Morgunblaðið - 30.01.1981, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981
29
fclk í
fréttum
Eftirlýst
+ ítalska lögreglan dreifði
þessari mynd af þessu
ógæfulega fólki fyrir
skömmu. Þau eru talin bera
ábyrgð á dauða Enrico
Calvagi hershöfðingja og
ráninu á Giovanni d’Urso
sem var sleppt fyrir
skömmu. Lögreglunni hefur
aðeins tekist að hafa hendur
í hári eins þeirra, Giulio
Cacciotti (efst í horninu til
vinstri). Hin leika enn laus-
um hala.
VIÐTALSTÍMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Alþingiamenn og borgarfulltrúar Sjálfstaadiaflokkaina varöa til
viötals f Valhöll, Héalaitisbraut 1 á laugardögum frá kl. 14.00 til
16.00. Er þar takið á móti hvars kyns fyrirspurnum og
ábondingum og ar öllum borgarbúum boóið aö notfæra sár
viötalstfma þassa.
Laugardaginn 31. janúar veröa til viðtals ^
Birgir ísleifur Gunnarsson og Hilmar Guð-
laugsson. ^
Átti leið hjá
+ Hann virðist tiltölulega
ánægður hann Gunther Stolck
með nýju eignina sína, bátinn
Gispy Moth III en á honum
sigldi Sir Francis Chichester
aleinn kringum jörðina.
Gunther Stolck keypti bátinn á
uppboði í London fyrir 72.000
dollara. Aðspurður sagðist
hann bara hafa átt leið hjá
þegar hann sá bátinn. Stolck er
kaupsýslumaður frá Sviss og
eitthvað segir mér það, að
hann hafi meiri mánaðartekj-
ur en ég.
Rústirnar skoðaðar
+ Lech Walesa,
leiðtogi óháða
verkalýðsfélagsins
„Einingar" í Pól-
landi, var á dög-
unum á Ítalíu eins
og kunnugt mun
vera úr fréttum.
Þar átti hann m.a.
fund með páfa í
Vaticaninu.
Walesa
gaf sér einnig tíma
til að fara til
Avellino.
Þar var
þessi mynd tekin og
sýnir hún Walesa
virða fyrir sér
rústir byggingar
sem hrundi í
jarðskjálftanum
mikla 23. nóvem-
ber síðastliðinn.
Auglýsing um skoöun
bifreiða í lögsagnarumdæmi
Kópavogs:
Samkvæmt umferðarlögum tilkynnist hér með að aðalskoðun
bifreiða 1981 hefst fimmtudaginn 5. febrúar og verða skoðaðar
eftirtaldar bifreiðir svo sem hér segir:
Fimmtud. 5. Febrúar Y- 1 til Y- 250
Föstud. 6. - Y- 251 til Y- 500
Mánud. 9. Febrúar Y- 501 til Y- 750
Þriðjud. 10. - Y- 751 til Y-1000
Miðvikud. 11. - Y-1001 til Y-1250
Fimmtud. 12. - Y-1251 til Y-1500
Föstud. 13. - Y-1501 til Y-1750
Mánud. 16. Febrúar Y-1751 til Y-2000
Þriðjud. 17. - Y-2001 til Y-2250
Miðvikud. 18. - Y-2251 til Y-2500
Fimmtud. 19. - Y-2501 til Y-2750
Föstud. 20. - Y-2751 til Y-3000
Mánud. 23. Febrúar Y-3001 til Y-3250
Þriðjud. 24. - Y-3251 til Y-3500
Miðvikud. 25. Febrúar Y-3501 til Y-3750
Fimmtud. 26. - Y-3751 til Y-4000
Föstud. 27. - Y-4001 til Y-4250
Mánud. 2. Marz Y-4251 til Y-4500
Þriðjud. 3. - Y-4501 til Y-4750
Miðvikud. 4. - Y-4751 til Y-5000
Fimmtud. 5. - Y-5001 til Y-5250
Föstud. 6. - Y-5251 til Y-5500
Mánud. 9. Marz Y-5501 til Y-6000
Þriðjud. 10. - Y-6001 til Y-6250
Miðvikud. 11. - Y-6251 til Y-6500
Fimmtud. 12. - Y-6501 til Y-6750
Föstud. 13. - Y-6751 til Y-7000
Mánud. 16. Marz Y-7001 til Y-7250
Þriðjud. 17. - Y-7251 til Y-7500
Miðvikud. 18. - Y-7501 til Y-7750
Fimmtud. 19. - Y-7751 til Y-8000
Föstud. 20. - Y-8001 til Y-8250
Mánud. 23. Marz Y-8251 til Y-8500
Þriðjud. 24. - Y-8501 til Y-8750
Miðvikud. 25. - Y-8751 til Y-9000
Fimmtud. 26. - Y-9001 til Y-9250
Föstud. 27. - Y-9251 ogyfir
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðir sínar að
Áhaldahúsi Kópavogs við Kársnesbraut og verður skoðun
framkvæmd þar mánudaga — föstudaga kl. 8.15 til 12.00 og
13.00 til 16.00. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja
fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því að
bifreiðagjöld fyrir árið 1981 séu greidd, og lögboðin vátrygging
fyrir hverja bifreið sé í gildi. Hafi gjöld þessi ekki verið
greidd, verður skoðun ekki framkvæmd og bifreiðin stöðvuð
þar til gjöldin eru greidd.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á réttum
degi, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðar-
lögum og lögum um bifreiðaskatt og bifreiðin tekin úr umferð
hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum, sem hlut
eiga að máli. Umskráningar verða ekki framkvæmdar á
skoðunarstað.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
28. janúar 1981.
e.u.
Leó E. Löve.