Morgunblaðið - 30.01.1981, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981
33
u w ~
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
'a, TIL FÖSTUDAGS
"iyY■™<ia mauik
Fyrr má nú of-
gera manni
Jóhanna Sigurðardóttir,
Grindavík, hringdi og hafði eftir-
farandi að segja: — Því var
varpað hér fram í spurnarformi,
hvort við sjónvarpsnotendur vaer-
um orðnir gersamlega stjarfir
fyrir framan tækin og létum
bjóða okkur hvað sem væri mögl-
unarlaust. Þessi viðmælandi
þinn, Velvakandi, var að kvarta
yfir sjónvarpsmyndinni Himna-
hurðin breið, sem sýnd var laug-
ardaginn 17. janúar. Ég get heils
hugar tekið undir þá gagnrýni
alla og bætt við hana, því að mér
fannst það fyrir neðan allar
hellur af sjónvarpinu að sýna
þessa mynd. Og það er rétt hjá
viðmælanda þínum, að fólk sýnir
því furðulegt tómlæti, hvað borið
er á borð fyrir það í þessum
fjölmiðli, og stundum virðist eins
og hægt sé að mata það á hvaða
rusli sem er. Ég hef rætt við
marga um fyrrnefnda mynd, fólk
á öllum aldri, börn, unglinga og
roskið fólk. Hafa allir lokið upp
einum munni um það að hún hafi
verið léleg, út í hött, húmorslaus
og viðbjóðsleg. Er það ekki líka
alveg dæmalaust að vera að
draga kirkjuna inn í þetta? Ég
mótmæli því að svona nokkuð
skuli vera sent manni inn í stofu
þar sem maður situr í sakleysi
sínu með börnunum og á sér
einskis ills von. Auðvitað viljum
við íslenskt efni, en við gerum
okkar lágmarkskröfur. Ef þær
eru ekki uppfylltar, er betra að
sleppa að sýna viðkomandi verk.
Hvar er þessi þægilega létta
kímni sem var í áramótasúpunni.
Mér fannst hún það langskásta
sem ég hef séð í áramótaþætti
sjónvarpsins um langt skeið, og
þó var þar ekkert skítkast og
enginn íburður. í lokin vil ég taka
undir það sem ég las í dálkum
þínum um leikritið Oliver Twist.
Það er að mínum dómi hæpið að
kalla þetta barnaleikrit og mundi
ég ekki ráðleggja neinum að
senda börn ein síns liðs til þess að
horfa á það.
Svar frá samtök-
um dagmæðra
Jóna Sigurjónsdóttir. formað-
ur Samtaka dagmæðra í Reykja-
vík, hringdi og hafði eftirfarandi
að segja: — Mig iangar að svara
nokkrum spurningum 9279-8062,
sem spurði í dálkum þínum,
Velvakandi. Samtök dagmæðra í
Reykjavík gefa út gjaldskrá á
eigin ábyrgð, sem unnin er út frá
tölum, sem fyrir eru í þjóðféiag-
inu, og lögð hefur verið fyrir
verðlagsyfirvöld, sem ekki hafa
neitt við hana að athuga. Engin
dagmamma er ráðin hjá Reykja-
víkurborg. Umsjónarfóstrur sem
annast eftirlit með starfsemi
dagmæðra á vegum dagvistar-
deildar Félagsmálastofnunar
vinna nú með dagmæðrum að því
að koma á auknu samstarfi milli
dagmæðra þannig að hægt verði
að fara með börn til annarrar
Þessir hringdu . .
dagmömmu ef ein forfallast.
Þetta er þó ekki auðvelt verk, þar
sem aðstæður eru mjög mismun-
andi, t.d fjarlægð milli heimila,
og sennilega verður seint hægt að
koma því á svo að fullnægjandi
sé. Ef barn veikist ber að greiða
dagmömmu eftir sem áður, en ef
barn er fjarverandi tíu daga eða
lengur samfellt, skulu aðeins
greidd laun dagmömmu sem eru
yfir 8 tíma á dag í einn mánuð,
806 kr. 35 aurar með orlofi, enda
heldur barnið sínu plássi. Dag-
mamman fær ekkert greitt sé
hún veik sjálf. Félagsmálastofn-
un Reykjavíkurborgar gaf út
snemma á síðasta ári bækling
með reglum og upplýsingum bæði
fyrir foreldra og dagmömmur.
Allar dagmömmur fá þennan
bækling og eiga að afhenda og
kynna foreldrum allra barna sem
hjá þeim vistast. Vona ég að
þetta svar nægi fyrirspyrjanda.
Frábær útvarps-
saga í þýðlegum
flutningi
Hlustandi hringdi og kvaðst
vilja þakka útvarpinu fyrir út-
varpssöguna sem nú væri verið að
lesa, „Mín liljan fríð“, eftir Ragn-
heiði Jónsdóttur. — Því miður
missti ég af fyrstu lestrum þess-
arar frábæru sögu, en set mig nú
aldrei úr færi að hlusta. Sagan er
full af lífi og tilfinningum, samúð
og mannskilningi, og hún nýtur
sín mjög vel í þýðlegum flutningi
Sigrúnar Guðjónsdóttur. Sagan
hlýtur að snerta hvern einasta
hlustanda, svo áhrifarík er frá-
sögnin af þessari litlu stúlku sem
hefur svo stóra sál að hún fyllir
út í allan líkamann.
Kærar þakkir fyrir góðar
stundir.
Nú verða varla
maðkar í mysunni
Guðmundur Guðmundsson
skrifar:
„Fyrir nokkrum árum tók svo-
kölluð „félagsvísindadeild" Há-
skóla íslands að sér að sjá um
hlustendakönnun fyrir Ríkisút-
varpið. Hafði Ólafur Ragnar
Grímsson umsjón með þessari
könnun, gegn sérstak-
til vill hefir Sigfús sérstakt „be-
vís“ uppá það frá Guði, að hans
skoðanir séu þær einu réttu. En ef
svo er, væri gaman að hann
framvísaði því. Það var annars
ljóta ólánið, að Guð skyldi ekki
skapa alla eins, og sama sinnis um
alla hluti!
Eitt af því ómögalégá
Svo ég segi mína reynslu, þá
finnst mér ómögulegt að „boða
orðið" öðruvísi en eftir mínum
bezta skilningi og sannfæringu. Ef
ég færi að segja eitthvað annað en
það, sem ég trúi, teldi ég mig vera
orðinn að hræsnara. En engar
syndir mannanna fór Jesús um
harðari orðum en hræsnina. Ekki
veit ég heldur betur en Lúter
segði, að hvorki væri rétt né
ráðlegt að breyta gegn sannfær-
ingu sinni.
Eg vona því að Sigfúsi skiljist,
að það sem hann hér biður Guð
um, er eitt af því ómögulega. Og
kannski er það líka eitt af því
óæskilega, að allir „boði orð Guðs“
eftir höfði Sigfúsar B. Valdi-
marssonar og sálufélaga hans.
Með kveðju til Sigfúsar og allra
góðra manna."
að því er útvarpið hefur upplýst,
en annars átti verk þetta að vera
unnið sem liður í námi og kennslu
í fyrrnefndri deild.
óskýr og orðmörg
Út af peggarj ur5u síftar
mikil blaðaskrif. Þeim skrifum olli
einkum tvennt: í fyrsta lagi eink-
um málfarið á skýrslu um könnun
þessa. Dæmi: „Hvað ensku
knattspyrnuna snertir sker hlust-
unin sig úr; hún er heldur hærri
en alltaf og oft til samans." (???).
í annan stað segir og um skýrsl-
una í ritdómi, að þótt allar
málvillur og ambögur skýrslunnar
væru leiðréttar, væri hún samt
illa skrifuð, illa skipulögð, óskýr
og orðmörg, og að niðurstöður
hennar renni aliar saman í graut.
Rétt að staldra ögn við
Skýrsla þessi kom út í þremur
fjölrituðum heftum, og voru tvö
seinni bindin ekki annað en tölvu-
útskriftir. Hér er rétt að staldra
ögn við og minna á, að flokks-
Aðalmanntal
1981
Akureyrarbær og sveitarstjórnir á höfuöborgarsvæöi
veita leiöbeiningar um útfyllingu manntalseyöublaöa
laugardaginn 31. janúar, í síma sem hér segir:
Sími
Akureyri
Garöabær
Hafnarfjöröur
Kópavogur
Mosfellshreppur
Reykjavík
Seltjarnarnes
21001
42311
53444
41570
66267
18000
20980
Sveitarstjórnirnar.
MORGUNBLAÐIÐMOR
MORGUNBLAÐIÐMORG
MORGUNBLAÐIÐMQ
MORGU
MORG
MOR
MOI
MQ
M
JBLAÐIÐMORGUNBLAÐIÐ
[ÐMORGUNBLAÐIÐ
//"JI^fQRGUNBLAÐIÐ
JNBLAÐIÐ
Blað-
burðar-
fólk
óskast
bræður Ólafs Ragnars hafa stund-
um ekki verið hrifnir af því að
setja upplýsingar um fólk og
skoðanir þess i tölvur, og hafa
fordæmt mjög notkun slíkra „vít-
isvéla". Rétt er, að menn hafi í
huga, að aðalráðamenn í félagsvís-
indadeildinni hafa að sögn verið
þeir Ólafur Ragnar fyrrnefndur
og flokksbróðir hans Þorbjörn
Broddason.
Að viðlagðri aðför
eða hvað?
Því er á þetta minnt hér, að enn
er hin svokallaða félagsvísinda-
deild komin á stúfana. Og þótt
merkilegt sé, er hún að þessu sinni
í félagi við Hagstofu íslands.
Hagstofan er aftur sögð heyra
beint undir forsætisráðuneytið. —
Og nú verða varla maðkar í
mysunni, að því er tölvunotkunina
varðar því að yfirlýst er, að
efnisinnihald fyrirhugaðra
manntalsskýrslna eigi að „tölvu-
keyra" á næstu þremur árum.
Látið er í það skina, að mönnum sé
skylt að svara allri spurningasúp-
unni í hinu væntanlega manntali.
— Að viðlagðri aðför að lögum,
eða hvað? Ef til vill ætla hinir
mörgu löglærðu menn í ríkis-
stjórninni að sýna í því máli meiri
rögg en í hinu alkunna eftirliti
með réttvísinni og valdstjórninni
að Króki við Sauðá?"
/Á
Austurbær
Samtún
Úthverfi
Breiðagerði.
Vesturbær
Vesturgata, Nýtendnn^- 7Jarnar.
úg suöurgata.
'7 /
Hringið í síma
35408
MORGUNBLAÐIOI
MORGUNBLAÐIÐMOR
ÐIO
ÐIO
\ÐIÐ
IÐIÐ
LAÐIÐ
AÐIÐ
V, \AÐIÐ
Y/ \\ÐIÐ
OIÐ
rSCADXD
ÍJBLAÐIÐ
LADID
BLAÐIO
ONBLADIÐ
^ÆUNBLAÐIÐ
(gunblaðid
BLAÐIÐMCfRGUNBLAÐIÐ
NBLAÐIÐMORGUNBLAÐIÐ
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480
B3= S106A WöGA í •'ll.VtOAH
5v<K/