Morgunblaðið - 13.03.1981, Page 8

Morgunblaðið - 13.03.1981, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1981 Rauðmaginn seldur i vörinni og búið að hengja grásleppuna upp. Grásleppuver- tíðin fer rólega af stað nyrðra GRÁSLEPPUVEIÐAR máttu byrja í fyrradag á svæðinu frá Skagatá að Langanesi og á þessu svæði mega þær standa fram til 8. júní. Mjög lítið virðist komið af grásleppu og rauðmaginn, sem kemur á undan frúnni, er einnig seinni á ferðinni en undanfarin ár. Ástæðuna fyrir þessu telja sjómenn vera þá hve kaidur sjórinn er nú fyrir Norðurlandi. Talsverð eftirspurn hefur verið eftir grásleppuhrognum héðan i ár og útlit er fyrir einhverja verðhækkun i dollurum. Fáir eru byrjaðir á grásleppu og er þess varla að vænta, að veiðar byrji almennt fyrir Norðurlandi fyrr en undir mánaðamót. I fyrra gengu grásleppuveiðar illa frá t.d. Þórshöfn og Kópaskeri, en hins vegar vel frá Raufarhöfn. Vindar voru vestlægir þann tíma, sem leyft var að veiða grásleppuna fyrir norðan og er talið að minna hafi veiðst af henni sums staðar þess vegna. Þórður Eyþórsson í sjávarút- vegsráðuneytinu sagði í samtali við Morgunblaðið, að án þess að hafa tekið það nákvæmlega sam- an, þá virtist honum sem færri ætluðu á grásleppuveiðar í ár, en t.d. í fyrra. Grásleppuveiðarnar eru háðar leyfum sjávarútvegs- ráðuneytisins og eru reglur svip- aðar um veiðarnar og var á síðasta ári. Þessar veiðar má stunda sem hér segir: Frá Skagatá að Langanesi 10. apríl til 8. júní. Frá Fonti að Hvítingum frá 20. marz til 18. júní. Frá Hvítingum að Öndverðar- nesi frá 18. apríl til 17. júlí. í Breiðafirði frá 25. apríl til 25. júlí. Frá Bjargi að Horni 18. marz til 17. júlí. Frá Horni að Skagatá frá 1. apríl til 30. júní. Á síðasta ári fengust 330 dollara fyrir tunnu af söltuðum grá- sleppuhrognum, en það lágmarks- verð ákvað viðskiptaráðuneytið. Utlit er fyrir að verð hækki eitthvað í ár, en verðlagsfundur um grásleppuhrogn hefur ekki verið haldinn. Að sögn Guðmund- ar Lýðssonar hjá Samtökum grásleppuhrognaframleiðenda vantar nú 25% upp á til að grásleppuhrogn hafi hækkað í samræmi við annað fiskverð hér á landi, en þessar tölur eru byggðar á upplýsingum Þjóðhagsstofnun- ar. Hann sagði að frá árinu 1971 hefðu grásleppusjómenn farið mjög halloka ef miðað væri við fiskverð. Guðmundur sagði, að ef miðað væri við fiskverð, sem gildir til loka maímánaðar þyrfti verð á hverri tunnu að vera 413 dollarar, en ef reiknað væri með aðeins 10% hækkun fiskverðs 1. júní þyrftu að fást 445 dollarar fyrir hverja tunnu til að halda í við almennt fiskverð. Guðmundur benti á, að síðan Samtök grásleppuhrogna- framleiðenda hófu afskipti af þessum verðlagsmálum hefur nokkurn veginn tekizt að halda í við þróun fiskverðsins, „en betur má ef duga skal“, sagði Guðmund- ur Lýðsson. Togarar langt komn- ir með 45 skrapdaga Breytt aflasamsetning þýðir tekjuskerðingu LitiÖ hefur verið af þorski i afla togara í ár, en meö eindæmum mikið af karfa. SAMSETNING afla togara í vetur hefur verið allt önnur heldur en undanfarin ár og hefur þetta haft vissa erfið- leika i för með sér. Miklu meira hefur verið veitt af karfa heldur en t.d. í fyrra og þar sem hann er ekki eins mannaflafrekur i vinnslu fyrir Rússlandsmarkað og t.d. þorskur fyrir Bandaríkja- markað, hefur orðið að segja upp 40 manns hjá Útgerðarfé- lagi Akureyrar, en samtals vinna um 400 manns hjá fyrirtækinu og eru þá áhafnir 5 skuttogara meðtaldar. Jón Páll Halldórsson á ísafirði sagði í samtali við Mbl., að á Vestfjörðum hefði víðast hvar tekizt að halda uppi samfelldri 8 tíma vinnu á dag. Þéssi mikli karfaafli kæmi þó óneitanlega niður á öllum, sem við þessi störf vinna. Sjómenn og útgerðarmenn fá minna fyrir þennan fisk, sem er mun verðminni en þorskurinn. Starfsfólk í frystihúsum fær ekki eins mikinn bónus og vinnslan er að vinna ódýrari vöru, þannig að um tekjuskerðingu er að ræða hjá öllum aðilum, að sögn Jóns Páls. Hann sagði ennfremur, að togar- arnir væru margir hverjir langt komnir með þá 45 skrapdaga, sem ákveðnir hefðu verið til loka aprílmánaðar. Jón Ingvarsson, framkvæmda- stjóri ísbjarnarins í Reykjavík, sagði, að aflasamsetningin hefði verið allt önnur en í fyrra og þorskurinn væri einfaldlega ekki á miðum togaranna, ekki ennþá að minnsta kosti. Hann sagði, að tvo fyrstu mánuði þessa árs hefði ísbjörninn tekið á móti 2430 lestum af fiski. Af því hefði karfi verið 37%, þorskur 28%, ufsi 21%, ýsa 6% og 8% aðrar fisktegundir. Sömu mánuði í fyrra hefði ís- björninn tekið á móti um 2 þúsund tonnum af fiski, þá hefði þorskur verið 83,5%, karfi aðeins 5%, ýsa 5%, ufsi 2% og annar afli 4,5%. Vilhelm Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Útgerðarfélags Ak- ureyrar, sagði, að auk þess sem skrapdagakerfið hefði enn verið aukið í ár, þá hefði tíðarfar verið mjög erfitt í vetur og sérstaklega úti fyrir Vestfjörðum, þar sem veður hefðu verið mjög hörð og stormasamt með afbrigðum. Auk þessa hefði lítið af þorski verið á miðum þar og nær engin loðna í þorski, sem fengizt hefði fyrir vestan, þannig að lítið virtist hafa verið þar af átu. Allt hjálpaðist þetta til og sagði Vilhelm, að tveir af togurum ÚA væru nú búnir SUNNUDAGINN 15. mars mun Kveníélag Neskirkju standa fyrir f járof lun til styrktar kaupum á tauga- greini þeim, sem Bandalag kvenna í Reykjavík hyggst kaupa handa Endurhæfingar- deild Borgarspítalans (en með 45 skrapdaga, er þeir hefðu átt að taka frá áramótum til loka apríl. Hjá ÚA var búið að taka á móti 4176 lestum af fiski 9. marz síðastliðinn. Þar af voru 1881 tonn af karfa, 1330 tonn af þorski og 965 tonn af öðrum fiski. Miðað við sama mánaðardag í fyrra hafði ÚA tekið á móti 3742 tonnum, 3037 tonnum af þorski, aðeins 150 tonnum af karfa, en 560 tonnum af öðrum fiski. kirkjukvenfélögin eru aöilar að bandalaginu). Að lokinni guðsþjónustu í Neskirkju þennan dag, eða um kl. 15.00, hefst kaffisala í félagsheimili kirkjunnar. Einnig verður þar efnt til skyndihappdrætt- is og verður dregið um marga eigulega muni. Kvenfélag Neskirkju: Fjáröflun til styrkt- ar kaupum taugagreinis Vinir og velunnarar Neskirkju, svo og þessa góða málefnis hvort heldur þeir eru í Nessöfnuði eða ekki, eru góðfúsiega hvattir til að leggja þessu máli lið. Kvenfélags- konur verða þarna frá kl. 17—19 á laugardaginn og taka þá á móti munum, kökum og öðru því sem fólk vill láta af hendi rakna. Við vonum að sem flestir vilji stuðla að því, að tæki þetta komist í notkun sem allra fyrst, því alltaf eru einhverjir, sem þurfa á hjálp að halda einmitt á þennan hátt. Velkomin í Neskirkju á sunnu- daginn. Eflum framfarir fatlaðra. F.h. Kvenfélags Neskirkju, Hrefna Tynes, form.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.