Morgunblaðið - 30.01.1981, Blaðsíða 36
Síminn á afgreióslunni er
83033
JM«r0unbUtbib
Síminn á afgreiðslunni er
83033
JHarijitnbUibib
FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981
33 verzlunar-
menn atvinnu-
lausir í Reykjavík
„IIÆGT ojí bitandi hefur þetta sijjið
í þá átt, að atvinnutækifærum
hefur fa'kkað 1 verzluninni. Ástand-
ið er orðið þannÍK að það fer að
náÍKast ha'ttumork," sagði MaKnús
L. Sveinsson formaður Verzlunar-
mannafélaKs Reykjavíkur er Mbl.
innti hann eftir atvinnuástandi
meðal verzlunarmanna. Sagði hann
33 verzlunarmenn skráða atvirmu-
lausa í Reykjavík, sem væri óvenju
mikill fjöldi. Borið hefði nokkuð á
atvinnuleysi fyrir áramót ok það
aukizt veruleKa eftir áramót. „Erfið-
leikar fyrirtækjanna aukast jafnt og
þétt ok að því kemur, að þau þurfa
að draga úr kostnaði og þjónustu um
leið,“ sagði Magnús ennfremur.
Sjá einnig fréttir um at-
vinnuástandið á miðopnu.
10% hækkun
á póstburð-
argjöldum
Hvítá fla'ddi yfir hakka sína í gær og fyrradag og urðu vifta í Árnessýslu nokkrar samgöngutruflanir þegar bæir einangruftust af
vatnaganginum. Myndin er tekin vift Iðu í síftdegissólinni í gærdag. Sjá einnig bls. 3. Ljósm.: RAX
Togara- og bátakjaraviðræður:
Viðræðuslit i þriðja
og ekki boðaður nýr
sinn
fundur
ALLAR tilraunir sáttasemjara
ríkisins og sáttanefndar um aft
koma hreyfingu á togara- og
bátakjaraviðræftur runnu út i
sandinn i gærkveldi um klukkan
21. Nýr sáttafundur hefur ekki
verið boftaftur, en á sáttafundi í
fyrradag samþykktu fulltrúar
sjómanna að ræða lifeyrismál og
starfafti undirnefnd í allan gær-
dag. Ástæður fyrir viðræðuslit-
um i gærkveldi voru svo þær, að
sjómenn höfftu þá hækkaft kröfur
sinar í upphaflegar kröfur og var
fundi þá slitift. Þetta er i þriðja
sinn, sem slitnar upp úr þessum
viðræðum.
Upphafleg krafa sjómanna var
um allt að tvöfalda kauptryggingu
til handa hásetum, en síðan hafa
þeir breytt kröfunum tvívegis. I
gær tóku þeir upp upphaflegu
kröfuna og viðmiðun skipstjóra
yrði tvöföld kauptrygging háseta,
þannig að skipstjóri fengi allt að
fjórfalda kauptryggingu háseta
eins og hún er nú. Hlutfall skip-
stjóra er nú 40% yfir háseta.
Utvegsmenn telja sig hafa boðið
milli 40-50% hækkun miðað við
það sem nú er. Er þá miðað við
fasta tölu, sem breytist síðan á
árinu.
Sjómannasamband íslands hef-
ur beint því til aðildarfélaga sinna
að þau boði verkfall á minni og
stærri togurum frá og með 9.
febrúar og á bátaflotanum frá og
með 16. febrúar.' Verr mun hafa
gengið að fá aðildarfélög Far-
manna- og fiskimannasambands
Islands til þess að afla sér verk-
fallsheimildar, en það mun þó hafa
verið ætlan stjórnar sambandsins
að verða samstíga Sjómannasam-
bandinu um verkfallsaðgerðir.
Einstaka félög hafa neitað að vera
með í verkfallsaðgerðum. Má þar
t.d. nefna félög í Vestmannaeyjum,
en formenn þeirra félaga eru
aðilar, sem féllu við stjórnarkjör á
síðasta þingi Sjómannasambands
íslands og segjast ekki treysta
forystu Sjómannasambandsins. Þá
ber að geta þess að sjómenn á
Vestfjörðum eru ekki með í að-
gerðum, þar sem þeir eru með
fastan samning. Þá er deilt um
lögmæti uppsagnar austfirzkra
sjómannafélaga á samningum.
TÍU prósent hækkun á póstburð-
argjöldum kemur til framkvæmda
hinn 1. febrúar nk.. en rikisstjórnin
veitti sem kunnuKt er orðið opin-
berum fyrirtækjum heimild til 10%
hækkunar þjónustu sinnar frá ára-
mótum. Ilinn 5. janúar sl. kom til
framkvæmda 10% hækkun síma-
þjónustu, en póstþjónustan mun
hækka nú um mánaðamótin.
Rafn Júlíusson fulltrúi tjáði Mbl.
að hækkunarheimildin væri 10% ok
væri þar um meðaltal að ræða, sumt
hækkaði minna en 10% og annað
nokkru meira. Burðargjald fyrir
almennt bréf á íslandi og til Norður-
landa hækkar úr 1,60 í 1,80 nýkr. og
prentað mál hækkar úr 1,40 í 1,50
nýkr. Burðargjald bréfa til annarra
landa fer úr 2,00 í 2,20 kr. Þá hækka
gíróseðlar einnig hinn 1. febrúar úr
2,20 í 2,40 nýkr.
Kötlufellsmálið:
Konan í gæzluvarð-
hald til 11. febrúar
Úrskurðurinn kærður til Hæstaréttar
EIGINKONA Sigfúsar Steingríms-
sonar. sem lézt i brunanum að
Kótlufelli 11 á sunnudaginn, var I
gær úrskurðuð í gæzluvarðhald til
11. febrúar nk. eða í allt að 13 daga.
Úrskurðurinn var kveðinn upp í
sakadómi Reykjavíkur síðdegis í
gær. Réttargæzlumaður konunnar
lýsti því yfir við réttarhaidið í gær,
að hún myndi kæra gæzluvarðhalds-
úrskurðinn til Hæstiréttar. Væntan-
lega mun Hæstaréttur taka kæruna
fyrir einhvern allra næstu daga.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu í gær, beinist sá grunur að
konunni, að hún kunni með einhverj-
um hætti að eiga hlut að upptökum
eldsvoðans, sem varð manni hennar
að bana sl. sunnudag. Við yfirheyrsl-
ur hefur konan neitað því. Rann-
sóknarlögregla ríkisins telur hins
vegar nauðsynlegt, með tilliti til
gagna málsins og framburðar vitna,
að halda konunni í gæzluvarðhaldi
og hefta þar með för hennar.
Samkvæmt uppiýsingum Rann-
sóknarlögreglunnar er unnið kapp-
samlega að rannsókn málsins. Fulln-
aðarniðurstöður réttarkrufningar
liggja enn ekki fyrir.
Raunasaga á Borgarfírði eystra:
Húsið fauk tvisvar
með stuttu millibili
Borirarfirði eystra. 29. janúar.
ÞAÐ VERÐÁ ekki ofsögur sagðar
af óstöðugleika veðurfarsins hér
austanlands það sem af er janú-
armánaðar og höfum við hér
varla tölu á þeim stormum. sem
yfir okkur hafa dunið. Enginn
hefur þó orðið eins hart úti i þeim
ólátum og bóndinn á Hofsströnd.
Ingibjörn Kristinsson.
Eins og getið var um í fréttum á
sínum tíma brann íbúðarhúsið á
Hofsströnd til kaldra kola annan
jóladag. Ingibjörn festi þá kaup á
svokölluðu viðlagasjóðshúsi í Vest-
mannaeyjum og var það flutt
austur með skipi og sett í land á
Reyðarfirði, því að ekki var talið
fært að koma því á land hérna.
Fimmtudaginn 22. janúar sl. var
það svo flutt á bíl hingað. En þann
dag hittist svo illa á, að eitt versta
Eigandinn hafði
keypt það eftir
að hús hans
brann
hretið var að ganga yfir og þegar
flutningabíll með húsið á palli kom
í Njarðvíkurskriður skall á hann
svo kröftugur bylur, að allt snarað-
ist út af veginum, bíllinn og húsið.
Ekkert slys varð þó á mönnum og
má segja að það hafi verið lán í
óláni að slysið var einmitt þarna,
því að víðast hvar annars staðar í
skriðunum eru aðstæður þanoig,
að hæpið er að nokkuð hefði
bjargast þar.
Daginn eftir var svo bílnum og
húsinu bjargað upp á veginn aftur.
Var nú húsið flutt inn í þorp og
staðsett á íþróttavellinum þar sem
það skyldi bíða manns til að líta á
skemmdir, en þær munu hafa verið
miklar bæði á sjálfu húsinu og því
sem í því var. Leið svo fram á
mánudagskvöld, en þá var friður-
inn úti og um nóttina gerði enn eitt
vestanrokið og fauk þá hluti af
húsinu, eða ein eining eins og það
er kallað, og stórskemmdist. Hvað
gert verður við það sem eftir er af
títtnefndu húsi mun ekki ákveðið,
en allavega er það stórskemmt og
hæpið að viðgerð borgi sig.
Úm daginn brá til hlýinda og tók
þá upp mikinn snjó og þótt ótrú-
legt sé, þá hefur nánast verið logn
hér í Borgarfirði í tvo daga og
óttast ýmsir að það „eigi eftir að
hefna sín“. Fréttaritari
Fundur í yfirnefnd í dag um fiskverð
FUNDUR hefur vcrið hoðaður 1
yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins í dag ok er þar þess vænzt að
útreikningar á afkomu fiskvinnsl-
unnar muni verða lagðir fram. Að
vísu hefur þessa vcrið vænzt á
mörgum undanförnum yfirnefndar-
fundum, en sú von hefur ávallt
bruKðizt. Fundurinn er klukkan
15.30.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun Steingrímur Her-
mannsson sjávarútvegsráðherra hafa
verið væntanlegur heim frá Strass-
burg í gærkveldi og mun hann hafa
boðað fund með sjávarútvegsnefndum
Alþingis í dag klukkan 10, þar sem
hann mun ræða um kvótaskiptingu
loðnuskipa á þorskveiðum, en þar
hafa hagsmunaaðilar, sjómenn ok
útvegsmenn lagt til sameiginlegar
tillögur, sem gerð hefur verið grein
fyrir í fréttum Morgunblaðsins.
Þá mun og að vænta við heimkomu
ráðherrans, að línur fari að skýrast í
því, hvernig fjármögnun aðstoðar við
hagsmunaaðila í fiskverðsákvörðun
verður háttað. Enginn fundur hefur
verið boðaður í stjórn Verðjöfnun-
arsjóðs.