Morgunblaðið - 13.03.1981, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1981
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aóalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 70 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakiö.
Þingmenn og
kjósendur
Staða tveggja þingmanna og eins ráðherra hefur orðið næsta
undarleg á undanförnum vikum. Hér er ekki átt við það, hvaða
afstöðu þessir menn hafa tekið, heldur með hvaða hætti þeir gæta
hagsmuna umbjóðenda sinna. Þingmennirnir eru Páll Pétursson,
formaður þingflokks Framsóknarflokksins, og Guðmundur J. Guð-
mundsson, forseti Verkamannasambands íslands. Ráðherrann er
Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra.
Þegar úrskurður Kjaradóms um laun BHM-fólks og þingmanna lá
fyrir upp úr áramótunum, rétt eftir að ríkisstjórnin hafði gefið út
bráðabirgðalögin um launaskerðinguna 1. mars, lét fjármálaráðherra,
Ragnar Arnalds, þau orð falla, að úrskurðurinn gengi þvert á
launastefnu ríkisstjórnarinnar og eyðilegði jafnlaunaáform hennar.
Taldi ráðherrann nauðsynlegt að gefa út bráðabirgðalög til að afnema
niðurstöðu Kjaradóms. Undir þetta tók flokksbróðir fjármálaráð-
herra, „stjarna" Alþýðubandalagsins í verkalýðshreyfingunni til
margra ára, Guðmundur J. Guðmundsson. Taldi Guðmundur J. það
„skinhelgi", eins og hann orðaði það, ef þingmenn tækju við þeim
launum, sem þeim höfðu verið ákveðin. Sérstaklega þótti Guðmundi J.
miður, að launahækkun þingmanna væri afturvirk frá 1. maí 1980,
þegar laun verkafólks hefðu ekki hækkað nema frá samningsdegi, 27.
október 1980. Heldur sljákkaði í Guðmundi J., þegar frá því var skýrt,
að skriflega hafði hann á Alþingi lýst stuðningi við afturvirkni
laganna um þingfararkaupið.
Þeir Ragnar Arnalds og Guðmundur J. Guðmundsson töldu það
ósamrýmanlegt sannfæringu sinni og hag umbjóðenda að leggja
blessun sína yfir úrskurð Kjaradóms. Hvað hefur gerst síðan?
Fjármálaráðherra hefur útfært kjaradómsúrskurðinn í samningum
við BSRB, þar sem hæstu launin hækka mun meira en þau lægstu.
Guðmundur J. situr „skinhelgur" á Alþingi. Stóru orðin í janúar voru
sem sé ekkert annað en sápukúlur og sjónarspil til að rugla kjósendur
í ríminu.
Staða Páls Péturssonar er önnur en þeirra Ragnars og Guðmundar
J. Páll Pétursson leggur sig ekki fram um að blekkja umbjóðendur
sína, kjósendurna, heldur tekur hann sér fyrir hendur að tefja fyrir
framgangi þess máls, sem þeir telja brýnast fyrir sig og byggðarlag
sitt. Krafa framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi vestra er þessi:
Páll Pétursson, þingmaður okkar, hætti andstöðu sinni við Blöndu-
virkjun eða segi af sér. Svar þingmannsins við þessari kröfu
einkennist ekki af vilja til rökræðna heldur þótta. Kemur það ekki
beinlínis á óvart, því að Páll Pétursson sýnist í ýmsu vera sá
þingmanna Framsóknarflokksins, sem næst stendur Alþýðubanda-
laginu í skoðunum. í þeim skoðanahópum er þeim helst treyst til
áhrifa, sem kræfastir eru í því að ganga á rétt umbjóðenda sinna,
eftir að völdin eru komin í þeirra hendur.
Úrslitin hjá stúdentum
Urslit kosninganna í háskólanum eru ánægjuleg vegna þess, að
einokun róttæklinga á málefnum stúdenta er lokið. Marxistar og
áhangendur þeirra hafa ekki lengur meirihluta í Stúdentaráði
Háskóla íslands. Raunar hefur engin ein fylking þar meirihluta
heldur verður að koma til samstarfs milli tveggja lista til að kjósa
trúnaðarmenn og móta stefnu. Um það er engum blöðum að fletta, að
stjórn róttæklinganna hefur leitt til stöðnunar og hnignunar í
hagsmunabaráttu stúdenta. Þetta hefur verið hættuleg þróun á sama
tíma og stuðlað er að því, að æ fleiri geti stundað nám á háskólastigi.
Sérvitringsháttur róttæklinganna og hroki í þjóðfélagsumræðum
hefur spillt áliti alls almennings á háskólanum.
Það er ekki í fyrsta sinn nú, sem það gerist, að nauðsynlegt hefur
þótt að stofna „miðflokk" í háskólanum til að losa málefni stúdenta
úr sjálfheldu, sem skapast hefur. Þeir, sem tapa völdum, eftir slíkar
kosningar vilja sjaldnast vinna með þeim, sem fyrir „miðflokknum"
stóðu. Enda er greinilegt á yfirlýsingum talsmanna róttæklinga í
háskólanum, að þeir líta nú á „miðflokkinn", sem sinn erkifjanda.
Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, hefur um langan aldur
verið vettvangur þeirra, sem af heilum huga vinna að því að bæta hag
stúdenta. Kosningastefnuskrá félagsins nú sýndi, að enn er vemdun
lýðræðis og aukin velsæld stúdenta þar í fyrirrúmi. Miðað við sögu
félags síns, frambjóðendur og stefnu gerðu Vökumenn sér vonir um
stærri hlut í kosningunum á miðvikudaginn.
Athygli vakti, að á kosningafundi á þriðjudagskvöldið beindu
frambjóðendur „miðflokksins", umbótasinnar, spjótum sínum ein-
vörðungu að lélegri stjórn vinstrisinna. Bæði Vökumenn og
umbótasinnar hvöttu því stúdenta til að kjósa sig á þeirri forsendu,
að þeim þætti nóg um yfirgang róttæklinganna og lélega stjórn. Það
hlýtur að gefa vísbendingu um framhaldið.
Á MIÐVIKUDAG fóru fram kosningar til Stúdentaráðs Háskóla
íslands og Háskólaráðs. Vinstri meirihlutinn, sem síðastliðin 10 ár
hefur ráðið ríkjum í Stúdentaráði, missti meirihluta sinn. Félag
umbótasinnaðra stúdenta vann eftirtektarverðan kosningasigur.
Morgunblaðið ræddi við efstu menn listanna þriggja, sem í kjöri
voru, og spurði þá álits á niðurstöðum kosninganna.
Nýtum okkar styrk
til hins ýtrasta
— segir Sigurbjörn Magnússon, efsti maður
á lista Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta
„ÞAÐ ER ljóst, að umbóta-
sinnar hafa unnið mikinn kosn-
ingasigur og þeir eru nú i
oddaaðstöðu i Stúdentaráði Há-
skóla íslands. Ég tel það þeirra,
að eiga frumkvæði að myndun
meirihluta i ráðinu. Ég dreg
enga dul á það, að það voru
okkur vonbrigði að missa tvo
menn úr ráðinu en þeirri stað-
reynd verður þó ekki haggað,
að lýðræðisöflin i Háskóla ts-
lands hafa unnið mikinn kosn-
ingasigur. Tekist hefur að
hnekkja 10 ára einokun rót-
tæklinga i Stúdentaráði Há-
skóla íslands.“ sagði Sigur-
björn Magnússon, efsti maður á
lista Félags lýðræðissinnaðra
stúdenta, i samtali við blaða-
mann Mbl.
„Það er fagnaðarefni að stúd-
entar við Háskóla íslands hafi
snúið baki við róttæklingum.
Hins vegar er það umhugsunar-
efni, að með lítilli fyrirhöfn
tókst að blása upp loftbólu, sem
stúdentar virðast hafa fallið
fyrir. Nýjungagirnin er rík með-
al stúdenta, sem annarra í þessu
þjóðfélagi.
Það er Ijóst, að umbótasinnar
eiga næsta leik. Það er þeirra að
velja með hverjum þeir vilja
mynda meirihluta í Stúdenta-
ráði. Ef þeir vilja starfa með
okkur, þá er það þeirra að eiga
frumkvæði að slíku samstarfi.
Við erum opnir fyrir öllum
möguleikum, sem eru hags-
munamálum stúdenta til fram-
dráttar. Hins vegar tel ég það
augljóst, að vegna grundvallar-
ágreinings, þá kemur samstarf
við vinstrimenn ekki til greina.
Ég get ekkert sagt um hugsan-
lega meirihlutamyndun. Nýtt afl
hefur komið fram meðal stúd-
enta og það er óþekkt stærð ef
svo má að orði komast. Við í
Félagi lýðræðissinnaðra stúd-
enta munum í kvöld halda -fund
um stöðu mála. Við þurfum að
skoða okkar mál ofan í kjölinn.
Vaka er áfram sterkt afl í
stúdentahreyfingunni og við er-
um staðráðnir í því, að nýta
okkur þennan styrk til hins
ýtrasta," sagði Sigurbjörn
Magnússon.
Full þörf á
þriðja aflinu
— segir Stefán Matthíasson, efsti maður
á lista Félags umbótasinnaðra stúdenta
„ÞETTA er mikill sigur og
stórkostlegur og staðfestir, að
stúdentar í Háskóla íslands eru
á sömu skoðun og við. Það er
full þörf á þriðja aflinu i
Stúdentaráði. Stúdentar hafa
lýst óánægju sinni með gömlu
listana og bera úrslitin með sér
vantraust á bæði vinstrimenn
og Vökumenn,“ sagði Stefán
Matthíasson, efsti maður á lista
Félags umbótasinnaðra stúd-
enta i kosningunum til Stúd-
entaráðs Háskóla íslands i sam-
tali við blaðamann Mhl„ en listi
umbótasinna fékk fjóra menn
kjörna i Stúdentaráð.
„Við sögðum fyrir kosningar,
að við myndum vinna með hvort
heldur Vöku eða vinstrimönnum
á þann hátt, að við fengjum sem
flestum stefnumálum okkar
framgengt. Þetta er óbreytt.
Málin eru í biðstöðu núna. Við
bíðum eftir að heyra frá forustu-
mönnum hinna listanna. Við
höfum nú fjóra menn í Stúd-
entaráði en því má ekki gleyma,
að Vaka hefur 12 menn og
vinstrimenn 14. Við teljum því
eðlilegt, að núverandi stjórn
Stúdentaráðs stígi fyrsta skrefið
í myndun meirihluta og að Vaka
gefi að sjálfsögðu einhver merki.
Við bíðum því en engar viðræður
hafa farið fram. Við munum
halda fund í kvöld og ræða stöðu
mála og ég legg á það áherzlu, að
við lokum engum möguleikum til
meirihlutasamstarfs. Ég vona
bara, að hreyfing komist á málin
sem fyrst því það er öllum í hag.
Því lengur sem dregst að fá
niðurstöðu um myndun meiri-
hluta í Stúdentaráði, því erfið-
ara kann að reynast að mynda
slíkan meirihluta,“ sagði Stefán
Matthíasson.
Eðlilegt að umbótasinnar
og Vaka myndi meirihluta
— segir Jón Júlíus Elíasson, efsti maður á
lista Félags vinstrisinnaðra stúdenta
„ÉG GET ekkert spáð um það
hvernig málin æxlast en mitt
persónulega mat er, að við
vinstrimenn eigum að vera i
minnihluta og leyfa umbóta-
sinnum og Vöku að kljást við
málin. Ég held að við getum alls
ekki farið i sömu sæng og
umbótasinnar þar sem þeir
hafa gagnrýnt okkar stefnu
ótæpilega og aldrei kemur til
mála, að fara i samstarf með
Vöku. Það er þvi eðliiegt að
þessir aðilar myndi meirihluta,
en hver niðurstaðan verður
kemur í ljós þegar Stúdentaráð
kemur saman eftir um það bil
þrjár vikur,“ sagði Jón Július
Eliasson, efsti maður á lista
vinstrimanna i samtali við
biaðamann Mbl. i gær.
„Við munum væntanlega taka
afstöðu til mála á fundi um
helgina og þá munu málin skýr-
ast. Það er auðvitað ljóst, að
umbótasinnar eru nú í oddaað-
stöðu. Meðal vinstri manna eru
mjög skiptar skoðanir hvort
þessi úrslit séu slæm eða góð.
Sumir meðal vinstrimanna
segja, að þetta sé til góðs þar
sem þeir vilja fara í minnihluta
og byggja upp sjálfa vinstri-
stefnuna og leyfa hinum að
mynda meirihlutastjórn. Þá
hafa heyrst raddir meðal
vinstrimanna um að rétt sé að
mynda stjórn með umbótasinn-
um, en enginn hefur talað um
myndun meirihluta með Vöku.
Þá hafa menn bent á, að
umbótasinnar hafi byggt upp
stefnuskrá á félagslegum
grundvelli, sem sé mjög í anda
okkar stefnu og því séu úrslitin
mikill sigur fyrir vinstrimenn,
því stefnuskrá þeirra hafi að
mörgu leyti farið vel í nemendur
Háskóla Islands," sagði Jón Júlí-
us Elíasson.