Morgunblaðið - 13.03.1981, Side 3

Morgunblaðið - 13.03.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1981 3 □AIHATSU Rennilegur — og sportlegur Fallegur DAIHATSU CHARADE RUNABOUT Hér áöur fyrr uröu menn aö velja milli þess hvort þeir vildu bíl sem töggur voru í, eöa sparneytinn bíl. Þess gerist nú ekki lengur þörf. Daihatsu Charade Runabout sameinar töggur í akstri, frábæra sparneytni og fallegt útlit. Hin aflmikla 993ja cm3 4ra strokka fjórgengisvél framleiöir alla þá orku sem ökumaður þarf viö öll akstursskilyrði, en meö sparneytni, sem ekki á sér hliðstæðu. Framhjóladrif og breitt bil á milli hjóla ásarht sérstaklega hannaöri fjöörun, tryggir mjúkan og öruggan akstur viö öll skilyrði. Léttu þér lífið með því að velja DAIHATSU CHARADE DAIHATSUUMBOÐIÐ - ARMULA 23 - SIMI 85870-39179. Frá fundi Daviðs Schevinjr Thorsteinssonar, formanns félags islenzkra iðnrekenda og Vals Valssonar. framkvæmdastjóra félagsins, með forráðamönnum öl- og gosdrykkjaverksmiðja. Lækkun vörugjalds á öli og gosdrykkjum: Heldur fyrirlestur um sovézka ógn á norðurslóðum Varnarliðinu „Yandanum einung- is skotið á frest44 — segir Valur Valsson, framkvæmda- stjóri Félags íslenzkra iðnrekenda LAUGARDAGINN 14. marz nk. flytur handarískur ofursti og prófessor, William J. Taylor jr., fyrirlestur er nefnist Sovésk ógn á norðurslóðum, á vegum Varð- bergs og Samtaka um vestræna samvinnu (SVS), í Snorrabæ og hefst fundurinn kl. 12.00. Tayior er prófessor i félagsvisindum við hinn kunna bandaríska herskóla West Point og jafnframt for- stöðumaður öryggismálarann- sókna við sömu stofnun. William J. Taylor er kunnur fyrirlesari á sviði öryggismála við fjölmarga háskóla og aðrar menntastofnanir í Bandaríkjun- um og víðar. Hingað kemur hann frá Danmörku, þar sem hann flutti erindi um varnar- og örygg- ismál á norðurslóðum. Herforing- inn hefur nú nýverið m.a. unnið fyrir Ronald Reagan, Bandaríkja- forseta, og Þjóðaröryggisráðið í Washington. William J. Taylor hlaut BS-gráðu frá Maryland-háskóla og MA og doktorsnafnbót frá American University; auk þess hefur hann lagt stund á fram- haldsnám við bandaríska háskól- ann í Beirut (Líbanon). Hann kennir nú utanríkis- og öryggis- mál við West Point. Hann er félagi í Utanríkismálaráði Banda- ríkjanna og Alþjóðastofnun hern- aðarmála í Lundúnum. William J. Taylor hefur skrifað mikið af greinum og bókum um varnarmál Vesturlanda. Á þessu ári, 1981, koma þrjár bækur út eftir hann. Flugleiðir kref j- ast skaðabóta af William J. Taylor FLUGLEIÐIR hafa krafist þess, að Varnarliðið á Keflavikur- flugvelli greiði tjón það er varð á einni af þotum félagsins í óveðri í siðasta mánuði. Grjóthnullungar fuku þá af þaki flugskýlis á flugvélina og skemmdist klæðn- ing vélarinnar talsvert. Flugskýlið er í eigu Varnarliðs- ins, en hins vegar hafa Flugleiðir gert samning um afnot af skýlinu. Mál þetta er nú til umfjöllunar í sérstakri nefnd, sem fjallar um skaðabótamál, sem upp kunna að rísa milli íslendinga og aðila á Keflavíkurflugvelli. Samkvæmt upplýsingum sem Mbl. hefur aflað sér er talið ólíklegt að Varnarlið- inu verði gert að greiða skaðabæt- ur í máli þessu. „V IÐ lögðum á það áherzlu, að lækkun vörugjalds á öl- og gosdrykkjaframleiðslu um 5% í marz og apríl, sem fjármálaráðherra, Ragnar Arnalds hefur boðað, væri einungis bráðabirgðaúrræði til þess að koma í veg fyrir uppsagnir nokkurs hóps starfsfólks hjá verksmiðjunni Vífilfelli. Vandanum er ein- ungis skotið á frest,“ sagði Valur Valsson, framkvæmda- stjóri Félags islenzkra iðn- rekenda, en í gær héldu Davíð Scheving Thorsteisson, for- maður og Valur Valsson. framkvæmdastjóri félagsins, fund með forráðamönnum öl- og gosdrykkjaframleiðenda. Á fundinum var samþykkt að senda Ragnari Arnalds bréf, þar sem lögð var áherzla á að lækkun vörugjalds um 5% væri aðeins bráðabirgðaúrræði. Gunnari Thoroddsen, forsætisráðherra, Tómasi Árnasyni, viðskiptaráð- herra og Hjörleifi Guttormssyni, iðnaðarráðherra voru send afrit af bréfinu. „í bréfi okkar var lögð á það áherzla, að þessi lækkun vöru- gjalds úr 30% í 25% hefði engin áhrif á verðlagningu öls og gos- drykkja og þar af leiðandi engin áhrif á sölu,“ sagði Valur og hélt áfram: „Vandamálið er því í grundvallaratriðum enn óleyst. Álagning vörugjaldsins hefur haft í för með sér samdrátt á sölu öls og gosdrykkja og þar með áhrif á afkomu verksmiðj- anna og atvinnuöryggi starfs- manna þeirra hefur verið stefnt í voða. Vörugjaldið verður því að af- nema ef tryggja á afkomu verk- smiðjanna og atvinnuöryggi starfsmanna þeirra. Aðgerðir fjármálaráðherra stefna ekki að því að leysa þetta vandamál, heldur aðeins að tryggja um stundarsakir atvinnu fólks, sem þegar var búið að segja upp störfum vegna afleiðinga vöru- gjaldsins. Ekkert liggur fyrir hvað gerist þegar þessi bráða- birgðaráðstöfun rennur út þann 1. maí. Því gerum við það að tillögu okkar, að vörugjaldið verði af- numið í tveimur áföngum. Vöru- gjaldið verði nú þegar lækkað úr 30% í 15% og þau 15% sem eftir eru verði felld niður 1. maí. Við gerum ráð fyrir, að verðlækkun sú á öli og gosdrykkjum, sem af þessum ráðstöfunum mundi stafa, hefði í för með sér aukna sölu. Ríkissjóður yrði því ekki fyrir tekjumissi vegna lækkunar vörugjalds nú. Við vonumst eftir jákvæðum viðbrögðum við tillög- um okkar," sagði Valur Valsson. Morgunblaðið reyndi ítrekað að ná sambandi við Ragnar Arn- alds, fjármálaráðherra, en án árangurs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.