggnir
menn trúa á heppni — Ralph W.
Emerson, bandarískur rithöfundur
1803-1882.
Aðalmaimtal
1981
Dreifingu manntalseyöublaöa á nú aö vera lokið alls
staöar. Þeir, sem hafa ekki fengið eyöubiöð í hendur,
eru vinsamlega beðnir aö afla sér þeirra á skrifstofu
sveitarstjórnar. í þéttbýli á höfuöborgarsvæði og á
Akureyri eru eyöublöö einnig fáanleg á
lögreglustöðvum.
Hagstofan.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU