Morgunblaðið - 30.01.1981, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981
21
Söngskólinn í Reykjavík:
Fyrstu nemendurnir útskrifaðir
NÚ ER aíanira náð í sögu Söng-
skólans í Reykjavik. Frá stofnun
hans hefur verið stefnt að þvi að
sérmennta ok útskrifa einsöngv-
ara og sönnkennara. jafnframt
þvi að gefa sönKnemendum kost á
alhliða tónlistarmenntun.
í des. sl. þreyttu nokkrir nem-
endur kennara- og einsöngspróf.
Þeir sem stóðust prófið voru söng-
kennararnir Ásrún Davíðsdóttir,
Dóra Reyndal og Elísabet F. Ei-
ríksdóttir og einsöngvarinn Hrönn
Hafliðadóttir. Prófdómari að þessu
sinni var Philip Pfaff.
Hingað til hafa söngnemendur
þurft að sækja sína framhalds-
menntun til útlanda, en með því
sambandi sem Söngskólinn hefur
frá upphafi haft við The Associ-
ated Board of the Royal Schools of
Music í London, hafa opnast mögu-
leikar fyrir nemendur til að fá
kennara- og einsöngspróf, Licenti-
tate of the Royal Schools of Music
(L.R.S.M.), en þessi próf hafa
öðlast viðurkenningu um allan
heim.
Nú munu nýútskrifaður ein-
söngvari og söngkennarar ásamt
Katrínu Sigurðardóttur, sem lauk
VIII stigi í söng, en það er lokastig
i almennri deild, halda tónleika á
næstunni.
Asrún Davíðsdóttir og Elísabet
F. Eiríksdóttir á sunnudaginn, 1.
febr. kl. 17.00, Hrönn Hafliðadóttir
sunnudaginn 8. febr. kl. 17.00 og
Dóra Reyndal og Katrín Sigurðar-
dóttir mánudagskvöldið 9. febr. kl.
20.30. Allir tónleikarnir verða í
Félagsstofnun stúdenta v/Hring-
braut. Undirleik annast píanóleik-
ararnir Jórunn Viðar, Krystýna
Cortes og Debra Gold.
Akraborgin í við-
gerð á Akureyri
AKRABORGIN mun fyrstu 3 vik-
urnar í febrúar vera í slipp á
Akureyri og siglir það síðustu
ferðirnar að sinni á morgun,
laugardag. Teknar verða upp vélar
skipsins, gert við plötur og skipið
tekið í mestu klössun frá því að
siglingar þess hófust milli Reykja-
víkur og Akraness, að sögn Helga
Ibsen framkvæmdastjóra Skalla-
gríms, sem gerir út Akraborgina.
Flutningar með Akraborginni
jukust mjög á siðasta ári miðað
við 1979, en ferðum var nokkuð
fjölgað. Voru t.d. farnar 5 ferðir í
júlí og ágúst og ákveðna daga í
júní og mun svo einnig verða í ár.
Alls voru fluttir 60.109 bílar á
móti 45.372 árið 1979 og farþegar
voru 222.504 árið 1980 og um
153.000 árið 1979. Sagði Helgi að
greinilega færi það vaxandi að
menn færðu sér þjónustu Akra-
borgarinnar í nyt og mætti m.a.
marka það af því að hálfgerð
deyfð færðist yfir bæinn þegar
ferðir féllu niður.
Aætlun Akraborgar fyrir þetta
ár liggur nú fyrir og eru farnar
fjórar ferðir á dag nema júlí og
ágúst, þegar eru fimm ferðir alla
daga nema laugardaga, mánuðina
apríl og október er fimmtu ferð-
inni bætt við á sunnudögum og
mánuðina maí, júní og september
eru fimm ferðir á föstudögum og
sunnudögum. Sem fyrr segir er
ráðgert að ferðir Akraborgar falli
niður næstu 3 vikurnar.
Athugasemd
Vinstrimenn í Stúdentaráði:
Ekki orðaleik um pólitízk-
ar skoðanir einstaklinga
í Morgunblaðinu 29. janúar sl. (í
gær) er frétt frá því að „kommún-
istar í Stúdentaráði“ neiti _að
styðja pólska stúdenta“. Er þar
haft eftir Guðmundi Þórodds-
syni. fulltrúa Vöku. að vinstri
menn í SHÍ hafi talið öll tormerki
á því að samþykkja tillögu frá
Auðunni Svavari Sigurðssyni og
Arna C. Th. Arnarsyni og viljað
„svæfa málið í nefnd fram að
næsta fundi ráðsins“. Er einnig
fullyrt að pólskir stúdentar eigi
ekki visan stuðning okkar, vegna
þess að við féllumst ekki á
tillöguna.
Hér er á ferðinni ákaflega
undarlegur málflutningur og skal
því hið rétta koma fram:
1) í mars sl. samþykkti SHÍ
einróma tillögu til stuðnings
pólskum stúdentum. Er það því
alger fjarstæða að pólskir stúd-
entar eigi ekki vísan stuðning
okkar í baráttu þeirra gegn yfir-
völdum. Meirihluti SHI er enn
sömu skoðunar og kom það skýrt
fram á fundi SHÍ þ. 27. janúar sl.
2) Sú fullyrðing að „svæfa átti
málið" er úr lausu lofti gripin.
Á þessum fundi SHÍ lýsti Þor-
Forsala
í dag
MIÐAR á minningarhljómleika
um John Lennon verða seldir í dag
í Austurbæjarbíói og í Skífunni.
Allur ágóði af hljómleikunum
rennur til Geðverndarfélags ís-
lands.
geir Pálsson því yfir að fundur í
utanríkisnefnd ráðsins væri þegar
boðaður fimmtudaginn 29. janúar
kl. 12.30. Jafnframt kom fram að
allt ráðið vildi styðja við bakið á
pólskum stúdentum, en að tillaga
Auðuns og Árna C. Th. væri síst
til þess fallin. Var óskað eftir því
að málið yrði tekið fyrir á um-
ræddum fundi utanríkisnefndar,
þannig að freista mætti þess að
ráðið sendi frá sér ályktun, sem
væri eingöngu stuðningsyfirlýsing
við pólska stúdenta, en ekki orða-
leikur með pólitískar skoðanir
einstaklinga. Var Auðunn beðinn
um að mæta á fundinn og lýsti
Þorgeir Pálsson því yfir að hann
skyldi bera fram tillögu um annan
fund SHÍ, þannig að ekki yrði töf
á málinu.
Á fundi utanríkisnefndar í gær
(29.1.) voru komnar fram einstaka
orðalagsbreytingar við tillögu
Auðuns og félaga, og vildi m.a.
Guðmundur Þóroddsson, sem
Morgunblaðið hafði áður talað við,
samþykkja tillöguna þannig.
Hins vegar var ljóst að Áuðunn
Svavar Sigurðsson hafði ekki
komið á fundinn til að ræða
tillögu sem SHÍ gæti sent frá sér,
heldur sagði hann að betra væri
að senda enga stuðningsyfirlýs-
ingu en að breyta sinni tillögu.
Var því greinilegt að hann lét sig
litlu varða hagsmuni pólskra stúd-
enta.
Gerðu vinstri menn í nefndinni
úrslitatilraun til að koma saman
ályktun til stuðnings pólskum
stúdentum, en allt kom fyrir ekki
og vár að tillögu Auðuns boðað til
annars fundar, og málið þannig
tafið enn frekar að hans tilhlutan.
Niðurstaðan er því sú að Vöku-
mönnum var mikilvægara að
koma eigin stjórnmálaskoðunum á
framfæri, en að styðja pólska
stúdenta í baráttu þeirra.
Reykjavík, 29. janúar 1981.
Fulltrúar Félags vinstri manna í
utanríkisnefnd SHÍ,
Elísabet Guðbjörnsdóttir,
Sigurður Sigurðsson,
Þorgeir Pálsson.
Þann 20. jan. sl. birtist grein í
tímaritinu Metal Bulletin (Lon-
don) um „súrálsmálið" og um
viðureign íslendinga við Alu-
suisse. Blöð í Sviss hafa einnig
birt fréttir um málið og kannað
það á eigin spýtur. Grein Metal
Bulletin er að megin hluta byggð á
samantekt, sem Rannsóknarmið-
stöð um stefnumörkun og utanrík-
ismál í Kópavogi, hefur gefið út.
Sú samantekt var unnin úr opin-
berum skýrslum og blaðaskrifum
hérlendis um málið.
Blaðamanni Metal Bulletin varð
á sú skyssa, að telja áðurnefnda
miðstöð til íslenskrar stjórnsýslu.
Rannsóknarmiðstöðin er á engan
hátt tengd opinberum aðilum.
Hún er að öllu leyti frjálst og
ólaunað framtak einstaklinga,
þ.m.t. undirritaðs. Undirritaður
hefur þegar haft samband við
Metal Bulletin, bent á mistök
tímaritsins og óskað leiðréttingar.
Undirritaður fagnar að erlend
blöð og tímarit skuli halda í heiðri
anda óháðrar blaðamennsku með
því að flytja lesendum sínum
fréttir um atburði sem þessa. Vel
á minnst, hræðist einhver opna
umræðu um þetta mál?
Með þökk fyrir birtinguna.
Elías Davíðsson,
Rannsóknamiðstöð um
stefnumórkun og utanrík-
ismál.
Stúdentar!
Jazz-kvöld
í kvöld verður haldið ölteiti með menningarlegu
ívafi í Félagsstofnun stúdenta kl. 9—2.
Dagskrá:
1. Ljóðaupplestur.
2. Ungir trubadorar troða upp.
3. Jazz-kvartett Árna Elvars leikur frá 10—2.
Allir velkomnir.
Funda- og menningarmálanefnd SHÍ
TRYGGJA GÆÐIN
Hljómsveitin Toto er skipuð 6 fjölhæfum tónlistar-
mönnum sem komið hafa all verulega viö sögu á
plötum ýmissa bandarískra popprisa.
Nöfn þeirra: David Hungate, Steve Lukather, Bobby
Kimball, David Paich, Jeff Porcaro og Steve Porcaro
þykja jafngilda besta gæðastimpli og þetta vita þeir
listamenn sem fengið hafa þá til samstarfs viö sig.
Sem hljómsveit er Toto því þrælgóö, einnig sem kann
vel til verka eins og plötur þeirra sanna best og enn
bæta þeir einni skrautfjöörinni í hatt sinn með
nýjustu plötunni Turn Back.
Þú getur reitt þig á Toto
Heildsöludreifing
skeÍAðfhf
Símar 85742 og 85055
ML JOMOEILO
vbf&KARNABÆR
Laugavegi 66 — Gi*vb* — Austu»st»r*.
v Simi »rá skiptibo»ö. 85055