Morgunblaðið - 30.01.1981, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981
25
Stjórn Félags isl. byggingarefnakaupmanna. Talið frá vinstri: Pétur Hjaltested, Kristján óli Hjaltason,
Leifur ísleifsson formaður, Trausti Lárusson og Guðjón Oddsson.
fór vorblær um þjóðlífið og marg-
ar merkar stofnanir og fyrirtæki
tóku til starfa sem Landspítalinn
og Ríkisútvarpið, þrátt fyrir aðvíf-
andi kreppu og efnahagsþreng-
ingar.
Tuttugu árum síðar, eða 8.
nóvember 1950, voru svo Kaup-
mannasamtök Islands stofnuð, og
gerðist félag íslenzkra byggingar-
efnakaupmanna eitt af sérgreina-
félögum samtakanna.
Félagið hefur jafnan verið eitt
af traustustu kaupmannafélögun-
um innan vébanda Kaupmanna-
samtaka íslands.
Framkvæmdastjórn Kaup-
mannasamtaka íslands ákvað, eft-
ir tillögu stjórnar Félags íslenzkra
byggingarefnakaupmanna, og
einnig eftir samhljóða tillögu
orðunefndar Kaupmannasamtak-
anna að heiðra, nú við þetta
tækifæri, þá Hjört Hjartarson,
forstjóra J. Þoriáksson og Norð-
mann hf. og Eggert Kristjánsson,
forstjóra Málarans hf. og sæma þá
gullmerki Kaupmannasamtak-
anna.
Firmu þeirra, J. Þorláksson og
Norðmann og Málarinn, voru
stofnendur félagsins fyrir hálfri
öld, og raunar var félagið stofnað
á skrifstofu J. Þorláksson og
Norðmann — Þar var stofnfund-
urinn haldinn. Báðir hafa þeir
Eggert og Hjörtur, setið í félags-
stjórninni og eru virkir félags-
menn enn þann dag í dag.
Eggert var kjörinn í stjórn
félagsins árið 1961 og sat í henni
til ársins 1970 — lengi sem
gjaldkeri.
Hjörtur Hjartarsson var kjör-
inn í stjórn félagsins 1952 og sat í
henni til ársins 1970, eða í 18 ár.
Þar af var.hann formaður félags-
ins í þrjú ár, eða frá 1963 til 1966.
Hjörtur Hjartarsson hefur í
gegnum árin gegnt fjölmörgum
trúnaðarstörfum fyrir hin ýmsu
samtök verzlunarinnar. Hann hef-
ur til dæmis verið formaður
Kjararáðs verzlunarinnar frá því
að það var stofnað, og hann hefur
verið formaður stjórnar Húss
verzlunarinnar frá byrjun. Per-
sónulega þakka ég Hirti fyrir
ánægjulegt samstarf um áraraðir
að málefnum verzlunarinnar og
kaupmannastéttarinnar.
Með því að sæma þessa tvo
heiðursmenn gullmerki Kaup-
mannasamtakanna, vill fram-
kvæmdastjórnin sýna þeim og um
leið félaginu, þakklætisvott fyrir
vel unnin störf í þágu stéttarinnar
og verzlunarinnar í landinu. Ég vil
biðja þá Eggert og Hjört að koma
hingað til mín og veita gullmerki
Kaupmannasamtaka íslands,
ásamt heiðursskjali viðtöku.
Ég vil svo endurtaka afmælis-
óskir mínar til Félags íslenzkra
byggingarefnakaupmanna, um
leið og ég færi þeim Eggert og
Hirti árnaðaróskir og vona að
fyrirtækjum þeirra vegni vel í
framtíðinni.
I móttökunni fluttu einnig
ávörp þau Erla Wigelund, formað-
ur Félags vefnaðarvörukaup-
manna og Jónas Gunnarsson
formaður Félags matvörukaup-
manna.
Ófrjósem-
isaðgerð
á körlum
getur valdið
hjartabilun
Tucson. Arizona, 28. janúar. — AP.
SAMKVÆMT niðurstöðum
rannsókna. sem gerðar hafa
verið á öpum í Bandaríkjun-
um, getur ófrjósemisaðgerð á
karldýrum. sem felst í því að
lokað er fyrir sáðgöngin. vald-
ið hjartasjúkdómum og
skemmdum á æðakerfi. Frú
Nancy Alexander sem starfar,
hjá Aparannsóknarstöðinni i
Oregon, heldur þessu fram og
vitnar í tvær rannsóknir á um
tuttugu öpum, sem leitt hafa til
þessara niðurstaðna.
Ekki hefur verið sannað, að
slík aðgerð leiði til svipaðra
kvilla hjá karlmönnum, en
rannsókn hefur verið hafin til
þess að gangast úr skugga um
það.
Frú Alexander ráðleggur öll-
um karlmönnum, sem hafa hug
á að gangast undir slíka aðgerð,
að fresta því uns heillegri upp-
lýsingar séu komnar um hugs-
anlegar afleiðingar þess. Þessi
aðgerð mun nokkuð algeng er-
lendis.
Stóraukin
skipaum-
ferð um
ísafjarð-
arhöfn
fsaflrði, 28. jan.
SKRÁÐAR skipakomur til
ísafjarðar á sl. ári voru
1222 og hefur þeim fjölgað
um 24,5% frá árinu á
undan. Aukningin stafar
að mestu leiti af komum
loðnu og djúphafsrækju-
skipa sem hér leituðu vars
vegna illviðra. 6.-7. okt.
sl. náðu skipakomurnar
hámarki, en þá voru yfir
50 stór fiskiskip bundin
hér við bryggju samtímis.
í nýútkominni skýrslu hafn-
arvarðarins Sturlu Hall-
dórssonar, við ísafjarðarhöfn
er það ef til vill athyglisverðast
að fjöldi erlendra veiðiskipa
sem hingað komu jókst úr 8
skipum af tveimur þjóðernum
1979 í 75 skip af fjórum
þjóðernum 1980. Að meðaltali
kom um það bil eitt vöruflutn-
ingaskip á dag til ísafjarðar, 40
fiskrannsóknar- eða hafrann-
sóknarskip á árinu, aukning
um þriðjungur, eitt erlent
skemmtiferðaskip, ekkert árið
áður og ein seglskúta, en hún
var frá Nýja Sjálandi. Sport-
bátum ísfirðinga í umferð
fjölgaði um fjórðung milli ár-
anna úr 40 í 50.
I ofangreindum tölum eru
komur fjögurra skuttogara ís-
firðinga til hafnar, en auk,
þeirra eru gerðir út héðan þrír
stórir línubátar, 29 rækju- og
handfærabátar og nokkrir
grásleppubátar.
- Úlfar