Morgunblaðið - 13.03.1981, Side 14

Morgunblaðið - 13.03.1981, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1981 Sterling-samningur Samvinnuferða er tilræði við íslensk samgöngumál Greinargerð frá Kynn- ingardeild Flugleiða Þær upplýsingar Flugleiða að óheft leiguflug milli Norðurlanda og Isiands hefði óheppileg áhrif á heilsárs áætlunarflug milli þess- ara sömu landa virðast hafa farið mjög fyrir brjóstið á Samvinnu- ferðaforstjóranum. í greinum i Vísi, Tímanum og Morgunblaðinu safnar hann saman málsvörn fyrir því að Samvinnuferðir/Landsýn, sem hann veitir forstöðu, skuli frekar semja við erlent leiguflug- félag sem undirbýður Flugleiðir til þess að komast inná íslenskan markað vegna þess að eigin mark- aðir í Danmörku og annars staðar hafa brugðist en að nýta íslenskar flugvélar. Hann blandar saman ýmsum óskyldum málum á hinn furðulegasta hátt í vörn fyrir því að sú ferðaskrifstofa sem að hluta til er í eigu íslenskra launþega skuli, á sama tíma, með aðgerðum sínum og samningum veikja at- vinnuöryggi íslenskra launa- manna. Með samningum Samvinnu- ferða/Landsýnar við Sterling Airways er verið að flytja danskt atvinnuleysi til íslands á kostnað íslenskra launþega. Er nema furða að Samvinnuferðaforstjóranum veitist erfitt að verja slíkt hátta- lag? I grein Samvinnuferðaforstjór- ans er reynt að gera Flugleiðir tortryggilegar hvað varðar far- gjöld yfir Atlantshaf annars vegar og fargjöld innan Evrópu hins vegar. Hann hlýtur þó að vita að hér er um að ræða fargjöld sem eru á tveimur mismunandi mörk- uðum og að fargjöldin á Norður- Atlantshafinu eru reyndar svo lág að hvert einasta félag rekur Norður-Atlantshafsflugið með tapi um þessar mundir. Hins vegar berast nú fregnir af hækk- unum á þeim leiðum þannig að væntanlega kemst einhver skyn- semi að í verðlagningu á flugferð- um yfir Atlantshaf á næstunni. Leiguflugferðir milli höfuðborKa Norður- landa takmarkaðar Leiguflugferðir hafa viðgengist í langan tíma og er ekkert nema gott um þær að segja þegar þær eru farnar til staða þar sem ekki er hægt að nýta áætlunarflug. Sem dæmi má taka að íslenskar ferðaskrifstofur hafa leigt flugvél- ar Flugleiða til sólarlandaferða og fleiri hópferða um árabil með góðum árangri. íslenskur ferða- iðnaður hefur þróast og þar hefur hver grein styrkt aðra, þ.e. rekstur ferðaskrifstofa og flugrekstur. Samvinnuferðir hafa hins vegar skorið sig úr á þessu sviði: augljós tilhneiging til þess að nota erlend leiguflugfélög fremur en íslensk. Þegar Samvinnuferðir áttu t.d. kost á leiguferðum með íslensku félagi fyrir nokkrum árum var gerður samningur við breskt félag. Þetta er því furðulegra að íslensk launþegasamtök eiga þessa ferða- skrifstofu að hluta. En svo vikið sé aftur að leiguflugferðum þá eru þær víða bannaðar á leiðum þar sem áætlunarflug er fyrir hendi. Svo er t.d. um leiguflug milli höfuðborga Norðurlanda. Flug- málayfirvöld á Norðurlöndum hafa ekki leyft leiguflugferðir milli t.d. Kaupmannahafnar og Osló og Kaupmannahafnar og Stokkhólms. A þessum leiðum hafa SAS og Finnair tíðar flug- ferðir og til þess að brjóta ekki niður heils árs áætlunarflug er leiguflugferðum haldið þar utan við. Hins vegar er mikið leiguflug stundað til suðlægra staða þar sem áætlunarferðir eru engar eða svo strjálar að flutningaþörf er ekki sinnt sem skyldi. Flugleiðir fljúga nú samkvæmt vetraráætlun sex ferðir í viku til Kaupmannahafnar með farþega o.fl. og sjöundu ferðina með vörur. A sumrin eru þessar ferðir tíu til tólf á viku. Sætaframboð milli íslands og útlanda er það mikið, að að meðaltali "ar fjórðungur sæta á sl. ári auður í hverri ferð. Að vísu skiptist þetta ekki jafnt niður á álla mánuði ársins en eigi að síður verður að telja að vel sé fyrir samgöngum í áætlunarflugi séð þegar rýmisins vegna hefði verið hægt að flytja fjórðungi fleiri farþega en ferðuðust með flugvélunum. Danskt atvinnuleysi flutt til íslands Með aðgerðum sínum nú eru Samvinnuferðir/Landsýn að flytja danskt atvinnuleysi til ís- lands á kostnað íslenskra laun- þega. Þetta er gert undir því yfirskyni að sumarhúsaleiga í Danmörku krefjist þess að tekin séu undirboðsverð frá erlendu leigufélagi. Nú er það vitað mál að Danir leita mjög gjarnan suður í sólina og þess vegna er mikið framboð slíkra húsa. Önnur ís- lensk ferðaskrifstofa, Útsýn, býð- ur einnig pakkaferðir rneð dvöl í sumarhúsum. Þær ferðir eru ódýr- ari en ferðir sem Samvinnuferð- ir/Landsýn bjóða og eru þó far- þegar Útsýnar fluttir með Flug- leiðum. Hér er eitthvað gruggugt í verðlagningu Samvinnuferða, sem segjast vera með ódýrara flug og hagstæð leigukjör á húsunum vegna tengsla við danska aðila. Samkvæmt því ættu pakkaferðir Samvinnuferða að vera ódýrari. En hér skýtur skökku við: Ferðir Útsýnar eru mun ódýrari en Samvinnuferða. Er þetta um- hyggja fyrir hagsmunum neyt- andans? Hvert rennur svo mis- munurinn? óheiðarleg samkeppni við íslenskar ferðaskrifstofur Samvinnuferðir/Landsýn hafa með því að taka undirboði erlends leiguflugfélags, sem flýgur farþeg- um héðan til Kaupmannahafnar og sendir þá síðan með erlendri ferðaskrifstofu til Miðjarðarhafs- landa, vegið að sjálfstæðu sólar- landaflugi íslendinga, sem aðrar ferðaskrifstofur hafa þróað upp á löngu árabili. Með undirboðum er ekki einungis vegið að hagsmun- um Flugleiða heldur að hagsmun- um og sjálfstæði íslenskra ferða- mála. Aðrar ferðaskrifstofur hér á landi hafa leigt flugvélar frá Arnarflugi til sólarlandaferða í sumar. Með því að ná farþegum með gylliboðum frá öðrum ferða- skrifstofum, flytja þá til útlanda með erlendum flugvélum og koma þeim þar inn í ferðir erlendra ferðaskrifstofa, vinna Samvinnu- ferðir/Landsýn tvöfalt ógagn. Þær skaða íslenska hagsmuni í flug- málum og þær skaða íslenska hagsmuni í ferðamálum. Aðrar íslenskar ferðaskrifstofur sem halda sig við íslenskar flugvélar til að flytja íslenska farþega verða þarna fyrir jafn óheiðarlegri sam- keppni og Flugleiðir. Út yfir tekur þó þegar Sam- vinnuferðaforstjórinn auglýsir að með því að greiða ferðirnar þrem mánuðum fyrirfram sé hægt að tryggja að verð þeirra hækki ekki. Auðvitað getur hver og einn tryggt sig gegn verðbólgunni með því að leggja andvirði einnar ferðar inná vaxtaaukareikning til þriggja mánaða. Það skyldi þó aldrei vera það sem Samvinnu- ferðaforstjórinn gerir? I grein í Vísi lætur Samvinnu- ferðaforstjórinn iiggja að því að Arnarflug hafi ekki leyfst að bjóða í leiguflug til Kaupmanna- hafnar vegna áhrifa Flugleiða. Auðvitað er hér um hreinan hug- arburð mannsins að ræða. Milli Flugleiða og Arnarflugs er hin besta samvinna og verkaskipting. Einokunargrýlunni hampað Sam vinnuferðaforstj óri nn hampar einokunargrýlunni sem er afar töm þeim sem vilja skaða íslenskt áætlunarflug. Til þess að leiðrétta bæði hann og aðra sem haldnir eru firrum í þessu máli er eftirfarandi: Lönd sem hafa flugsamgöngur sín á milli gera um þær tvíhliða loftferðasamning. í honum er kveðið svo á, að hvort land um sig skuli tilnefna af sinni hálfu flug- félög til að sinna fluginu. Svo dæmi sé tekið hefur Island til- nefnt Flugleiðir til þess að fljúga til Danmerkur og annarra Norð- urlanda. Norðurlöndin hafa aftur á móti tilnefnt SAS til þessa flugs. ísland hefur tilnefnt Flugleiðir til þess að fljúga áætlunarflug til Bretlands. Bretland hefur aftur á móti tilnefnt British Airways til þessa hlutskiptis. Þar sem jöfn aðstaða ríkir eins og hér, þ.e. að tvö félög geti flogið skv. leyfum ríkisstjórna sinna, er ekki um einokun að ræða nema síður sé. Hins vegar þykir þetta vel henta þegar klekkja þarf á íslensku áætlunarflugi. Og það er furðulegt að þessi skaðlegi áróður virðist jafnvel ná eyrum manna í áhrifa- stöðum. Ferðaskrifstofa launþega skaðar umbjóðendur sína Það er kaldhæðni örlaganna að fyrirtæki í ferðamálum, líkt og Samvinnuferðir/Landsýn sem eru í eigu tveggja fjöldahreyfinga í landinu, skuli hafa lent á slík glapstig sem samningurinn við Sterling er. Forstjórinn afsakar sig með því að hann vilji veita fjölskyldum sem ódýrast far. Að sjálfsögðu vilja allir fá ódýrar ferðir, en vilja allir undirboðsferð- ir og er sama hverju verði þær eru keyptar? Ég býst við að þeir launþegar sem eiga á hættu missi atvinnu sinnar vegna óheiðarlegr- ar samkeppni og undirboða skoði hug sinn tvisvar áður en þeir svara því játandi. Hér er beinlínis reynt að skaða íslenska hagsmuni. Hér heggur sá er hlífa skyldi. Sumarið tekjuöflunartími áætlunarfélaganna Flugfélög sem stunda áætlunar- flug á heilsársgrundvelli eru flest undir þá sök selda að tap er á fluginu sex til níu mánuði á ári. Flest flugfélög í þessum heims- hluta verða að afla nægjanlegra tekna á þrem til fjórum mánuðum til að standa undir taprekstri annan árstíma. Þetta er viður- kennt og þess vegna beina flug- málayfirvöld leiguflugsásókn frá aðalleiðum áætlunarfélaganna á mesta annatímanum. Það er al- kunnugt að leiguflugfélög víða um heim reyna að komast inn á markaði meðan mest er þar um að vera. Fleyta rjómann af þeim viðskiptum sem þar er að hafa á mesta annatímanum en hverfa síðan á braut. Ef áætlunarfélögin geta ekki og hafa ekki möguleika á tekjuöflun, verða þau annað hvort að stórhækka fargjöld yfir vetur- inn og/eða fækka ferðum niður í algjört lágmark. Við þessu vilja Flugleiðir sporna og ástæðan til þess að vakin var athygli á annarlegum samningum Sam- vinnuferða/Landsýnar við danska leiguflugfélagið Sterling Airways er af þessum toga spunnið. Alkunna er að bæði samvinnu- hreyfingin og launþegahreyfingin hafa unnið landsmönnum mikið gagn á undanförnum árum. Það kemur því undarlega fyrir og hljómar sem öfugmæli að sú grein þessarar starfsemi sem sinnir ferðamálum, þ.e. Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir/Landsýn, skuli hafa skorast þarna undan merkj- um með því að hlaupa eftir undirboði dansks keppinautar. Varla verður öðru trúað en hér hafi augnabliks mistök stjórnenda þessa fyrirtækis ráðið ferðinni. Frá KynninKardrild FlugMða KrykjavikurfluKvrlli. Barðstrend- ingafélagið með skemmtikvöld Barðstrendingafélagið í Reykja- vík hefur reglulega skemmtikvöld á föstudagskvöldum einu sinni í mánuði. Næsta skemmtikvöld er í kvöld, föstudaginn 13. marz. Verð- ur það í Domus Medica og hefst kl. 20.30. Að þessu sinni verður efnt til bingós, sem Bolli Ólafsson stjórn- ar. Eru margir vinningar, að verðmæti alls 10 þús. kr. og stærsti vinningurinn æðardúns- sæng. Einnig munu nú aðgöngu- miðarnir gilda sem happdrættis- miði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.