Morgunblaðið - 13.03.1981, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1981
11
Maj Lis Holmberg:
Hetjukvæði Eddu í finnskri
þýðingu — stórviðburður
Um það bil á sama tíma og
vinum Islands og íslenskrar ljóð-
listar í Finnlandi barst til eyrna
sú ánægjulega frétt að einum af
snillingum íslenskra skálda,
Snorra Hjartarsyni, hefði verið
veitt verðlaun Norræna ráðsins
1981, og það að fullri verðskuldun,
fyrir sitt ágæta kvæðasafn
„Hauströkkrið yfir mér“, lifðum
við líka annan gleðiríkan, sögu-
legan viðburð: hetjukvæðin i
Ljóða-Eddu (Sæmundareddu)
komu þá loks út í finnskri þýð-
ingu. Verkið er leyst af hendi af
hinni kunnu finnsku skáldkonu og
þýðanda fil. dr.h.c. Aale Tynni-
Haavio. Hún hefur að baki um
fjörutíu ára feril sem ljóðskáld i
allra fremstu röð. Einnig sem
þýðandi heimsljóðlistar úr mörg-
um tungumálum hefur hún löngu
verið þekkt og mikils metin. Eitt
af þýðingabindum hennar er hin
þykka bók Tuhat laulujen vuotta
(Ljóð í 1000 ár). í fyrstu útgáfu
þeirra bókar var Sonatorrek Egils
Skallagrímssonar og í annarri
útgáfu bætti hún við kafla úr
íslenskum bókmenntum. Hann var
úr Eddukvæði. Þar að auki er hún
þýðandi allra þeirra kvæða, sem
tekin voru upp í finnska þýðingu.
J.H. Hollos á Heimskringlu
Snorra Sturlusonar og kom út
fyrir hér um bil tuttugu árum.
Nú hefur birzt frá hendi þessa
kvenþýðanda Eddan sankarirunot
(Hetjukvæði Eddu). Þýðingin er
gefin út af stærsta bókaútgáfufyr-
. irtæki í Finnlandi, Werner Söd-
erström Osakeyhtiö. Bókin er sér-
lega falleg að ytra búnaði, og dr.
Tynni-Haavio hefur lagt á sig það
erfiði m.a. að afla hinna góðu
mynda á íslandi. í því efni hefur
Einar Sigurðsson háskólabóka-
vörður orðið henni að miklu liði.
Hún þakkar honum líka hlýlega í
ágætum, fræðandi óg ítarlegum
formála bókarinnar. í bókarlok
hefur dr. Tynni-Haavio ennfrem-
ur bætt við 33 blaðsíðum —
„skýringum" með finnskan les-
endahóp í huga, að viðbættri
fullkominni nafnaskrá.
I formála segir Aale Tynni-
Haavio m.a.: „Frumtextann frá
ýmsum útgáfum hef ég haft í
Maj Lis Holmberg
höndum. Nefna má Sophus Bugge,
Finn Jónsson, Ólaf Briem og hvað
varðar viss kvæði Jón Helgason og
Ursulu Dronkes. Kvæðaskýr-
ingarnar, sem ég gef í formála og
við bókarlok, byggjast einnig á
verkum margra fræðimanna.
Helzt ber til að nefna Andreas
Heusler, Erik Brates, Björn Coll-
inder, Henry Adams Bellow, Lee
M. Hollander, Ursulu Dronkes og
Ólaf Briem. Við nafnaskrána hef
ég stuðst við hið stórmerka verk
Jan de Vries: Altnordisches
etymologisches Wörterbuch“. Dr.
Tynni-Haavio lætur og í ljós í
formála þakklæti sitt og gleði yfir
því, að sumarið 1979 fékk hún
norrænan ferðastyrk og þar með
gafst henni tækifæri að heim-
sækja ísland. Hún segir: „í Lands-
bókasafninu í Reykjavík kynntist
ég Eddu-bókmenntum, sá í Árna-
garði í Árna Magnússonar-
stofnuninni hina tilkomumiklu
handritasýningu og í safninu um-
fangsmikla Snorra Sturlusonar-
sýningu. Um stund gafst mér líka
tækifæri að ræða við hinn roskna,
kunna sérfræðing Einar Ólaf
Sveinsson prófessor. Eg heimsótti
og Þingvelli, hinn eldforna þing-
stað, og fornfræðilegan uppgraft-
arstað í Heklu-dalnum."
I lok formála segir Aale Tynni-
Haavio: „Hetjukvæðin hafa að
geyma áhrifamikla atburði og
örlagaríka harmleiki. Innan um
hetjuleg, forneskjuleg, grimmúðug
og ofbeldisfull kvæði er að finna
ljúfa tóna löngunar og kveinstafa.
Hinar ótömdu norrænu hetjur og
KOMIN er út ný Ijóðabúk eftir
Kristján Jóhannsson. Siðasta
vígið heitir hún og er tileinkuð
Amnesty International.
Aðeins einn ljóðabálkur er í
bókinni, og greinir hann frá
síðustu stundum í lífi ónefnds
uppreisnarmanns í því landi
sem heitir Vega. „Síðasta vígið“
er gefin út í 300 eintökum, sem
öll eru árituð af höfundi.
Þetta er 12. bók Kristjáns, en
hann er kunnur unglinga- og
barnabókahöfundur. „Síðasta
vígið“ er 23 síður, Leiftur hf. gaf
út.
Ný hljómplata,
ast“ væntanleg
í NÆSTU viku er væntanleg á
markaðinn ný fjögurra laga
hljómplata. „Árný trúlofast“,
með tónlist og textum eftir tvo
unga Akureyringa, þá Ingjald
Arnþorsson og Hrein Laufdal.
Stúdió Bimbó sér um útgáfuna og
dreifingu, en platan er pressuð
„Árný trúloí-
á markaðinn
hjá Alfa i Hafnarfirði.
Þetta er fyrsta plata þeirra
félaga, sem enn eru lítt þekktir í
tónlistalífinu og að sögn þeirra
verða lögin af ýmsum toga spunn-
in og mun platan verða fáanleg í
hljómplötuverzlunum um land
allt.
kvenhetjur lifa í sínum eigin
heimi og eiga sínar hugsjónir. Til
þeirra hugsjóna má telja: virðingu
fyrir guðunum, hreinskilni í orði
og verki, hreysti í orrustu og
þrautseigju, eiðheldni, hjóna-
bandstryggð og umfram allt trú-
festi við ætt sína: blóðhefndin er
siðferðileg skylda, sem enginn í
ættinni getur hlaupið frá. Þessar
hetjur og kvenhetjur eru algjörar
í ást sem hatri, og það sem
einkennir allan hugsunarhátt
þeirra er einskonar barnslegur
hreinleiki. Þær geta beygt sig
fyrir harmrænum örlögum, því að
trú þeirra er sú, að allt sé
fyrirfram ákveðið,
kveld lifir ekki
maðr ept kvið norna."
Það eru engar ýkjur að segja, að
útgáfa þessarar glæsilegu og
ómetanlegu bókar, Eddan sankar-
irunot bæði að innihaldi — ekki
hvað síst ágætt mál — og útliti, sé
einn af stærstu viðburðum í þýð-
ingum á finnsku árum saman.
Bæði Island og einkum þó Finn-
land eiga þýðanda, dr. Aale Tyn-
ni-Haavio, miklar þakkir að
gjalda, sem á tveimur árum hefur
lokið við mikið stórvirki, er hana
hefur dreymt um að koma í verk
um áratugarskeið. Og því meiri er
gleði okkar Finna, þegar því má
bæta við, að dr. Tynni-Haavio
vinnur nú að því að þýða einnig
goðfræðileg kvæði Eddu á finnsku.
Eftir nokkur ár getum við gert
okkur vonir um að Ljóða-Edda öll
verði til á finnskri tungu. Loksins,
hljótum við að hrópa full þakklæt-
Bindið með hetjukvæðum Eddu
hefur þegar fengið mjög góðar
viðtökur í blöðunum eftir að hafa
legið aðeins nokkrar vikur á borð-
um bókabúðanna. Nú bíðum við
full eftirvæntingar eftir meiri
háttar ritdómum.
Helsingfors, 13.2.1981.
Maj Lis Holmberg.
„Síðasta vígið“
— ný ljóðabók eftir
Kristján Jóhannssor
UTSYNAR
í Súlnasal
Hótel Sögu,
sunnudaginn 15. marz.
FERÐAK YNNING — STORVEIZLA
— Skemmtun í sérflokki
Spænskir hóteleigendur og forystumenn ferðamála á
Mallorca og Costa del Sol koma í heimsókn, kynna
kostaboð sín á völdum gististöðum Útsýnar og gleðja
með gjöfum. Þar getur fólk kynnst hinum frábæru
kjörum, sem Útsýn semur um fyrir farþega sína og
tryggir þeim mesta afsláttinn.
Kl: 19.00 — Húsiö opnaö. Lystauki, happdrættismiöar o.fl. spennandi.
Ath. boröum ekki haldiö eftir kl. 19.30.
Kl: 20.00 — Veizlufagnaðurinn hefst stundvíslega: Ljúffengur grill-kjúklingur og grísasteik aö
spænskum hætti meö bökuöum kartöflum, salati og tilh.
á aðeins kr. 85.00.
Ljúf dinnertónlist
— Þorgeir og Pétur skemmta
— hin glæsilega sumaráætl-
un Útsýnar og frábærir gisti-
staöir kynntir.
Kvikmyndasýning í innri sal.
Karon
— samtök
sýningarfólks
með glaesilega
tízkusýningu frá
Verzl. Sonju.
Utsýnarferð
o.fl. vegleg verðlaun í skemmtileqri,
spennandi spurningakeppni.
Fegurð 81:
Á Útsýnarkvöldum er jafnan
fjöldi fagurra stúlkna. Nú er
síðasta tækifæri að bætast í
keppnina Ungfrú Útsýn 81.
10—12 stúlkur fá ókeypis
Útsýnarferö.
Stórbingó
— Spilað um 3 Útsýnarferð-
ir aö verðmæti nýkr. 12.000.-
Aukaverðlaun: Hóteldvöl á Spán
Danssýning:
flokkparið frábæra,
Aðalsteinn og Herborg
sýna fótafimi sína og koma
öllum í dansstuð.
DANS
— Sjónvarpsstjarnan Þorgeir Ást-
valdsson kynnir skemmtiatriöi og held-
ur uppi látlausu fjöri meö vinsælustu
danslögunum
ásamt hl.íómsveit
Ragnars
og Helenu
Vinsældir Utsýnarkvöldanna eru óumdeil-
anlegar, enda komast þar jafnan færri aö
en vilja.
Pantiö því borö strax í síma 20221/25017
og mætiö fyrir kl. 19.30.
Aögangur öllum heimill, sem koma í
sólskinsskapi og sparifötunum.
Góða skemmtun.
i.