Morgunblaðið - 13.03.1981, Page 18

Morgunblaðið - 13.03.1981, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1981 Greinargerð Jafnréttisráðs: Um mismunun að ræða — nauðsyn að endurskoða jafnréttislögin Telja að erfitt yrði að sanna fyrir rétti að um brot á lögunum sé að ræða Hér á eftir fer í heild sinni greinargerð Jafnréttisráðs, sem fylgir afgreiðslu ráðsins á ka ru Freyju V.M. Frisbæk Kristensen. Var eftirfarandi niðurstaða sam- þykkt einróma á fundi ráðsins í gærmorgun: Með bréfi dags. 4. febrúar 1981 óskaði Freyja V.M. Frisbaek Krist- ensen eftir því, að Jafnréttisráð rannsakaði veitingu lyfsöluleyfis á Dalvík 29. janúar sl., en heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra veitti Óla Þór Ragnarssyni lyfsöluleyfið, enda þótt lögskipaðir umsagnaraðilar þessa máls teldu báðir Freyju hæf- asta til starfsins. Jafnframt barst Jafnréttisráði ályktun frá Kvenréttindafélagi ís- lands, þar sem stjórnin fór þess m.a. á leit við Jafnréttisráð, að það tæki fyrrnefnda veitingu lyfsöluleyfis til meðferðar, sbr. 1. nr. 78/1976 um jafnrétti kvenna og karla. Jafnréttisráð óskaði eftir greinar- gerð frá heilbrigðisráðherra, og barst hún ráðinu 12. febrúar sl. Athugun Jafnréttisráðs hefur leitt eftirfarandi í ljós: 1. I nóvember sl. var lyfsöluleyfi á Dalvík auglýst iaust til umsóknar. Umsækjendur um það voru þrír, þau Freyja V.M. Frisbæk Kristensen, Magnús Jónsson og Óii Þór Ragn- arsson. 2. Samkvæmt lyfsölulögum nr. 30/1963 skal leggja umsóknir um lyfsöluleyfi fyrir nefnd tveggja kjör- inna manna, annars af hálfu Apót- ekarafélags íslands, en hins af hálfu Lyfjafræðingafélags íslands. Nefnd- in skai láta landlækni í té rökstudda umsögn um þá umsækjendur sem að hennar áliti eru hæfastir og skipa þeim í töluröð eftir hæfni. Land- læknir skal síðan senda ráðherra rökstutt álit um það, hverja hann telji hæfasta og skipa þeim sömu- leiðis í töluröð. Umsögn nefndarinn- ar skal fylgja áliti hans. 3. Umsögn nefndarinnar var svo- hljóðandi: „Undirritaðir hafa fengið til um- sagnar 3 umsóknir um auglýst lyf- söluleyfi á Dalvík. Eftir ítarlega athugun á umsóknunum og fylgi- skjölum teljum við alla umsækjend- ur hæfa. Við höfum orðið sammála um að skipa þeim í töluröð sem hér segir, sbr. fyrirmæli iaga nr. 30/ 1963: 1. Freyja V.M. Frisbæk Krist- ensen, 2. Óli Þór Ragnarsson, 3. Magnús Jónsson. Framangreinda niðurröðun rökstyðjum við þannig: Freyja hefur lengstan og fjölbreytt- astan starfsferil að baki, auk þess sem einkunn hennar á kandídats- prófi er miklum mun hærri en hinna tveggja. Erfiðara er aftur á móti að gera upp á milli Magnúsar og Óla Þórs. Það, sem úrslitum réð, var þó það, að Magnús hefur aðeins starfað í lyfjabúð um rúmlega tveggja ára skeið, en hinn tímann í lyfjaheild- sölu, þar sem lyfjagerð er ekki stunduð." Umsögn landlæknis var svohljóð- andi: „Með tilliti til starfsferils og stjórnunarstarfa raða ég umsækj- endum um lyfsöluleyfið á Dalvík í eftirfarandi röð: 1. Freyja V.M. Frisbæk Kristensen, 2.-3. Óli Þór Ragnarsson, Magnús Jónsson." 4. Heilbrigðisráðherra gekk því framhjá samróma áliti nefndarinnar og landlæknis um hæfasta umsækj- andann og veitti Óla Þór Ragnars- syni umrætt lyfsöluleyfi. 5. í áðurnefndu bréfi Freyju V.M. Frisbæk Kristensen lýsir hún því, að á henni hafi verið brotinn réttur af kynferðislegum ástæðum og biður Jafnréttisráð jafnframt að taka málið til rannsóknar. 6. Aðilar á Dalvík sendu ráðherra bréf, þar sem segir m.a.: „Undirrituð óska þess, að þér herra ráðherra, sjáið yður fært að veita Óla Þór Ragnarssyni lyfsöluleyfi, sem hann hefur sótt um í Dalvíkurhéraði." 7. I greinargerð ráðherra er því alfarið vísað á bug „sem tilhæfu- iausu með öllu“, að um mismunun eftir kynferði hafi verið að ræða. Ennfremur segir í greinargerð ráð- herra: „Við mat á umsögnum lá því ljóst fyrir að lögskilin starfsreynsla Óla í lyfjabúð og að lyfjaframleiðslu var fengin með 6 ára samfelldu starfi, en Freyja hafði unnið sam- bærileg störf aðeins í rúm 2 ár. Á þessu grundvallaðist veiting ráð- herra til Óla Þ. Ragnarssonar." í þessu sambandi er rétt að vekja athygli á, að skv. lyfsölulögunum er lögskilin starfsreynsla í lyfjabúð 12 mán. 8. Frá því að heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytið tók til starfa sem sjálfstætt ráðuneyti hefur það veitt lyfsöluleyfi í 23 skipti, auk lyfsöluleyfisins á Dalvík. Þrátt fyrir gagnstæða fullyrðingu ráðherra, kemur fram í yfirliti, að af þessum 23 lyfsöluleyfum hefur aðeins í einu tilviki þeim verið veitt lyfsöluleyfi, sem hvorki umsagnarnefnd né land- læknir raðaði nr. 1 í töluröð. Af því má ráða, að ráðherrar hafi almennt talið eðlilegt að fara eftir faglegri umsögn umsagnarnefndar og land- læknis. 9. í 1. grein laga um jafnrétti kvenna og karla segir: „Tilgangur þessara iaga er að stuðla að jafnrétti og jafnri stöðu kvenna og karla." í 2. gr. jafnréttislaganna er máelt svo fyrir, að konum og körlum skuli veittir sömu möguleikar til atvinnu. í 3. gr. sömu laga er kveðið á um, að óheimilt sé að mismuna starfs- fólki eftir kynferði, m.a. hvað varðar stöðuveitingar. í 10. gr. er kveðið á um Jafnréttis- ráð og verkefni þess. Þar segir m.a., að ráðið skuli sjá um að jafnréttis- Greinargerð Svavars Gestssonar: „Yeitingavaldið í höndum ráðherra — ber hann enda einn stjórnvaldsábyrgð á leyfisveitingunni“ Mbl. barst í gær frá heilbrigð- isráðuneytinu greinargerð Svav- ars Gestssonar heilbrigðis- og tryggingaráðherra frá 12. febr. sl., sem hann sendi Jafnréttisráði um ástæður ákvörðunar hans að veita óla Þ. Ragnarssyni lyfsöiu- leyfi á Dalvik þrátt fyrir að umsagnaraðilar hafi talið Freyju V.M. Frisbæk Kristensen hæfasta umsækjenda. Fer greinargerð ráðherrans orðrétt hér á eftir: „Guðríður Þorsteinsdóttir, formaður Jafnréttisráðs, Skólavörðustíg 12, Reykjavík. Ákvæði um veitingu lyfsöluleyfa er að finna í iögum nr. 30/1963. í lyfsölulögum nr. 30/1963 er talað um stofnun lyfjabúða og veitingu lyfsöluleyfis. Samkvæmt lyfsölulögum veitir forseti íslands heimild til stofnunar lyfjabúða og má stofnsetja þær þar sem þess gerist þörf að dómi ráð- herra, enda hafi hiutaðeigandi sveit- arstjórn æskt þess. Lyfjabúð má að jafnaði ekki stofnsetja annars stað- ar en þar, sem líkur er til að hún geti borið sig með eðlilegum rekstri. Ráðherra ákveður lyfjabúð stað og veitir leyfi til flutnings hennar að fengnum umsögnum fagfélaga lyf- sala og lyfjafræðinga. Leyfi til að reka lyfjabúð (lyfsölu- leyfi) verður aðeins veitt einstakl- ingi, sem uppfyllir skilyrði lyfsölu- laga, en þau eru: 1. íslenskur ríkisborgararéttur. 2. Lögræði og fjárforræði. 3. Andlegt og iíkamlegt heilbrigði. 4. Umsækjandi skal hafa lokið lyfja- fræðiprófi, sem metið er gilt hér á landi. 5. Umsækjandi skal hafa unnið í 12 mánuði sem lyfjafræðingur í lyfja- búð eða við lyfjagerð hér á landi. Víkja má frá þessu skilyrði þegar sérstakar ástæður mæla með því. 6. Heimilt er að synja manni um lyfsöluleyfi, ef ákvæði 2. mgr. 68. gr. almennra hegningarlaga eiga við um hagi hans. Eins og áður sagði, verður lyfsölu- leyfi aðeins veitt einstaklingi og er leyfishafa skylt að hlíta ákvæðum laga og stjórnvaldsreglna, svo sem þau eru á hverjum tíma, um rétt- arstöðu hans og starfshætti. Þegar veita á lyfsöluleyfi auglýsir ráðherra eftir umsóknum í öllum dagbiöðum og Lögbirtingablaði með 4 vikna fyrirvara. Umsóknir skal senda landlækni. Umsækjendum er veittur kostur á vitneskju um það, hverjir hafa sótt. Umsóknir skal leggja fyrir tveggja manna nefnd, sem í sitja fuiltrúar fagféiaganna, þ.e. Apótekarafélags Islands og Lyfjafræðingafélags íslands. Kjörtími nefndarmanna er 6 ár. Nefndin lætur landiækni í té rök- studda umsögn um þá umsækjendur, sem að hennar áliti eru hæfastir og skipar þeim í töluröð, en þó aðeins þremur hinum hæfustu, ef umsækj- endur eru þrír eða fleiri. Telji nefndin einhvern umsækjenda óhæf- an, skal hún geta þess. Landlæknir sendir því næst ráðherra rökstutt álit um það, hverja af umsækjendum hann telur hæfasta í töluröð, og skal umsögn nefndarinnar fylgja áliti hans. Að fengnum þessum umsögnum veitir ráðherra síðan lyfsöluleyfi. Samkvæmt ótvíræðum iagaboðum er því veitingavaldið í höndum ráðherra og ber hann enda einn stjórnvaldsábyrgð á leyfisveiting- unni. Nefnd fagmanna og landlækn- ir eru einungis umsagnaraðiiar, ráð- herra til ráðuneytis, og kemur hvergi fram í lögunum að álit þeirra eða röðun umsækjenda sé bindandi fyrir ráðherra. Hér fer á eftir yfirlit um veitingar iyfsöluleyfa frá því að heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið tók til starfa sem sjálfstætt ráðuneyti. Lyfsöluleyfi á Sauðárkróki 1970 Umsækjendur voru 5. Röðun: 1. A 2. B Leyfið veitt A. Lyfsoiuleyfi á Húsavík 1970 Umsækjendur voru 6. Röðun: 1. A 2.-3. B, C Leyfið veitt A. Lyfsöluleyfi á Siglufirði 1971 Einn umsækjandi gaf sig fram eftir að umsóknartími rann út og var honum veitt leyfið. Lyfsöluleyfi á ísafirði 1973 Umsækjendur voru 4. Röðun: nefnd landlækn. 1. A 1. A 2. B 3. C Leyfið veitt A. Lyfsöluleyfi á Biönduósi 1974 Einn umsækjandi gaf sig fram og var honum veitt leyfið. Lyfsöluleyfi i Norðurbæjarhverfi í Hafnarfirði Umsækjendur voru 3. Röðun: nefnd landlækn. 1. A 1. A 2. B 2. B 3. C 3. C A dró umsókn sína tii baka og var B veitt leyfið. Lyfsöluleyfi á Akranesi 1975 Umsækjendur voru 10. Röðun: nefnd iandlækn. 1. A 2. B 3. C B dró þá umsókn sína til baka og var þá raðað að nýju. nefnd landlækn. 1. A 1. C 2. C 2. A 3. D 3. D Leyfið veitt A. Lyfsöluleyfi í Vestm.eyjum 1975 Umsækjendur voru 4. Röðun: nefnd landlækn. 1. A 2. B 3. C Levfið veitt A. Lyfsöluleyfi í Stykkishólmi 1975 Umsækjendur voru 3. Röðun: nefnd landlækn. 1. A 2. B Leyfið veitt A. Lyfsöluleyfi í Rvík (Lyfjab. Iðunn) 1976 Umsækjendur voru 5. Röðun: nefnd landlækn. 1. A 1.-2. D, E 2. B 3.-4. A, B 3. C 5. C Leyfið veitt E. Lyfsöluleyfi á Egilsstöðum 1976 Umsækjendur voru 5. Röðun: nefnd landlækn. 1. A 1.-3. A, B, C 2. B 3. C Leyfið veitt B. Lyfsöluleyfi í Borgarnesi 1976 Umsækjendur voru 3. Röðun: nefnd landlækn. 1. A A 2. B B Leyfið veitt A. Lyfsöluleyfi 1 Neskaupstað 1976 Umsækjendur voru 3. Röðun: nefnd landlækn. 1. A 1. A 2. B 2. B 3. C 3. C Leyfið veitt B. Lyfsöluleyfi í Rvík (Ingólfsapótek) 1976 Umsækjendur voru 6. Röðun: nefnd landlækn. 1. A 1.-3/ A, B, C 2. B 3. C Leyfið veitt B. Lyísöluleyfi á Höfn i Hornafirði 1976 Umsækjendur voru 2. Röðun: nefnd landlækn. 1. A 1. A 2. B 2. B Leyfið veitt A. Lyfsöluleyfi á Bolungarvík 1977 Enginn umsækjandi gaf sig fram. Lyfsöluleyfi í Hveragerði 1977 Umsækjendur voru 3. Röðun: nefnd landlækn. 1. A 1.-2. A, B 2. B 3. C 3. C Leyfið veitt A. Lyfsöluleyfi í Keflavik 1978 Umsækjendur voru 10. Röðun: nefnd landlækn. 1. A 1.-2. A,B 2. B 3. C 3. C 4. D 4. D Leyfið veitt A. Lyfsöluleyfi í Mosfellssveit 1978 Umsækjendur voru 5. Röðun: nefnd landlækn. 1. A 1. A 2. B 2. B 3. C 3. C Leyfið veitt A. Lyfsöluleyfi á Hellu 1978 Einn umsækjandi gaf sig fram og var honum veitt leyfið. Staða forstöðumanns Selfossapóteks 1978 Umsækjendur voru 5. Röðun: nefnd 1. A 1. 2. B 2. 3. C 3. Leyfið veitt A. Lyfsöluleyfi á Seyðisfirði 1979 Engin umsókn barst, en þegar aug- lýst var aftur gaf einn umsækjandi sig fram og var honum veitt leyfið. Lyfsöluleyfi í Rvík (Holtsapótek) 1980 Umsækjendur voru 9 Röðun: nefnd 1. A 1.-3. 2. B 4.-5. 3. C Leyfið var veitt A. Samkvæmt yfirliti þessu hefur alls 24 sinnum verið veitt lyfsölu- leyfi frá stofnun ráðuneytisins. Þar af var aðeins einn umsækjandi fjórum sinnum og því í 20 tilvikum um það að ræða að velja þyrfti milli manna. Þar af hefur 14 sinnum verið farið eftir þeirri röðun sem nefndin og/eða landlæknir lögðu til, en sex sinnum hefur ráðherra kosið að velja annan til fimmta mann í landlækn. A, B, D C, E landlækn. A B C umsögnum áðurnefndra aðila, eða sem hér segir: 1. 5 sinnum 2. maður. 2. 1 sinni 5. maður í umsögn land- læknis, en sá komst ekki á blað í umsögn nefndarinnar. í eitt skipti af þeim fimm, sem ráðherra veitti 2. manni í umsögn nefndarinnar, hafði 1. maður dregið sig til baka. Þau 5 lyfsöluleyfi sem hér um ræðir eru sem hér segir: 1. 1971. Norðurbær, Hafnarfirði: 2. maður í umsögn nefndar. 2. 1976. Iðunn, Reykjavík: 5. maður í umsögn landlæknis. 3. 1976. Egilsstaðir: 2. maður í umsögn nefndarinnar. 4. 1976. Neskaupstaður: 2. maður í umsögn nefndarinnar. 5. 1981. Dalvík: 2. maður í umsögn nefndarinnar. Sú veiting lyfsöluleyfis sem hér um ræðir, einkum á Dalvík, styðst því í einu og öllu við venjur og lög eins og hér hefur verið sýnt fram á. Slíkt er hafið yfir allan efa. Þegar lyfsölulögin voru rædd á Alþingi 1963 mælti dr. Bjarni Bene- diktsson, dómsmálaráðherra, fyrir frumvarpinu, en þá voru heilbrigð- ismálin í dómsmálaráðuneytinu. Hann fjallaði í ræðu sinni um 7. grein lyfsölulaganna og sagði þá m.a.: „Að öðru leyti er um aðra sú meginregla að veitingavaldið er al- gjörlega frjálst um það hverjir leyfið fá.“ I umræðum á Alþingi kom fram að þeirri hugmynd hafði verið hreyft í nefnd, að skylda ráðherra til þess að veita einhverjum hinna þriggja umsækjenda, sem efst er raðað af nefndinni, lyfsöluleyfið. Ekki einu sinni sú hugmynd varð að þingskjali, hvað þá heldur að hún næði lengra. Enginn hreyfði þeirri hugmynd að ráðherra væri skylt að hlíta röðun nefndarinnar. Þvert á móti kom fram á Alþingi í umræðum veruleg andstaða við þau ákvæði laganna, að skylda nefndina til þess að raða umsækjendum. Þar var og á það bent að fráleitt væri í raun að hafa tveggja manna nefnd hagsmunaað- ila í þessu verki af margvíslegum ástæðum. Alfreð Gíslason, læknir, sat þá á Alþingi, og sagði meðal annars í umræðum um málið í efri deild Alþingis: „I 7. grein er fjallað um hvernig fara skuli með umsóknir þeirra, sem sækja um leyfi til að reka lyfjabúð. Þar er ákveðið að tveggja manna nefnd, skipuð af Lyfjafræðingafélagi íslands og Apótekarafélagi Isiands, skuli fjalla um umsóknirnar í fyrstu lotu. Nú er það út af fyrir sig galli að láta aðeins tvo menn fjalla um slíkar umsóknir, og það er enn meiri galli, hvernig þessi nefnd er skipuð, að hún er skipuð af þeim aðilum sem mestra hagsmuna hafa að gæta í sambandi við veitingu þessara leyfa. Það er mjög óheppilegt og hlýtur að reynast oft óþægilegt þeim, sem það

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.