Morgunblaðið - 13.03.1981, Síða 17

Morgunblaðið - 13.03.1981, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1981 17 ólöf Jónsdóttir, 15 ára: „Þetta var mjög góð mynd, og hún hefur vonandi góð áhrif hér, því svona lagað er vissulega til hér hjá okkur ekki síður en í öðrum löndum. Mér kom nokkuð á óvart hve slæmt þetta getur orðið, og hve fólk getur komist langt niður í svaðið af völdum áfengisneyslu. Það er lítið gert af því í skólanum hér að kynna þessi mál, og því er sýning myndar- innar enn betra framtak en ella.“ Baldur Jónasson, 14 ára: „Þetta er góð mynd, og ég held að hún geti haft þau áhrif að færri byrji að drekka, eða að minnsta kosti að fólk hugsi sig tvisvar um áður. Svona lagað er sennilega til hér á landi, þó ég hafi sem betur fer ekki séð slíkt eða upplifað sjálfur. Ýmislegt kom mér á óvart í myndinni, svo sem þegar binda varð manninn niður á bekk og setja hann í spennitreyju. Ég hélt ekki að þetta gæti orðið svona slæmt." Sigvaldi Þórisson, 16 ára: „Myndin var góð, fannst mér. Þessir hlutir eru til hér hjá okkur, og efnið kemur okkur því vissulega við. Þetta vekur fólk örugglega til umhugsunar, og sjálfur hafði ég til dæmis ekki gert mér grein fyrir að þetta gæti þróast á þennan hátt eða orðið svo slæmt sem myndin sýnir.“ Dagar vins og rósa: SÁÁ hefur sýnt átta þúsund unglingum í Reykjavík myndina UNDANFARNA daga hafa SÁÁ-samtökin boðið grunn- skóla- og menntaskólanemum f Reykjavik að sjá kvikmyndina „Dagar víns og rósa“, sem sýnd hefur verið i Austurbæjarbiói. Myndin er frá árinu 1962, og með aðalhlutverkin fara þau Lee Remick og Jack Lcmmon. Myndin var ekki gerð sem fræðslumynd um áfengisvanda- málið, en efni hennar fjallar þó á óvenju áhrifamikinn hátt um hvernig drykkjuskapur leggur lif nokkurra einstaklinga i rúst. Sagan hefst á því að ungt par er að byrja að draga sig saman. Maðurinn, sem Lemmon leikur, virðist þegar í upphafi vera veikur fyrir víni, en unga konan, sem Remick leikur, smakkar hins vegar ekki áfengi. Svo fer þó, er þau hafa gifst, stofnað heimili og eignast barn, að bæði leggjast í taumlitla drykkju. Sýnir myndin hin ýmsu stig drykkju hjónanna, uns svo er komiö að ekki virðist unnt að sökkva öllu dýpra. Jafnframt bendir myndin þó á að lausn kunni að vera á vanda- málum þeirra, en sú lausn bygg- ist þó fyrst og síðast á því að þau vilji raunverulega hjálpa sér sjálf. Um leið og endalok mynd- arinnar sýna mikla örvæntingu, felur endirinn þó einnig í sér von sem gæti ræst ef rétt er á málum haldið. Á undan kvikmyndasýning- unni hafa þeir Pjetur Maack og Hendrik Berndsen flutt stuttan inngang um áfengisvandamálið, og á eftir er bíógestum síðan afhentur bæklingur með upplýs- ingum um það hvert fólk hér á landi getur snúið sér, eigi það eða fólk því nákomið við áfengis- vandamál að glíma. Það eru þrír efstu bekkir grunnskóla í Reykjavík, sem komið hafa á myndina, auk menntaskólanema. Alls sáu um átta þúsund unglingar kvik- myndina í þessari viku, en SÁÁ sá um að koma þeim til og frá skóla, í rútubílum og strætis- vögnum. Þeir Pjetur og Hendrik sögðu megintilganginn með þessari kvikmyndasýningu vera þann, að vekja fólk til umhugs- unar um vandamálið, kvikmynd- in gæti orðið til þess að fólk sæi þessa hluti í nýju ljósi og hugsaði meira um hver bölvald- Guðrún Bergmann, 15 ára: „Þetta er alveg ágæt mynd, og ég held, að hún geti orðið til þess að skýra hvað hér er í rauninni á ferðum. Krakkar, til dæmis í Hólabrekkuskóla, eru sumir farnir að fikta með brennivín, og því er þetta efni áreiðanlega tímabært, enda halda margir, að þetta geti varla orðið svona slæmt eins og myndin sýnir. Það er lítið gert af því að kynna áfengisvandamálin í skól- anum, og því finnst mér þetta mjög jákvætt framtak hjá SAA.“ Ragnar Scheving, 14 ára: „Þetta er góð mynd að mínum dómi, og þó hún gerist í Banda- ríkjunum, þá eru svona hlutir vissulega til hér á íslandi einnig. Mér finnst þetta jákvætt fram- tak, að taka þessa mynd til sýninga, og hún getur haft góð áhrif, á því leikur enginn vafi. Unglingar hér eru farnir að fikta við áfengi mjög snemma, og því er rétt, að enginn gangi að því gruflandi hvaða hættur þar geta verið á ferðum." Nemendur Ilólabrekkuskóla koma út af sýningu myndarinnar Dagar víns og rósa í Austurbæjarbiói í gærmorgun. Ljósm: Emilia Bjornsd. ur áfengið gæti orðið. Þá væri tilganginum náð. Þeir töldu of lítið gert af því að kynna áfeng- isvandamálið í skólum, sem þó væri full þörf á. Margir ungl- ingar hæfu drykkju mjög ungir, jafnvel um 10 ára aldur, og dæmi væru þess að fólk hefði farið til Bandaríkjanna í meðferð 15 ára. Ljóst væri því að ekki væri vanþörf á að kynna þessi mál, og ekki síst væri nauðsynlegt að sýna unglingum staðreyndir málsins nógu snemma. Þess má geta, að kvikmyndin Dagar víns og rósa var sýnd skólafólki hér á landi fyrir nokkrum árum, og vakti hún þá mikla athygli. Nú hefur verið útvegað nýtt eintak af myndinni og sett inn á það íslenskur texti. Myndin verður sýnd á almenn- um sýningum í Austurbæjarbíói innan tíðar. Að lokinni sýningu með nemendum Hólabrekku- skóla í Reykjavík í gær, ræddi blaðamaður við nokkra nemend- ur, og spurði þá álits á myndinni sem þau höfðu nýlega séð. Fara svör þeirra hér á eftir. Freyja V.M. Frisbæk Kristensen lyfjafræðingur „N iðurstöðurnar sanna að á rétt minn var gengið“ „ÉG VERÐ að segja að ég er afskaplega ánægð með niðurstöð- ur Jafnréttisráðs. Þær eru sam- hljóða mínu áliti og sanna, að á rétt minn hafi verið gengið, hvort sem ástæðan fyrir brotinu er vegna kynferðis eða önnur,“ sagði Freyja V.M. Frisbæk Krist- ensen lyfjafræðingur í viðtali við Mbl. í gærkvöldi. Þá sagði Freyja einnig: „En málið þýðir einnig veikleika jafn- réttislaganna til að tryggja að nægilegs jafnréttis sé gætt, eins og ráðið lýsir yfir og ættu því allir, sem áhuga hafa á jafnrétti að hvetja þingmenn sína til þess að vinna að því, að nauðsynlegar breytingar verði gerðar. — Hyggstu sækja rétt þinn fyrir dómstólunum í framhaldi af þessari niðurstöðu Jafnréttisráðs? „Ég óska ekki eftir málaferlum því mér skilst að þar myndi hvorki reka né ganga eins og laganna hljóðan er. Ég skil vel þá yfirlýs- ingu að æskilegt væri að fá dóm í máli sem þessu, en ég tel að áður ætti að fjalla nánar um starfsemi Jafnréttisráðs og lögin sjálf. Um yfirlýsingar Svavars fyrr og nú, um að lengst starfsreynsla í apóteki hafi ráðið ákvörðun hans, vil ég segja að ef hún er rétt, þ.e. að meta beri mest einþætta starfsreynslu innan sama sviðs í fjölþættu fagi, þá yrði það til þess að ekki yrði unnt að fá menntað fólk til að gegna kennslu, stjórn- unarstörfum, rannsóknarstörfum, framleiðslu- og heildsölustörfum. Og um yfirlýsingar hans í útvarp- inu í kvöld, þar sem hann gaf í skyn að lyfsölulögin settu honum einhvern ramma, vil ég taka fram að það er rangt. Ef svo væri, þyrfti ekki umsagnir sérfróðra aðila.“ Freyja sagði í lokin: „Ég efast ekki um að valdið sé í höndum ráðherra, en í slíku máli getur ráðherra ekki siðferðislega, að mínu mati, staðið gegn ráðunaut- um sínum. Hann getur ekki heldur látið pólitískan eða pærsónulegan þrýsting ráða gjörðum sínum. Það eru ekki mistök heldur valdníðsla. Valdníðsla hefur aldrei verið talin fegurðarblettur þjóðar."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.