Morgunblaðið - 13.03.1981, Side 22

Morgunblaðið - 13.03.1981, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1981 + Hjartkær móöir mín og dóttir, KRISTÍN ADALBJÖRNSDÓTTIR, Skólavörðustíg 24A, lést í Landspítalanum 12. marz. Kolbrún Karlsdóttir, Þorbjörg Grimsdóttir. t Faöir okkar, STEINGRÍMUR PÁLSSON, fyrrvarandi alþingismaöur, Brú, Hrútafiröi, lést í Borgarspítalanum 10. þ.m. Jaröarförin auglýst síöar. Halgi Steingrímsson, Hólmfríöur Steingrímsdóttir, Þórir Stoingrímsson. + Eiginkona mín, móöir okkar og dóttir, SIGRÍÐUR INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR, löufelli 8, lést í Borgarspítalanum miövikudaginn 11. marz. Garóar Karlsson, Agnes Garðarsdóttir, Jón S. Garöarsson, Agnes Oddgeirsdóttir. + Eiginkona mín, GUDRUN ÞORSTEINSDÓTTIR, Fólkagötu 12, Reykjavik, lést á Borgarspítalanum 12. marz 1981. Guójón Gíslason. + Sonur minn, bróöir okkar og mégur, EYJÓLFUR VIÐAR ÁGÚSTSSON, Bjólu, Rangórvallasýslu, lést í Borgarspítalanum hinn 11. mars sl. Ingveldur J. Jónsdóttir, Jón I. Ágústsson, Einar Ó. Ágústsson, Arnþór Ágústsson, Svava Ágústsdóttir, Guöbjartur Ágústsson, Ingvar Ágústsson, Sssmundur B. Ágústsson, Ragnhildur Kristófersdóttir, Jóna K. Siguröardóttir, Guöríöur Bjarnadóttir, Hrafnkell Ársælsson, Ragnhildur Pólsdóttir, Elinborg Siguröardóttir, Svanborg Jónsdóttir. + Þökkum innilega auösýnda samúö við fráfall og jaröarför fööur okkar, tengdafööur og afa, LOFTS A. BJARNASONAR. Börn, tengdabörn og barnabörn. Hjónaminning: Magnús Jóhannes- son og Margrét Ama dóttir frá Alviðru Hinn 17. desember sl. andaðist vinur minn Magnús Jóhannesson frá Alviðru, að dvalarheimili aldr- aðra á Hellu. Magnús fæddist 9. desember 1890 að Skarfanesi í Landssveit. Hann var sonur hjónanna Jóhann- esar Magnússonar (móðir Jóhann- esar var hin kunna Sigríður í Skarfanesi) og Þorbjargar Jó- hannesdóttur á Skriðufelli, Jóns- sonar bónda að Vælugerði í Flóa, f. 1808, Árnasonar bónda að Hlíð undir Eyjafjöllum, f. 1769 Bjarna- sonar bónda þar, f. 1726, Árnason- ar bónda þar, f. 1688, Ólafssonar bónda þar, f. um 1650, Höskulds- sonar Hannessonar Chrumbeck, er var enskur maður og bjó að Lambafelli undir Eyjafjöllum nokkru eftir aldamótin 1600. Þau Þorbjörg og Jóhannes byrjuðu sinn búskap að Skarfanesi í Landssveit 1888 eða '89 og þar eignuðust þau 2 börn, Magnús og Sigríði Guðrúnu, þaðan flytja þau að Þjórsárholti í Gnúpverjahreppi og búa þar til vorsins 1904, en slitu þá samvistum. Þorbjörg fór þá að Skriðufelli, en Jóhannes fór vestur á Snæfellsnes að Knerri í Breiðu- vík, börn þeirra Magnús og Sigríð- ur Guðrún fóru með föður sínum vestur svo og Ingvar Jónsson, er ólst upp hjá Jóhannesi, einnig fór með þeim ung kona Ingveldur Jónsdóttir frá Geldingaholti, en þau Jóhannes giftust síðar. Að Knerri dvöldu þau í 2 ár, en flytja vorið 1906 að Dal í Miklaholts- hreppi og búa þar til vorsins 1911, en þá flytja þau aftur austur í Árnessýslu að Úthlíð í Biskups- tungnahreppi, en um líkt leyti fór Sigríður Guðrún að búa með Elíasi Kristjánssyni að Arnar- tungu en þau fluttu fljótlega að Elliða og búa þar til þess að hún andaðist 1928. Að Úthlíð búa þau hjón Jóhannes og Ingveldur, ásamt dóttur sem þau áttu, Ing- unni Jónu, Magnúsi og Ingvari, en að Úthlíð eignuðust þau soninn Ragnar, f. 1913 d. 1953. Frá Úthlíð flytja þau vorið 1914 að Laugar- bökkum í ölfusi og búa þar til vorsins 1927, en þá skildu leiðir, hjónin fluttu frá Laugarbökkum til Reykjavíkur, en Magnús flytur vestur að Elliða til systur sinnar, en Þorbjörg móðir þeirra systkina dó þar það vor, en hún bjó þá hjá Sigríði Guðrúnu að EUiða. Þor- björg var jarðsett að Staðarstað, einnig var Sigríður Guðrún jarð- sett þar, en hún andaðist árinu eftir, aðeins 40 ára gömul. Magnús dvaldi að Elliða fram á fyrri part vetrar, en flytur þá til Reykjavík- ur og vann mest við byggingar- vinnu, en hann fékk síðar iðnbréf í þeirri grein. Árið 1929 gekk Magnús í hjóna- band með nágrannakonu sinni að austan, Margréti Árnadóttur í Alviðru, en hennar forfeður voru búnir að búa í Alviðru í langan tíma eða allt frá því að Þorvaldur Þorsteinsson kemur þar fyrst. Þorvaldur var Mýramaður, fór ráðsmaður að Botni í Meðallandi til ekkjunnar Guðríðar Vigfús- dóttur er þar bjó eftir 1761. Þau bjuggu þar góðu búi, en Guðríður dó 1774. Þorvaldur bjó þar áfram við rausn til þess er Skaftáreld- arnir brutust út og Botn varð eldinum að bráð, fór þá Þorvaldur vestur á bóginn, fyrst að Hafursey og var þar í um 2 ár, en síðan áfram vestur í Selvog, þar sem hann fékk Hlíð til ábúðar og bjó þar í 4—5 ár, en um það leyti var verið að selja jarðir Skálholts- stóls. Á einu slíku jarðauppboði í Bakkárholti keypti hann Álviðru og flutti þangað 1788 eða ’89. Eftir hans daga þar bjó dóttir hans Sigríður með manni sínum Helga Árnasyni eða frá 1824 til þess er Árni sonur þeirra tók við og bjó þar með konu sinni Þuríði Sigurð- ardóttur til vorsins 1881 er við tók sonur þeirra Jón og bjó þar með + Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför, ARA Ó. THORLACIUS, endurakoöanda. Aöatandendur. + Viö þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúö viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, GUÐLAUGAR BRYNJÓLFSDÓTTUR, Granaskjóli 7, Reykjavík. Þorateinn Ingólfaaon, Maríanna Mortenaen, Elln Ingólfadóttir, Þorgeir K. Þorgeiraaon, Auður Ingólfsdóttir, Þór Halldórsson, Svsrrir Ingólfsson, Lilly Svava Snævarr og barnabörn. + Jaröarför móöur okkar, tengdamóöur oa ömmu, SIGRÍÐAR ÓLAFSDOTTUR, Þórkötlustööum, Grindavtk, fer fram frá Grindavíkurkirkju, laugardaginn 14. mars kl. 2.00. Blóm vinsamlegast afþökkuö. Ólafur Guömundsson, Guórún Ólafsdóttir, Kristín Guömundsdóttir, Kristján Sigmundsson, Hulda Guömundsdóttir, Ágúst Guójónsson og barnabörn. + Þökkum auösýnda samúö viö andlát og útför bróöur okkar og fósturbróöur, INGVARS ÁGÚSTS STEFÁNSSONAR. Mélfríöur Stefénsdóttir, Stafanfa Ottesen, Júnfa Stefénsdóttir. konu sinni Margréti Sigurðardótt- ur til þess er hann dó vorið 1900, 50 ára gamall. Margrét hélt þá áfram búskap, en hún andaðist veturinn eftir, aðeins 43 ára göm- ul. Eldri börn þeirra héldu þá áfram búskap þar og veitti elsti sonurinn Árni, heimilinu forustu, 21 árs gamall. Skömmu síðar kom Sigrún Sigurðardóttir frá Tanna- stöðum ráðskona til Árna og áttu þau saman eina dóttur Margréti, f. 1904, ennfremur áttu þau son er dó sem kornabarn. Margrét ólst upp í foreldrahúsum, fór nokkuð í skóla áður en hún giftist Magnúsi, en þau áttu sitt fyrsta heimili í Reykjavík þar til að þau fluttu austur að Alviðru 1940. Eftir komuna þangað vann Magnús að búi tengdaforeldra sinna eða í byggingarvinnu, en þau eignuðust brátt hluta búsins og unnu þar í samvinnu við Árna og Sigrúnu til dánardægurs þeirra, en þau létust á sama árinu, 1966, Sigrún 11 maí, þá 93 ára gömul, en Árni 6. október, þá 86 ára gamall. Eftir lát þeirra búa þau ein, en í ágústmánuði 1968 veiktist Mar- grét og lá oft sárþjáð og andaðist á Landspítaianum 18. desember 1968 og var jarðsett við hlið foreldra sinn að Kotströnd 28. desember. Ljúft er mér að minnast þessa góða fólks er sat Alviðru yfir 60 ár með sóma og rausn. Árni var um margt forustumaður, meðal ann- ars hóf hann fyrstur manna þar um slóðir fiskeldi eða árið 1921 og hélt því áfram til ársins 1945. Rétt er að geta þess að einn þáttur Alviðrumanna var að ferja á Soginu, en það lagðist af er Sogið var brúað 1905. í langan aldur hefur Alviðra verið í þjóðbraut og gestrisni þar mikil, svo var þar og áfram í tíð Margrétar og Magnús- ar. Eftir lát Margrétar er Magnús nú einn eftir í Alviðru, háaldraður eða 78 ára gamall og eru flestir hættir öllu veraldarvafstri á þeim aldri, en það átti nú ekki við Magnús og hélt hann áfram bú- skap, en sá fljótlega að það var honum ofraun og fargaði hann fénaði sínum smátt og smátt og var fátt eitt eftir, er hann fór frá Alviðru og sagði jörðinni lausri, en nokkru áður hafði hann gefið Árnessýslu og samtökum er nefna sig Landvernd, jörðina Alviðru ásamt húsum og stórri landspildu úr landi öndverðarness. Ég hefi nú drepið á smáþætti um forfeður og líf þessara vina minna í Alviðru er ég kynntist mjög vel, en mest þó Magnúsi sem mér er ljúft að minnast. Nokkru eftir lát Margrétar stofnaði hann sjóð er ber nafn hennar og skal varið til líknarmála. Magnús var mikill vinnumaður. í Alviðru ræsti hann landið og ræktaði og í hans tíð voru öll hús endurbyggð. Þær miklu breytingar er urðu hér á landi á öllu þjóðlífi okkar fóru vissulega ekki framhjá Magnúsi, og var það hans líf og yndi að geta átt ný og góð tæki til að létta störfin og hafði hann þrátt fyrir háan aldur ótrúlega leikni í stjórnun þeirra. Magnús var fróð- ur og mundi hann vissulega tím- anna tvenna frá sárustu fátækt til auðs og allsnægta, hann var hjálp- samur og góðru granni nágranna sinna, höfðingslyndur, en skapið stórt og erfitt til sátta ef honum fannst sér misboðið. Þá er hann ákvað að fara frá Alviðru, þá held ég að hann hafi ekki gert sér ljóst hve mikill einstæðingur hann var í raun, né valið bestu leiðina til dvalar og hann gerði sér ábyggilega ekki ljóst hve mikið hann var bundinn þeim stað í vöku og svefni og meir og meir eftir því sem hann fjarlægðist sínu fagra umhverfi í Alviðru og góðu grönnunum þar. Það kom mér ekki á óvart að hann valdi sinn hvílustað í nálægð ömmu sinnar á Skarði í Lands- sveit, sú ákvörðun var gömul. Að lokum, fátt fyrirleit Magnús meir en alla smámennsku og harma ég vissulega að vita ekki um hans útfarardag. Frá vinum og kunningjum hans færi ég því góða fólki er annaðist hann og létti honum síðustu stundirnar kærar þakkir. Egill Guðjónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.